Morgunblaðið - 26.07.1989, Síða 15
MQRGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JULI 1989
15
Samnýting auðæfa hafs-
botnsins á næsta leiti
Hafsbotnssvæði sem tilheyra rílgum sem liggja að
Norðurhöfum í samræmi við 76. grein hafréttarsátt-
mála Sameinuðu þjóðanna.
200 mílna mörkin á svæðum þeim sem hér er §all-
að um eru sýnd með óbrotinni línu, en önnur mörk
efnahagslögsögu með punktalínu. Kortið sýnir hina
miklu víðáttu sem friða má á norðurslóðum.
Svæði sem verða
innan lögsögu ríkjanna
~~~1 Svæði utan lögsögu ?
eftir EyjólfKonráð
Jónsson
Fyrir skemmstu var í London
haldin alþjóðleg'ráðstefna vísinda-
og áhugamanna um samnýtingu
hafsbotnssvæða, en víða um heim
skarast kröfur strandríkja til hafs-
botnsins líkt og er á Halton-
Rockallsvæðinu og var á hafs-
botninum milli íslands og Jan
Mayen áður en við sömdum við
Norðmenn um samnýtingu hans
1981.
Ráðstefnan var haldin á vegum
virtrar breskrar lögvísindastofnun-
ar og hafði lengi verið undirbúin
af hæfustu vísindamönnum sem
samið höfðu mikið og vandað rit
um þessi málefni og var það grund-
völlurinn sem þriggja daga fjörug-
ar og geysifróðlegar umræður
byggðust á. í „bókinni" eins og
ritið var kallað er að líta þijár
gerðir mismunandi sameignar- og
samnýtingarsamninga sem byggja
má á við mismunandi aðstæður og
áhúgaefni. Þar er getið þeirra
milliríkjasamninga sem gerðir hafa
verið víða um heim og skipa Jan
Mayen samningarnir frá 1980 og
1981 ekki óvirðulegan sess. Þá er
og ijallað ítarlega um Rockall
málið.
Af íslendinga hálfu voru lögð
fram margvísleg kort og upplýs-
ingar sem safnast hafa saman í
10 ára sögu landgrunnsbaráttu
okkar svo og tillögugerð sú sem
varð undirstaða landgrunnssamn-
ings íslendinga og Norðmanna
1981. Hún var sem kunnugt er
afrakstur starfa sáttanefndar sem
byggði tillögur sínar til ríkisstjórn-
anna á hafréttarsamningi Samein-
uðu þjóðanna. Sáttarnefndina
skipuðu þrír meðal fremstu fræði-
manna á sviði hafréttarins þeir
Hans G. Andersen, Jens Evensen
og Elliot Richardson, sem aðilar
tilnefndu sameiginlega formann
nefndarinnar. Á þessum merka
samningi var auðvitað vakin verð-
ug athygli og um hann urðu
ánægjulegar umræður og líflegar.
Á það var m.a. bent hvert for-'
dæmi það hlyti að geta verið öðrum
að tveim þjóðum skyldi í fullri sátt
og samlyndi hafa tekist að leysa
máí sín á örstuttum tíma einmitt
með sáttanefnd og setja þannig
niður deilur. Jafnframt var athygli
á því vakin að íslendingar hefðu
ætíð viijað og vildu enn leysa
ágreiningsmál sín við vinveittar
þjóðir í þeim anda sem þessi samn-
ingur var gerður. Ekki er ofsagt
að málið vakti athygli og fundar-
menn vildu ólmir fá öll gögn enda
margir hveijir að glíma við lausn
viðkvæmra deilumála líkra þeim
sem Islendingar og Norðmenn
unnu að og leystu fyrir áratug.
Eyjólfur Konráð Jónsson
„Allir hljóta að sjá hve
gífurlega þýðingarmik-
ið þetta mál er einmitt
nú þegar ógnir meng-
unar og kjarnorkuslysa
eru sem vofa yfir okkur
og umhverfis.“
Ráðstefna þessi var glöggur
vottur þess að stefna samnýtingar
og sameignar hafsbotnsins utan
200 mílna nýtur mikils og vaxandi
stuðnings strandríkja um víða ver-
öld en þau eru mikill meirihluti
þjöðanna og mynda sem fyrr al-
þjóðaréttinn á höfunum í raun (de
facto).
