Morgunblaðið - 26.07.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.07.1989, Blaðsíða 26
26 MÖltGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989 Borgarafundur um Hlíðarlund: Framkvæmdirn- ar í samræmi við aðalskipulag ÁGREININGUR sem risið hefiir í Lundahverfi vegna fyrirhugaðrar byggingar verslunar- og íbúðarhúsnæðis í Hlíðarlundi 2, var efni borgarafimdar, sem Akureyrarbær efiidi til á mánudagskvöldið. Þar voru mættir fiilltrúar skipulagsnefiidar og bygginganefhdar, svo og íbúar úr hverfinu, en í síðasta mánuði mótmæltu þeir þeim skipulagsbreytingum sem þeir töldu hafa farið fram á lóðinni, en upphaflega var hún einvörðungu ætluð undir verslunarhúsnæði. Hluti ibúanna í kring vildi hins vegar að hún yrði notuð undir leik- svæði, þar sem slíkt svæði vantaði tilfinnanlega. skipulag," sagði Arni. „Það var sjónarmið skipulagsnefndarinnar, þegar hún tók afstöðu til umsókn- ar SS-byggis um byggingarfram- kvæmdir á lóðinni, að ekki væri óeðlilegt að gert yrði ráð fyrir ein- hvers konar íbúðarhúsnæði þar ásamt verslunarhúsnæðinu, og því var fallist á erindi fyrirtækisins með ákveðnum fyrirvörum og skil- yrðum,“ sagði Árni og benti á að víða væri fordæmi fyrir því að verslunar- og íbúðahúsnæði væri byggt saman. Sigurður Sigurðs- son, eigandi SS-byggis, sagði að sér hefði virst fundarmenn ánægð- ir með þær útskýringar og ástæður sem gefnar voru og greinilegt að einungis hefði þurft að kynna þetta fyrir fólki. „Ég veit ekki annað, en að fund- armenn hafi verið tiltölulega sáttir við þessar framkvæmdir þegar fundinum la.uk,“ sagði Sigurður. „Meiningin er sú, að þarna rísi 24 og 35 fermetra útleiguíbúðir, sem henti skólafólki yfir veturinn, og nýtist svo ferðafólki á sumrin. Það er brýn þörf íyrir húsnæði af þessu tagi og eigi Akureyrarbær að rísa undir nafni sem skólabær, verður hann geta séð nemendum fyrir húsnæði.“ Sigurður sagði enn fremur að ekkert ætti að vera því til fyrir- stöðu að íbúðirnar yrðu flokkaðar sem gistiíbúðir, þ.e. að tryggt yrði að þær yrðu ekki seldar á frjálsum markaði, og að engum vandkvæð- um ætti að vera bundið að útbúa aðstöðu fyrir starfsmann, sem hefði eftirlit með húsinu. Sagði hann að fyrirhugað væri að stofna hlutafélag um rekstur íbúðarhús- næðisins og að það myndi hafa umsjón með útleigu íbúðanna. Burkhardt Stoppel bjóst við að gista á tjaldstæðinu í 3-4 nætur. Morgunblaðið/KJS Veðrið eins og á Italíu BURKHARDT Stoppel, frá Öhringen í Vestur-Þýskalandi, var staddur á tjaldstæðinu á Akureyri, þegar blaðamaður átti þar leið um. Þegar hann vissi að sá var á vegum Morgunblaðsins, brosti hann út að eyrum, þreif fram gamalt Morgunblað frá árinu 1986, og sýndi mynd af sér og viðtal, sem tekið hafði verið við hann fyrir réttum þremur árum. Burkhardt Stoppel sagðist hafa verið að koma austan úr Skafta- felli, þár sem hann hefði gist í fjóra daga, og líkti hann hitanum og veðursældinni þar við veðursæld- ina á Ítalíu. Hann sagðist samt lítinn áhuga hafa á því að dveljast á suðlægari slóðum, því þar væri svo margt um ferðamanninn. „Það er miklu betra veður núna heldur en þegar ég var hér á ferð- inni 1986,“ sagði hann, og bætti því við að hann yrði var við miklu fleiri ferðamenn nú en þá. „Einnig er það eftirtektarvert, hvað miklu meira af íslendingum er nú á ferðinni heldur en þá,“ sagði hann, og gaf í skyn að hann vildi frekar vera innan um þá held- ur en útlendingana. Hann kvaðst þó kunna best við sig í fámenninu og njóta náttúru landsins best þannig. Hann var alveg staðráðinn í að koma aftur að fáum árum liðn- um, því hér væri svo margt að sjá, og margt til að