Morgunblaðið - 02.08.1989, Síða 21
MQRGUNBLAÐIÐ, MI,ÐyiKJHDftGUR jh Á9pS.T) 19,89
21
Grikkland:
Fyrrverandi borg-
arstjóri dæmdur
8 sinnum til dauða
Aþenu. Reuter.
CHRISTOS Papadopoulos, glæpaforingi og fyrrverandi borgarstjóri
sósíalista í einu af úthverfum Aþenu, var dæmdur átta sinnum til dauða
í gær fyrir að hafa myrt jafnmarga ellilífeyrisþega til þess að komast
yfir Ijármuni þeirra. Borgarstjórinn fyrrverandi hafði áður unnið sér
það til frægðar, að láta hafa eftir sér setninguna: „Mannslífið er ekki
það mikilvægasta í heiminum."
Rétturinn dæmdi 25 glæpamenn
í rummungagengi Papadopulosar í
500 ára fangelsi samanlagt, en gengi
þetta var í daglegu tali nefnt „Morð/r.
Papadopoulos er 56 ára gamall
lögfræðingur og var borgarstjóri só-
síalistaflokksins í einu stærsta verka-
mannahverfi Aþenu frá 1982-84.
Rétturinn fann hann sekan um að
hafa myrt þtjú fórnarlambanna með
eigin hendi og háfa tekið ríkan þátt
í hinum morðunum fimm.
Sovétríkin:
Hremming-
ar á heims-
friðarhátíð
Ósló. Reuter.
NORSKUR blaðamaður, Tove
Lie, segir farir sínar ekki slétt-
ar af sovéskri heimsfriðarhátíð
í Múrrnansk. Lögregla dró
hana niður stiga og barði sov-
éskan starfsbróður hennar til
óbóta að tilefhisiausu.
Tove Lie var á leið í bifreið
heim á hótel síðla nætur ásamt
fjórum kunningjum og starfs-
bræðrum, einum norskum og
þremur sovéskum, þegar lögregla
stövðaði ferð þeirra. Var einn
sovésku blaðamannanna dreginn
út úr bifreiðinni og lúbarinn.
„Þegar ég sá síðast til hans var
hann lífvana að sjá í fangi tveggja
laganna varða. Blóð lagði úr and-
liti hans,“ sagði Lie. Að svo búnu
voru Norðmennirnir færðir til
yfirheyrslu í byggingu nærri
staðnum þar sem heimsfriðarhát-
íðin fór fram. Sjálf var Lie m.a.
dregin nauðug viljug niður stiga.
Norsku blaðamönnunum var
sleppt eftir skamma stund en
þeim er ekki kunnugt um afdrif
Sovétmannanna þriggja.
Réttarhöldin stóðu í tvo mánuði
og hélt Papadopoulos því fram að
hann væri eins konar Hrói Höttur
nútímans — hann hefði rænt hina
ríku til þess að gefa hinum snauðu.
Rétturinn komst að annarri niður-
stöðu, en Papadopouos og hyski hans
hafði þann háttinn á að vingast við
ellilífeyrisþega og láta þá undirrita
auða pappíra, sem glæpagengið fals-
aði síðan á erfðaskrá áður en gamla
fólkinu var fargað.
Sjö ellilífeyrisþeganna voru kæfð-
ir, en einn þeirra var rotaður með
hamri og síðan kviksettur.
Meðal fórnarlambanna voru blind-
ur lottómiðasali og útgerðarmaður,
en öll áttu þau sameiginlegt að vera
auðugir og einmana einstæðingar.
Síðasta dauðadómi var fullnægt á
Grikklandi árið 1972. Síðan hafa 22
dauðadómar verið kveðnir upp, en
engum þeirra fullnægt.
.Reuter
Pólsk slátrarastúlka og síðasti svínakjötsbitinn, en hann kostaði 12.000 zlotý — jafnvirði um 850 íslenskra
króna.
