Morgunblaðið - 02.08.1989, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 02.08.1989, Qupperneq 34
MORGUNBJAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1989 34 Kveðjuorð: Helga Magnús- dóttir kennari Einn sólbjartan sunnudag fyrir fáeinum árum vorum við hjónin stödd í nágrenni Skálhoits og sáum aug- lýsta messu í Skálholtskirkju. Við drifum okkur á staðinn en engin bif- reið var sjáanleg fyrir utan kirkjuna. Við héldum fyrst að okkur hefði yfír- sést dagsetningin á auglýsingunni, Ien sáum að kirkjudymar voru opnar og gengum inn. Presturinn stóð fyrir altari og á tveimur fremstu bekkjun- um vinstra megin sátu nokkrir kirkjugestir sem okkur virtist vera heimilisfólk prestsins. Við settumst á aftasta bekk í sömu röð og skömmu síðar komu ung hjón og settust í miðja kirkjuna hægra megin. Fleiri voru ekki í kirkjunni. Þegar ég skoðaði sálmana áttaði ég mig á að þetta væri barnamessa og brátt fylltist kirkjan af kröftugum söng. Minningar frá bernskuárum um Ijúfar og glaðar stundir í Vind- áshlíð og KFUM og K fylltu hugann og ég söng með af hjartans list. Eg fór óhjákvæmilega að hugsa um Helgu, kennarann minn úr ísaksskóla, sem jafnframt hafði verið forstöðukona í Vindáshlíð og oftar en ekki stjórnað fundum á Amt- mannsstígnum og hafði kennt mér marga af þessum sálmum. í kirkjunni var einstaklega af- slappað andrúmloft. Presturinn stóð rétt framan við fremsta bekkinn og flutti texta sinn yfirlætislaust eins og um samtal væri að ræða. Sólin skein inn um opnar kirkjudyrnar, og meðan presturinn er að tala, kemur heimiliskötturinn og labbar makinda- lega inn eftir kirkjunni í áttina til hans. Lítil stúlka tók hann fumlaust upp. Allt var þetta með einhverri sérstakri friðsæld. Ég velti mikið fyrir mér hvar söng- fólkið í kirkjunni væri. Söngurinn var mikill og fallegur og ég sá að leikið var á lítið orgel við hliðina á kirkju- orgelinu. Þegar messan var búin gekk presturinn og fólkið hans út og prestsfrúin sendi okkur geislandi bros. Ég hinkraði við og beið eftir að sjá hveijir hefðu sungið. Ég gekk til konunnar við orgelið sem var að taka saman nótumar og spurði hvort hún gæti sagt mér hvar söngfólkið hefði verið. Hún sneri sér brosandi að mér. Þetta var þá Helga Magnús- dóttir, konan sem ég var búin að vera hugsa um alla messuna og hafði ekki hitt í áratugi. Það urðu miklir fagnaðarfundir. Hún var í heimsókn hjá systur sinni sem var gift prestinum og hafði hlaupið í skarðið fyrir organistann. „Söngfólkið“ við þessa sólskinsmessu var hún og fjölskyldan. Hún fór samstundis að tala við okkur um altaristöfluna, kirkju- gluggana, kirkjuna og nágrennið. Henni var svo eiginlegt að fræða og vekja athygli manns á umhverfinu að hún gerði það eins og ósjálfrátt. Ég fann að hún hafði ekkert breyst. Hún var ekki síður gefandi við full- orðið fólk en börn. Mér finnst ég aldrei geta full- þakkað að fá Helgu sem kennara í Isaksskóla. Hún kenndi manni ekki aðeins ljóð og lög, lestur og skrift, heldur gerði hún það af svo mikilli gleði að næsta skref var alltaf til- hlökkunarefni. Eftir því sem ég verð eldri og sé fleiri hryggilegar afleið- ingar lélegrar kennslu á fyrstu skólaárum vex þakklæti mitt. Hún var ákveðin