Morgunblaðið - 24.06.1989, Síða 32

Morgunblaðið - 24.06.1989, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989 % ! ' ' ' ■ : l——m—i r i t . . ■■ i. i . i i 32 Sumarmáltíð Yfirleitt borðum við öðruvísi mat á sumrin en á veturna. Við viljum léttari mat. Hvort hitastigið á sinn þátt í því hér hjá okkur, skal ósagt látið. Hitinn hefur ekki verið mikill það sem af er sumri, a.m.k. hér sunnanlands. Verslanir eru með miklu meira úrval af grænmeti á sumrin og sumir eru svo lánsamir að eiga heimaræktað græn- meti. Eg á t.d. heimaræktaðar papríkur í borðstofuglugganum mínum og eru þær orðnar stór- ar og fallegar. Mér finnst reyndar hálfgerð synd að taka þær af og matbúa, en barnabörnin mín hafa mjög gaman af að tína þær og stífa úr hnefa eins og epli. En papríkurnar eru margar og vonandi er nóg af þeim handa okkur öllum. Svo er sumarið rétt að byrja og ég á von á uppskeru allt sumarið og fram eftir vetri. Að þessu sinni tók ég fræ úr fallegri grænni papríku og sáði í marsbyrjun og sjaldan hafa papríkurnar mínar verið fallegri og fleiri, þrátt fyrir litla sól og vafalaust kulda frá gluggarúðunum. Undanfarin ár hefi ég keypt fræ, en gerði það ekki núna og þetta gafst mjög vel. Svo er rabarbarinn fullsprottinn í garðinum, en hann er hvað ljúffengastur á þessum tíma. En jarðarberin í kökuna eru ekki heimaræktuð. Þau keypti ég frosin, en hægt er að fá mjög góð og ódýr frosin jarðarber. Fylltar papríkur 6 meðalstórar grænar papríkur 6 dl vatn 3 dl hrísgijón 1 tsk. soðkraftsduft eða 1 súpu- teningur nýmalaður pipar 1 stór laukur 'k msk matarolía 3 egg 150 g rifinn mjólkurostur 1 msk. parmesanostur fersk steinselja eða graslaukur. 1. Reynið að velja breiðar paprík- ur, jafnar til endanna, sem geta staðið vel. Takið stilkinn og það sem er umhverfis hann úr, takið steina og hvítar himnur innan úr. Papríkan þarf að haldast heil. 2. Setjið vatn og soðkraftsduft í pott og látið sjóða. Setjið hrísgijónin út í, látið sjóða við hægan hita í 10 mínútur á hell- unni. 3. Setjið matarolíu í lítinn pott Afhýðið og saxið laukinn, setjið í olíuna og sjóðið við hægan hita í 5-7 mínútur. 4. Setjið lauk út í gijónin, setjið síðan eggin út í. 5. Rífið ostinn gróft og setjið út í. 6. Fyllið papríkumar með þessu. Það má gjaman vera kúfur á þeim. . 7. Stráið parmesanosti yfír ásamt steinselju eða graslauk. 8. Hitið bakaraofn í 210°C, blást- ursofn í 190°C, setjið papríkumar á eldfasta skál, setjið örlítið vatn Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON í skálina. Setjið papríkumar síðan í ofninn og bakið í 15-20 mínútur. Meðlæti: Ristað brauð. Þetta má einnig borða með físki eða kjöti. Rabarbara/j arðarberj a- kaka Botninn: 1 dl haframjöl 'k dl sólblómafræ eða möndlur % dl hveiti 'h dl sykur 'h dl brætt smjör eða smjörlíki 2 msk. mjólk. 1. Blandið saman haframjöli, sól- blómafræi (söxuðum möndlum), hveiti og sykri. 2. Bræðið smjörið, setjið mjólkina út í. Hellið út í mjölblönduna. Hrærið saman. 3. Þrýstið deiginu á botninn á bökumóti, 22-25 sm í þvermál. 4. Hitið bakaraofn í 190°C, blást- ursofn í 170°C, setjið í miðjan ofninn og bakið í 12 mínútur. Fyllingin: 2 dl mjólk h bréf Ötker-búðingsduft, van- illu- eða möndlu. h msk. hunang 14 tsk. vanilludropar 'h dós hrein jógúrt. 1 egg. 1. Hitið % hluta mjólkurinnar, en hrærið '/< hluta út í búðingsduftið. Hrærið síðan út í heita mjólkina og látið sjóða. Hrærið stöðugt í. 2. Sétjið hunang og vanilludropa út í. 3. Hrærið síðan jógúrt og egg út í. Hellið á bökubotninn. Ofan á: 4 mjóir rabarbaraleggir, 50 sm á lengd 150 g frosin eða fersk jarðarber 2 msk. hunang. 1. Skerið rótina af rabarbara- leggjunum, afhýðið síðan. Það er auðvelt. Kljúfið hvern legg í 3-4 hluta, skerið síðan einu sinni þvert. Raðið leggjunum í stjömu ofan á bökuna. 