Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 29
MORQUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989
29
Stjörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Spámennska
Stjömuspeki hefur þróast
mikið á undanförnum árum
og áratugum. Hér áður fyrr
var litið á stjörnuspekinga
sem spámenn sem áttu að
vera alvitrir, eða áttu a.m.k.
að sjá fyrir um atburði. Þetta
var með nokkrum rétti því það
er hægt að leiða líkur að því
að ákveðnir atburðir koma til
með að gerast, útfrá vissum
forsendum.
Sálfrœði
Á síðari tímum hefur almenn
sálfræðiþekking aukist mikið
og samfara því fræðsla um
mannlegt eðli. Afleiðing þess
er sú að við erum í dag orðin
hæfari til að taka stjórn á
eigin lífi og afstýra því að
ákveðnir eiginleikar leiði til
neikvæðra atburða. Aukin
sálfræðileg meðvitund hefur
leitt til valfrelsis og minnk-
andi örlagahyggju. Jafnframt
því hefur vald okkar manna
yfir sjálfum okkur orðið meira
en áður.
Óplœgðurakur
Þrátt fyrir þetta er ennþá
langt í land og mikil vinna
eftir, bæði fyrir stjörnuspek-
inga og sálfræðinga. Það sem
helst skilur á milli stjömu-
speki og hinnar hefðbundnu
sálfræði er að stjörnuspeki
leggur áherslu a upplag per-
sónunnar, hún skoðar ein-
staklinginn, en sálfræði legg-
ur áherslu á uppeldi og um-
hverfísþætti og að einhveiju
leyti á líffræðilegar rannsókn-
ir. í þessu er vissulega fólgin
mikil einföldun, því margar
óiíkar stefnur em innan
stjömuspeki og sálfræði. Eigi
að síður segir þessi ‘skilgrein-
ing nokkuð um þann eðlismun
sem er á þessum greinum.
Stjörnuspekingur
Ef við fömm í einkatlma eða
viðtal til stjörnuspekings, þá
fjallar hann um okkur, útfrá
okkar stjömukorti. Hann seg-
ir hvaða orku við búum yfir
og útfrá því bendir hann á
hæfileika okkar og veikleika.
Þetta getur hann gert án þess
að þekkja til okkar. Hann
þarf ekki að vita um nafn,
hvað þá að hann viti hvað við
geram eða hvaðan við kom-
um. Stjömuspekingurinn tal-
ar mest allan tímann.
Sálfrœöingur
Tími hjá sálfræðingi byqar
iðulega á því að við segjum
frá lífi okkar, uppeldi, starfi,
áhugamálum og almennum
viðhorfum. Ráðleggingar sál-
fræðingsins byggja oft á
rannsóknum á hópum og em
almenns eðlis, þ.e.a.s. flest
öllum em gefm svipuð ráð til
að bregðast við sömu aðstæð-
um. Þetta er einnig töluverð
einföldun, en sönn að því leyti
að sálfræðingar ganga yfir-
leitt ekki aðaláhersiu á per-
sónulegt upplagi viðmælanda
síns.
Gagnrýni
Ef gagnrýna má stjörnuspeki
þá má segja að það vanti að
nægilega mikið tillit sé tekið
til uppeldis og umhverfis-
þátta. Ég tel t.d. að stjömu-
spekingur myndi ná betri ár-
angri ef hann vissi í stómm
dráttum af aðstæðum þess
sem hann er að gera kort fyr-
ir. Á móti má gagnrýna
marga sálfræðinga fyrir það
að byggja meðferð sína of
mikið á „meðaltölum“, en
taka of lítið tillit til einstakl-
ingseðlis. Það mætti því gera
báðar þessar greinar mark-
vissari ef þær mættust að ein-
hveiju leyti á miðri leið. Fram-
lag stjörnuspekinnar yrði
þekking á náttúrulegu upp-
lagi hvers einstaklings en sál-
fræðinnar kannski þekking á
áhrifum uppeldis- og um-
hverfisþátta á manninn al-
mennt og útfrá þvi á einstakl-
inginn.
