Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989
21
Perú:
Vargas Llosa hættir
við forsetaframboð
Lima. Reuter.
MARIO Vargas Llosa, kunnasti rithöfimdur Perúmanna og frambjóð-
andi hægrimanna í væntanlegum forsetakosningum, tilkynnti á
fimmtudag, öllum að óvörum, að hann væri hættur við framboðið.
Hefur þessi ákvörðun valdið ringulreið meðal stuðningsmanna hans
en Vargas Llosa ber við mikilli óeiningu innan Lýðræðisfylkingarinn-
ar, sem er bandalag mið- og hægriflokka.
Forsetakosn-
ingar verða í Perú
eftir tæpa tíu
mánuði og voru
hægrimenn farnir
að gera sér vonir
um að ná aftur
völdunum eftir
fjögurra ára
stjórnartíma mið- Vargas Llosa
og vinstriflokka undir forsæti Alans
Garcia. Í skoðanakönnunum að
undanförnu hefur Vargas Llosa
haft umtalsverða yfirburði yfir aðra
frambjóðendur en næstur honum
hefur komið marxistinn Alfonso
Barrantes, fyrrum borgarstjóri í
höfuðborginni Lima.
Vargas Llosa hafði lengi ýmug-
ust á stjórnmálunum en svo fór þó,
að hann leiddi baráttuna gegn til-
raunum Garcia forseta til að þjóð-
nýta bankakerfið. Frambjóðandi
Lýðræðisfylkingarinnar var hann
kjörinn 4. júní sl. í afsagnarbréfinu
segist hann halda, að dagar fylking-
arinnar séu taldir og kennir um
smásmugulegu þrasi og óeiningu
meðal forystumannanna. Nefndi
hann engin nöfn en samt er talið,
að hann hafi einkum verið að beina
spjótum sínum að Fernando Be-
launde Terry, fyrrum forseta og
einum helsta leiðtoga hægrimanna
um áratugaskeið. Telja fréttaskýr-
endur, að Belaunde Terry hafi sjálf-
ur hug á að verða í framboði enn
einu sinni.
Dollari lækkar
London. Reuter.
GENGI Bandaríkjadollara lækk-
aði nokkuð í gær og ríkir mikil
óvissa um framlialdið. Bendir þó
margt til, að leiðin muni liggja
heldur niður á við á næstunni.
Það, sem einkum olli gengisfall-
inu í gær, voru fréttir um, að pant-
anir á vamingi öðrum en venjuleg-
um neysluvömm hefðu minnkað um
4,2% í maí en það sýnir, að dregið
hefur úr þenslu í bandarísku efna-
hagslífi.
Spáð lækkun olíu
London. Reuter.
Offramleiðsla og minni eftir-
spurn en búist hefur verið við
munu verða til að lækka olíu-
verðið á næsta ári. Er þetta spá
óháðrar, breskrar efhahagsstofh-
unar.
Starfsmenn bresku stofnunar-
innar „Economist Intelligence Unit“
telja, að meðalverðið fyrir hvert fat
af Brent-olíu úr Norðursjó verði 16
Bandaríkjadollarar á næsta ári en
það hefur verið 17,30 dollarar það
sem af er þessu.
Segja þeir, að verðhækkunin að
undanfömu stafi ekki af aðgerðum
OPEC, Samtaka olíuútflutnings-
ríkja, heldur af þeim áföllum, sem
orðið hafi í olíuiðnaðinum, til dæm-
is í Alaska. Þá bendi ekkert til, að
eftirspurnin eigi eftir að aukast
mikið og svo komi það til, að OPEC
hefur nú ákveðið að hækka fram-
leiðslukvótann úr 18,5 í 19,5 millj-
ónir olíufata á dag.
Bretland:
Flugbanni af-
léttaf Boeing
737-400
London, Brussel. Reuter.
BRESKA flugmálastjómin (CAA)
aflétti að kvöldi 20. júní flug-
banni, sem það setti 12 Boeing
737-400 þotur breskra flugfélaga
í 12. júní sl. vegna hreyfilbilana.
Krafðist stofhunin þess að hreyfl-
um þotnanna yrði breytt.
í tilkynningu CAA sagði að eftir-
lit með hreyflum Boeing 737-400
þotna yrði aukið. Búist er við að
breytingum á hreyflum bresku flug-
vélanna ljúki í vikunni.
Ceausescu, forseti Rúmeníu, ásamt Elenu konu sinni, en hvað persónudýrkun varðar gefur hún
bónda sínum lítt eftir.
Rúmenía:
Eymdin í ríki Ceausescus
verður ekki orðum aukin
MARGIR velta þvi fyrir sér hvort Rúmenía geti verið jafii ömurlegt
land og af er látið. En í ríki þar sem refsivert er að ræða við útlend-
inga er fátt um svör. Sá sem sækir landið heim kemst þó fljótlega
að því að erfitt er að ýlqa ömurleikann í Rúmeníu. Þar er þó margt
sem kemur á óvart.
Alkunna er að matvöruverslanir
eru tómar. Þar fæst ekkert nema
myglað brauð og súrsað grænmeti.
