Morgunblaðið - 26.07.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.07.1989, Blaðsíða 14
f' 14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JULI 1989 Gullkista Mjólkursamsölunnar eftirÞórð Asgeirsson Forstjóri Mjólkursamsölunnar í Reykjavík (MS), Guðlaugur Björg- vinsson, sagði nýlega í viðtali við Stöð 2 að Baula hf. ætti í rekstrar- erfiðleikum þar sem jógúrtgerð hafi ekki reynst sú gullksita sem menn höfðu haldið. Nú veit Guð- laugur ekkert um rekstrarafkomu Baulu og það er ekki hún sem ég ætla að ræða hér. — En það er þetta með gullkistuna. Þar veit Guðlaugur um hvað hann er að tala. Áður en Baula hf. kom til skjalanna var jógúrtgerðin nefni- lega ein gullkista MS. Gullkista sem einokunarherrarnir hjá MS hafa nú ákveðið að loka hið snar- asta meðan verið er að drepa þann óþægilega keppinaut sem Baula er. Þeir hjá MS eiga nóg af öðrum gróðakistum sem hægt er að nota á meðan. Og þeir hafa verið nokk- Símar 35408 og 83033 AUSTURBÆR Skipasund 47-92 Fossvogur Selvogsgrunnur Drekavogur Langagerði VESTURBÆR Lynghagi KOPAVOGUR Hófgerði BREIÐHOLT Þverársel GRAFARVOGUR Dverghamrar Pt0r@nsnlila&ið uð stórstígir upp á síðkastið. Þegar mjólkin lækkaði í verði í júní sl. vegna þrýstings frá launþegasam- tökum og neytendum þá lækkaði raunverulegt framleiðsluverð á jógúrt um kr. 2,20 hvert kg sem þýðir að hver 180 g jógúrtdós hefði mátt lækka um 45 aura í smásölu. MS lækkaði þá jógúrtið um kr. 7,45 hvert kg þannig að smásölu- verðið lækkaði um 2 kr. hver dós. Skyrið hins vegar lækkaði ekkert og ekki rjóminn eða sýrði ijóminn né fjölmargar aðrar mjólkurvörur þótt hráefnið í þær hafi að sjálf- sögðu lækkað eins og hráefnið í jógúrt — enda þarf að auka álagn- inguna á einokunarvörumar eftir því sem hún er minnkuð í sam- keppnisvörunni jógúrt. Og Guðlaugur telur að þessar aðgerðir hafi heppnast og sett Baulu í rekstrarerfiðleika eins og að er stefnt. Okkur Baulumönnum finnst nú fullsnemmt hjá Guðlaugi að hrósa sigri og þykjumst við eiga eitthvað eftir í pokahominu. En það er ekki þetta sem deila Baulu og MS snýst um. Við Baulu- menn kvörtum ekki undan of lágu jógúrtverði til neytenda og erum staðráðnir í því að halda því áfram eins lágu og hægt er. En það er grundvallarkrafa okkar og for- senda fýrir lágu jógúrtverði að við fáum hráefnið mjólk á sama verði og keppinautarnir. í dag borgum við kr. 14,64 meira fyrir hvern mjólkurlítra en þeir vegna þess að MS tekur þessa fjárhæð í kostnað fyrir vinnslu á mjólkinni sem kem- „Við Baulumenn kvört- um ekki undan of lágu jógúrtverði til neytenda og erum staðráðnir í því að halda því áfram eins lágu og hægt er. En það er grundvallar- krafa okkar og for- senda fyrir lágu jógúrt- verði að við fáum hrá- efinið mjólk á sama verði og keppinautarn- ir.“ ur Baulu að engum notum og vill alls ekki að sé framkvæmd. Baula vill fá mjólkina ógerilsneydda og ófitusprengda en MS vill ekki selja hána öðru vísi en fullunna til þess að geta hirt þessar kr. 14,64 per lítra í vinnslukostnað. Baula notar árlega um 500.000 lítra af mjólk í framleiðslu sína svo um er að ræða 7,3 milljónir króna á ári sem Baula greiðir í þennan óþarfa framleiðslukostnað. Auðvitað er ekki hægt að una því og þess vegna hyggst Baula nú stofna eina mjólk- urbú landsins í einkaeign og kaupa mjólkina beint frá bændum. Með því móti einu getum við keppt á jafnréttisgrundvelli við þann einok- unarhring sem mjólkursamlög landsins eru. Baula hf. framleiðir nú tæp 25% af allri jógúrt á landinu. Samkvæmt skýrslum Framleiðsluráðs landbúnaðarins jókst jógúrtsalan um 69 tonn fyrstu 5 mánuði þessa árs. Af þeirri aukningu á Baula 52 tonn og ef Baulu tekst áfram að fá fleiri og fleiri neytendur til að velja Þórður Ásgeirsson Baulu-merkið þá mun okkur takast að rjúfa einokunina þannig að bæði mjólkurframleiðendur og neytendur njóti góðs af. Höfundur er forstjóri Baulu hf. Norrænu félögin sjá um framkvæmd Nordjobb eftirSighvat Björgvinsson í Morgunblaðinu sunnudaginn 24. júlí birtist frásögn um dvöl nor- rænna ungmenna á íslandi, sem Villa í Skerjafirði Glæsilegt stórt einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er í mjög góðu ástandi. Á efri hæð eru 5 svefnherb., öll góð. Innaf hjónaherb. er fataherb. og stórt baðherb. Sérbaðherb. fyrir önnur svefnherb. Neðri hæð: Stórar stofur, húsbóndaherb., stórt eldhús, rúmgott hol með arni, þvottaherb., geymsla og vinnu- konuherb. Suðursvalir. Stórar vestursvalir. Ca 40 fm glerhýsi. Mjög stór tvöfaldur bílskúr. Verð kr. 20,0 millj. Hugsanleg skipti á ódýrari eign. 26600 Fasteignaþjónustan Auttuntrmti 17,«. 