Morgunblaðið - 26.07.1989, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989
Eru
þeir að
fá 'ann
■
Tónleikaförinni lokið
New York-borg. Frá Árna Matthíassyni, blaðamanni Morgfunblaðsins.
Sykurmolarnir luku í siðustu
viku tónleikafór sinni um Banda-
ríkin og fóru siðustu tónleikarnir
fram í Meadowland Arena í New
Jersey á miðvikudag, en þaðan
eru þessar myndir af þeim Ein-
ari Erni Benediktssyni og Björk
Guðmundsdóttur. Molarnir hafa
leikið á tónleikum ásamt Public
Image Ltd. og New Order.
Mest tónleikaefnið var af
skífunni Life’s Too Good, en einnig
nokkuð af væntanlegri plötu þeirra,
sem gert er ráð fyrir að komi út í
september. Hljómsveitarmeðlimir
komu flestir heim til íslands á
sunnudag og verða hérlendis þar
til hin nýja plata kemur út, en þá
verður lagst í tónleika- og kynning-
arvíking að nýju.
„Of rólegt“ í Vatnsdalnum.
„ÞETTA hefur verið rólegt, of
rólegt, í Vatnsdalsá það sem af er,
en við erum að gæla við það að
laxinn eigi eftir að skila sér, það
var það slæmt vorið og ástand ár-
innar lengst af eftir því. Það voru
komnir 200 laxar á land í morg-
un,“ sagði Gylfi Ingason leiðsögu-
maður við Vatnsdalsá í samtali við
Morgunblaðið í gærdag.
Gylfi sagði enn fremur, að hollið
sem væri að ljúka veiðum hefði
fengið 40 laxa á 5 dögum og hefðu
laxamir nær allir verið lúsugir.
Mest af því smálax sem veiddist
víða í ánni. Það voru þó stórir inn-
an um og meðalþyngdin fram að
umræddri veiði var mjög góð, „við
höfum þó enn þau forréttindi að
hafa hér óvenjustóran fisk þótt það
sé minna um hann nú en áður,“
sagði Gylfi og skaut með að einn
22 punda fiskur hefur komið á land,
þrír 20 punda og tveir 19 punda.
Smálax að „sullast inn í“
Víðidalsá.
„Það er eitthvað af smálaxi að
sullast inn í ána og við höfum orð-
ið þeirra víða varir. I nótt fórum
við með ánni í logni og kyrru veðri
og sáum boða af göngunum hér
og þar. Vonandi veit það á gott,
því veiðin hefur verið mjög rólég
það sem af er í Víðidalsá," sagði
Lúther Einarsson leiðsögumaður
við ána í gær. Hann sagði um 340
laxa vera komna á land og væri
meðalvigtin minnkandi. Einn 20
punda veiddist í síðustu viku, en
nærri 14. júlí veiddust tveir 23
punda fiskar. Dalsárósinn hefur
verið drýgsti veiðistaðurinn, en
annars hefur veiðst um alla á.
Reytingur í Eystri Rangá.
Morgunblaðið/Ásgeir Heiðar
Derek Balls frá Essex í Eng-
landi heldur hér á 9 punda
hrygnu sem hann veiddi í Laxá
í Kjós fyrir nokkru. Þetta
reyndist vera eitt þúsundasti
laxinn úr ánni þetta sumar, en
Laxá var fyrst áa til þess að
ná fjögurra stafa tölu.
„Það eru komnir 10 laxar á land
hjá mér í Fiskánni og efsta hluta
Eystri Rangár. Það er slæðingur
af físki og þetta er nokkuð gott
því besti tíminn er eftir,“ sagði
Lúðvík Gizurarson í samtali við
Morgunblaðið. Laxarnir eru á bil-
inu 4 til 11 pund og hafa fengist
merktir smálaxar úr gönguseiða-
sleppingu frá síðasta sumri. Nokkr-
ar vænar bleikjur hafa einnig veiðst
og vottur af sjóbirtingi, en báðar
tegundirnar eiga trúlega eftir að
skila sér í ríkari mæli er á sumarið
líður. Neðar í Eystri Rangá bg í
Ytri Rangá hefur verið reyting-
sveiði og blandaðum afli, lax,
bleikja eða urriði, þetta er ekki
svæði sem gefur mönnum fullt
bílskott af fiski, en það sem veiðist
er yfirleitt rokvænn fískur.
Ljósmyndir/Björg Sveinsdóttir
Sykurmolarnir:
Morgunblaðið/Björn Bjömsson
Bifreiðin, sem ekið var á brúarstólpa við Stafárbrú í Fljótum á sunnu-
dag, er gjörónýt svo sem sjá má.
Guðrún Guðjónsdóttir
rithöfundur látin
Bifreið ekið á brúarstólpa
Sauðárkróki.