Mikið af matvælaframleiðslunni er
flutt úr landi en allri dreifingu inn-
anlands er stjórnað af svarta mark-
aðnum. Allir Rúmenar vita að vör-
urnar hverfa bakdyramegin. Þótt
það teljist glæpur að eiga erlendan
gjaldeyri þá eru peningavíxlarar
alls staðar og þeir eiga nóg af
Bandaríkjadölum sem þeir kaupa á
tífoldu verði öpinberra banka. Við-
skipti við ferðamenn eru einkum
með Kent-sígarettur, engin önnur
tegund er gjaldgeng, þótt enginn
viti hvers vegna.
Fréttamenn fá yfirleitt ekki
vegabréfsáritanir til Rúmeníu en
„ferðamenn" geta fengið áritanir,
leigt sér bílaleigubíla og ferðast
um landið að vild. Við þjóðvegina
er flöldi eftirlitsstöðva hersins en
enginn hirðir um að stöðva þar.
En rúmenska öryggislögreglan
(Securitate) lætur ekki að sér
hæða. Taki hún upp á því að fylgj-
ast með grunsamlegum vestur-
landabúa klæðast útsendarar henn-
ar Humphrey Bogart rykfrökkum
og setja upp sólgleraugu, sama
hvemig viðrar.
Oryggislögreglan gætir einnig
heimila um 30 rithöfunda og fyrr-
um flokksmanna sem hafa andæft
opinberlega. Ef gest ber að garði,
stöðvar óeinkennisklæddur lög-
regluþjónn hann, annar tekur
nokkrar myndir og sá þriðji hefur
talstöðvarsamband við höfuðstöðv-
ar lögreglunnar. Slíkar móttökur
fékk breski sendiherrann fyrr á
þessu ári, þegar hann gerði tilraun
til að heimsækja andófsmann.
Það er einkum tvennt sem hefur
vakið athygli á bijálsemi Ceausescu
Rúmeníuforseta. Áætlanir um eyð-
ingu fjölmargra þorpa og endur-
greiðsla erlendra skulda. Skipu-
lagslögin miða að því að flytja tvær
milljónir manna í fjölbýlishús og
jafna sexþúsund þorp við jörðu. A
síðasta ári lýstu Ungveijar yfir
áhyggjum sínum af framtlð ung-
verskumælandi þorpsbúa í Tran-
sylvaníu. Svo virðist sem aðeins
eitt eða tvö þessara þorpa hafí
verið rifin niður, en næstum öll
þorp í nágrenni höfuðborgarinnar,
Búkarest, hafa verið jöfnuð við
jörðu. Áhrifa þess gætir í borginni
þar sem heilu íbúðargötumar
skipta um svip þegar ný fjölbýlis-
hús rísa. Sumirtelja ástæðu áhersl-
unnar á Búkarest sem miðpunkt
landsins vera þá að Ceausescu
sjálfur fer sjaldan út fyrir borgar-
mörkin.
Ceausescu hefur greitt flestar
erlendar skuldir landsins en ekki
allar eins og hann stærði sig af,
þegar vestræn ríki þrýstu mjög á
Rúmena um að bæta ástand mann-
réttindamála í landinu. Litið var á
yfírlýsingu hans um greiðslu skuld-
anna og bann við nýjum erlendum
lántökum, sem leið til að sýna að
hann væri óháður Vesturlöndum. Á
sama tíma reyndi hann þó að koma
sér í mjúkinn hjá Bandaríkjamönn-
um í von um bætt viðskiptakjör.
Sumir segja að hvergi í sögu
kommúnismans hafí verið búin til
jafn mikil persónudýrkun og í kring
um Ceausescu. En þótt myndir af
honum skreyti allar opinberar
byggingar þá virðist hann ekki
vekja neinar tilfinningar í bijóstum
Rúmena né heldur er virðing borin
fyrir honum. Rúmenar skæla sig í
framan og ranghvolfa augunum
þegar minnst er á Ceausescu og
m.a. hefur sést til miðstjómar-
manna glugga í tímarit undir ræð-
um hans. Vestrænir menn, búsettir
í Búkarest telja að Ceausescu og
hans menn haldi völdum með
stuðningi öryggislögreglunnar og
að þegar hann fari frá muni ráða-
menn „Securitate" velja eftirmann
hans.
Ef til vill fer betri tími í hönd,
nú þegar erfíðar skuldagreiðslur
eru að baki. Nægir peningar eru
til, ef Ceausescu vildi byggja upp
innanlanas eða bæta lífsskilyrðin.
En hann hefur hins vegar sagst
vilja auka útflutning til ríkja þriðja
heimsins. Sumir segja að það sé
ekki óviðeigandi því svo virðist sem
Ceausescu hafi flutt Rúmeníu til á
landakortinu, frá Evrópu inn i
þriðja heiminn.
Heimild: The Economist.
Verð kr.
staðgreitt.
COMBI CAMP er á fjaðrabúnaði,
10 tommu hjólbörðum,
sérhönnuðum íslenskum undir
vagni fyrir íslenskar aðstæður.
COMBI CAMP hefur 3 rúmmetra
lokað geymslurými.
COMBI CAMP er á
hagstæðu verði og kjörum,
Líttu við hjá okkur um helgina
því sjón er sögu ríkari.
COMBLGAIVIP
Easy