Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ'1989 * > SAA: Þórarínn endurlgör- inn formaður S AA Reikningar samtakanna samþykktir effcir töluverðar umræður AÐALFUNDUR Samtaka áhugafólks um áfengisvandamálið var hald- inn fyrir skömmu. Þar urðu töluverðar umræður um reikninga samtak- anna, en endurskoðandi SÁÁ segir ekkert hafa komið fram í bók- haldinu, sem gefi tilefiii til að ætla að um fjárdrátt eða misferli hafi þar verið að ræða. Reikningarnir voru samþykktir eins og þeir voru lagðir'fram. Þórarinn Tyrfingsson hefur verið endurkjörinn formaður 1 samtakanna. Bókhald SÁÁ hefur nú verið fært inn í stofnunina, en var áður fært af bókhaldsfyrirtæki utan hennar. Guðmundur Friðrik Sigurðsson, löggiltur endurskoðandi, hefur séð um endurskipulag bókhaldsins og haft eftirlit með því. Hann vildi í samtali við Morgunblaðið lítið tjá sig um þetta mál. Hann sagði þó, að fyrirtæki hans færði ekki bókhaldið fyrir SÁÁ, heldur hefði haft umsjón með lagfæringum á færslu þess og flutningi utan úr bæ inn á stofnun- ina. Nauðsynlegt væri að innra eftir- lit með bókhaldinu væri virkt og það GENGISSKRÁNING Nr. 117 23. júni 1989 Kr. Kr. Toll- Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi Dollari 58,19000 58,35000 57.34000 Sterlp. 90,27000 90,51800 89,96600 Kan. dollari 48.81900 48.95300 47.63600 Dönsk kr. 7.64150 7,66250 7,32550 Norsk kr. 8,16820 8,19060 7,92650 Sænsk kr. 8,79000 8.81420 8,49990 Fi. mark 13,31580 13,35240 12,82770 Fr. franki 8,76220 8,78630 8.43050 Belg. franki 1,42190 1,42580 1.36250 Sv. franki 34,46870 34.5634 32,66310 Holl. gyliini 26,40020 26,47280 25,31180 V-þ. mark 29.72370 29,80540 28.52740 ít. líra 0.04099 0,04110 0.03949 Austurr. sch. 4.22510 4,23670 4,05270 Port. escudo 0,35580 0,35680 0.34570 Sp. peseti . 0,46650 0.46780 0,45250 Jap. ýen 0.41446 0,41560 0,40203 írskt pund 79,33300 79,55100 76,25600 SDR (Sérst.) 72.80730 73,00750 71,01270 ECU, evr.m. 61,47770 61.64680 59.35550 Tollgengi fyrir júní er sölugengi 29. mai. Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70. tæki tíma og þjálfun starfsfólks til að það eftirlit yrði fullnægjandi. Hann sagði að ekkert hefði komið fram, sem gæfi tilefni til að ætla að um fjárdrátt eða misferli hefði verið að ræða, en í ljós hefði komið að ýmislegt hefði mátt betur fara. Sú umræða um bókhaldið, sem fram hefði farið í fjölmiðlum, væri fyrir- tæki sínu með öllu óviðkomandi. Hún væri frá öðrum komin. Á aðalfundinum voru eftirtaidir 12 fulltrúar kosnir til að taka sæti í 36 manna stjórn og 5 til vara: Davíð Kristjánsson, Eyjólfur R. Ey- jólfsson, Guðmundur J. Guðmunds- son, Hermann Ástvaldsson, Ingjald- ur Amþórsson, Jón Steinar Gunn- laugsson, Magnús Bjarnfreðsson, Már Gunnarsson, Olafur Friðfinns- son, Sigurður G. Tómasson, Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson og Þórarinn Þorkell Jónsson. Til vara voru kosin Ingibergur Helgason, Ingólfur Krist- mundsson, Jóhann Om Héðinsson, María Sigurðardóttir og Úlfar S. Ágústsson. Á fundi aðalstjórnar var Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir síðan ein- róma kjörinn formaður samtakanna, en auk hans voru eftirtaldir stjómar- menn kjömir til starfa í fram- kvæmdastjórn: Þráinn Bertelsson, varaformaður, Þorkell Jónsson, gjaldkeri, Bjarni Ólafsson, ritari og Friðrik Theodórsson meðstjórnandi. Til var vom kosin Gunnar Kvaran, Jóhanna Gunnþórsdóttir og Kolbrún Jónsdóttir. Framkvæmdastjóri SÁA er Jón Baldvinsson. