Morgunblaðið - 24.06.1989, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989
Slökkvilið;
Oánægðir
með launin
UNDIRMENN í Slökkviliði Akur-
eyrar hafa sent firá sér bréf sem
lagt var fram í Kjaranefnd fyrir
skömmu þar sem þeir lýsa
óánægju sinni með launakjör og
óska eftir endurskoðun á kjörum
sínum. Kjaranefnd hefur vísað
bréfinu til starfsmatsnefhdar.
Tómas Búi Böðvarsson slökkvi-
liðsstjóri sagði slökkviliðsmenn á
Akureyri með verst launuðu
slökkviliðsmönnum iandsins.
„Launin eru skammarlega lág og
það er til vandræða að fá starfs-
menn í sumarafleysingar og til að
manna varaliðið vegna þess,“ sagði
Tómas Búi.
„Ef ekki kæmi til vaktaálag og
annað slíjct væri ekki nokkur kjaft-
ur í slökkviliðinu."
Húsbílar
520 • 550 • 610 A-610 B
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þýska myndlistarkonan Hedy Heise sýnir á Akureyri.
Hedy Heise sýn-
ir í Háskólanum
í dag, laugardag, opnar Hedy sín og haldið sýningar víða um
Heise myndlistarsýningu í húsnæði Evrópu.
Háskólans á Akureyri við Þórunn-
Útvegum allt í húsbílinn.
Ýmsar vörur á lager, gas-mið-
stöðvar, ofnar, vatnshitarar, elda-
vélar, vaskar, plasttankar, kranar,
dælur, ódýr ferða WC, léttar inn-
réttingaplötur, læsingar, loftlúgur,
ísskápar o.m.m.fl.
Húsbílar sf.,
Fjölnisgötu 6, Akureyri.
Sími 96-27950 milli kl. 16 og 18.30.
flesta daga. Fax 96-25920.
Ath.: Lokað 19. júlf — 25. ágúst.
arstræti. A sýningunni verða um
60 verk af ýmsum gerðum, olíu og
vatnslitaverk, auk teikninga með
penna og blýanti. Sýningin verður
opin til 2. júlí. Á sýningunni eru
m.a. myndir frá íslandi, en Hedy
hefur ferðast um landið og það orð-
.ið henni að myndefni.
Hedy Heise er fædd í Póllandi
árið 1944, alin upp í Austur-Þýska-
landi, en nú búsett í Vestur-Þýska-
landi. Hún hefur hlotið ýmsar viður-
kenningar og verðlaun fyrir verk
Til sölu
Vel staðsett 550 fm verslunar- eða iðnaðarhús-
næði á Fjölnisgötu 1a, Akureyri.
Stór lóð. Viðbyggingarréttur.
Upplýsingar gefa:
Víkingur Antgnsson, sími 91-656703,
Guðmundur Óskar Guðmundsson, sími 96-21441.
Sveit Arnar
sigraði í
bridskeppni
Norðurlands
Bikarkeppni Norðurlands
eystra og vestra í brids lauk fyr-
ir skömmu og var úrslitaleikur-
inn spilaður á Siglufirði. Þar átt-
ust við sveit Arnar Einarssonar
firá Akureyri og sveit Ásgríms
Sigurbjömssonar frá Siglufirði.
Spilaðar voru fjórar lotur, sextán
spil í hverri lotu. Eftir fyrstu lotuna
höfðu Öm og félagar tekið foryst-
una, 67 stig gegn 41 og eftir aðra
lotu var munurinn orðinn 40 stig,
98 gegn 58. Þriðja lotan var nokk-
uð jöfn, en að henni lokinni hafði
Örn skorað 129 stig gegn 86 stigum
Ásgríms. Leikar fóru svo að sveit
Amar sigraði, hlaut 151 stig á
móti 134 stigum Ásgríms og félaga.
í sveit bikarmeistara Norður-
lands voru auk sveitarforingjans,
Amar Einarssonar, þau Hörður
Steinbergsson, Soffía Guðmunds-
dóttir og Hermann Tómasson. Alls
tóku um 20 sveitir víðs vegar af
Norðurlandi þátt í keppninni.
FJÓRAR NÝJAR BÆKUR!