Pólland:
500% verðhækkanir á
matvöru á einni nóttu
Varsjá og Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaösins.
MATVARA í Póllandi hækkaði í gær um 500%, en þá var tekin upp
frjáls verðmyndun. Vitað var að matvara myndi hækka, en ekki var
búist við að hækkunin yrði meiri en 2-300%. Kjötskömmtun var einn-
ig hætt í gær, en framboð á kjöti sat við sama og hafði það sín áhrif
á verðmyndunina, en verðhækkanir hafa ekki verið meiri í Póllandi
frá Seinni heimsstyijöld.
Á mánudag var gífurleg örtröð í
pólskum matvöruverslunum, þegar
Pólvetjar reyndu að hremma síðustu
bitana á gamla verðinu. Var litið
orðið um matvöru snemma á mánu-
dagsmorgun.
Verðhækkanirnar má rekja til
„markaðsvæðingar" stjórnvalda, en
hún hefur sætt mikilli gagnrýni fyr-
ir lélegan undirbúning og þá stað-
reynd, að neytendum eru ekki bætt-
ar verðhækkanirnar upp á neinn
Danmörk:
Kreml krafin afsökunar á
dauða kommúnistaleiðtoga
Kaupmannahöfn. Reuter.
EKKJA danska kommúnistaleiðtogans Arne Munch-Petersens hefúr
krafist afsökunarbeiðni af hálfú Sovétsljórnarinnar vegna þess að
niaður hennar lést í fangelsi í Moskvu á fjórða áratugnum. Ekkert
spurðist til Munch-Petersens eftir 1937 þar til fyrir skömmu að í
Ijós kom að hann hafði látist í hinu illræmda Butyrka-fangelsi í
Moskvu árið 1940.
hátt. Helsti tilgangur „markaðsvæð-
ingarinnar" er að halda verðbólgu
(sem nú er um 100%) í skefjum og
draga úr víðtækum niðurgreiðslum
á nauðsynjavöru, sem þrefaldað hafa
fjárlagahalla Pólverja.
A meðan þessu stóð í Póllandi
héldu fulltrúar 24 lýðræðisríkja fund
í Brussel, þar sem rædd var husan-
leg samræming á stuðningi við þær
breytingar í lýðræðisátt, sem átt
hafa sér stað í Póllandi og Ungvetj-
alandi á undanförnu. Bandaríkja-
stjórn bauð þar Pólvetjum 50 milljón
dala matvælaaðstoð til viðbótar
þeirri, sem Bandaríkjamenn veita
þangað nú þegar. í Varsjá telja
menn hins vegar að ekki dugi minna
en tveggja milljarða dala aðstoð til
þess að úr landlægum matvælas-
korti dragi og að ftjáls verðmyndun
verði að raunveruleika.
EB hefur þegar samþykkt mat-
vælaaðstoð að jafnvirði átta milljörð-
um íslenskra króna.
Til fundarins í Brussel var boðað
að framkvæmdastjórn Evrópbanda-
lagsins (EB), en frumkvæði að hon-
um áttu leiðtogar sjö helstu iðnríkja
heims, sem hittust í París í síðasta
mánuði. A samráð’sfundinum sátu
fulltrúar allra aðildarríkja EB og
Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA), auk fulltrúa Banda-
ríkjanna, Kanada, Japans, Nýja Sjá-
lands, Ástralíu og Tyrklands.
Hér að neðan er tafla yfir verð á helstu nauðsyiyavöru í PóIIandi
eins og það var í gær, en til sanianburðar er gamla verðið og jafnvirði
í íslenskum krónum (IKR).
