Morgunblaðið - 26.07.1989, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVlKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989
Bandaríkin:
Kvennasamtök
kanna stofimn
stj órnmálaflokks
St. Cloud, Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMTOK bandarískra kvenna, „The National Organization for Wom-
en“, hafa ákveðið að kanna möguleika á stofhun nýs sljórnmála-
flokks, sem mundi fyrst og fremst berjast fyrir jafinrétti. Við lok
landsfundar samtakanna í Cincinnati í gær var einnig samþykkt
mótatkvæðalaust að berjast fyrir að minnsta kosti sex breytingum
á stjórnarskránni varðandi jafhréttismál.
„Við konur erum rúmlega helm-
ingur íbúa Bandaríkjanna en erum
hunsaðar,“ sagði Molly Yard forseti
samtakanna. „Við höfum fengið
okkur fullsaddar af því að fara bón-
arveg að valdhöfunum."
Eleanor Smeal, formaður stjórn-
ar sjóð kvenréttindameirihlutans
(Fund for the Feminist Majority),
var enn harðorðari: „Við viljum ná
fram meiri háttar pólitískum breyt-
ingum. Konur eru yfirleitt óánægð-
ar með báða stjórnmálaflokkana."
Af blaðafregnum má ráða að
MINOLTA
Ljosritunap-
vélar
Nettar, sterkar og vandaöar vél-
ar sem nánast ekkert fer fyrir.
IVSnoltaD-10
Lítil einföld og traust.
Sú ódýrasta á markaðnum!
R/inoítaEP-30
Þægileg og sterk vél sem skilar
hámarksgæðum.
K
KJARAN
Síðumúla 14,108 Reykjavík, s:(91) 83022
samstaðan meðal kvenna sé þó ekki
eins sterk og ætla mætti af mótat-
kvæðalausum samþykktum. í
fyrsta lagi var tilgangur lands-
fundarins að mótmæla þeirri aftur-
för, sem samtök kvenna telja felast
í nýuppkveðnum úrskurði hæsta-
réttar Bandaríkjanna varðandi fóst-
ureyðingar, en pólitískar ákvarðanir
aukaatriði. Sumar konur telja að
stofnun nýs stjórnmálaflokks jafn-
gildi sjálfsmorði fyrir kvennasam-
tökin og telja margar þeirra að
betra væri fyrir samtökin að flyklq'a
sér um stefnu demókrataflokksins.
Meðal stjórnarskrárbreytinga
sem konurnar vilja ná fram er bann
gegn kynferðislegri mismunun,
bann gegn afskiptum ríkisstjórnar-
innar af fóstureyðingum, að réttur
til mannsæmandi lífskjara verði
tryggður og einnig réttur til ómeng-
aðs umhverfis.
Sovéski tundurspillirinn, er ber heitið Gremjastsíj, á siglingu um dönsku sundin síðastliðinn föstudag.
Skip er af Sovremennij-gerð, um 7.300 tonn að stærð með 230 manna áhöfh og er talið vera búið kjama-
vopnum. Sovétmenn eiga nú þegar tíu slík skip en sex em í smíðum.
Sovétmenn styrkja enn
flota sinn í Norðurhöfiun
Ósló. Reuter.
EMBÆTTISMENN í norska
vamarmálaráðuneytinu skýrðu
frá því í gær að Sovétmenn hefðu
bætt nýju herskipi við Norður-
flota sinn er hefur aðalbækistöðv-
ar á Kóla-skaga, austur af Norð-
Bandarískur stjórnarerindreki grunaður um njósnir:
Fékk viðvörun firá sov-
éskum njósnara í París
Washington. Reuter.
SOVÉSKUR leyniþjónustumaður í Paris varaði bandariska stjómarer-
indrekann Felix Bloch við því að bandaríska alríkislögreglan (FBI)
fylgdist grannt með ferðum hans. Skýrt var frá þessu í fréttum banda-
rísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC í gær en Bloch er gmnaður um njósn-
ir í þágu Sovétstjórnarinnar.
í fréttum bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar sagði að sovéski sendi-
maðurinn hefði notað dulmál er hann
skýrði Bloch frá því að grunur hefði
fallið á hann. „Það gengur illskeytt
flensa og við teljum að þú hafir
sýkst,“ mun sá sovéski hafa sagt
Bloch er þeir hittust í París í vor.
Fréttastofa ABC skýrði fyrst frá
máli þessu um síðustu helgi og
kvaðst þá hafa heimildir fyrir því að
bandarískir leyniþjónustumenn hefðu
í fórum sínum myndbandsspólu er
sýndi Bloch afhenda þekktum so-
véskum njósnara í París skjalatösku.
í fréttum ABC í gær sagði að sá
hinn sami hefði tjáð Bloch að fylgst
væri með honum og voru heimildar-
menn fréttarinnar sagðir ónefndir
bandarískir leyniþjónustumenn.