og stjórnsöm, en alltaf glöð og mannbætandi. Það kom mér skemmtilega á óvart þegar ég var send í Vindáshlíð, að hún skyldi ráða ríkjum þar. Hún stjórnaði eins og hún kenndi. Allt var spennandi leik- ur. í gönguferðum um nágrennið fræddi hún um náttúruna og um- hverfið og hvaðeina sem manni datt í hug að spyrja hana um. Þegar ég skrifaði bók um Þuríði Pálsdóttur, fór ég með eintak heim til Helgu fyrir jólin og gaf henni með kveðju „Til fyrsta og besta kennar- ans míns, með hjartans þakklæti". Ég átti að sjálfsögðu ekki aðeins við þá kennsli'. sem fer fram innan veggja skólastofunnar, heldur þeirr- ar óbeinu kennslu sem fólk eins og Helga Magnúsdóttir veitir öllum sem umgangast það með fordæmi sínu og mannkostum. Heimilið hennar var komið í jóla- búning og við sátum og töluðum saman lengi dags. Hún sagði mér sögur af sjálfri mér, bæði úr skólan- um og Vindáshlíð sem ég mundi ekkert eftir og undraðist hvernig hún gerði skil eftir öll þessi ár, hafandi kennt þúsundum nemenda. Hún sagðist muna jafnvel betur eftir nem- endum fyrstu áranna en hinna síðari. Hún sagði mér líka frá sjálfri sér, gleðinni sem hún hefði haft af söng- starfi gegnum árin, kennslunni og mörgu fleiru. Þetta var persónulegt samtal og ógleymanleg stund. Ég færi aðstandendum þessarar einstöku konu samúðarkveðjur og kveð Helgu Magnúsdóttur með djúp- ri virðingu og þakklæti. Jónína Michaelsdóttir Bernsku- og æskuminningar eru okkur oft kærustu minningarnar. í minningum mínum frá þeim árum eru margar tengdar samvistum við Helgu Magnúsdóttur, sem nú hefur kvatt. Og minningarnar um þær samvistir eru með þeim dýrmætustu sem ég á. Þær fyrstu tengjast sumarbúða- dvöl í búðum KFUK þegar ég fór á barnsaldri úr foreldrahúsum I fyrsta skipti, kvíðin og feimin. Forstöðukon- an söng svo fallega og hafði lag á að laða fram söng allra, líka þeirra allra feimnustu. Og það var svo skemmtilegt að syngja með henni. Forstöðukonan hét Helga. Hún var ósérhlífin, iðaði af lífi og eldmóði. Mikill göngugarpur var hún og hafði allar stelpumar með sér í langri hala- rófu. Þetta var spennandi reynsla fyrir unga Reykjavíkurstelpu. En það sem var allra skemmtilegast og mesta tilhlökkunarefnið dag hvern var að hlusta á framhaldssögur henn- ar, og þa'er efst í huga mínum þear hún endursagði sögurnar úr gamla testamentinu, sagði sögurnar af Abraham, ísak og Jakob og gerði úr þeim langa framhaldssögu sem entist alla vikuna, sem dvölin stóð. Nokkrum árum síðar þegar ég var 15 ára og hóf sjálf störf með Helgu í sumarbúðum KFUK í Vindáshlíð kynntist ég henni enn betur og á annan hátt. Hún var einstakur leið- beinandi og það var mér ómetanlegt að fá að stíga fyrstu skrefin til sjálf- stæðis utan heimilisins með hennar stuðningi. Samstarfið stóð lengi og var svo farsælt að í mörg ár kom mér ekki til hugar að velja annað sumarstarf en sumarbúðastarfið í Vindáshlíð. Það sem gladdi og örvaði hvað mest var traustið sem hún sýndi mér. Og ekki hvað síst þegar hún fól mér ungri mikið ábyrgðarstarf. Á skólaárum mínum í Kennara- skóla íslands var Helga að hefja starf þar við æfingakennslu og kennara- nemarnir ungu fengu tilsögn og stuðning hennar í kennslu „yngri barna“ eins og það