DagblaðiðJyWands-Posten hefur
eftir danska' kommúnistablaðinu
Land og Folk að Munch-Petersen
hafi verið handtekinn að skipun
Nikolajs Jezovs, þáverandi yfír-
manns leyniþjónustunnar NKVD,
er nú kallast KGB, og sakaður um
að vera félagi í „hinni gagnbylting-
arsinnuðu, trotskísku fylkingu sem
óvinir þjóðarinnar, þeir Pjanítskíj,
Knorín og fleiri stjórnuðu." Hundr-
uð þúsunda kommúnista voru tekin
af lífi í hreinsunum Jósefs Stalíns
á þessum árum og er téð fylking
ein af mörgum tilbúnum forsendum
yfirvalda fyrir fangelsis- og dauða-
dómum. Aður leynilegar skýrslur
hafa nú leitt í ljós að danski komm-
únistaleiðtoginn dó úr lungnabólgu
í Butyrka-fangelsinu 12. nóvember
1940.
Elna Hiorth-Lorenzen, ekkja
mannsins, skýrði frá því að starfs-
menn sovésku fréttastofunnar Nov-
ostíj í Kaupmannahöfn hefðu ný-
lega farið að kanna hvað orðið hefði
af Munch-Petersen, að beiðni dan-
skra dagblaða. Að sögn konunnar
höfðu sovésk yfírvöld ávallt svarað
fyrirspurnunt hennar með því að
maðurinn væri ekki í landinu og
ekki væri vitað hvar hann héldi sig.
Arne Munch-Petersen sat á
danska þinginu 1932 - 1935 og var
annar tveggja fyrstu þingmanna
danskra kommúnista; hinn var Aks-
el Larsen. Munch-Petersen .gaf út
ritling árið 1937, „Úr réttarsölum
í Moskvu," en hann hafði dvalist í
Moskvu frá 1936 sem fulltrúi
danskra kommúnista hjá alþjóða-
samtökum kommúnistaflokka, Ko-
mintern. í ritlingnum hélt Munch-
Petersen uppi vörnum fyrir réttar-
höld Stalíns yfir raunverulegum og
ímynduðum óvinum sinum sem þá
voru hafin í Moskvu og ollu óhug
víða á Vesturlöndum. Ekki er talið
VörutecjUnd Verð í zlotýum Kostaöi áöur
Franskhrauð
Mjófkurflaska
Pyfsur(ikg)
Jógurt (1 cfös)
Ftjómaostur (.1 kg)
Úrbeinaö nautakjöt (1 kg)
Skinka(i kg)
200 (14 IKR)
180 (13IKR)
1.430 (99IKR)
80 (5IKR)
700 (48IKR)
3.080 (215IKR)
5.950 (412 IKR)
85
ilil
360 (25IKR)
29 (2 IKR)
150 (10IKR)
610 (42IKR)
1.650(110 IKR)
Alþjóðadómstóllinn:
Lögð fram g’ög’n
í Jan Mayen-deilu
Arne Munch-Petersen, þingmað-
ur danskra kommúnista á tjórða
áratugnum. Komið hefúr í ljós
að hann lést í sovésku fangelsi
árið 1940 en afdrif hans voru
ókunn í ineira en hálfa öld.
að danski kommúnistinn hafi sjálfur
komið fyrir rétt í Moskvu heldur
verið fangelsaður án dóms og laga.
Kaupniannahöfii. Reuter.
DÖNSK sljórnvöld hafa lagt fram
gögn hjá Alþjóðadóinstólnum í
Haag vegna deilumáls þeirra og
norskra stórnvalda um fiskveiði-
réttindi við eyna Jan Mayen, að
því er embættismaður í danska
utanríkisráðuneytinu sagði í
gær.
Deila þessi, sem stendur utn
fengsæl mið og hugsanleg málm-
vinnsluréttindi á 72.000 ferkíló-
metra hafsvæði undan Grænlandi,
þar sem mörk fiskveiðilögsögu
Dana og Norðmanna skerast, íiefur
staðið í nærri níu ár.
Danir báðu á síðasta ári dómstól-
inn að úrskurða í málinu. Ekki er
búist við, að úrskurður fáist fyrr
en eftir tvö ár.