BÆKUR Á HEIMSMÆLIKVARÐA
Vistheimilið Sólborg;
Starfefólki sagt
upp störfúm
Breyting-ar á starfsfyrirkomulagi
ÖLLU starfsfólki á vistheimilinu Sólborg, nema deildarstjórum, hef-
ur verið sagt upp störfum frá og með 1. júlí næstkomandi. Sigrún
Sveinbjömsdóttir framkvæmdasljóri Svæðisstjóraar um málefiii fatl-
aðra sagði að vonast væri til að hægt yrði að endurráða nær alla.
Hún sagði að umtalsverðar breytingar yrðu gerðar á starfsfyrirkomu-
lagi og taka þær gildi 1. október.
Hert eftirlit með að stofnanir á
vegum ríkisins haldi sig innan þess
stöðugildaramma sem þeim hefur
verið úthlutaður hefur í för með sér
að stöðugildum á Sólborg verður
fækkað um 7 og verða því alls 63
stöðugildi við stofnunina eftir breyt-
inguna. Fækkun stöðugilda hefur í
för með sér miklar breytingar á
starfsfyrirkomulagi á heimilinu og
verður að segja upp starfsfólki við
aðhlynningu, í eldhúsi, á vinnustof-
um, á skóladagheimili og á sauma-
stofu. Sigrún sagði að iðulega yrðu
töluverðar breytingar á starfsfólki
á heimilinu og því ætti að vera
hægt að endurráða alla þá sem
halda vilja áfram að vinna þar, en
ef til vill yrðu einhveijir fluttir til
í störfum.
„Það eiga sér stað breytingar í
málefnum fatlaðra í þá átt að fólk-
ið sjálft taki aukna ábyrgð á sínu
daglega lífi. Það hefur í för með
sér að verið er að reyna að bijóta
upp stofnanirnar eins og þær áður
voru hugsaðar, þ.e. sameiginleg
mötuneyti fyrir alla og allir sendu
þvottinn sinn í sama þvottahúsið.
Þannig er æ meir horft til sambýla
fyrir fatlaða sem byggð eru upp
með það í huga að þau séu heimili
fólksins og er þá miðað við getu
hvers og eins varðandi þátttöku í
þeim störfum sem heimilislífinu
fylgja," sagði Sigrún.
Klippt af
17 bílum
LÖGREGLAN á Akureyri hefur
verið með klippurnar á loffci und-
anfarna daga og klippt númer
af þeim bifreiðum sem ekki hafa
verið feerðar til skoðunar á til-
settum tíma.
í gær, föstudag, klippti lögreglan
númer af sautján bílum. Varðstjóri
lögreglunnar ságði að um væri að
ræða bíla sem færa hefði átt til
skoðunar fyrir alllöngu. „Þetta er
nú aðallega trassaskapur hjá fólki,
að koma ekki með bílana til skoðun-
ar,“ sagði varðstjórinn.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá við eitt verka sinna á sýningunni.
Kristín Jónsdóttir sýnir
í Myndlistarskólanum
KRISTÍN Jónsdóttir frá Munka-
þverá heldur sýningu á verkurn
sínum í Myndlistarskólanum á
Akureyri dagana 24. júní til 2.
júlí.
Sýningin verður opnuð laugar-
daginn 24. júní kl. 14.00 og verður
hún opin daglega frá kl. 15.00-
19.00.
Kristín stundaði nám í Myndlista-
og handíðaskólanum í Reykjavík og
famhaldsnám í Kaupmannahöfn,
Frakklandi og á Ítalíu. Þetta er
þriðja einkasýning Kristínar, en hún
hélt einkasýningu í Rauða húsinu
á Akureyri árið 1981 og í Lista-
safni ASÍ árið 1988. Auk þess hef-
ur Kristín tekið þátt í fjölda samsýn-
inga bæði hérlendis og erlendis, á
Norðurlöndum, í Frakklandi, Ung-
veijalandi, Júgóslavíu, Banda-
ríkjunum og Kanada.
Verk eftir hana eru í söfnum hér
á landi og erlendis. Á sýningu
Kristínar í Myndlistarskólanum
verða 20-30 verk, flest gerð úr ull
með blandaðri tækni.