26600 Þorsteinn Steingrímsson lögg. tasteignasali Sölumenn: Davíð Sigurðsson, hs. 667616, Kristján Kristjánsson, hs. 40396. allir þurfa þak yfír höfuáið TILSÖLU SÉRHÆÐ VIÐ HAGAMEL Til sölu er stórglæsileg efri hæð við Hagamel, á móti sundlaug vesturbæjar. íbúðin er 5 herbergi og með þvottahúsi á hæðinni. Rúmgóð geymsla fylgir í kjallara. Þá fylgir íbúðinni óvenju stór og rúmgóður bílskúr. Fyrir þá sem kynnu að haf^áhuga á getur einnig verið um að ræða sölu á 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í sama húsi ásamt rúmgóðri geymslu. Upplýsingar í síma 62 46 67. hingað hafa komið til sumarstarfa á vegum Nordjobb-verkefnisins. Um leið og ég þakka Morgunblað- inu fyrir að hafa sagt frá þessari starfsemi langar mig að biðja blað- ið um leiðréttingu á missögn, sem fram kemur í frásögninni. Missögn- in er í því fólgin, að stofnunin Nordjobb sjái um atvinnumiðlun unga fólksins, um að útvega því húsnæði og um skipulagningu tóm- stundastarfs. Einnig er rætt um starfsfólk Nordjobb-stofnunarinnar á íslandi. Nordjobb-stofnunin, sem er að miklum meirihluta í eigu norrænu félaganna á Norðurlöndum, er að- eins samræmingaraðili Nordjobb- samstarfsins á Norðurlöndum. Framkvæmdir allar eru hins vegar í umsjá norrænu félaganna í hveiju landi fyrir sig. Þannig er það Nor- ræna félagið á Islandi sem sér alfar- ið um atvinnumiðlunina hérlendis, um útvegun húsnæðis og um skipu- lagningu tómstundastarfs og öll þau verk, sem lúta að Nordjobb- starfseminni á íslandi. Þetta gerir Norræna félagið, með sama hætti og hin norrænu félögin, á grund- velli sérstaks samnings við Nordjobb-stofnunina og með sér- stöku leyfi frá félagsmálaráðuneyt- inu. Starfsfólk Norræna félagsins vinnur þessi verk. Nordjobb-stofn- unin hefur ekkert starfsfólk, hvorki hér á landi né annars staðar. Það starfsfólk norrænu félaganna á „Það eru því norrænu félögin hvert í sínu landi, sem hafa allan veg og vanda af Nordjobb-atvinnumiðl- uninni og öll störf að undirbúningi, skipu- lagningu og fram- kvæmd Nordjobb-verk- eftiisins eru unnin af starfsfólki norrænu fé- laganna.“ Norðurlöndum, gem starfar að Nordjobb-verkefninu, hefur svo með sér reglulega samstarfsfundi. Það eru því norrænu félögin hvert í sínu landi, sem hafa allan veg og vanda af Nordjobb-atvinnu- miðluninni og öll störf að undirbún- ingi, skipulagningu og framkvæmd Nordjobb-verkefnisins eru unnin af starfsfólki norrænu félaganna. Nordjobb-stofnunin sinnir engum slíkum verkefnum og hefur ekkert starfsfólk á sínum snærum. Mér þætti vænt um ef þessi leiðrétting fengi að koma fram í Morgunblað- inu. Með beztu kveðju. Höfundur er framkvæmdastjóri Norræna félagsins íReykjavík. Osta- og smjörsalan hf.: Ostabúðin á Snorra- braut hættir starf- semi um helgina OSTABÚÐIN á Snorrabraut 54 mun eftir næstu helgi heyra sög- unni til. Að sögn Óskars H. Gunnarssonar, framkvæmdasljóra Osta- og smjörsölunnar, eru ástæður þessa sú breyting sem orðið hefur á rekstri fyrirtækisins á þeim 30 árum sem búðin hefur verið starf- rækt, auk þess sem sala þar hefiir dvínað á liðnum árum. „Ostabúðirnar hafa ekki síst ver- ið hefur og þær sæju fyrir þeirri JMtogiiiiMfihtfr Askriftarsíminn er 83033 ið hugsaðar sem vettvangur til að kynna vörur okkar og starfsemi fyrir almenningi,“ sagði Óskar í samtali við Morgunblaðið. „Þetta hlutverk hafa almennar kjörbúðir og stórmarkaðir tekið æ meira til sín og í seinni tíð hefur borið nokk- uð á áhuga þannig aðila til að setja upp sérstök ostaborð eða jafnvel ofetadeildir." Hann sagði, að osta- búðirnar í Kringlunni og í aðal- stöðvunum við Bitruháls yrðu áfram starfrækíar með sama móti og ver- þörf sem fyrirtækið hefur á kynn- ingarstarfsemi á eigin vegum. „Okkar sjónarmið er fyrst og fremst að versla í heildsölu en ekki í smá- sölu,“ sagði Óskar ennfremur. Þrír starfsmenn hafa verið í fullu starfi við Ostabúðina á Snorrabraut og einn í hálfu starfi. Óskar sagði, að búið væri að útvega þeirri mann- eskju sem hefur lengstan starfsald- ur atvinnu innan fyrirtækisins en mál hinna væru í skoðun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.