kallaðist. Þar voru engin vettlingatök á málunum hjá Helgu fremur en annars staðar og gott var að vera þar undir hand- leiðslu hennar. Hún tók hlutverk sitt alvarlega og fylgdi því eftir til hins ýtrasta. En það sem var mér hvað mikils- verðast var hlýjan og kærleikurinn sem hún sýndi. Vinátta hennar var svo einlæg og tengslin svo sterk að þó að langur tími liði oft milli sam- funda okkar hin síðari ár stafaði allt- af af henni einhver geislandi ein- lægni, sem erfitt er að koma orðum að. Helga átti einlæga trú, enda engin tilviljun að hugur hennar til starfs í KFUK var mikill. Tilgangur sumar- starfsins í Vindáshlíð yar ekki.ein- ungis fólginn í skemmtilegri og fjöl- breytilegri samveru þar sem við sungum hressilega saman „í Vind- áshlíð, í Vindáshlíð þar vil ég eyða sumartíð, heitar stað ég engum ann og engan leit jafn fallegan". Starfið er rekið af Kristilegu fé- lagi ungra kvenna og tilgangurinn því fyrst og fremst fólginn t boðun Guðs orðs. Og Helga átti einlæga trú sem hún miðlaði af bæði í söng og frásögn. Hún hafði mikinn áhuga á kristniboði og studdi íslenska kristni- boðsstarfið af heilum hug. Einnig starfaði hún að félagsmálum trúaðra kennara á Norðurlöndum. í mörg ár bjuggu aldraðir foreldr- ar Helgu á heimili hennar og hún studdi þaú og hjúkraði þeim í veikind- um þeirra. Af sömu óeigingirni studdi hún systur sína í veikindastríði henn- ar uns yfir lauk. og nú var röðin komin að henni sjálfri. Þegar ég sá hana í síðasta sinn var hún orðin mjög veik, en sama einbeitnin og hlýjan og fyrr skein úr andliti hennar. Þessi stutta kveðja er rit.uð fremur af vilja en mætti þar sem Helga er ein perlan í minningafesti minni. Við erum mörg sem hefðum óskað þess að fá að njóta samvista við hana lengur. Systur hennar, bróður, mág- konu, mági, systkinabörnum og fjöl- skyldum flytjum við hjónin samúðar- kveðjur okkar. Rúna Gísladóttir Mig langar í fáum orðum að minn- ast föðursystur minnar, Helgu Magnúsdóttur, sem var okkur svo kær. Helga er látin voru boð er fjöl- skylda mín fékk að heyra um leið og við komum heim eftir hálfsmánað- ar frí hjá ættmennum okkar á er- lendri grund. Það kom okkur ekki á óvart. Við höfðum fylgst vel með veikindum Helgu, en hún veiktist alvarlega fyr- ir tæpu ári og í vor og sumar fór heilsu hennar hrakandi. Fyrir unga drengi okkar var fregn- in erfið því mikill söknuður er að Helgu frænku. Hún geislaði af lífi og gleði og frá henni þekktu þeir bara kærleika og hlýju. Oft var spurt í ferðinni á erlendri grund „Hvernig heldur þú að Helgu líði núna, er ekki örugglega einhver hjá henni“. Afi, amma og Didda frænka umvöfðu Helgu þessa síðustu daga og gættu þess að -hún væri ekki ein. Helga giftist aldrei en átti unnusta er lézt langt um aldur fram. Engin börn átti hún heldur. En Helga var mjög barngóð og var allt hennar ævistarf tengt börnum, sem kennari og sem forstöðukona í sumarbúðum KFUK í Vindáshlíð í mörg ár. Helga átti 5 bróðurbörn og feng- um við systkinin oft að njóta henn- ar, en lífsgleði hennar og leikgleði áttu sér lítil takmörk: Mér er svo minnisstætt úr æsku er við systkinin fórum í okkar fínasta skart ár hvert þann 1. desember, því þá voru „litlu jólin“ hjá Helgu frænku. Þá