Morgunblaðið - 26.07.1989, Page 31
31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989
iiii
ni
Morgunblaðið/Sverrir
ég verð í tvo til sex mánuði.
Umboðsskrifstofan í Kaup-
mannahöfn sér um að bóka
menn um alla Evrópu og ég er
að velta því fyrir mér að fara til
Danmerkur næsta sumar og vera
með Kaupmannahöfn sem mið-
stöð í einhvern tíma og spila þá
í Þýskalandi, Portúgal og víðar.
Þú ert búinn að vera á ferð-
inni meira og minna sfðan í
fyrra, er þetta gott líf?
Þetta er betra en togaralífið,
enn sem komið er í það minnsta.
Ég fór úr einu besta togaraplássi
á landinu til að fara að spila og
kveið svölítið fyrir því að ég fengi
ekki nóg að gera. Það hefur farið
fram úr björtustu vonum og ég
hef fengið meira að gera en ég
kemst yfir með góðu móti. Ég tek
spilamennskuna eins og vertíð
og stend allar frívaktir, það verð-
ur því afslöppun að spila bara
sex daga í viku í Danmörku. Á
Nýja-Sjálandi ætla ég að vera í
einn til sex mánuði og byrja á
að taka mér gott frí; mitt fyrsta
frí frá því ég byrjaði að spila.
Hvar ertu með mörg lög á
dagskránni og hvernig lög eru
það?
Lagst í ferðalög
Siggi Björns farand-
söngvari og sjómaður
Að vera farandsöngvari,
trúbadúr, freistar sjálfsagt
margra sem sjá það í hillingum
að vera sífellt á ferðalagi og
spila fyrir nýja og nýja áheyr-
endur. Þeir eru þó fáir sem láta
sig hafa það að leggjast í ferða-
lög með gítar eða annað hljóð-
færi og framfleyta sér með því
að troða upp á krám og knæp-
um um heim allan.
Sigurður Björnsson, sem
þekktari er sem Siggi Björns,
sagði upp skipsrúmi á aflatogara
fyrir vestan og lagði á braut far-
andsöngvarans á síðasta ári og
segist ekki iðrast þeirrar ákvörð-
unar. Hann hefur verið á ferðinni
síðan og spilað hér á landi sem
og í Danmörku og Noregi og er
með í bígerð að leggja undir sig
fleiri lönd og jafnvel aðrar heim-
sálfur. Það var vandkvæðum
bundið að ná tali af Sigga, enda
spilar hann sjö daga vikunnar
þegar hann er hér á landi, en
tókst þó að lokum.
Hvað varð til þess að þú
ákvaðst að hætta til sjós og
leggjast í ferðalög?
Fyrir fjórum til fimm árum kom
Bubbi vestur á firði til að spila
og gisti hjá mér. Ég var þá búinn
að spila á rafgítar í danshljóm-
sveitum í nokkur ár, en mér hafði
aldrei dottið í hug að reyna við
kassagítarinn. Þessi heimsókn
Bubba varð til að vekja hjá mér
áhuga og ég fór að sanka að
mér lögum og spila í góðra vina
hópi. Á síðasta ári bað kunningi
minn mig um að spila með sér á
Fógetanum í tvö kvöld og þá sá
ég að þetta var ekkert mál; að
skemmta fólki með kassagítars-
lætti. Þá ákvað ég að hætta á
sjónum og fara að spila.
Ég reyndi fyrst fyrir mér hér
heima, en ákvað síðan að fara
út. Ég fór til Kaupmannahafnar
og Ósló í febrúar sl. og gekk á
milli staða og bað um að fá að
spila og gaf mönnum kynningar-
kassettur. Ég fór svo aftur til
Danmerkur og Noregs í apríl og
þá fékk ég nóg að gera í Dan-
mörku, spilaði þar á hverju kvöldi
í þrjár vikur, en minna f Ósló.
Eru fleiri utanlandsferðir í
aðsigi?
Ég fer út núna í byrjun júlí og
verð þá öllu lengur. Ég byrja á
að spila í á einum stað í Suður-
Noregi í hálfan mánuð og þaðan
fer ég til Danmerkur, en ég er
búinn að bóka mig í að spila vítt
og breitt um landið í fimm vikur,
sex daga í viku.