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 23. júní. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 64,00 59,00 60,63 4,173 252.981 Þorskur(smár) 30,00 30,00 30,00 0,090 2.685 Ýsa 103,00 70,00 78,07 1,271 99.228 Karfi 36,00 36,00 36,00 0,908 32.670 Ufsi 33,00 15,00 27,60 0,964 26.610 Steinbítur 44,00 40,00 41,25 1,006 41.497 Langa 42,00 42,00 42,00 0,488 20.475 Lúða 245,00 100,00 231,86 0,328 76.053 Koli 49,00 49,00 49,00 1,027 50.323 Skata 71,00 71,00 71,00 0,055 3.906 Skötuselur 120,00 110,00 116,38 0,965 112.305 Skötuselssk. 305,00 305,00 305,00 0,126 38.430 Samtals 66,42 11,399 757.163 Á mánudag verður selt óákveðið magn úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 59,00 55,00 57,91 13,354 773.260 Þorskur(smár) 15,00 15,00 15,00 0,024 360 Ýsa 100,00 76,00 83,72 7,251 607.039 Ýsa(smá) 13,00 13,00 13,00 0,075 975 Karfi 32,50 15,00 31,01 121,141 3.756.673 Ufsi 38,50 35,00 37,80 35,715 1.350.110 Steinbítur 53,00 42,00 45,79 0,206 9.433 Langa 38,00 38,00 38,00 0,505 19.190 Lúða 215,00 210,00 214,56 0,158 33.900 Skarkoli 59,00 25,00 56,65 0,362 20.508 Keila 12,00 12,00 12,00 0,162 1.944 Samtals 36,70 178,366 6.546.089 Selt var úr Viðey RE og bátum. Á mánudag verður selt óákveð- ið magn af blönduðum afla úr bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 65,50 54,50 61,27 4,429 271.380 Þorskur(umál) 20,00 20,00 20,00 0,106 2.120 Ýsa 93,00 35,00 85,06 2,210 187.982 Karfi 39,50 29,00 32,57 10,715 349.026 Ufsi 40,50 32,00 36,93 13,886 512.836 Steinbítur 23,00 15,00 20,68 0,069 1.427 Hlýri 23,00 23,00 23,00 2,056 47.288 Langa 23,00 12,00 21,17 0,360 7.620 Lúða 240,00 70,00 117,92 0,128 15.035 Grálúða 21,00 21,00 21,00 0,050 1.050 Sólkoli 40,00 40,00 40,00 0,110 4.400 Keila 14,50 12,00 14,31 1,084 15.508 Skata 5,00 5,00 5,00 0,060 300 Skötuselur 310,00 310,00 310,00 0,025 7.750 Samtals 40,35 35,287 1.423.722 Selt var úr Gnúpi GK og Oddgeiri ÞH. Á mánudag verða meðal annars seld 35 tonn, aðallega af ýsu, úr Eini GK, 30 tonn af þorski, ýsu, ufsa og steinbít úr Eldeyjar-Boða GK og 1 tonn af humri. Seld verða 60 til 100 tonn úr Hauki GK á mánudag eða þriðjudag. Morgunblaðið/Arni Johnsen Þorri hluthafanna sem eiga verslunina Kjarabót á Selfossi, við opnun- ina í júníbyrjun. Selfoss: Ný verzlun Kjarabót Kjarabót heitir ný verslun sem opnaði fyrir skömmu á Selfossi, en 41 einstaklingur á hlutafélag- ið Dug h.f. sem rekur Kjarabót. A boðstólum em 600-800 teg- undir í stað 2000-3000 í venjuleg- um verslunum og byggist verslunin- á staðgreiðslu. Kjarabót er til húsa við Eyrarveginn í 360 m2 húsnæði og að sögn verslunarstjórans, Auð- uns Guðjónssonar er markmiðið að keppa við stórmarkaðina í