var föndrað og leikið og sung- ið allan daginn með Helgu í farar- broddi og stórt langborð eftir borð- stofunni fullt af krásum sem börn kunnu að meta. Síðar er okkar böm komust á legg fundu þau fljótt að gott var að vera nálægt Helgu, hún hafði alltaf tíma til að hlusta og gefa sig að börnum í leik og söng. A stórhátíðum með fjölskyldunni eða á mannamótum settist Helga svo oft við píanóið og söng af hjartans list og smitaði þannig frá sér að all- ir tóku undir og verður nú sárt sakn- að. Minningar streyma fram og drengirnir minnast einnig margs, það var svo gaman ef Helga og Didda frænka áttu að gæta þeirra eina og eina kvöldstund. Eftirvæntingin sem svo sannar- lega var skiljanleg, því um leið og komið var inn úr dyrunum var farið í feluleik um allt hús og síðan var skoðað í veskið hennar Helgu, sem alltaf hafði að geyma eitthvað gott og einnig eitthvað skemmtilegt. Og þegar pabbinn og mamman komu heim var allt dottið I dúna- logn, en föndrið á borðinu og bæk- urnar allt í kring báru vott um að hér hafði verið ánægjulegt kvöld. Það er margs að minnast og þakklæti efst í huga. Það var erfitt að fylgjast með veik- indum Helgu. Hún sem hafði svo gaman að vera með á mannamótum og skiptast á skoðunum og oft hrók- ur alls fagnaðar átti nú erfitt með að tjá sig. En hún gat beðið til Guðs, þess er hún setti allt sitt traust á í öllu sínu lífi, Ég bið þig faðir blíði um bót í lífsins striði [■ Jesú nafni nú. í hæðir hjartað mænir, þú heyrir allar bænir í Jesú nafni, í Jesú trú. (Valdimar Briem) Blessuð sé minning Helgu Magn- úsdóttur. Rósa, Ragnar, Baldur, Pétur og Einar Helgi. t Sonur okkar, TEITUR EIRÍKSSON frá Laugarvatni, lést á heimili sínu, Karolinevej 9, Middelfart, Danmörku, mánudag- inn 31. júlí. Ásbjörg Teitsdóttir, Eirikur Eyvindsson. t Móðir okkar, tengdamóöir og amma, AÐALHEIÐUR M. JÓHANNSDÓTTIR, Stóragerði 38, sem lést 26. júlí sl., verður jarðsuhgin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 3. ágúst kl. 15.00. > j ' ‘ Blóm,erú vinsamlegast afþökkuðen þeim sem vilja minnast henn- * '• ar er bent á Hjartavernd eðá.aðrpr líknarstofnanir. Guðmundur Hallgrímsson, Jóhanna H. Gunnarsd. Hinz, Hans Gunnar Hinz, Ingibjörg Sigurðardóttir, Sverrir S. Gunnarsson, Sigríður H. Gunnarsdóttir, Hörður S. Gunnarsson, ÁsaSólveig, Aðalheiður Birna Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t JÓNA SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Skipasundi 87, Reykjavík, lést á heimili sínu 21. júlí. Jarðarförin fer fram á Hofi í Vopnafirði miðvikudaginn 2. ágúst kl. 14.00. Foreldrar, systkini og fjölskyldur þeirra. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, KARA ÁSLAUG HELGADÓTTIR, Frakkastig 7, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. ágúst kl. 13.30. Ingibjörg Jónsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Áslaug Sigurðardóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir, GUOMUNDUR SIGURGEIR ILLUGASON, Háahvammi 15, Hafnarfirði, andaðist 30. júlí. Jarðsett verður frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 4. ágúst kl. 13.30. Sigurbjörg Kristinsdóttir, börn, tengdasynir og systkini.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.