Morgunblaðið - 04.08.1989, Side 1
56 SIÐUR B/C
175. tbl. 77. árg.___________________________________FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ungverjaland:
Austur-Þjóðveijum
veitt pólitískt hæli?
Búdapest. Reuter.
UNGVERJAR kunna senn að veita austur-þýskum flóttamönnum
pólitískt hæli, að sögn Judit Toth, sem er háttsettur embættismaður í
þeirri deild innanríkisráðuneytis Ungverjalands er Qallar um málefhi
flóttamanna.
I viðtali við ungverska útvarpið
sagði Toth að verið væri að undirbúa
lög um meðferð flóttamanna sem
senn yrðu lögð fram á þingi. Sá tími
væri líklega ekki langt undan að
austur-þýskum flóttamönnum yrði
veitt pólitískt hæli í Ungverjalandi.
Helmut Scháfer, ráðuneytisstjóri í
utanríkisráðuneytinu í Bonn, sagði
að vestur-þýsk stjórnvöld styddu
áform Ungveija um að taka á máli
austur-þýskra flóttamanna. Sendi-
Rekinnfyrir
að gagnrýna
Thatcher
Lundúiium. Reuter.
AGANEFND bresku utanríkis-
þjónustunnar hefur úrskurðað að
Patrick Haseldine, annar sendi-
ráðsritari, hafi með gagnrýni
sinni á Margaret Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands, brotið
starfsreglur um afskipti af sljórn-
málum og samskipti við fjöliniðla
og verði því leystur frá störfum.
Haseldine hefur undanfarin ár
starfað í utanríkisráðuneytinu í Lon-
don eftir að hafa m.a. gegnt starfi
í breska sendiráðinu í Siérra Leone
og verið í láni hjá breskum neytenda-
samtökum. I desember síðastliðnum
gagnrýndi hann Margaret Thatcher
í lesendabréfi til dagblaðsins Guar-
dian fyrir tvöfeldni í utanríkismál-
um. Hann sagði m.a. að Thatcher
sakaði Belgíumenn og íra um að
sýna hryðjuverkamönnum miskunn
á meðan hún sjálf sýndi stjórnvöld-
um í Suður-Afríku linkind.
herra Þýskalands í Búdapest myndi
senn heija viðræður um þetta mál
við innan- og utanríkisráðherra Ung-
veijalands. Frá því Ungveijar hófu
að rífa niður ,járntjaldið“ á landa-
mærum sínum er liggja að Aust-
urríki hafa þeir haft afskipti af um
500 Austur-Þjóðveijum, sem reynt
hafa að komast til Austurríkis með
ólöglegum hætti. Þá eru nú í Ung-
veijalandi 30 þúsund rúmenskir
flóttamenn, sem þangað hafa flúið
frá 1986. Rúmenar kölluðu í gær
heim sendiherra sinn í landinu í
mótmælaskyni við það að birt skyldi
viðtal við Mikael, fyrrum Rúmeníu-
konung, í ungverska sjónvarpinu.
Fyrr á þessu ári undirrituðu Ung-
veijar flóttamannasamþykkt Sam-
einuðu þjóðanna en það hafa önnur
austantjaldsríki ekki gert. í næsta
mánuði verða opnaðar tvennar flótta-
mannabúðir í Ungveijalandi.
Reuter
Hundruð líbanskra flóttamanna sjást hér á leið suður til landræmu á mörkum Líbanons og ísraels sem
Israelsstjórn hefúr hernumið til að hindra að skæruliðar laumist að norðan inn í landið. Flóttamennirn-
ir sögðust óttast að Bandaríkjamenn myndu gera loftárásir á bækistöðvar islamskra skæruliða sem
hliðhollir eru írönum.
Islamskir skæruliðar um mál Bandaríkjamannsins Josephs Cicippios:
Segjast fresta aftökunni
að beiðni vinveittra ríkja
Talsmaður Bandaríkjastjórnar segir íransstjóm vinna að lausn málsins af einlægni
Beirút, Washington, Damaskus, Teheran. Reuter.
SKÆRULIÐAHOPUR íslamskra
ofsatrúarmanna í Líbanon sagði í
gær að aftöku bandaríska gíslsins
Josephs Cicippios, sem boðuð
Pósthús-
svalir
hrynja í
Kíev
11 manns fórust og
tveir slösuðust al-
varlegaþegar
svalir á þakbrún
aðalpósthússins í
borginni Kiev í
Sovétríkjunum
hrundu á miðviku-
dag. Fjöldi fólks
hafði stansað undir
svölunum til að
bíða af sér rigning-
arhryðju. Að sögn
dagblaðsins Pröv-
du hafa íbúar
borgarinnar löng-
um varað við
slæmu ásigkomu-
lagi hússins en við-
gerðum ætíð verið
slegið á frest. Talið
er að titringur frá
steinborum hafi
m.a. veikt steyp-
una í svöfunum.