2. Kljúfið jarðarberin og raðið ofan á, skurðflötur snúi upp. 3. Hitið hunangið, ausið yfir með skeið. 4. Minnkið hitann á ofninum um 15°. Setjið botninn í ofninn og bakið í 25 mínútur. Meðlæti:Is eða þeyttur ijómi. Vanskil eða vanskilmiigur eftir Steinar Berg Isleifsson Eins og hver einasti söluskatts- greiðandi á íslandi veit, hóf fjár- málaráðuneytið harðar aðgerðir til innheimtu á „vanskilum“ á sölu- skatti sl. mánudag. Það er í sjálfu sér fagnaðarefni að ráðuneytið grípi til áhrifaríkra og árangursríkra aðferða hvað varðar innheimtu á þeim söluskatti sem aðilar hafa inn- heimt og ber að skila til ríkisins. Ég reikna með að allir söluskatts- greiðendur skilji hugtakið sölu- skattur á þann hátt að þar sé um að ræða skatt, sem leggst ofan á vöru eða þjónustu, sem síðasta stig áður en sala á sér stað til endan- legs neytanda. Einnig á ég von á því að flestir myndu skilja það svo, að ef um vanskil væri að ræða á söluskatti ætti það við um peninga, sem söluskattsgreiðandi hefði greitt til seljanda sem síðan hefði svikist undan að skila þessum peningum til ríkisins. Slík eru hin dæmigerðu vanskil og er réttlætanlegt að harð- lega sé gengið fram við innheimtu slíkra vanskila. En undantekningin sannar regl- una og vissulega eru til undantekn- ingar og afbrigði við þessa einföldu meginreglu. Tökum sem dæmi að þú, söluskattsgreiðandi góður, keyptir þér hús, greiddir það að fullu og flyttir inn í það. Nokkrum árum seinna fengir þú tilkynningu frá skattstjóra þar sem þér væri tjáð að samkvæmt skoðun gagna hefði það komið fram að trésmiður sá sem sló upp mótunum við bygg- ingu hússins hafði ekki rukkað sölu- skatt eins og honum bar skylda til. Þess vegna hefði verið ákveðin álagning á þig að upphæð krónur 1.000.000 auk viðurlaga og dráttar- vaxta frá því að mótin voru sett upp. Auðvitað mótmælir þú þessari óvæntu skuld sem þú ert skyndilega kominn í, en allt kemur fyrir ekki, svo þú ákveður að leita réttar þíns hjá ríkisskattanefnd, sem er úr- skurðaraðili um skattaleg ágrein- ingsmál. Nokkrum mánuðum seinna banka uppá hjá þér lögreglu- þjónar, serh segjast hafa fyrirmæli frá fjármálaráðuneytinu um að inn- sigla húsið þar til „vanskil" þín eru að fullu greidd. Þetta dæmi er að sjálfsögðu mjög einfölduð mynd en þó sambærileg við skuldamyndun myndbandaút- gefenda við ríkissjóð en öllu heldur þeim innheimtuaðferðum sem fjár- málaráðuneytið beitti við innheimtu „söluskattsvanskila" myndbanda- útgefenda. Upp úr stendur fárán- leiki skuldakröfunnar og hið hróp- andi óréttlæti sem beitt er við inn- heimtu hennar. Lesanda til örlítillar glöggvunar á helstu eðlisþáttum hvað sölu- skattsálagningu skattstjóra á myndbandaútgefendur varðar, skal eftirfarandi tekið fram. Kostnaðar- verð, sem myndbandaútgefendur greiða vegna útgáfu myndbanda, skiptist í eftirfarandi meginþætti: Kaup á framleiðslu „master", fjöl- földun á spólum, prentun límmiða og kápu og höfundarlaun til hand- hafa myndbandaréttar, sem er langstærsti hluti kostnaðarins. Þeg- ar svo myndbandsspólur eru seldar myndbandaleigum ieggur mynd- bandaútgefandi söluskatts ofan á útsöluverð til myndbandaleiganna. Myndbandaútgefendur hafa ger' full skil á þessum söluskatti, um það snýst ágreiningurinn ekki. Ágreiningurinn snýst um að árið 1987 gerði skattsjóri kröfu til þess að myndbandaútgefendur greiddu söluskatt af kostnaði við fjölföldun á öllum myndbandaspólum og prentun á kápum myndbandaspóla, sem séldar voru árin 1985 og 1986. Myndbandaútgefendur mótmæltu þessari skattlagningu. Meginrökin eru þau að söluskatti hafi að fullu verið skilað af útsöluverði vörunnar og skattstjóra sé óheimilt að leggja söluskatt á framleiðslukostnað sölu- vöru enda tíðkast slíkt ekki við neina aðra framleiðslu. Einnig fæst ekki séð hvemig skattstjóra er stætt á því að