Reykja- vík og bjóða sérstaklega þá vöm sem hreyfist mest, matvörar og hreinlætisvömr. V estmannaeyj ar: Tónleikar á 70 ára aftnæli Vestmannaeyjakaupstaður heldur upp á 70 ára afinæli sitt á morgun. I tilefni af því heldur Sinfóníuhljómsveit íslands tón- leika í Samkomuhúsinu i Vest- mannaeyjum og hefiast þeir klukkan 16.30. Á efnisskrá verða tvö verk, eftir Haydn og Dvorák. Hljómsveitar- stjórar verða Guðmundur H. Guð- jónsson, organisti Landakirkju, en hann er jafnframt kórstjóri og Petri Sakari. Einsöngvarar verða Margr- ét Bóasdóttir og Viðar Gunnarsson. Dósamóttaka o g dósaleikar þjóðþrifa SKÁTAR, Hjálparsveitir skáta og Hjálparstofnun kirkjunnar hafa tekið höndum saman um verkefiii, sem kallast Þjóðþrif. Þjóðþrif gefa almenningi kost á að losa sig við einnota drykkjar- vömumbúðir og innheimta skila- gjaldið. Féð rennur til styrktar æskulýðs- og björgunarstarfi á vegum skátanna og hjálparstarfi Hjálparstofnunar kirkjunnar. Í dag byrja Þjóðþrif dósamóttök- una við Skátahúsið, Snorrabraut 60 í Reykjavík. Klukkan 14 verða haldnir sérstakir Dósaleikar þar sem börnum á öllum aldri verður boðið að spreyta sig í ýmsum dósa- keppnum og dósaþrautum. Allir þeir sem taka þátt í keppnunum fá sérstök þátttökuverðlaun. Ráðsteftia dómara í hár- snyrtingu DAGANA 25. til 27. júní nk. verður haldin hér á landi al- þjóðleg ráðsteftia fyrir dómara í hársnyrtingu. Hingað munu koma 27 gestir frá um 11 þjóðlöndum og á meðal þeirra er stjóm alþjóðasambands- ins. Á ráðstefnunni verður rætt um nýjar reglur og dómgæslu á næsta heimsmeistaramóti sem verður haldið í Rotterdam 23. og 24. sept- ember 1990. Friðarhlaup 89 HLAUPARAR í Friðarhlaupinu koma til Reykjavíkur á morgun eftir að hafa lagt um 3500 km leið að baki. Hlaupinu lýkur formlega með athöfti sem hefst klukkan 15 á Lækjartorgi, en hlauparar eru væntanlegir kluk- an 15.30. Frá Mosfellsbæ er tímaáætlunin þessi: Klukkan 11.30 Mosfellsbær, 12.30 Ársel Árbæ, 13.00 Höfða- bakkabrú, 13.30 við sundlaugina í Breiðholti, 14.00 Breiðholtskirkja Mjódd, 14.30 vestan Elliðaárbrúar, 15.00 Miklatún, 15.30 Lækjartorg. Hljómsveitin Gildran byijar að leika klukkan 15 á Lækjartorgi. Fulltrúar þingflokkanna, ÍSÍ og Ungmennafélags íslands hlaupa með frá Miklatúni. Kynnir verður Jakob Þór Einarsson. (Fréttatilkynning) Göngudagur fjölskyldunnar 1989 Ungmennafélag íslands og Bandalag íslenskra skáta gang- ast fyrir „Göngudegi flölskyld- unnar“, í dag og á morgun. Framkvæmd göngudagsins er í höndum ungmennafélaga og skáta- félaga á hveijum stað. Á síðast- liðnu ári tóku um 2-3000 manns þátt í Göngudegi fjölskyldunnar. Almennt em gönguferðir á bilinu tveir til sjö tímar. Sumarsýningar í Norræna húsinu 17. júní voru opnaðar tvær sýningar í Norræna húsinu. Sýning á málverkum eftir Jó- hann Briem er í sýningarsölum. Sýnd eru um 30 málverk öll í eigu einstaklinga eða stofnana. Verkin em máluð á ámnum 1958-1982. Sýningin stendur fram til 24. ágúst ogeropin daglega klukkan 14-19. I anddyri hússins var opnuð sýn- ing er nefnist Jörð úr ægi. Þessi sýning er haldin í tilefni af 