Morgunblaðið - 26.07.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUÐAGUR 26. JÚLÍ 1989
17
Unnið við Kolbeins-
ey í kapp við veðrið
VARÐSKIPIÐ Óðinn var komið með sinn annan farm af stein-
steypu að Kolbeinsey í gær en þar var unnið í kapp við veðrið
fram eftir kvöidi, þar sem spáð var norð-austanátt með 6 til 8
vindstigam. Að sögn Sigurðar Steinars Ketilssonar skipherra á
Óðni, miðar verkinu vel og með nokkurri bjartsýni má búast við
að því yúki um helgina.
„Þetta verkefni hefur gengið
vonum framar," sagði Sigurður.
„Hér eru erfiðar aðstæður og lítið
undirlendi á þessu skeri þannig
að ég held að menn geti verið
mjög ánægðir með árangurinn.
Búnaðurinn í skipinu og skipið
hefur reynst vel og svo er náttúru-
lega hörku duglegt fólk hérna.
Það er númer eitt, tvö og þijú.
Við erum að keppast við að klára
því hann spáir norð- austan átt
með 6 til 8 vindstigum og þá get-
um við lítið aðhafst. Við stefnum
því á að vera búnir að þessu fyrir
miðnætti og ef allt gengur upp,
þá höldum við inn á Akureyri."
Sigurður sagði að fara þyrfti
þijár ferðir með efni og er það
ein ferð umfram áætlun er gerð
var en þegar unnið hafði verið
úr fyrsta farminum, sem var um
30 rúmmetrar af steypu, var ein-
ungis búið að „holufylla". Sagði
Sigurður að miklar gjótur væru í
eynni og engu líkara en hún væri
að springa í sundur. Steypusíló
hafa þrisvar farið í sjóinn og
þurfti að senda kafara eftir þeim
til að ná þeim upp. „Okkur
dreymir um að hægt verði að fara
síðustu ferðina á fimmtudaginn
þrátt fyrir slæma veðurspá og
ljúka þá við að steypa en slá síðan
utan af mótunum og ganga frá
pallinum á.föstudag," sagði Sig-
urður. „Það þýðir ekki annað en
að vera bjartsýnn, bjartsýnin
keyrir allt áfram. Veðrið er ágætt
núna austan kaldi og suddi. Hafís-
inn sjáum við ekki en rækjukarl-
arnir eru svo spenntir að fylgjast
með verkinu þeir eru farnir að
toga hérna upp undir okkur. Þeir
Þyrla Landhelgisgæslunnar
með steypusíló yfir Kolbeinsey
en vonir stand til að lokið verði
við þyrlupallinn í eynni fyrir
næstu helgi.
eru að ljúka við rækjukvótan fyr-
ir Norðurlandi og nú er svo lítið
að hafa að þeir hafa meira gaman
af að fylgjast með okkur.“
- Er þetta skemmtilegt verk ?
„Jú þetta er bæði gaman og
spennandi og svo er þetta svo
sérstakt verkefni og öll verkefni
sem ganga vel skila jnanni ein-
hveiju,“ sagði Sigurður.
„Steypyþyrlan" á ferð við
„steypustöðina" um borð í Óðni.
Valaskjálfti 89 á Egilsstöðum
VALASKJALFTI 89 er yfirskrift
tónleika- og dansleikjahátíðar
sem verður í Hótel Valaskjálf á
Egilsstöðum um verslunar-
mannahelgina.
Á hátíðinni koma fram hljóm-
sveitirnar Stjórnin, Langi Seli og
skuggarnir, Heitar pylsur, Engin
okkar hinna, Hálfur undir sæng,
Pete Suffa and the disaster, söng-
konumar Sigríður Beinteinsdóttir
og Ellen Kristjánsdóttir og blúsar-
inn Guðgeir Björnsson. Þá sýnir
eldgleypir listir sínar og ýmis önnur
skemmtiatriði verða á boðstólum.
Dansleikir verða á föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld frá
klukkan 22-03. Rokktónleikar
verða á laugardaginn klukkan 17.