rukka fyrir söluskatt sem aldrei hefur verið innheimtur né settur inn í vömverð þeirrar vöm, sem seld er. Kæm og gögnum var skilað til ríkisskattanefndar sem enn hefur ekki úrskurðað í málinu. Það var auðvitað vemlega pirr- andi að fá sífellt yfirlit frá Toll- stjóraembættinu, sem sýndi þessa afturvirku álagningu, sem skuld. Þegar svo þrýstingur fór að vaxa fyrir nokkmm mánuðum fóm að berast lokunarhótanir. Ég fór þá á fund fulltrúa tollstjórans í Reykjavík og varð úr, að tekið var lögtak í einni af verslunum Steina hf. vegna „söluskattsskuldar“ fyrir- tækisins. Jafnframt sem mér var sagt að ekki yrði um frekari aðgeð- ir að ræða fyrr en úrskurður Ríkis- skattanefndar lægi fyrir. Þetta munnlega samkomulag var síðan rofið einhliða þegar lögregluþjónar lokuðu Steinum hf. fyrirvaralaust að morgni 19. júní sl. Fyrr í 12. greininni er fjallað um hvemig skil eigi sér stað með sölu- skattsskýrslu, upplýsingar um heildarveltu, söluskattsskylda veltu, uppgjörstímabil, gjalddaga o.s.frv. — Tollstjóri telur sig hafa ótvíræða heimild skv. þessari grein. Ég vek athygli á að þessi grein fjallar um skil á söluskatti fyrir ákveðin upp- gjörstímabil, en ekki álagðan aftur- virkan skatt, þar sem ljóst er að þeir peningar sem skattstjóri gerir kröfu um komu aldrei inn í fyrir- tækið. — Það er gmndvallarmunur á því að standa skil á þeim pening- um sem innheimtir hafa verið og einhliða álagðri óviðurkenndri skuld, sem ekki hefur fengið úr- skurð óháðs úrskurðaraðila. — Ég dreg því í efa rétt tollstjóra til lok- unar á fyrirtækjum, sem em í full- um skilum en eiga óútkljáðan ágreining vegna tilvika sem hefur verið lýst. Jafnframt hefur myndast hefð um það, að sé um efnislegan rökstuddan ágreining að ræða er ekki gengið þannig til verka. Lögin sem hér var farið eftir em frá árinu 1960 en þá var söluskattsstigið 3 prósent og vægi þess í verðmyndun vöm og þjónustu á engan hátt sam- bærilegt við daginn í dag. Það er því umhugsunarvert fyrir löggjafar- valdið hvort hér sé ekki um úrelt lagaákvæði að ræða, sem brýnt sé að bæta úr. Víðtæk túlkun laga- ákvæða af þessu tagi em stór- hættuleg í höndum ráðamanna, sem em tilbúnir til að knésetja fyrirtæki í skjóli laga en í bága við allt sið- ferði. Einnig hlýtur svona fram- kvæmd að stangast illilega á við réttarvitund fólks þar sem kæmað- ila er heimilt að taka sér dómsvald og fella dóm yfir ákærða og fram- fylgja hegningu án þess að úrskurð- ur óháðs löggilts dómsaðila liggi fyrir. Þá er mér tjáð af þeim sem til þekkja, að lögtaksmálum vegna vangoldinna skatta sé alltaf frestað í fógetarétti, þegar mál vegna lög- takskröfu er tekið fyrir ríkisskatta- nefnd. „Við ákváðum að allir þeir sem skulda söluskatt skyldu sitja við sama borð, til að gæta sanngirni og mismuna ekki skuldumm", sagði Snorri Olsen, forstöðumaður sölu- skattsdeildar fjármálaráðuneytis- ins. Með öðrum orðum var ákveðið Steinar Berg ísleifsson „Ef þessar „nýjungar“ við innheimtu skatta, þar sem skattgreiðandi viðurkennir ekki skuld sína, er það sem koma skal, þarf hver einasti Islendingur að spyrja sjálfan sig hver er næst- ur?“ að líta ekki á eðli þeirra skulda sem skráðar em hjá tollstjóraembætt- inu, né skil viðkomandi fyrirtækja á söluskatti eða staðgreiðsluskatti. Finnst nokkrum skrýtið þó mynd- bandaútgefendur frábiðji sér sann- girni af því tagi, sem setur þá við sama borð og aðila, sem ítrekað hafa staðið í vanskilum og svikum á söluskatti? Hefði ráðuneytinu ekki verið meiri sómi að því að forvinna málið betur, líta á eðlisþætti ein- stakra „skulda" og nota í sína þágu almenna viðskiptahætti og skyn- semi eins og tíðkast í samskiptum fólks. Hér er um hinn mannlega þátt að ræða, sem greinilega er í alvarlegum vanskilum hjá fjármála-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.