Við íslendingar hljótum að
gleðjast yfir þessari þróun þar sem
nú hillir undir það að þjóðirnar við
hin nyrstu höf, allt frá Noregs- og
Skotlandsströndum til Kanada,
muni í sameiningu nýta þau, eiga,
vernda og rækta.
Allir hljóta að sjá hve gífurlega
þýðingarmikið þetta mál er einmitt
nú þegar ógnir mengunar og kjarn-
orkuslysa eru sem vofa yfir okkur
og umhverfis.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Bjarni Jónsson ljósmyndari með tvö verka sinna.
Ljósmyndasýning í
Listasafni alþýðu
BJARNI Jónsson opnar ljós-
myndasýningu í Listasafhi al-
þýðu, Grensásvegi 16, laugar-
daginn 29. júlí. Á sýningunni eru
um 75 myndir, sldptast þær í
svart/hvítar, handlitaðar og lit-
myndir stækkaðar á ciba-
chrome-pappír.
Bjarni Jónsson lauk sveinsprófi
frá Iðnskólanum í Reykjavík og var
við nám í Germain school of photo-
graphy í New York 1982-1983.
Hann fékk meistarabréf 1983 og á
og rekur ljósmyndastofnuna Mynd
í Hafnarfirði síðan 1984.
Bjarni hefur áður haldið ljós-
myndasýningu í Listasafni alþýðu
í september 1986 og hann tók þátt
í samsýningu myndlistarmanna
vegna 20 ára afmælis IBM á Kjar-
valsstöðum í febrúar og mars 1987.
20. ólympíuleikarnir í eðlisfræði:
Sautján ára bandarísk-
ur piltur varð í efsta sætí
ísland í næstneðsta sæti
Varsjá, frá fréttaritara Morgnnblaðsins, Viðari Ágústssyni.
20. ólympíuleikunum í eðlisfræði var slitið á sunnudag með athöfii
í hátíðarsal háskólans í Varsjá. Við það tækifæri sagði Januz
Zakrzewski, forseti pólska eðlisfræðifélagsins, að glímu keppenda
við verkefhin á ólympíuleikunum mætti líkja við rannsókn pólskra
vísindamanna á lambda-ögninni fyrir 37 árum. „Fátt vekur eins
mikla gleði í bijóstum manna og það að leita lausnar og finna hana.“
í efsta sæti af 150 með 46,3 stig á ólympíuleikunum var rúmensk og
af 50 mögulegum lenti 17 ára
bandarískur piltur, Steven Gubser,
frá Engelwood í Colorado. í öðru
sæti var Ungveiji með 45,5 stig og
í þriðja sæti Rúmeni með 45 stig.
í fjórða og fimmta sæti voru Vest-
ur-Þjóðveijar.
Efsta stúlkan af sex sem kepptu
náði hún 28 stigum. Efsti íslending-
urinn var Kristján Leósson, nem-
andi í 5. bekk Menntaskólans í
Reykjavík, með 23 stig sem nægði
til að hann fengi sérstaka viður-
kenningu fyrir jgóðan árangur og
er hann þriðji Islendingurinn sem
hlýtur slíka viðurkenningu.
Ólympíuleikarnir í eðlisfræði eru
keppni einstaklinga. Engu að síður
tíðkast það meðal fararstjóra að
leggja saman stig allra keppenda
frá hverri þjóð og mæla þannig
heildarárangur. Mestum stigafjölda
náðu að þessu sinni Vestur-Þjóð-
veijar en næstir komu Kínveijar
og Bretar en Pólveijar og Rúmenar
voru í 4. og 5. sæti. Austantjalds-
löndin eru því nú að missa þá yfir-
burði í keppninni sem þau hafa
haft sl. 20 ár, með vaxandi keppnis-
reynslu vestrænna þátttakenda. í
heildarárangri náði Island 28. sæti
af 29 sem er svipaður árangur og
oft áður.
Dr Paula Horan Ph O. Sálfræöingur og leiöbeinandi
Reynsla fyrri lífa
Fortíöin, lykillinn aö því aö leysa vandamál líöandi
stundar. Þú sérö nútímann í ööru Ijósi meö
hlíðsjón af upplifun úr fortíöinni.
Veröur haldiö dagana 28., 29. og 30. júlí. Matur og
gisting jnnifalin. *
Ókeypis kynning í kvöld miövikud. kl. 8.30 í Eiriksbuö Hótel Loftleiðum.
Upplýsingar og skráning ( Heilsumiöstööinni LIND s. 686612, og í símun 54851,24179.