Morgunblaðið - 24.06.1989, Síða 48

Morgunblaðið - 24.06.1989, Síða 48
 Efstir á blaði FLUGLEIDIR LAUGARDAGUR 24. JUNI 1989 VERÐ I LAUSASOLU 80 KR. Þjóðlegir hættir; Veltu sér naktar upp úr dögginni á almannafæri ÍBÚAR í Breiðholti hringdu í lög- regluna um miðnætti Jónsmessu- næturinnar, en Jónsmessa er í- dag. Fólkið tilkynnti að tvær kon- ur væru að velta sér naktar upp úr dögginni og vildi að lögreglan skakkaði leikinn. Lögregla leitaði strípalinganna árangurslaust. Samkvæmt íslenzkri þjóðtrú á það að vera afar hollt að velta sér upp úr dögginni á Jónsmessunótt. Hún á að vera svo heilnæm að menn lækn- ist af kláða og átján öðrum óhrein- indum í holdi við að velta sér í henni allsberir. Um leið mega menn óska sér. Þessi þjóðlegi siður mun hins vegar brjóta í bága við lögreglusam- þykkt Reykjavíkur og fór fyrir bijóst- ið á nágrönnunum. Veiðieftjrlitsmenn; Sljóm gáma- útflutnings gagnrýnd VINNUBRÖGÐ utanríkisráðu- neytisins í sambandi við stjóm gámaútflutnings em gagnrýnd harðlega í skýrslu veiðieftirlits- manna frá sjávarútvegsráðuneyt- inu. Segja þeir meðal annars, að afgreiðsla ráðuneytisins á um- sóknum um leyfi til gámaútflutn- ings sé algjört kák og ekki bóli á neinni skynsamlegri vinnureglu þar að lútandi. Kristján Ragnars- son, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, er sömu skoðunar og telur sljórn þessa útflutnings betur komna í höndum útvegsmanna sjálfra. „Þetta er það sem við höfum sagt undanfama mánuði,“ sagði Kristján, þegar Morgunblaðið leitaði álits hans á skýrslu veiðieftirlitsmannanna. Kristján sagði, að LÍÚ hefði lagt mikla áherslu á að stjóm gámaút- flutningsins væri í höndum samtaka þeirra, sem fiskinn ættu; þar væri fyrir hendi þekking á því, hvemig haga ætti framboði í samræmi við eftirspurnina. Til þess þyrfti hins vegar tilstyrk stjómvalda, því slík samtök hefðu ekki vald yfir félags- Sumarhátíð barnanna Morgunblaðið/RAX Sumarhátíö var haldin á leikskólanum Rofaborg í gær og börnin á skóladagheimilinu Selásborg tóku þátt í skemmtuninni. Börnin bjuggu til kórónur, grilluðu pylsur, borðuðu ís og teyguðu hátíðar- drykk. Af svipnum á þeim að dæma skemmtu þau sér hið besta. monnum smum. Vmnuveitendasambandið: Innheimtuaðgerðir ijáriiiála- ráðherra skerða réttaröryggi Fyrirtæki með 300 starfsmönnum innsiglað vegna umdeildrar skuldar Skrifstofúr verktakafyrirtækisins Hagvirkis hf. í Hafnarfirði, sem hefúr um 300 manns í vinnu, voru innsiglaðar í gær vegna meintra vanskila á söluskatti af vega- og virkjanaframkvæmdum. Forráðamenn fyrirtækisins halda því hins vegar fram að vinnan hafi lögum samkvæmt verið undanþegin söluskatti, og hefiir krafan verið til meðferðar dómstóla og ríkisskattanefndar undanfarið. Vinnuveitendasambandið sendi forsætisráðherra bréf í gær, þar sem hvatt er til að látið verði af innhéimtuaðgerðum vegna sölu- skattskrafiia, sem séu til meðferðar hjá dóms- og úrskurðaraðilum. .Vinnuveitendasamband ís- lands telur ótvírætt að heimildir söluskattslaga til lokunaraðgerða Almerniingur bend- ir á skattsvikara Jafnmargar ábendingar nú á einum degi og hafa áður borist á heilu ári Fjármálaráðuneytinu bárust jafnmargar ábendingar frá al- menningi í gærdag og ráðuneytið fær alla jafna á heilu ári, eða fimm talsins. Snorri Olsen deildarsljóri tekju- og lagasviðs ráðu- neytisins segir að þetta séu tvímælalaust áhrif frá umræðu og aðgerðum í söluskattsmálum undanfarna daga. Fólkið sem haft hefur sam- ingarnar? band við fjármálaráðuneytið gef- ur upp nöfn og heimilisföng þeirra sem það telur stunda skattsvik. Snorri Olsen segir að í sumum tilvika fylgi með ná- kvæm útlistun á því hvernig skattsvikin eru framkvæmd. En hvað gerir ráðuneytið við ábend- „Við könnum allar ábendingar sem okkur berast,“ segir Snorri Olsen. „En við gerum það ekki með neinum látum. Hugsanlega geta ábendingarnar verið þannig tiikomnar að einhver vilji ná sér niðri á öðrum með þessum hætti.