Morgunblaðið - 02.08.1989, Page 43

Morgunblaðið - 02.08.1989, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. AGUST 1989 43 tofam FOLX ■ KRISTJAN Kristjánsson , markahæsti leikmaður Þórs í sum- ar, var Ijarri góðu gamni í gær- kvöldi en hann lék ekki með liði sínu gegn KA vegna meiðsla. ■ JON Grétar Jónsson fram- heiji KA-manna var heldur ekki með sínum mönnum í uppgjöri Akureyrarliðanna. Jón Grétar nældi sér í flensu í sólinni á Akur- eyri, hann er eflaust ekki vanur svo góðu veðri enda lék drengurinn áður með Val í Reykjavík. ■ SVEINN Pálsson varnarmað- ur úr Þór, lék sinn síðasta leik með liðinu í gærkvöldi. Sveinn er á leið til Bandaríkjanna til náms. ■ FINNUR Kolbeinsson lék fyrsta leik sinn í 1. deild með Fylki gegn KR í gærkvöldi. ■ HEILMIKIL rekistefna varð eftir að Heimir Guðjónsson hafði skorað fyrra mark KR gegn Fylki í gær. Ástæðan var sú, að Sæ- mundur Víglundsson, dómari, hafði séð Gísla Guðmundsson, línuvörð, lyfta flaggi sínu eilítið en setja það síðan snöggt niður aftur. Eftir að Sæmundur hafði ráðfært sig við Gísla dæmdi hann markið gilt. Ástæðan fyrir því að Gísli hóf ftagg sitt á loft, var ekki sú að hann sæi einhvem rangstæðan eins og sumir áhorfendur héldu, heldur sú að hann sá einn varaboltanna sem hafðir em til taks við markið, rétt utan við stöng og hélt ör- skamma stund að skot Heimis hefði farið framhjá markinu. KARFA Magnús íVal Stærsti íslenski leik- maðurinn í deildinni agnús Matthíasson, sem leik- ið hefur í Bandaríkjunum, hefur ákveðið að leika með Vals- mönnum í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í vetur. Hann leikur þar við hlið Matthíasar, bróður síns. Magnús er stærsti íslenski leik- maðurinn í deildinni, 2,05 m, og hefur leikið í Bandaríkjunum und- anfarin sjö ár. Hann lék í 1. deild í háskólakörfuboltanum með Rice- háskólanum í Houston. Magnús hefur reyndar ekki leikið mikið með landsliðinu vegna náms en lék sex leiki með liðinu 1987. „Það er gott að koma í Val og þetta var eina félagið sem kom til greina. Það verður gaman að leika með Matthíasi bróður mínum í vet- ur,“ sagði Magnús. í kvöld í kvöld er einn leikur í 1. deild karla í knatt- spyrnu. Víkingur og ÍA leika á Víking- svelli. í 2. deild leika ÍBV og Selfoss i Vest- mannaeyjum. Báðir leikirnir heijast kl. 20.00. KA og Þ6r leika i undanúrslitum i bikarkeppni kvenna. Leikurinn fer fram á KA-velli og hefst kl. 20.00. Landsmótið í golfi heldur áfram í dag. Keppni hefst i meistaraflokkum og 1. flokk- um karla og kvenna og eru meistaraflokk- amir ræstir út kl. 6:30 en keppni f 1. flokk- unum hefst kl. 9.40. KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNI HM Ásgeir ekki með gegn Austurríki og Tyrklandi? „Virðist ekki ætla að ganga upp,“ segirÁsgeir Sigurvinsson LITLAR líkur eru á því að Ásgeir Sigurvinsson geti leik- ið með íslenzka landsliðinu í tveimur af þremur leikjum liðsins í undankeppni Heims- meistarakeppninnar í haust. Ásgeirer nú að hefja sitt 17. og síðasta keppnistímabil sem atvinnumaður og hef ur að sögn kunnugra sjaldan verið í jafn góðu formi f upp- hafi leiktímabils. Stuttgart, lið Ásgeirs, leikur gegn Frankfurt í þýzku deildarkeppninni