Morgunblaðið - 26.07.1989, Síða 21

Morgunblaðið - 26.07.1989, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989 21 Nunnuklaustrið í Auschwitz: Kirkjan sótti of seint um nýtt klaustur Varsjá. Reuter. POLSKA stjórnin blandaði sér í gær í deiluna um nunnuklau- strið í fyrrum dauðabúðum nas- ista í Auschwitz og gaf í skyn að katólska kirkjan hefði tregð- ast við að standa við samning sem hún gerði við gyðinga um að klaustrið yrði flutt. í yfirlýsingu stjórnarinnar, sem birt var í öllum helstu dagblöðum landsins, segir að katólska kirkjan hafi ekki sótt um að fá að stofna nýtt klaustur fyrr en 10. mars, eða tveimur vikum eftir að frestur til að loka nunnuklaustrinu í Auschwitz rann út samkvæmt samningi sem hún gerði við leið- toga gyðinga í Genf í febrúar árið 1987. Bæjaryfirvöld í Oswiecim, sem er pólska nafnið yfir Ausch- witz, hefðu ekki fallist á umsókn- ina fyrr en 15. júní. „Pólsk stjórn- völd eiga hér ekki hlut að máli en samt er þeim mjög í mun að deil- an verði leyst sem fyrst í anda Genfar-samningsins,“ segir í yfir- lýsingunni. Pólskir verkamenn réðust á sjö bandaríska gyðinga, sem klifruðu yfir girðingu klaustursins fýrir tveimur vikum. Um 95 gyðingar frá Evrópu efndu á sunnudag til mótmæla við klaustrið en um 200 Pólveijar söfnuðust saman fyrir framan það og vörnuðu þeim inn- göngu. Margir íbúa Oswiecim eru andvígir því að klaustrinu verði lokað og hafnar hafa verið við- gerðir á byggingunni. ERLENT Filippseyjar: Vilja minnka er- lendar skuldir sínar Reuter Manila. Reuter. SAMNINGUR sá sem Mexíkanar gerðu við lánardrottna sína á sunnudag hefúr glætt vonir Filippseyinga um að þeir geti grynnkað á erlendum skuldum sínum. Mörg ríki sem eru skuldum vafin biðu þess með eftirvæntingu að þriggja mánaða samningaviðræð- um Mexíkana og alþjóðlegra banka lyki. Fjármálaráðherra Banda- ríkjanna, Nicholas Brady, hefur beitt sér fyrir því að minnka erlend- ar skuldir þróunarríkja og mexí- Giulio Andreotti, hinn nýi forsætisráðherra Ítalíu (lengst til vinstri), Carmelo Conte, ráðherra þéttbýlisvandamálá, og Francesco Cossiga, forseti Ítalíu. Ítalía: Andreotti þykir hafa mynd- að lífvænlega ríkissljórn Utanríkissteftian kynnt á diskóteki Róm. Reuter. TVEGGJA mánaða stjórnarkreppu lauk á Ítalíu um helgina þegar hin aldna kempa, Giulio Andreotti, úr flokki kristilegra demókrata, myndaði nýja ríkissljórn. Sömu fímm flokkarnir standa að nýju sfjórn- inni og verið hefiir undanfarinn áratug, kristilegir demókratar, sósía- listar, repúblikanar, sósíaldemókratar og ftjálslyndir. Þegar Andre- otti tilkynnti myndun nýrrar stjórnar sagðist hann vonast til að geta leitt þjóðina út kjörtímabilið en því lýkur árið 1992. Við utanrík- isráðherraembættinu tekur sósíalistinn Gianni De Michelis, kunnur glaumgosi. Hann gerði hlé á dansi sínum á diskóteki á Rimini í gær til að kynna stefhu sína. Þetta er í sjötta skipti sem Andre- otti, sem er sjötugur að aldri, gegn- ir embætti forsætisráðherra. Ríkis- stjórnin er hin 49. í landinu frá stríðslokum og þykir all lífvænleg. Banamein ítalskra ríkisstjóma und- anfarin ár hefur verið eilíf deila tveggja stærstu flokkanna, kristi- legra demókrata, stærsta flokks landsins, og sósíalista undir forystu Bettinos Craxis. Andreotti dró úr hættunni á klofningi í nýju ríkisstjóminni með því að setja Ciriaco De Mita, fyrmm forsætisráðherra, út í kuldann. Ríkisstjórn De Mita, sem er sam- flokksmaður Andreottis, fór frá 19. maí síðastliðinn eftir tæpa árs setu og er stjórnarkreppan undanfarið ein sú lengsta í sögu landsins. Andreotti þykir einnig hafa tekist vel upp þegar hann skipaði Guido Carli, sem var bankastjóri Italíu- banka árin 1960-75, í