GARPUR
' Méæ. þyKir? Þetta le/tt, K/s/
ÓSHEFEKK/ TÍMA7/L AD VOTTA '
þÉE SAMÚD.éGM'A EKK! VEeSV)
msrSE/m ADSimA VEKKEFNMU sem
KÓN6UE HETVE FAUV
GRETTIR
BRENDA STARR
ttVjÐ VILTU
FfSA /V/éfL,
TOMMI OG JENNI
rcKL/IIMMOIL/
SMAFOLK
WE UlANT TOU TO UJRITE TO
TOUR BROTHER OLAF, ANP INVlTE
HIM TOTWE "U6LV U06" C0NTE5T
I HAVEN T 5EEN OLAF IN
YEAR5..MATBE ME
ISN'T U6LT ANTMORE..
IN OUR FAMILYJHE OLPER UUE
6ET, THE CUTER UJE 6ETÍ
Viltu skrifa Ólafí bróður þínum og
bjóða honum í keppnina um Ijótasta
hundinn?
Ég hef! ekki séð Ólaf árum sam-
an ... kannske er hann ekkert ljótur
lengur.
í okkar Qölskyldu verðum við sæt-
ari með aldrinum.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er álitamál hvernig best
er að hefja ræðuna með spil
vesturs. í æfingaleik landsliðsins
og Polaris var opnað á fjórum
hjörtum á báðum borðum. Það
gerði Bandaríkjamaðurinn
Kantar líka á HM 1979 og alls
staðar skrifuðu AV 680 í sinn
dálk.
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ K10852
?G
♦ Á762
♦ K98 *
Vestur Austur
♦ T 4DG764
V AK109874H V D53
♦ K1083 4G
+ 74 +ÁDG2
Suður
♦ Á93
V62
♦ D954
♦ 10653
Vakning á 4 hjörtum gerir
hugsanlega slemmuleit mjög
þunga, en á móti kemur að vest-
ur á eyðu í spaða og vill ekki
hleypa andstæðingunum þar inn
áhættulaust. Og þótt spilið liggi
upp í slemmu með svíningu fyr-
ir laufkóng, er engin ástæða til >
að syrgja hana.
ítalarnir DeFalco og Franco
spiluðu „canapé“-kerfí og De-
Falco gat ekki stillt sig um að
opna á einum tígli (styttri litn-
um) með svo kröftuga vendingu
(„reverse"). Og þá lá leiðin í
slemmu:
Vestur Norður Austur Suður
— — — Pass
1 tígull 1 spaði 2 lauf 2 spaðar
4 hjörtu 4 spaðar 6 hjörtu Pass
Pass Pass
Skemmtilega meldað hjl.-«
Franco í austur. í fyrsta lagi var
mjög taktískt hjá honum að
segja 2 lauf, þótt hann ætti að-
eins fjórlit. Sú sögn kom vel við
DeFalco og hann yfirmeldaði
aðeins þegar hann stökk I fjögur
hjörtu. Eftir það hlaut Franco
að fara í slemmuna. Hann sá á
spaðameldingum NS að makker
var með eyðu í þeim lit, og ef
spilið byggðist á svíningu fyrir
laufkónginn var norður mun
líklegri til að eiga það spil. Sem
kom á daginn.
SKÁK.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á heimsbikarmótinu í Rotter-
dam, sem nú er að ljúka, kom
þessi staða upp í skák Anatoly
Karpov, fyrram heimsmeistara,
sem hafði hvítt og átti leik, og
landa hans Artur Jusupov.
33. Rf4! (Hótar bæði 34. Rxe6+
og 34. Dxd4+, svo svartur verður
að drepa riddarann) 33. - gxf4
34. Dxd4+ - Hbe5 35. Hxe4 -
Dd6! 36. Dal! - Kh7 37. Hxe5
- Hxe5 38. h3 og með peð yfir
og betri kóngsstöðu náði Karpov
að knýja fram sigur.
Staða efstu manna fyrir síðustu
umferðina í dag var þannig: 1-2.
Karpov og Timman % v. af 14,
3. Vaganjan Sf v. af 14, 4. Van
der Wiel 8 v. af 15, 5-7. Sok-
olov, Nunn og Short 7A v. af 14,
8-10. Salov, Ehlvest og Seirawan
7 v. af 14. Karpov hefur tapað
tveimur skákum i röð á mótinu,
fyrst fyrir Salov og síðan
Ljubojevic í næstsíðustu umferð.
í dag, laugardag, teflir Karpov
við Nunn og Timman við Seiraw-
an.