Ég er skráður hjá umboðs-
skrifstofu í Danmörku sem sér
um að bóka mig og þar vildu
menn bóka mig lengur og senda
mig í Þýskalandsför, en ég hef
ekki tíma. Ég kem hingað heim
í ágúst og fer síðan til Nýja-
Sjálands í nóvember, þar sem
Ég reyni að hafa lög frá sem
flestum og þá sem ólíkust til að
geta spilað fyrir hvern sem er
og eftir því hvernig stemmningin
er á staðnum. Ég byrja gjarnan
á hlutlausum lögum og spila svo
eftir hendinni. Eg er með á pró-
gramminu 250—300 lög eftir
ýmsa höfunda og þar á meðal lög
eftir Bubba og Megas og fleiri
íslenska höfunda. Ég hef það líka
fyrir reglu að ef beðið er oft um
eitthvað lag sem ég er ekki með
á dagskránni þá æfi ég það inn.
Ég sem líka lag og lag sjálfur og
skýt þeim inní við hentugleika.
Færðu aldrei ógeð á lagi sem
þú ert kannski búinn að spila
einu sinni eða tvisvar á dag í
margar vikur?
Ég fæ vitanlega leið á lögum
sem ég er búinn að Spila oft, en
ég reyni að láta það ekki á mig
fá, enda er ég ekki að spila fyrir
mig, ég er að spiia fyrir áheyrend-
ur.
Hvað heldurðu að þú endist
lengi í þessu?
Ég velti því stundum fyrir mér,
en hef ekkert svar við því. Ég
hitti oft menn úti sem lifa á því
að spila á smástöðum og eru
búnir að spila um allan heim í tíu
til fimmtán ár. Það er markaður
fyrir pöbbatónlist um allan heim
og það er ekkert því til fyrirstöðu
að eyða ævinni í þetta ef maður
hefur til þess þrek.
_________Brids_____________
Arnór Ragnarsson
Bikarkeppnin
Öllum leikjum nema einum er
lokið í 32ja sveita úrslitum bikar-
keppninnar.
Sveit Jóns Baldurssonar vann
sigur á sveit Baldurs Bjartmarsson-
ar, með 124—73. Leikurinn var
spilaður 17. júlí. Sveit Ásgríms Sig-
urbjörnssonar frá Siglufirði gerði
sér ferð til Reykjavíkur og lék gegn
sveit Sigmars Jónssonar. Leikurinn
var úr fyrstu umferð Bikarkeppn-
innar. Sveit Ásgríms hafði sigur
með 84—52. Daginn eftir lék sveit
Ásgríms gegn sveit Modern Iceland,
og varð að lúta í lægra haldi í mjög
spennandi leik. Munurinn í lokin
var aðeins 10 impar, 81—71. Fyrir
síðustu lotuna var munurinn aðeins
5 impar. Sveit Sigurðar Vilhjálms-
sonar gerði góða ferð að Skógum,
og vann sigur á sveit A-Skaftfell-
inga. Munurinn í lokin var 70 imp-
ar, en sá munur kom allur í tveim-
ur fyrstu lotunum. Lokatölur
138—68. Á sunnudaginn, 23. júlí,
áttust við sveitir Gylfa Baldursson-
ar og Samvinnuferða/Landsýnar,
♦
V
og hafði síðarnefnda sveitin sigur,
96-59.
Leikjum í 16 liða úrslitum skal
vera lokið fyrir 10. ágúst, og eru
sveitir beðnar að ljúka leikjum
sínum innan þeirra tímamarka. Ef
einhveijir vankantar eru á því,
verða viðkomandi sveitir að hafa
samráð við mótanefnd BSÍ um
lausn á málinu.
Einum leik er lokið í 16 liða úr-
slitum Bikarkeppninnar. Mánu-
dagskvöldið 24. júlí áttust við í Sig-
túni 9 sveitir Guðlaugs Sveinssonar
og Sigmundar Stefánssonar. Leik-
urinn var jafn og spennandi, og
endaði með sigri Sigmundar og fé-
laga 84—77. Sveit Sigmundar er
þar með komin í 8 liða úrslit.
SK/L.
TOPP ▼ GÆÐI
SLÁTTUORF - HEKKKLIPPUR
Garðsnyrtitæki frá Skil eru byggð samkvæmt
ströngustu öryggis- og neytendakröfum,
viðurkennd af Rafmagnseftirliti ríkisins.
SPÁÐU í VERÐIÐ!
Vinnufatabúðín,
Kringlunni 3. hæð - Hverfisgötu 26