Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 13

Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 13
13 fræðum. Á vegum stofnunarinnar og að nokkru leyti í samvinnu við aðra hefur mikið þjóðfræðaefni ver- ið hljóðritað á segulbönd í öllum sveitum landsins og einnig í íslend- ingabyggðum vestan hafs. Þetta efni er rímnakveðskapur og annar þjóðlagasöngur og talað mál, bund- ið og óbundið, einkum þulur, ævin- týri og hvers kyns þjóðsögur. Nærri lætur að stofnunin eigi nú eða varð- veiti 1.500 klukkustunda segul- bandsupptökur með efni af þessu tagi. Árið 1985 var hafist handa um að flytja þetta mikla efni yfir á geymslubönd. Sú færsla gengur vel, og hún er mjög mikilvæg fyrir varðveislu efnisins og notkun þess. Útgáfur Eitt aðalverkefni Árnastofnunar er útgáfa íslenskra texta frá fyrri öldum, þegar ritverk dreifðust og varðveittust í handritum. Miðaldarit sem út eru gefin hafa flest verið prentuð áður, en fyrri útgáfur þeirra ekki verið fullnægj- andi, og frá öldunum eftir siðbreyt- ingu eru varðveitt fjölmörg íslensk rit, frumsamin og þýdd, sem aldrei hafa verið prentuð. Tiltölulega fá rit frá því fyrir 1800, og nær engin miðaldarit nema fombréf, eru varðveitt í frum- riti; þau em til okkar komin í mis- gömlum eftirritum, oft fjölmörgum. Viðfangsefni útgefanda er m.a. að leitast við að komast sem næst upphaflegum texta, og til þess þarf hann að rannsaka skyldleika allra handrita og gera grein fyrir honum. Síðan er prentaður texti eins hand- rits (eða fleiri, ef munur handrita er mjög mikill), en neðanmáls eru prentuð lesbrigði, þ.e.a.s. orðalags- munur annarra handrita sama texta, sem hafa sjálfstætt gildi. Þegar unnið er að slíkum útgáfum þarf oftast að smala saman handrit- um eða ljósmyndum handrita úr mörgum söfnum, og útgáfustarfið er mikið nákvæmnisverk og sein- unnið. Vísindalegar textaútgáfur eru að öllum jafnaði með stafsetningu þeirra handrita sem prentað er eft- ir. Þær eru því ekki fjarska aðgengi- legar almenningi, þó að hver MORGUnÍlAÐID IÁ'l'lGA'RÚÁGUR 54. JÚNÍ 1*989 íslenskur lesandi geti í rauninni les- ið þær sér til fróðleiks og ánægju. Þessar útgáfur eiga að vera grund- vallarrit fræðimanna sem um texta þeirra fyalla í málfræði, bókmennta- fræði eða sagnfræði og jafnframt þeirra sem búa til prentunar aðrar útgáfur sömu texta með sam- ræmdri stafsetningu, ætlaðar nem- endum og almenningi. Árnastofnun hefur einnig gefið út ljósprent nokkurra handrita, sum þeirra á eigin vegum í ritröðinni, Islensk handrit, en önnur hafa ver- ið gefin út litprentuð í samvinnu við bókaforlagið Lögberg í flokkn- um íslensk miðaldahandrit. Handritafræði og textarannsóknir Rannsóknir á handritum eru sjaldnast takmarkaðar við texta þeirra. Reynt er að grafast fyrir um aldur handritanna, uppruna þeirra og feril með könnun á stafa- gerð og stafsetningu, samanburði við rithendur annarra handrita og leit að fólki sem stundum er nefnt á titilblöðum eða í spássíukroti. Handritalýsingar, sem m.a. taka til þessara atriða, eru venjulega hluti af inngangi fyrir textaútgáfu og ljósprentun. Sérrannsóknir á þessu sviði birtast einnig í safnriti stofn- unarinnar, Griplu, sem sex bindi eru komin af, og þar birtast einnig ritgerðir um íslenska málfræði, sögu og bókmenntir. Ritgerðir af síðasttalda sviðinu hafa einnig birst sjálfstæðar í ritroð Ámastofnunar. Handritasýningar Frá því að fyrstu handritin bár- ust frá Danmörku hefur Ámastofn- un haldið reglulegar handritasýn- ingar í húsakynnum sínum. Þær hafa verið opnar almenningi þrjá daga í viku að sumrinu og auk þess verið settar upp að vetrinum fyrir skólanemendur á öllum aldri og aðra hópa sem þess hafa óskað. Erlendir gestir koma á stofnunina á öllum árstímum og fá þar fræðslu um íslenskan menningararf. Ljósmyndir úr handritum og fræðsluefni um þau hafa verið léð til sýningar víða um lönd og í ör- fáum tilvikum hafa íslensk handrit verið léð á sýningar erlendis. Samskipti við stúdenta Sérfræðingar Árnastofnunar hafa ekki kennsluskyldu, en á síðustu árum hafa þeir innt af hönd- um kennslu í þjóðfræðum, sagn- fræði, bókmenntum fyrri alda, textarýni og handritalestri, enda hefur þeim stúdentum farið fjölg- andi, sem leggja sig eftir íslenskum fræðum fyrri alda. Ýmsir þessara stúdenta koma í Árnastofnun til þess að nota þar