embætti ijár- málaráðherra. Er það mat margra að enginn sé hæfari til að stýra Tímamót í norsku lúðueldi Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins. FISKELDISSTÖÐ fyrir sunnan Björgvin hefiir tekist að Qölda- framleiða lúðuseiði til áframeld- is. Mikil bjartsýni ríkir vegna þessa og er talað um, að nýtt ævintýri á borð við laxaeldisæv- intýrið í upphafi níunda áratug- arins sé í uppsiglingu. Það er fyrirtækið Sea Farm á eyjunni Storð fyrir sunnan Bergen, sem unnið hefur þetta brautryðj- endaverk. Vaxtarferlið skiptist í sex stig eftir að hrogn og svil hafa verið kreist úr fiskinum. 130 dögum seinna er unnt að selja seiðin til áframeldis. Eins árs vega þau 250 grömm, og eftir þijú ár em þau söluhæf matvara. Búist er við, að hvert lúðuseiði muni kosta um 30 norskar krónur (um 250 ísl. kr.). Gefin hafa verið út 50 rekstrar- leyfí til lúðueldis í Noregi, en talið er, að varlega verði farið í fjárfest- ingar vegna hinna mörgu gjald- þrota, sem dunið hafa yfir í laxeld- inu að undanförnu. Aðalmarkaðirnir fyrir lúðuna verða í Bandaríkjunum og Japan, eins og var með eldislaxinn. landinu farsællega í átt til sameig- inlegs, innri markaðar Evrópu- bandalagsins árið 1992. Meðal ráð- stafana sem fyrirsjáanlega verður að .gera fyrir þann tíma er sam- dráttur opinberra útgjalda og skatt- kerfisumbætur. Það er kaldhæðni örlaganna að Andreotti verður að treysta á stuðn- ing sósíalista því Craxi leiðtogi þeirra hefur gengið svo langt að kalla Andreotti „kölska sjálfan". í sameiningu tókst þeim að fella ríkisstjórn De Mita. Andreotti hjó að stoðum hennar á landsfundi kristilegra demókrata í febrúar og Craxi greiddi henni náðarhöggið um miðjan maí. Andreotti þykir hafa leyst sam- búðarvandamálið við sósíalista af mikilli kænsku. Sósíalistar fengu tvö mikilvæg embætti í nýju stjórn- inni; Claudio Martelli verður vara- forsætisráðherra og Gianni De Michelis utanríkisráðherra en því starfí gegndi Andreotti undanfarin sex ár. De Michelis er tæplega fimmtug: ur piparsveinn frá Feneyjum. í síðustu ríkisstjórn gegndi hann embætti varaforsætisráðherra. Hans besta skemmtun er að dansa við ungar meyjar fram undir morg- un og þannig heilsaði hann fyrsta embættisdeginum 'a mánudags- morgun á Rimini. Sagðist hann dá Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta mest af öllum leiðtogum heims. Að öðru leyti sagði hann að ekki yrði um neina umtalsverða stefnubreyt- ingu að ræða frá tíð Andreottis. kanski samningurinn sem hann hafði milligöngu um að yrði gerður kvað á um að bankar ættu mögu- leika á að afskrifa 35% af þeirri upphæð sem þeir höfðu lánað Mex- íkönum. Filippseyingar skulda erlendum bönkum 13.6 milljarða Banda- ríkjadala, eða jafnvirði 815 millj- arða ísl. króna. Þeir vonast til að fá 1.7 milljarða dala til viðbótar að láni og vilja semja um að eldri skuldir verði afskrifaðar. Erlendir fjármálasérfræðingar telja þó að engin lausn á efnahagsvanda Filippseyja sé í sjónmáli. Takist þeim að gera samning svipaðari þeim sem Mexíkanar gerðu, fái þeir þriggja til fjögurra ára svigrúm til að koma skuldamálum sínum á réttan kjöl en jafnframt gefíst skammsýnum stjórnmálamönnum færi á að auka enn á vandann. Bankamenn benda einnig á að þró- unarríkin séu ólík og geti því ekki vænst þess að gera öll eins samn- inga við lánardrottna sína og Mex- íkanar gerðu. immn STERKA RYKSUGAN SEM ENDIST LENGUR SÉRTILBOÐ stórlœkkað verð, nú aðeins (stgr. 14.999,-) >FOmx HATUNI 6A SIMI (91)24420 LOKAÐIDAG ÚTSALAN HEFST Á MORGUN Polarn&Pyret KRINGLUNNI 8—12, SÍMI 681822, OPIÐ MÁNUD.-FÖSTUD. KL. 10:00-19:00, OG LAUGARD. KL. 10:00-14:00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.