Bloch er enn fijáls maður og
ákæra hefur ekki verið gefin út á
hendur honum. Þykir það gefa til
kynna að ekki liggi fyrir nægar sann-
anir til að höfða sakamál. Þess í stað
munu bandarískir leyniþjónustu-
menn einkum leggja áherslu á að fá
hann til að játa á sig njósnimar, að
sögn lögfræðings í bandaríska dóms-
málaráðuneytinu sem sagði í samtali
við Reuters-fréttastofuna í gær að
oftar en ekki lægju ónógar sannanir
fyrir í málum sem þessum. Banda-
ríska dagblaðið The Washington Post
skýrði frá því í gær að starfsmenn
bandarísku alríkislögreglunnar hefðu
þegar í síðasta mánuði sakað Bloch
um njósnir og lagt fyrir hann gögn
máli sínu til stuðnings. Hann hefði
á hinn bóginn lýst sig saklausan.
George Bush Bandaríkjaforseti sagði
á mánudag að honum hefði um alln-
okkurt skeið verið kunnugt um að
Bloch væri grunaður um niósnir og
kvað málið „mjög alvarlegt".
Hugsanlegt er talið að Bloch hafi
starfað fyrir sovésku leyniþjón-
ustuna, KGB, í 15 ár. Bloch, sem
er 54 ára, hefur starfað í þijá ára-
tugi í utanríkisþjónustunni og var
næst æðsti embættismaður banda-
ríska sendiráðsins í Vínarborg um
sex ára skeið. Sendiráðið hefur m.a.
aðstoðað fulltrúa Bandaríkjastjórnar
í viðræðum við sovéska sendimenn
um niðurskurð á sviði hins hefð-
bundna herafla í Evrópu. Fullvíst er
talið að Bloch hafi haft aðgang að
ýmsum skjölum er vörðuðu viðræður
þessar og önnur ríkisleyndarmál.
Bandarískir fjölmiðlar kveðast hafa
heimildir fyrir því að Felix Bloch
hafi löngum talið sjálfsagt og eðlitegt
að hann yrði skipaður sendiherra og
að hann hafi af þessum sökum verið
óánægður í starfi sínu. Reynist ásak-
anir á hendur Bloch réttar telja sér-
fræðingar að þetta geti reynst mesta
njósnamál í Bandaríkjunum frá því
á sjötta áratugnum.
ur-Noregi. Um er að ræða tund-
urspilli af gerðinni Sovremenníj
sem borið getur kjarnavopn og
var hann smíðaður í Leníngrad.
Norsk yfirvöld segja að Sovét-
menn hafi á síðasta ári styrkt við-
búnað sinn á Kólaskaga með 20
langdrægum Backfire-sprengjuþot-
um, nýju flugvélamóðurskipi, kjarn-
orkuknúnu orrustu-beitisskipi, fjór-
um nýjum tundurspiilum og all-
mörgum nýjum kafbátum. „Sé öll
þessi aukning höfð í huga er ekki
hægt að segja að tal Gorbatsjovs
Sovétforseta um að draga úr flota-
styrk hafi fram til þessa haft neina
raunhæfa merkingu," sagði Gullow
Gjeseth, ofursti hjá norska hernum.
Vestrænir sérfræðingar telja að
mörg herskipa sovéska flotans séu
gömul og úrelt og tæknilega séu
flotar Vesturveldanna mun fremri.
Míkháil Gorbatsjov Sovétforseti
hefur margoft hvatt ríki Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) til þess
að hefja viðræður um niðurskurð
flotastyrks austurs og vesturs.
NATO er á hinn bóginn mun háð-
ara flotastyrk en Varsjárbandalagið
þar sem Vesturveldin hyggjast
flytja.liðsauka og birgðir frá Norð-
ur-Ameríku yfir Atlantshafið til
Vestur-Evrópu ef til átaka kemur.
Herskip NATO halda oft æfingar á
hafsvæðunum við Norður-Noreg en
komi til stríðs munu sovésk ofan-
sjávarherskip og kafbátar sigla frá
Kólaskaganum út á Atlantshafið til
að reyna að granda skipum á leið
til Vestur-Evrópu.
HAUSTFERÐ í hvíld og hressingu á
Fyrsta brottför 5. september
Vikudvöl í sól, sandi og sumaryl á sumardvalarstaðnum Elenite, sem stendur við
ómengaða og tandurhreina strönd Svarta hafsins.
Hægt er að fara stutta ferð til Istanbúl. Síðan er dvalið í eina eða tvær vikur
á Sandanski heilsuhótelinu við landamæri Grikklands, sem hefur ýmislegt
upp á að bjóða til að auka vellíðan t.d. nudd, heita bakstra, vatnsnudd og
meðferð við: öndunarfærasjúkdómum t.d. asma og húðsjúkdómum t.d.
psoriasis og exemi.
Nálarstungur við ýmsum kvillum og fl. - að ógleymdum tannviðgerðum.
Farnar verða sér ferðir til Grikklands og ýmissa staða í Búlgaríu.
Farið verður í gegnum Lux-
emborg á útieiðinni en
Kaupmannahöfn í lok
ferðar. Gefst farþegum
kostur á að dvelja á báðum
stöðunum ef þeir óska.