Reuter
hafði verið í gærkvöldi, hefði ver-
ið frestað. Yfirlýsing Samtaka
byltingar og réttlætis, eins og
hópurinn nefnir sig, var birt um
hálftíma áður en frestur, er sam-
tökin höfðu veitt, rann út. í henni
segir að þetta hafi verið gert til
að sýna virðingu „þeim ríkjum
sem reynt hafa að miðla málum
vegna þess að Bandaríkjamenn
grátbáðu þau um slíka hjálp“.
Samtökin setja enn sem skilyrði
fyrir lausn Bandaríkjamannsins
úr haldi að sheik Abdel-Karim
Obeid, leiðtoga Hizbollah-samtak-
anna, verði sleppt. ísraelar rændu
Obeid í síðustu viku til að reyna
að koma á fangaskiptum við
íslamska skæruliðahópa í Líban-
on.
Margaret Tutweiler, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
gaf í skyn í gærkvöldi að íranir hefðu
haft milligöngu um frestun aftök-
unnar en stjórnmálasamband er ekki
milli ríkjanna. „Við höfum haft sam-
band við Iransstjórn með ýmsum
aðferðum og höfum ekki ástæðu til
að efast um að íranir vinni að lausn
málsins af einlægni.“ Tutweiler bætti
því við að Sýrlendingar og Sovét-
menn hefðu einnig látið í ljós ósk
um að stuðla að lausn deilunnar.
Nokkuð hefur slaknað á spennu
vegna gíslamálsins eftir yfirlýsingu
skæruliðanna en Bandaríkjastjórn
hefur stefnt gífurlegum flota her-
skipa, þ. á m. flugvélamóðurskipum,
að ströndum Líbanons. Önnur her-
skip eru á leið til Persaflóa en klerka-
stjórnin í íran er talin geta haft mik-
il áhrif á framvindu mála þar sem
margir af skæraliðahópunum í
Líbanon njóta stuðnings Irana.
Heimildarmenn í íran sögðu í gær
að Bandaríkjastjórn hefði komið
þeim skilaboðum aleiðis til stjórn-
valda í Teheran að íranir yrðu dregn-
ir til ábyrgðar ef fleiri bandarískir
gíslar yrðu drepnir í Líbanon. Á
mánudag sögðu samtök, er tengjast
Hizbollah, að þau hefðu drepið
bandarískan gísl, William Higgins
ofursta. íranir styðja Hizbollah sem
eru samtök shíta-múslima.
Ljóst er að Bandaríkjamenn hafa
iitla möguleika á því að frelsa níu
.bandaríska gísla í Líbanon með
vopnavaldi þar sem þeir vita ekki
hvar gíslarnir eru hafðir í haldi. Tak-
markaðar loftárásir á skæruliðabúðir
í Líbanon eða herbækistöðvar í íran
eru taldar myndu hafa lítil áhrif.
Sjá ennfremur „Orlög gíslanna
sögð ... “ á bls. 16.
Flugslys í Grikklandi:
Óttast að 34 hafi
farist með vélinni
Aþenu, Reuter.
FARÞEGAVÉL frá gríska flug-
félaginu Olympic Airways brot-
lenti á eynni Samos í gærkvöldi
og var óttast að allir um borð,
31 farþegi og þriggja manna
áhöfn, hefðu farist er síðast
fréttist. Vélin var bresksmíðuð,
tveggja hreyfla skrúfúþota af
gerðinni Short Brothers.
Vélin var á leið frá Saloniki á
meginlandi Grikklands og flug-
mennirnir farnir að búa sig undir
lendingu á eynni þegar hún hvarf
skyndilega af ratsjá, að sögn tals-
manns flugfélagsins. Björgunar-
menn úr her og flota héldu þegar
af stað til leitar í bátum og þyrlum
en slysið varð á Ijöllóttum stað sem
erfitt er að nálgast á bíl. Skömmu
fyrir miðnætti að íslenskum tíma
höfðu fundist nokkur lík og benti
allt til þess að enginn hefði lifað af.
Olympic Airways neitaði að
skýra frá þjóðerni farþeganna fyrr
en vitað væri um örlög þeirra en
nöfnin voru lesin upp í útvarpsstöð
og virtust öll vera grísk.