miðvikudaginn 23. ágúst, sama kvöld og ieikið er gegn Austurríkismönnum úti í Salzburg. Þá á Stuttgart heima- leik gegn 'Bayern Miichen mið- vikudaginn 20. september, sama dag og ísiand leikur gegn Tyrk- landi á Lauga.rdalsvellinum. Hins vegar getur Ásgeir komið í lands- leikinn gegn Austur-Þjóðverjum á Laugardalsvelli miðvikudaginn 8. september. „Ég talaði við Ari Haan á mánudaginn og hann gaf mér iitla von um að ég kæmist í landsleik- ina tvo. í það minnsta tel ég eng- ar líkur á því að ég fái mig lausan daginn sem við leikum gegn Bay- ern Munchen. Hins vegar sagði ég KSÍ að vera í sambandi við Stuttgart vegna málsins,“ sagði Ásgeir í samtali við Morgunbladið í gær. Ásgeir sagðist vera í betra formi núna en oft áður, í bytjun keppnistímabils. Hann er t.d. 6 kg léttari en hann var í byijun tímabilsins í fyrra. „Mér hefur gengið vel í leikjum að undan- fömu og finn mig vel. Ég hafði mikinn hug á þvi að taka þátt i öllum landsleikjum haustsins en það virðist ekki ætla að ganga upp, því miður. Eina örugga ráðið virðist vera að ísland semji uin sömu leikdaga og vestur-þýzka landsliðið," sagði Asgeir. Ásgeir Sigurvinsson KNATTSPYRNA / 1. DEILD Jafnt í uppgjör- inuá Akureyri Morgunblaðið/Rúnar Þór .. Jón Kristjánsson (til hægri) og Bojan Tanevski beijast hér um knöttinn í leik Þórs og KA í gær. Jón, sem skoraði mark KA, virðist hafa betur. þriðjudaginn 1. ágúst 1989. IBK—FRAM Keflavikurvöllur íslandsmótið, 1. deild, Mark Fram: Pétur Ormslev 75. Gul spjöld: Jóhann B. Magnússon ÍBK, Þorsteinn Þorsteinsson Fram og Pétur Ormsiev Fram. Áliorfcndur: Um 600. Dómari: Óli Olsen - dæmdi ágætlega. Lið ÍBK: Þorstcinn Bjarnason, Jóhann Júlfusson, (Kristján Geirsson 87.), Ingvar Guð- mundsson, Valþór Sigþórsson, Gestur Gylfason, Arni Vilhjálmsson, Óli Þór Magnússon, Kjartan Einarsson, Siguijón Sveinsson, Jóhann B. Magnússon og Jón Sveinsson (Gaiðar Jóhannsson 82.). Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þorsteinn Þoreteinsson, (Helgi Bjamason 87.), Kristján Jónsson, Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson, Kristinn R. Jónsson, Ómar Torfason, Guð- mundur Steinsson, (Ríkharður Daðason 83.), Ragnar Margeirsson, Jón Sveinsson og Steinn Guðjónsson. Fj. lelkja u j T Mörk Stig FH 12 6 4 2 17: 11 22 FRAM 12 7 1 4 17: 11 22 VALUR 12 6 3 3 14: 7 21 KA 12 5 5 2 18:12 20 KR 12 5 4 3 19: 16 19 ÍA 11 5 1 5 12: 14 16 ÞÓR 12 2 5 5 12: 18 11 VÍKINGUR 11 2 4 5 16: 16 10 l'BK 12 2 4 6 12: 19 10 FYLKIR 12 3 1 8 11: 24 10 AKUREYRARLIÐIN, KAog Þór, skildu jöfn 1:1 í miklum bar- áttuleik í gærkvöldi. Leikur þessi hafði upp á flest það að bjóða er knattspyrnuleikur get- ur boðið upp á. Dramatík, bar- áttu, glatt spil, fínt veður og umfram allt fjölmarga líflega áhorfendur. Liðin skipta stig- unum bróðurlega sín á milli, 0:0 lauk fyrri viðureign þeirra. Hafi sú fyrri verið daufleg var þessi hressileg í meira lagi, allir gáfu hvað þeir gátu og hinum tæplega átján hundruð áhorfendum var berlega skemmt. Sannast sagna var það botnliðið Þór er stóð fyrir mestum ærslaganginum, liðið sótti miklu mun meira ífyrri háifleik en hafandi forystu eftir 51 mínútu var frumkvæðið KA-manna. Þór