handrit, handrita- myndir og bókakost vegna verkefna sinna og leita leiðbeininga hjá starfsmönnum. Menningarmiðstöð Islensk fræði, einkum þau sem varða miðaldabókmenntir okkar, eru stunduð við fjölmarga erlenda háskóla. Fólk frá mörgum þessara skóla hefur sótt Ámastofnun heim og setið þar við störf sín nokkrar vikur, mánuði eða ár. Flestir þess- ara gesta eru frá Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku, en þeir hafa einnig komið frá fjarlægari löndum svo sem Japan, Nýja-Sjálandi og ísrael. Sumir þessara erlendu gesta hafa haft rit í smíðum, sem þeir hafa boðið Árnastofnun til útgáfu, cg sama máli gegnir um nokkra íslenska fræðimenn sem eru ótengdir stofnuninni. Slík boð hafa oftar en ekki verið þegin, enda hef- ur verið litið svo á að stofnunin hefði skyldum að gegna við íslensk fræði hvar í heiminum sem þau em stunduð, þó að slíku fylgi oft ærið starf og kostnaður og það tefji fyr- ir vinnu starfsmanna að eigin verk- efnum. Stofnun Áma Magnússonar á íslandi varðveitir þau handrit sem íslendingar kalla oft dýrmætasta menningararf sinn. Þennan arf ber stofnuninni að ávaxta og kynna með starfi sínu. Jafnframt er Árna- stofnun alþjóðleg rannsóknastofn- un sem tengist íslensku fræðastarfi víða um heimsbyggðina. Viður- kenningar á þessu tvíþætta hlut- verki stofnunarinnar mætti sjá meiri stað í fjárveitingum til hennar. Höfundur erhandritafræðingur. FIÐLUTÓNAR Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Böðvar Bjarki: TVEIR DRENG- IR. Alvitra 1988. Tveir drengir Böðvars Bjarka er sérkennilegt ferðaljóð sem greinir frá ferð tveggja manna um fram- andi lönd. Annar er fíðlungur og reyndar minnir ljóðið stundum á danskvæði: Og ég man hversu angurværir tónar fiðlunnar voru yfir höfði mínu sveittu hvemig þeir seiddu stúlkumar bústnar og mjaðmamiklar inn í ijóðrið til þín fiðlan þagnaði skamma stund þöp svo hófst leikur á ný óþijótandi aftur og aftur Siskó á flækingi, Pétur Gautur og Hans Vöggur eru meðal bók- menntalegra tilvísana í ljóðinu. Það er semsagt brugðið upp ýmsum myndum, sumum ævintýralegum úr ferðalaginu, enda víða komið við, m. a. hjá skáeygum mönnum og Ungverjum og í leikhúsi þar sem allir áhorfendur eru þverskornir á háls. Þegar komið er á leiðarenda Böðvar Bjarki þekkir lesandinn sviðið: Krían er ekki komin í hólmann og engin inn- lend sönglist er til „nema falskur rímnasöngur". Tveir drengir eftir Böðvar Bjarka er eins konar æfing í ljóðagerð, verkar ekki beinlínis sannfærandi á undirritaðan lesanda, en sýnir að höfundurinn á til hugkvæmni og getur komist laglega að orði. Ferða- saga hans er að hefjast. Námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild RKÍ hefur námskeið í skyndihjálp þriðju- daginn 27. júní klukkan 20 og stendur það í fímm kvöld. Námskeiðið verður haldið á Öldugötu 4. Öllum 15 ára og eldri er heimil þátttaka. Aðeins 15 kom- ast á námskeiðið. Leiðbeinandi verður Guðlaugur Leósson. Á námskeiðinu verður kennt hjartahnoð. Fyrsta hjálp við bruna, kali og eitrunum. Einnig verður kennd meðferð helstu beinbrota og stöðvun blæðinga úr sárum og margt fleira. Sýndar verða myndir um slys. (Úr fréttatilkynningu) Siglingar á Rauðavatni í SUMAR mun siglingaaðstaða íþrótta- og tómstundaráðs á Rauðavatni fyrir almenning verða opin almenningi á eftirfarandi tímum: Þriðjudögum klukkan 16-16.30, fimmtudögum klukkan 16-18.30, laugardögum klukkan 13-17. Afnot af bátum og björgunarvest- Um er okeypis. (Fréttatilkynning) FALLEGUR OG FREISTANDI Globuse Lágmúla 5, sími 681555. Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér Citroén AX árgerð 1989 á tilboðsverði. Ódýrasta gerðin er uppseld, nokkrir bílar eru eftir af öðrum gerðum, allt að 72 þúsund króna afsláttur. Citroén AX hefur unnið hug og hjörtu eigenda sinna, jafnt á íslandi sem annars staðar. Skoðanakönnun Hagvangs sýnir að íslenskir kaupendur (93% aðspurðra)eru hæstánægðir með AX-inn sinn. Enda er hann bæði sprækur og sparneytinn fjölskyldubíll á verði sem erfitt er að keppa við. Og ekki spillir franskt og freistandi útlitið. Ódýrasta gerðin sem við eigum núna(AX11TRE) kostar aðeins 510.000 kr Eigum einnig nokkra AX sportbíla á mjög góðu verði. Greiðslukjör við allra hæfi. Opið í dag kl. 1 - 5. CITROEN M ÁRGERE) 1989 Á SUMARTILBOÐI!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.