TILKYNNT var um slys við
Stafárbrú í Fljótum kl. 5.30 á
sunnudagsmorgun. Þar hafði
fólksbifreið af BMW-gerð verið
ekið á miklum hraða á brúar-
stólpa. Svo heppilega vildi til að
ferðafólk hafði tjaldað við ána og
gat það kallað til lögreglu og
sjúkrabifreiðar frá Hofsósi og
Sauðárkróki. Þá voru tveir læknar
kallaðir á slysstað. Fjórir voru í
bílnum og tók það alllangan tíma
að ná þeim úr flakinu, sérstaklega
bílstjóranum. Voru allir fjórir
fluttir á sjúkrahúsið á Sauðár-
króki, en tveir áfram með sjúkra-
flugi til Reykjavíkur, mjög mikið
slasaðir.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Sauðárkróki var mikið
annríki um síðustu helgi. Fjögur
umferðaróhöpp urðu og slösuðust
menn í tveimur þeirra. Fjölmargir
voru teknir fyrir of hraðan akstur
og grun um ölvunarakstur.
Við Djúpdalsána í Blönduhlíð lenti
bifreið út af veginum og niður í ána
um kvöldmatarleytið á sunnudag.
Farþegi sem var í bílnum skarst í
andliti en ökumaður slapp ómeiddur.
Þá lenti bifreið út af veginum við
bæinn Kross í Hofshreppi og hafnaði
úti í skurði. Farþegi í bílnum slasað-
ist nokkuð og var fluttur í sjúkrahús-
ið á Sauðárkróki en ökumaðurinn
slapp ómeiddur enda var hann
spenntur í bílbelti en farþeginn ekki.
- BB.
GUÐRÚN Guðjónsdóttir rithöf-
undur andaðist á Borgarspítalan-
um þann 25. júlí, 85 ára að aldri.
Guðrún fæddist í Reykjavík þann
24. desember 1903 og ólst þar upp.
Foreldrar hennar voru Guðjón
Brynjólfsson verkamaður og Guð-
laug Eyjólfsdóttir húsmóðir. Árið
1926 giftist hún Stefáni Jakobssyni
múrarameistara í Reykjavík og áttu
þau þrjá syni, Hreggvið, Hrafnkel,
og Stefán Má.
Guðrún lét sig samfélagsmál
miklu varða. Hún gekk snemma til
liðs við sósíalistahreyfinguna og var
m.a. félagi í Sósíalistaflokknum,
starfaði með kvenfélagi sósíalista,
Menningar- og friðarsamtökum
íslenskra kvenna og MÍR. Aðalstarf
hennar á sviði félagsmála var þó
innan kRON en hún sat í stjórn
félagsins 1945—1969.
Guðrún var listhneigð og stund-
aði vefnað um nokkuð langt skeið,
bæði myndvefnað og nytjavefnað
auk pijónahönnunar. Hún hélt
nokkrar sýningar á verkum sínum.
Guðrún stundaði ritstörf frá
fimmtugsaldri ásamt húsmóður-
störfum. Út komu eftir hana tvær
ljóðabækur, Opnir gluggar árið
1976 og Gluggar mót sól árið 1988.
Aðrar bækur sem út hafa komið á
prenti eftir Guðrúnu eru barna- og
unglingabækur, bæði frumsamdar
og þýddar.
Guðrún Guðjónsdóttir.
Á laugardaginn tók bifreiðaumboðið Ingvar Helgason hf. formlega í notkun nýtt húsnæði við Sævarhöfða.
Ingvar Helgason hf.:
Nýtt húsnæði tekið í notkun
BIFREIÐAUMBOÐIÐ Ingvar Helgason hf. hefúr nú formlega tekið
í notkun nýtt húsnæði við Sævarhöfða í Reykjavík. í apríl flutti fyrir-
tækið starfsemi sína þangað frá Melavöllum við Rauðagerði, en nýja
húsnæðið var ekki formlega vígt fyrr en öllum frágangi var lokið.
Hús Ingvars Helgasonar við
Sævarhöfða er á fimmta þúsund
fermetra að stærð og er það byggt
úr límtré. Arkítektastofan að Tún-
götu 3 sá um hönnun hússins en
Steintak hf. sá um mestan hluta
byggingarframkvæmdanna.
Júlíus Vífill Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri, segir að mikil bót sé
að flutningunum í nýja húsnæðið.
Til dæmis sé þar sýningarsalur sem
taki með góðu móti 15 til 18 bíla
og aðstaða fyrir varahlutaþjónustu
fyrirtækisins hafi batnað til muna.
Stækkunarmöguleikar séu auk þess
miklir, þar sem húsið standi á tólf
þúsund fermetra Ióð.