Morgunblaðið - 26.07.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26, JÚLÍ 4#89'
Bjórsala 40% minni í
Fríhöfiiinni en í fyrra
HÆTT VERÐUR að selja bjór í
fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli
1. september, á þeim forsendum
aðallejja að ríkissjóður hagnist
Pilsner
Urquell á
boðstólum
TÉKKNESKI bjórinn Pilsner
Urquell er nú seldur í Heið-
rúnu, verslun ÁTVR á
Stuðlahálsi. Þangað kom
hann inn á gólf í fyrramorg-
un.
Pilsner Urquell er seldur eins
og annar bjór hérlendis í sex
flösku einingum. Kostar kippan
700 krónur, en kassi af hinum
nýja bjór 2.800 krónur. Enn er
óráðið hvaða þýski bjór mun
koma í stað hins austurríska
Kaiser, sem hverfur af márkað-
inum af tæknilegum ástæðum.
ekki lengur á bjórsölu þar, hún
dragi úr sölu í verslunum ÁTVR.
Guðmundur Karl Jónsson forstjóri
fríhafharinnar kveðst draga í efa
að það sé til bóta fyrir ríkissjóð
að bjórsölu sé hætt til komufar-
þega, salan í verslunum ÁTVR
muni ekki aukast við það. Hann
segir að 40% minna hafi selst af
bjór í fríhöfhinni í vor, eftir að
almenn sala hans var leyfð hér-
lendis, heldur en í fyrravor.
Að sögn Guðmundar Vigfússonar
skrifstofustjóra í fríhöfninni var bjór-
salan fyrstu sex mánuði ársins tæp-
lega 30% minni en á sama tímabili
í fyrra. Samdrátturinn er hins vegar
um 40% milli ára ef miðað er við
mánuðina apríl, maí og júní. Á þessu
tímabili í fyrra voru seldir 220.000
lítrar af bjór í fríhöfninni, en 130.000
lítrar í ár eftir að bjórsala hafði ver-
ið leyfð hérlendis. Guðmundur segir
að fólk kaupi nú vín í stað bjórs, flest-
ir taki sérrí eða léttvín og tegundirn-
ar Campari og Baily’s.
Ákvörðun um að hætta bjórsölu í
fríhöfninni var tekin nýlega í utanrík-
isráðuneytinu að höfðu samráði við
fjármálaráðuneytið. Snorri Olsen
deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu
segir að ástæðumar séu aðallega þær
að ríkissjóður hagnist ekki lengur á
að bjór sé seldur farþegum við komu
til landsins, þá dragi slík sala úr bjór-
sö!u í verslunum ÁTVR og loks
þyrfti að reisa birgðaskemmu fyrir
tugi milljóna ef bjór yrði áfram seld-_
ur í fríhöfninni. Jafnframt spilar inn
í að sögn Snorra að tekjur ÁTVR
af bjórsölu í fríhöfninni verða að
líkindum 250.000.000 krónum minni
eftir árið en gert var ráð fyrir.
Guðmundur Karl Jónsson telur það
ekki standast áð fólk kaupi minna
af bjór hjá ÁTVR meðan hann sé
seldur í fríhöfninni. Fríhafnarsalan
sé aukaneysla og ferðamenn geti
áfram borið bjór með sér inn í landið
úr erlendum fríhöfnum. Þannig sé
ekki tekið fyrir fríhafnarverslun á
bjór með þessari ráðstöfun, hún flytj-
ist aðeins úr landi. Guðmundur segir
ljóst að fljótlega þurfi að byggja við
birgðageymslu fríhafnarinnár sem
reist var fyrir tuttugu árum. Því
megi einungis slá á frest í svo sem
tvö ár ef bjórsölu verði hætt.
VEÐURHORFUR í DAG, 26. JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Kl. 15 var suðaustangola eða kaldi norðaustan-
lands en norðaustanátt í öðrum landshlutum, kaldi eða stinnings-
kaldi suðaustanlands en hægari annars staðar. Rigning var um
allt land nema við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, þar var skýjað
en þurrt. Hiti var á bilinu 8 til 16 stig.
SPÁ: Norðlæg eða norðvestlæg átt, víða strekkingsvindur og rign-
ing um vestanvert landið en suðlæg átt, heldur hægari og úrkomu-
lítið austanlands. Búist er við að lægð verði nánast yfir miðju landinu
um hádegisbil, og þokist vestur. Hiti víðast á bilinu 7-13 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG:Norðlæg átt um vestanvert landið en
suðvestlæg annars staðar. Skýjað og dálítil súld við strendur norð-
vestanlands en skýjað meðköfiumannarsstaðar. Hiti 11-20stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG:Norðlæg átt, víða bjart veður sunnanlands
en skýjað með köflum norðanlands. Hiti 11-20 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / ■*
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10
V
y
Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
Él
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[T Þrumuveður
'lgí VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 16 skýjað Reykjavik 13 rigning
Bergen 23 léttskýjað
Helsinki 26 leftskýjað
Kaupmannah. 25 léttskýjað
Narssarssuaq 7 skýjað
Nuuk 4 alskýjað
Osló 28 léttskýjað
Stokkhólmur 26 léttskýjað
Þórshöfn 10 þoka
Algarve 28 heiðskírt
Amsterdam 20 mistur
Barcelona 28 léttskýjað
Berlín 28 . léttskýjað
Chicago 23 þokumóða
Feneyjar 27 þokumóða
Frankfurt 24 skýjað
Glasgow 26 skýjað
Hamborg 27 léttskýjað
Las Palmas 26 léttskýjað
London 27 heiðskírt
Los Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg 25 léttskýjað
Madríd 30 léttskýjað
Malaga 28 léttskýjað
Mallorca 32 léttskýjað
Montreal 24 léttskýjað
New York 26 mistur
Oriando 25 léttskýjað
París 27 heiðskírt
Róm 31 léttskýjað
Vfn 23 mistur
Washington 26 mistur
Winnipeg vantar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tveir af bílunum sem lentu í árekstrinum í Ártúnsbrekku.