í fréttatilkynningu, sem Morgun-
blaðinu hefur borist frá aðstandend-
um hátíðarinnar, segir að góð tjald-
og hreinlætisaðstaða sé á Egilsstöð-
um. Þá segir, að í Atlavík verði
tjaldstæði leyfð, en Skógrækt ríkis-
ins hafi ekki talið unnt að leyfa
dansleikjahald þar.
Rútuferðir verða alla dagana
milli Atlavíkur og Egilsstaða.
Sæstrengur til Vestmannaeyja:
Heildarkostnaður við
viðgerð imi
VIÐGERÐ og prófun á aðalsæ-
streng til Vestmannaeyja lauk á
mánudag, en hann bilaði í árs-
byijun. Heildarkostnaður við við-
gerðina er áætlaður um 80 millj-
ónir króna. Strengurinn getur
flutt 26 MW til Vestmannaeyja
og á að duga vel fram yfir alda-
mót.
Aðalstrengurinn, sem lagður var
1978, bilaði 14. janúar síðastliðinn.
Ekki var unht að gera strax við
hann þar sem viðgerðin er afar
Veitinga-
húsið Hall-
argarður-
inn stækkað
VEITIN G AHÚ SIÐ Hallar-
garðurinn í Húsi verzlunar-
innar verður lokað til 25.
ágúst n.k. þar sem unnið er
að því að stækka staðinn og
breyta honum.
Að sögn Jóhannesar Stefáns-
sonar veitingamanns verður
aðal breytingin sú að staðurinn
fær sérinngang, en áður var
gengið inn í hann úr Veitinga-
höllinni. Byggð verður brú inn
í nýtt anddyri á suðurhlið, setu-
stofa stækkuð og innréttingum
breytt í sjálfum veitingasaln-
um.
Jóhannes sagðist vona að
fastagestir Hallargarðsins
sýndu þessum breytingum
skilning og kvaðst þess fullviss
að breytingarnar myndu falla
þeim vel í geð.
80 milljomr
vandasöm, að því er segir í fréttatil-
kynningu frá Rafmagnsveitum
ríkisins, og mjög háð veðri. Tekinn
var í notkun varasæstrengur frá
1962 sem einungis annar almennu
álagi í Vestmannaeyjum svo að
skerða varð sölu ótryggðrar orku.
Hafist var handa um að staðsetja
bilunina þegar aðstæður leyfðu með
mælingum frá Landeyjarsandi og
Vestmannaeyjum. Hún reyndist
vera á 45 metra dýpi um 4 kíló-
metra frá Vestmannaeyjum. Þar
torvelda miklir straumar köfun og
vegna veðurs voru skemmdir ekki
kannaðar nánar fyrr en um mán-
aðamótin febrúar - mars. Streng-
urinn reyndist mun verr farinn en
ætlað var í fyrstu, skemmdir fund-
ust á tveim stöðum auk bilunarstað-
ar. Hafrót og straumar höfðu til
dæmis stórskemmt strenginn á
2.000 - 3.000 metra kafla út frá
Eiðinu í Vestmannaeyjum.
Ýmsar leiðir til úrbóta voru at-
hugaðar og ákveðið að skipta út
hluta af strengnum og taka á land
við Skansinn. Danska fyrirtækið
MKT átti lægsta tilboð í 6 kíló-
metra af 33 kV streng og viðgerðar-
skip. Þegar eftir að skipið H.P.
Lading kom til Vestmannaeyja um
miðjan júlí hófst undirbúningur við-
gerðarinnar. Jafnframt var byijað
á að leggja og tengja 650 metra
streng frá Skansinum í aðalveitu-
stöð og lauk því verki fyrir rúmri
viku.
Sæstrengurinn náðist að bilunar-
stað fyrir viku en vegna veðurs
hófst viðgerð degi síðar. Sólarhring
tók að tengja nýja strenginn við
þann gamla og enn tafði veður
framkvæmdir. Strengurinn var
lagður á land síðastliðinn sunnudag,
tengdur og prófaður á mánudag.
KAFFITILBOÐ
YININAR
VERD
mmmmm
rosíiHii*
INGAPJÖNUSTAN / SlA