“ takmarkist við óumdeildar kröfur og heimili ekki skattyfirvöldum að beita slíkum þvingunaraðgerðum til að knýja fram greiðslu um- deildra krafna, sem bíða úrskurðar þar til bærra skattyfirvalda eða dómstóla," segir í bréfi VSÍ. „Með þvingunaraðgerðum sem þessum grípur framkvæmdavaldið fram fyrir hendur dómsvaldsins og skerðir stórlega réttaröryggi þegnanna í þessu landi." Jóhann G. Bergþórsson, for- stjóri Hagvirkis, segir að annar rekstur fyrirtækisins muni stöðv- ast sjálfkrafa, verði aðalstöðvarn- ar áfram innsiglaðar. Hann segir að greiðslustaða fyrirtækisins sé þannig, að það eigi erfitt með að reiða fram 153 milljónir, sem fjár- málaráðhprra geri kröfu um. Hann segir að Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, hafi sagt við sig í gær að aðeins greiðsla í bein- hörðum peningum kæmi til greina til að ljúka skuldinni. Snorri Olsen, deildarstjóri í fjár- málaráðuneytinu, segir að ráðu- neytið hafi ótvíræða lagaheimild til að innheimta skuldir, sem deilt sé um. Hins vegar beri því einnig lögum samkvæmt að endurgreiða skuldina, falli úrskurður í deilunni á þann veg að viðkomandi fyrir- tæki hafi ekki verið skylt að greiða skuldina. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, segist telja að ekki sé nægi- legt fyrir fyrirtæki að gera ágrein- ing um skattskuld til þess að kom- ast hjá innheimtuaðgerðum. Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra segist telja fyrirvaralausa lokun stórfyrirtækis eins og Hag- virkis alvarlegt mál. Hann segist einnig þeirrar skoðunar að kanna eigi sérstaklega mál, þar sem deilt sé um réttmæti skattskulda fyrir dómstólum. Að sögn Snorra Olsen er inn- heimtuaðgerðum gagnvart fyrir- tækjum úti á landi að mestu lokið. Hins vegar sé enn eftir að grípa til aðgerða gegn fjölda fyrirtækja í Reykjavík. Krafizt var harðra innheimtuaðgerða hjá 244 fyrir- tækjum í Reykjavík. Þar af hefur 113 verið lokað, en 82 hafa verið opnuð aftur eftir að gengið hefur verið frá skuldum. Sjá fréttir á bls. 4 og miðopnu. Yarð konu að bana með ölvunarakstri: Dæmdur í árs fang’elsi og missir ökuréttíndi Ungur maður hefúr í sakadómi verið dæmdur til tólf mánaða fangels- isvistar og ævilangrar sviptingar ökuréttinda fyrir ölvunar- og hrað- akstur á Skúlagötu aðfaranótt 11. júní í fyrra. Bifreiðin, sem maðurinn ók, lenti á annarri með þeim afleiðingum að kona sem var farþegi í henni lézt. Níu mánuðir af fangelsisdómi mannsins eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Hann var einnig dæmd- ur til greiðslu alls sakarkostnaðar. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa ölvaður tekið bifreið í heimildar- leysi, ekið henni úr Tjarnargötu og austxir Skúlagötu, á öfugum vegar- helmingi og langt yfir leyfilegum hámarkshraða. Bifreiðin skall á bíl, sem ekið var á réttum vegarhelmingi vestur götuna. Ökumaður hennar slasaðist mikið, en farþeginn lézt sköminu siðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.