Fj ög’urra bíla árekst-
ur í Artúnsbrekku
FJÖGURRA bíla árekstur varð ofarlega í Artúnsbrekku um kl.
14.30 í gærdag. Þrátt fyrir að um harðan árekstur væri að
ræða var aðeins einn ökumanna fluttur á slysadeild með skurð
í andliti. Fékk hann að fara h<
Áreksturinn var með þeim
hætti að ökumaður bíls á leið nið-
ur brekkuna hemlaði snögglega
við skilti sem sýndi vegafram-
kvæmdir framundan. Við þetta
n eftir skoðun.
skullu tveir bflar aftan á hann,
annar þeirra svo harkalega að
hann kastaðist yfir á hinn vegar-
helminginn í veg fyrir vörubíl, sem
kom úr gagnstæðri átt.
Borgarráð:
Bókanir vegna um-
mæla borgarstjóra
FULLTRÚAR minnihlutans í borgarráði lögðu fram bókun á fúndi
ráðsins í gær vegna ummæla Davíðs Oddssonar borgarstjóra í Helgar-
blaði Þjóðviljáns. Þ,ar er eftir honum haft að fulltrúar minnihlutans
séu yfirleitt ánægðir með það sem hann gerir. . ■
í bókun Alfreðs Þorsteinssonar
fulltrúa Framsóknarflokksins segir:
„Vegna ummæla Davíðs Oddssonar
borgarstjóra í Helgarblaði Þjóðvilj-
ans síðastliðinn föstudag, þar sem
eftir honum er haft að borgarfull-
trúar minnihlutans séu oftast nær
afskaplega hrifnir af embættis-
færslu hans, tel ég nauðsynlegt að
fram komi að málflutningur og
gagnrýni framsóknarmanna • á
vinnubrögð borgarstjóra á yfir-
standandi kjörtímabili gefur ekki
minnsta tilefni til áðurnefndrar full-
yrðingar, að minnsta kosti hvað
Framsóknarflokkinn varðar. Er
borgarstjóri vinsamlegast beðinn
um að vera ekki að bendla borgar-
fulltrúa Framsóknarflokksins við
aðdáendaklúbb sinn.“
í bókun Sigurjóns Péturssonar
fulltrúa Alþýðubandalagsins segir:
„Ég tek undir mótmæli fulltrúa
Framsóknarflokksins við ummæli
borgarstjóra. Ummælin eiga enga
stoð í raunveruleikanum eins og
fundargerðir borgarráðs, borgar-
stjórnar og flestra nefnda borgar-
innar sýna.“ Elín Ólafsdóttir fulltrúi
Kvennalistans óskaði eftir að bókað
yrði að hún tæki undir bókun Sigur-
jóns Péturssonar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar:
Leitað að biluninni
VÉLARBILUN hamlar enn starfsemi TF-SIF, þyrlu Landhelgis-
gæslunnar. Þorkell Guðmundsson flugrekstrarstjóri LHG segir að
þeir séu enn að leita að biluninni í þyrlunni og hafi verið í sambandi
við framleiðanda vélarinnar ytra. Samt munu enn líða nokkrir dag-
ar þar til lausn fæst á vandamáli þessu.
TF-SIF sinnir ekki gæslustörfum undanförnu. Þorkell segir að þar
fyrr en vélarbilunin er úr sögunni. sé um að ræða reynsluflug og þátt
Hún er samt flugfær og hefur ver- í viðgerðinni.
ið flogið um höfuðborgarsvæðið að
Borgarráð:
Bifreiðastæði í stað
lögreglustöðvar
BORGARRÁÐ hefúr samþykkt að veita 2,2 miHjónum króna til fram-
kvæmda við nýtt bifreiðastæði við Arabakka 1 í Mjóddinni í Breið-
holti, en þar er frátekin lóð fyrir lögreglustöð.
Að sögn Hjörleifs Kvarans fram- fé til framkvæmdanna og ekkert
kvæmdastjóra lögfræði- og stjóm-
sýsludeildar, hefur lengi staðið til
að lögreglustöð yrði byggð við
Þönglabakka 1, og lóðin meðal ann-
ars talin ákjósanleg fyrir stöðina.
Ríkið hefur hins vegar ekki veitt
útlit fyrir að svo verði á næstunni
og því ákvað borgarráð að ganga
frá lóðinni og gera þar bifreiða-
stæði þar til annað hefur verið
ákveðið.