100 ára afmæli Náttúmfræðistofnunar ís- lands. Sýningin lýsir myndum Surtseyjar og hamfömnum í Heimaey sem em á margan hátt táknræn fyrir myndun íslands. Sýndir era helstu sjófuglar eyj- anna og algengar háplöntur. Einn- ig er lýst landnámi lífvera í Surtsey. Sýningin verður opin fram til 24. ágúst og opin klukkan 9-19 nema sunnudaga frá 12-19. Á hveijum laugardegi frá 17. júní til 26. ágúst heldur Borgþór S. Kjærnested fyrirlestra í Nor- ræna húsinu um íslenskt samfélag. Klukkan 17 fer fyrirlesturinn fram á sænsku og kiukkan 18 verður fyrirlesturinn haldinn á finnsku. Borgþór mun svara fyrirspurnum fundargesta. Jazzpíanótríó í Heita pottinum ÞEIR Egill B. Hreinsson, Þórður Högnason og Maarten van der Valk leika jazz í Heita pottinum, Duus húsi á morgun sunnudags- kvöld. Leikin verða m.a. íslensk lög útsett í jazzstíl, m.a. eftir Pál ísólfsson og Emil Thoroddsen. Gestaleikari verður Stefán S. Stef- ánsson. Tónleikarnir hefjast um klukkan 21.30. (Fréttatilkynning) Ferð til Nesja- valla HIÐ íslenska náttúrufræðifélag eftiir til ferðar á morgun sunnu- daginn 25. júní til Nesjavalla. Ekið verður meðfram nýju Nesja- vallaæðinni og litast um í dölum Dyrafjalla norðan Hengils og á jarðhitasvæðinu á Nesjavöllum. Leiðsögumen verða Einar Gunn- laugsson, jarðfræðingur og Magn- ús Jóhannson, líffræðingur. Lagt verður af stað frá Umferðarmið- stöðinni klukkan 11 og áætlað að koma til baka um klukkan 16. Tölvusumarskóli fyrir börn og unglinga TOLVU- og verkfræðiþjónustan heldur í sumar námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 11-16 ára og byijar næsta nám- skeið 26. júní og síðan 14.ágúst. Hvert námskeið stendur yfir í 3 vikur (15 virka daga) og nemendur geta valið um hvort þeir verða fyr- ir eða eftir hádegi, klukkan 9-12 eða klukkan 13-16. í hveijum hóp verða 10 nemendur og hefur hver sína Macintosh-tölvu til umráða í kennslustundum. Höfimdur Is- fólksins til Islands \ HÖFUNDUR bókaflokksins um ísfólkið kemur hingað til lands á morgun. Það er skáldkonan Margit Sandemo, sem hefur sam- ið rúmlega 50 framhaldssögur. Hér á íslandi mun Margit Sande- mo hafa vikudvöl og meðal annars hitta íslensk starfssystkin sín, heimsækja fjölmiðlana, hitta íslenska lesendur sína í húsnæði Prenthússins í Faxafeni 12 í Skeif- unni og árita bækur. Prenthúsið hefur gefið bækurnar um ísfólkið út í 6 ár. Út em komn- ar 45 bækur og em aðeins 2 bæk- ur eftir þar til flokknum lýkur. Morgunblaðið/Þorkell Listin að lifa STUÐMENN sendu nýverið frá sér sína níundu plötu, sem hljóm- sveitin hefiir gefið nafnið Listin að lifa. Það er hljómplötuútgáfan Skífan sem gefur plötuna út, en Stuðmenn eru í dag Egill Ólafsson, Jakob Magnússon, Ragnhildur Gí^ladótt- ir, Tómas Tómasson, Ásgeir Óskarsson og Þórður Árnason. Valgeir Guðjónsson leggur hljóm- sveitinni lið við lagasmíðar og einn- ig á Sigurður Bjóla eitt lag á plöt- unni sem hann syngur sjálfur. Flosi Ólafsson syngur og eitt lag. Stuðmenn halda í tónleikaferð um landið til að kynna plötuna í enduðum júní.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.