Morgunblaðið - 26.07.1989, Qupperneq 19
MQRGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUÐAGUR 26. JÚLÍ 1989
19
Noregur:
Umframseiði á matborð Rússa?
Flóð í Kína:
NORÐMENN eru að velta fyrir
sér að selja Sovétmönnum um-
framframleiðslu sína af laxaseið-
um, að sögn Aftenposten. Seiðin
verða seld sem mannamatur og
fást um tvær norskar krónur (um
17 ísl. kr.) fyrir stykkið (Verð á
laxaseiðum fór upp í 30 n. kr.
eða um 250 ísl. kr. stykkið um
miðjan þennan áratug).
Sölusamlag norskra fiskeldis-
stöðva (NFF)hefur fengið tilboð frá
fyrirtækinu Scarus Norway um
kaup á allri umframframleiðslu af
laxaseiðum, sem eru yfir 50 grömm
að þyngd — alls um 20 milljón seið-
um. Scarus Norway er dótturfyrir-
tæki Scarus Marine Nutrition, sem
hefur aðsetur í Helsingborg í
Svíþjóð og er í eigu hlutafélagsins
Sovrybflot í Moskvu. Það fyrirtæki
er einhvers konar framkvæmdarað-
ili fyrir sovéska sjávarútvegsráðu-
neytið.
Sovétmennirnir hugsa sér við-
skiptin á þann veg, að þeir sendi
flutningaskip til Noregs og smali
umframframleiðslunni saman í hin-
um ýmsu höfnum. Seiðin verða
síðan fryst um borð. Verðið miðast
við, að Norðmenn skili framleiðsl-
unni að skipshlið.
„Okkur virðist tilboðið áhuga-
vert,“ segir Paul Birger Torgnes,
framkvæmdastjóri NFF, „en það
eru margir endar lausir í þessu
máli enn þá, einkum að því er verð-
ið áhrærir.
Ef samningar tækjust, yrði öll
umframframleiðsla Norðmanna af
laxaseiðum seld á 40 milljónir n.
kr. (ríflega 330 millj. ísl. kr.).
Bretland:
Fangi stakk
alla af og
lögguna líka
London. Reuter.
FANGI að nafni Peter Overy
misnotaði leyfi, sem hann fékk
til að taka þátt í góðgerðarhlaupi
i suðurhluta Englands á sunnu-
dag.
Overy vann hlaupið örugglega,
en í stað þess að staðnæmast þegar
hann hafði slitið marksnúruna og
snúa aftur til fangelsis hélt hann
áfram og hljóp laganna verði af
sér. Fer hann nú huldu höfði. „Hann
er líklega að hlaupa sigurhringinn,
ef til vill kringum hnöttinn,“ sagði
talsmaður lögreglunnar í gær.
Overy er 46 ára og afplánaði
þriggja ára fangelsisdóm fyrir
þjófnað.
Svein Anders Dahl, varaformað-
ur samtaka seiðaeldisstöðva, er
ekki ýkja hrifinn af tilhugsuninni
um þennan samning. „Ég tel rétt-
ast, að seiðaframleiðendur taki af-
leiðingum gerða sinna án þess að
hafa öryggisnet til að koma í veg
fyrir, að þeir verði gjaldþrota,“ seg-
ir hann. „Tilboð Rússanna er selj-
endunum ákaflega óhagstætt, en
mun í flestum tilfellum leggja þeim
fyrirtækjum, sem þegar eru gjald-
þröta, til peninga. Við áætlum, að
100 af þeim 370 seiðaeldisfyrir-
tækjum, sem nú eru í rekstri, verði
gjaldþrota á þessu ári.“
Varaformannir.um finnst ekkert
athugavert við, að laxaseiði séu
notuð til manneldis. „Ég hef oft
borðað þau steikt," segir hann.
„Þau minna á steiktán urriða og
eru bragðgóð."
Svo kann að fara, að norsk laxa-
seiði hafni á hádegisverðarborð-
um Sovétmanna. Fyrirtæki i
þeirra eigu hefiir boðist til að
kaupa alla umframframleiðsluna
á þessu ári — yfir 20 milljónir
seiða.
Það er fátt sem kemur í veg fyrir
að Renault 19 verði mikils metinn á íslandi.
Hann keppir við þá vinsælustu
í sínum flokki.
Samkeppnin á markaðnum
Hönnun og þróun Renault 19 miöaö-
ist strax í upphafi viö samkeppni frá
Evrópskum og Japönskum bílum.
Kröfur bílkaupenda aukast jafnt og
þétt, þess vegna er þörfin fyrir
Renault 19 til staöar.
Tæknilegur tímamótabfll
Renault 19 GTS, er meö nýja 80
hestafla „Energy" vél, meö 2ja hólfa
blöndungi. Vélin er 1390 cc, 4ra
strokka og smíöuö til að standast
ströngustu kröfur um mengunarvarnir
T Evrópu og Bandarikjunum. Spar-
neytnin er ótrúleg, bensíneyðslan er
milli 5 og 6 lítrar á hundað kílómetr-
um. Hámarkshraöi er 173 km/klst.
Fjöðrunin er sérstaklega styrkt til aö
gefa bílnum góöa aksturseiginleika,
jafnt í innanbaéjarakstri sem á malar-
vegum.
Gírkassinn er 5 gíra og er gírskipting-
in eins og best gerist í dýrari bílum.
Gírkassi og drif hafa sérstakt smur-
olíukerfi sem aldrei þarf aö bæta á
eöa skipta um olíu.
Renault 19 GTS
kostar frá
799.399.-
Obreytt kynningarverð
Þrátt fyrir gengisbreytingu aö undan-
förnu, verður Renault 19 enn um
sinn á óbreyttu kynningarveröi.
Einfalt mál að semja
Þú semur um þau kjör sem henta
þér best. Við tökum notaða bíla í
góöu ástandi sem greiðslu upp í nýj-
an Renault 19.
Greiðslukjörin eru til allt aö 24 mán-
aöa.
Engin áhætta
Þú tekur enga áhættu þegar þú
kauþir Renault 19. Bilinn kaupir þú
meö 30 daga skilarétti, sem þú getur
notaö til aö kynnast bílnum nánar.
Sértu ekki ánægö(ur) meö kaupin
getur þú einfaldlega skilað bílnum
innan 30 daga frá kaupdegi. Nánari
upplýsingar um skilaréttinn á Renault
19 færöu hjá sölumönnum.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1, Reykjavfk, sfmi 686633
1500 menn
hafa farist
Peking. Reuter.
141 MAÐUR lést í norðausturhluta
Kína í síðustu viku af völdum flóða
og aurskriða en alls hafa þá um
1500 manns týnt lífi í flóðum á
þessu sumri. Fyrir helgi var greint
frá því opinberlega að 84 hefðu
látist í norðausturhluta Kína en um
helgina gekk fellibylur yfir Fujian
og Zhejiang héruðin, á austur-
ströndinni. 57 létust og um eitt
búsund manns slösuðust. Um 4.000
úmili og mikið af ræktarlandi
eyðilagðist
ERLENT