dást að. dagsnóttina og nærri 650 sunnu- dagsnóttina. Árni Ólafsson, skipulagsstjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið, að fundurinn sjálfur hefði auðvitað ekki tekið neina ákvörðun í þessu máli; hann hefði hins vegar verið mjög gagnlegur og orðið til að útskýra sjónarmið allra aðila. Hann benti jafnframt á að ekki hefði verið einhugur meðal íbúa í kring- um Hlíðarlund, um það hvernig lóðin skyldi nýtt. „íbúar hverfisins vita nú hvernig þessar framkvæmdir eru tilkomnar og að þær eru í samræmi við aðal- Stoppel var þó síður en svo í fámenni á tjaldstæðinu á Akur- eyri, því þar voru öll aðsóknarmet slegin um helgina. Fjöldi skráðra gistinátta aðfaranótt laugardags og sunnudags var yfir 1.700. Það sem af er júlímánuði eru gistinæt- ur orðnar hátt á áttunda þúsund, en undanfarin tvö ár hefur fjöldi gistinátta á sama tíma í júlí ein- ungis verið í kringum fimm þús- und. „Þetta er langmesta aðsókn sem ég man eftir hér á tjaldstæðinu, og er örugglega um aðsóknarmet að ræða,“ sagði Unnur Stefáns- dóttir, tjaldvörður, og sagði gistin- áttaskýrsluna ekki gefa alveg hár- rétta tölu, því alltaf mætti búast við að einhveijir hefðu gist svæðið, sem tjaldvörðum hefði sést yfir. Unnur sagði að eftirtektarvert væri að íslendingar væru mun fleiri nú en áður; yfirleitt eru þeir ekki fleiri en 200 talsins hveija nótt, en nú brá svo við, að þeir voru vel á áttunda hundrað laugar- * Húsnæði Alafoss selt Sæborgu og Hótel Stefaníu GENGIÐ var frá sölu á stórum hluta Ullarþvottastöðvar Álafoss hf. við Dalsbraut í gær, en kaupendur voru Sæborg hf. og Stef- án Sigurðsson, eigandi Hótels Stefaníu. Sæborg hf. keypti rúm- lega 500 fermetra á neðri liæð hússins, en Stefán Sigurðsson 700 fermetra á efri hæð. Þar með er búið að selja hátt í 5.000 fermetra af húseignum Álafoss, en óseldir eru á annað þúsund fermetrar. Þegar hefur hluti húseignarinn- ar á Dalsbraut verið seldur til prentsmiðjunnar Petit og flutti hún starfsemi sína þangað í síðasta mánuði. Þá var húsnæði fataverksmiðjunnar Heklu selt ríkinu í júní, en stærð þess var um 2.500 fermetrar. Þá keypti Vífilfell 360 fermetra lagerhús- næði. Iðnþróunarsjóður hefur hjálpað kaupendum að fjármagna við- skiptin við Álafoss með kaupum á skuldabréfum og að sögn Pét- urs Jósepssonar, hjá Fasteigna og skipasölu Norðurlands hefur hún jafnvel fjármagnað öll kaupin, ef um hefur samist. Sembal- tónleikar á Akureyri ROBYN Kom semballeikari held- ur tónleika í Akureyrarkirkju fimmtudagskvöldið 27. júlí kl. 20.30. Þar leikur hún verk eftir Byrd, Frescobaldi, Rameau, Scarlatti og Bach. Þessi verk flutti Robyn Koh á tónleikum í Skálholti nú nýverið þar sem hún hlaut mjög góðar við- tökur og lofsamlega dóma. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. (Fréttatilkynning) INNLENT Stærðarinnar terta hafði verið bökuð í tiiefni endurfundanna, og heiðurinn af gerð hennar átti Helga Halldórsdóttir, sem hér sést lengst til vinstri. Aðrir á myndinni eru Gunnar Austfjörð, Guðrún Bergs, Sigríður Gísladóttir, Egill Jónsson, Herdís María Júlíusdóttir og Gullý H. Ragn- arsdóttir. Endurfíindir ’49kyn- slóðarinnar SKÓLASYSTKINI af ’49 ár- gerðinni komu saman á Jaðri um helgina, og var tilgangur- inn sá að endurnýja kynnin og riQa upp gamla daga. Alls voru um 100 manns mætt- ir til gleðskaparins í golfskálanum á Jaðri, hvaðanæva að, og þar af voru 37 makar. Var dansað og sungið, og farið í leiki, auk þess sem söngsextett, sem tróð upp í gamla daga, var endurvakinn. Agóði varð af veislunni og verður honum varið til líknarmála.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.