hóf leikinn af miklum krafti og þegar á fyrstu mínútu fengu þeir aukaspyrnu skammt utan teigs KA. Júlíus Tryggvason skaut bylm- ■■■■■■I ingsskoti í stöng Magnús Már KA-marksins og skrifarfrá KA-ingar vörpuðu Akureyri öndinni léttar um stund. Þórsarar komu þó æðandi við og við, Tanev- ski sneri gjarnan á andstæðinga sína en allt kom fyrir ekki, Haukur Bragason markvörður sá við Þórs- urum. KA átt eina og eina skyndi- sókn en sóknir Þórsara voru hvoru- tveggja betur útfærðar og beittari. Síðari hálfleikur byijaði í sama takti og sá fyrri, íjema hvað KA- menn voru betur með, raunar svo vel að þeir ná forystunni á 51. mínútu. Ormarr leikur ákaflega lag- lega upp kantinn hægra megin og falleg sending hans ratar á höfuð Jóns Kristjánssonar er skorar með fastri kollspyrnu 1:0 fyrir KA. Næstu mínútur sækja liðin á víxl, margar snarpar og vel útfærðar sóknir glöddu augu áhorfenda og mun vera ár og dagar síðan jafn gaman var á Akureyrarvelli á inn- byrðisviðureign þessara liða. Flestir töldu víst sigur KA gef- inn, tíminn virtist hlaupinn frá Þórs- urum nema hvað skyndisókn þeirra færði þeim vítaspyrnu á lokamínútu leiksins. Einn varnarmanna KA gerði sig sekan um að handleika knöttinn innan vítateigs og víta- spyrna var dæmd. Og sú varð all söguleg. Meðan afburða dómari leiksins, Gylfi Orrason, atti kappi við smávaxna forvitna áhorfendur við markið skaut Júlíus Tryggvason yfir mark KA. Húrra var hrópað í herbúðum KA, mikil gleði og Hauk- ur gerði sig líklegan ti! þess að spyrna frá marki. Svo fór þó aldr- ei, vítaspyrnan skildi endurtekin og nú gerði Júlíus engin mistök, spyrnti föstum bolta í hliðamet KA-marksins, 1:1 og gífurlegt spennufall meðal viðstaddra. Sögulegum leik lauk með jafn- tefli, leik sem er Akureyrarliðunum og dómara til sóma og er vonandi að framhald verði á. KA 1 Þór 1 íslandsmótið i knattspyrnu, 1. deild, Akureyrarvelli, 1. ágúst 1989. Mörk KA: Jón Kristjánsson (51.) Mörk Þórs: Júlíus Tryggvason (víti 89.) Gult spjald: Ormarr Örlygsson KA og Sævar Arnason Þór. Áhorfcndur: 1770 Dómari: Gylfi Orrason, mjög sannfær- andi. Lið KA: Haukur Bragason, Arnar Bjarnason, Gauti Laxdal, Halldór Hall- dórsson, Erlingur Kristjánsson, Ámi Hermannsson (Óm Viðar Arnarson vm 85.), Ormarr Órlygsson, Bjarni Jóns- son, Jón Kristjánsson, Antony Karl Gregory (Steingrímur Birgisson vm 55.), Þorvaldur Örlygsson. Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Luca Kostic, Nói Bjömsson, Þorsteinn Jóns- son, Valdimar Pálsson (Sævar Árnason vm 75.)Ólafur Þorbergsson, Júlíus Tryggvason, Hlynur Birgisson, Bojan Tanevski, Sveinn Pálsson, Ámi Þór Ámason. URSLIT KNATTSPYRNA 4. deild A: Ægir — Augnabtik..............7:0 Steinn Skúlason 3, Halldór Sigþórsson, Hannes Haraldsson, Björgvin Guðmunds- son, Armann Einarsson. Fyrirtak — Njarðvík...........0:2 — Einar Einarsson, Rúnar Jónsson. 4. deild C: Baldur — Árvakur..............2:3 Kristján B. Halldórsson, Helgi Jens Arnars- son — Sigurður Indriðason, Ami Guðmunds- son, Páll Björnsson. Ármann — Skallagrímur.........3:1 Gústav Alfreðsson, Ingólfur Daníelsson, Arnar Halldórsson — Valdimar Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.