Morgunblaðið - 26.07.1989, Page 36
36
MORGÚNBLÁÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989
fólk f
fréttum
SAMMY DAVIS
Maður
ársins í
Astralíu
Hans Jiirgen
Eysenck með
nýja. g.v.-hjálm-
SALARFRÆÐI:
Hjálmur sem leysa á
greindarprófin af hólmi
Langt er síðan sálfræðingar
byijuðu að mæla greind
manna með þartilgerðum prófum.
Dregnar eru ályktanir um greind
manna af hæfileika þeirra til að
leysa þrautir t.d. í rökfræði,
stærðfræði og málfræði. Menn
með greindarvísitöluna 100 eru
sagðir í með.allagi greindir en til
eru þeir sem mælast með greind-
arvísitöluna 200 og þar yfir. Deilt
hefur verið um áreiðanleika slíkra
prófa og hvað sé í raun verið að
mæla. Breski sálfræðiprófessor-
inn Hans Jiirgen Eysenck hefur
nú búið til tæki til að mæla greind
manna, hinn svokallaða g.v.-
hjálm, sem hann segir mun áreið-
anlegra hjálpartæki en gömlu
greindarprófm.
Eysenck er einn kunnasti full-
trúi tilraunasálfræðinnar. Kenn-
ingar hans um greind hafa einkum
stuðlað að frægð hans. Hann hef-
ur ætíð haldið því fram að erfðir
hafí mun meiri áhrif á persónu-
leika og greind manna en uppeldi
og umhverfi.
Nýja mælitækið er nokkurs
konar hjálmur með 18 rafskaut-
um. Skautin nema hraða og sam-
hæfingu heilastarfseminnar á 18
afmörkuðum svæðum í heilanum.
Eysenck er þeirrar skoðunar
að þessi aðferð sé mun áreiðan-
legri heldur hin hefðbundnu
gáfnapróf. Hann slær þó þann
varnagla að hjá sumum mælist
greindin oft minni en efni standa
til vegna ótta og kvíða þegar
mælingin fer fram.
Þegar ég fullorðnast ætla ég að
verða svo stór, svo voldugur
og svo frægur að fólk uppgötvi
ekki fyrr en það hefur horft á mig
lengi að ég er svertingi og ekki
merkilegri en aðrir,“ sagði Sammy
Davis á unga aldri.
Fyrir skömmu var hann valinn
„Maður ársins" í Sydney í Ástralíu.
Meðal viðstaddra voru Frank Sin-
atra og Liza Minelli. Sammy var
afhent tuskubrúða í tilefni útnefn-
ingarinnar.
Sammy, sem er frægur fyrir söng
og dans, nýtur mikilla vinsælda í
Ástralíu um þessar mundir.
Sammy Davis í hópi aðdáenda.
Tyson fagnar sigri
Hnefaleikakappinn Mike Tyson
var að vonum kampakátur um
síðustu helgi en Tyson, sem keppir
í þungavigtarflokki, sigraði þá Carl
Williams, sem gerst hafði svo djarf-
ur að skora heimsmeistarann á
hólm. Tyson var fljótur að afgreiða
Williams. Viðureign þeirra stóð yfir
í nákvæmlega eina mínútu og 33
sekúndur en þá sló Tyson andstæð-
ing sinn í gólfið með gríðarlegu
vinstri handar höggi. Raunar hefur
Tyson gert betur því í júní í fyrra
sigraði hann Michael Spinks í fyrstu
lotu eftir aðeins 91 sekúndu. Á
myndinni heldur Tyson á lofti
100.000 Bandaríkjadölum sem
hann fékk í „kaupbæti“ frá Don
King (t.v.) sem stóð fyrir keppninni.
Ellefu ára gamall drengur
lýkur hnattflugi
Flugkappinn ungi, Tony
Aliengena, lenti flugvél
sinni í Santa Ana í Kalifom-
íuríki í Bandaríkjunum á
laugardag eftir um 30.000
kílómetra flug umhverfis
hnöttinn. Tony sem er 11 ára
vonast til að fá nafn sitt
skráð í heimsmetabók Guin-
ness en hann mun vera
yngstur þeirra sem unnið
hafa þetta afrek. Banda-
rískur eftirlitsmaður var um
borð í flugvél Tonys til að
staðfesta að drengurinn
hefði flogið flugvélinni alla
leið.
Ferðin hófst í Santa Ana
þann 5. júní en með Tony í
för vom foreldrar hans, Gary
og Susan, systir hans, rúss-
neskur pennavinur og nokkr-
ir blaðamenn. Flugkappinn
hafði viðdvöl á íslandi þann
17. júní á leið sinni yfír Atl-
antshafíð til Noregs og sagði
þá í samtali við Morgun-
blaðið að hann hefði verið
fjögurra ára gamall er faðir
hans hóf að kenna honum
að fljúga. Upphaflega vom
tvær aðrar flugvélar með í
för en önnur vélin bilaði á
leiðinni til íslands og varð
að snúa aftur til Grænlands.
Frá Norðurlöndunum hélt
Tony til Sovétríkjanna þar
sem hann hugðist afhenda
Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovét-
leiðtoga kefli með undir-
skriftum 100.000 Banda-
ríkjamanna til að treysta vin-
áttu ríkjanna tveggja. Gorb-
atsjov sá sér ekki fært að
hitta Tony og fjölskyldu hans
enda hefur maðurinn sá um
margt annað að hugsa ef
marka má fréttir. Sovéskir
embættismenn tóku við kefl-
inu í Moskvu en þaðan flaug
Tony þvert yfír Sovétríkin
og yfír Beringssund til AI-
aska. Frá Alaska lá leiðin
eftir vesturströnd Banda-
ríkjanna til Kaliforníu.
Minnstu munaði að illa
færi í Alaska er faðir Tonys,
Gary Aliengena, hvolfdi
Cessna Centurion-flugvél-
inni á flugvellinum í Golovin.
Eldur kviknaði í flugvélinni
en flugmaðurinn slapp
ómeiddur. Gary Aliengena
dó ekki ráðalaus og fékk
sams konar flugvél lánaða á
staðnum og þannig tókst
Tony að ljúka hnattfluginu.
Tony var hinn rólegasti
er blaðamenn hittu hann að
máli skömmu eftir lendingu
í Santa Ana. „Það var hund-
leiðinlegt að fljúga yfír hafíð
og eina skemmtunin var sú
að hugleiða hvað myndi ger-
ast ef hreyfíllinn stansaði,"
sagði hann og átti þar við
flugið yfír Atlantshafíð en
ferðin frá Grænlandi til ís-
lands tók rúmar fímm
klukkustundir.