Morgunblaðið - 04.08.1989, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 4. AGUST 1989
15
Ölfus:
Breytti Qósi og hlöðu í
veitinga- og skemmtistað
Básinn á Efstalandi formlega opnaður
Selfossi.
„HÉR ÁTTU auðvitað að baula
kýr og kálfar,“ sagði Björn
Kristjánsson sem ásamt konu
sinni, Svövu Guðmundsdóttur,
hefur breytt Qósi sínu á Efsta-
landi í Olfusi í veitingastað.
Staðurinn var formlega vígður
föstudaginn 28. júlí og honum
gefið nafiiið Básinn.
Þau hjónin hafa í ein þijú ár
unnið að því að breyta fjósinu og
hlöðunni í veitingastað og staður-
inn smátt og smátt tekið á sig
nýtt form. Þau Björn og Sólveig
hafa nú fengið fast veitingaleyfi
fyrir staðinn og þar með fullgilda
viðurkenningu á honum sem veit-
inga- og skemmtistað. Þar með
má segja að fjósið hafi í vissum
skilningi fengið sinn kvóta.
Hugmyndin að veitingastað í
fjósinu varð til í Spánarferð þeirra
hjóna með vinum og kunningjum.
í sjálfu fjósinu eru borð með
veggjum og dansgólf í miðjunni,í
„flórnum“. Fjósbarinn er á sínum
stað og sama er að segja um
hlöðubarinn í hlöðunni inn af fjós-
inu. Þar er upphækkaður hljóm-
sveitarpallur í öðrum endanum og
fyrirhugað er að innrétta vinalega
setustofu uppi undir risinu í hinum
endanum. Undir fjósveggnum úti
er afmarkað svæði fyrir grillveisl-
ur.
Að sögn þeirra Björns og Sól-
veigar verður Básinn opinn fyrir
félagasamtök og fyrirtæki að
halda veislur og ýmsar smá-
skemmtanir. Annars hefur staður-
inn þegar fengið sinn reynslutíma
því félög og fyrirtæki á Selfossi
og víðar hafa haldið þar árshátí-
ðir og fleiri samkomur og líkað
vel. Þá hefur ekki ómerkari hljóm-
sveit en Sykurmolarnir haldið þar
dansleik og tónleika.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Veitinga- og skemmtistaðurinn Básinn að Efstalandi í Olfusi.
Björn og Sólveig á Efstalandi. Mjólkurbrúsar eru óþarfir í þeirra fjósi.
Gestir gæddu sér á veitingum þegar Básinn var formlega opnaður.
Þeir sem dvelja kvöldstund í
ijósinu á Efstalandi eru sammála
um að þar ríki alltaf sérstök
stemmning það er líkt og fólk sé
nær náttúrunni enda hanga í loft-
inu gömul áhöld tengd búskap og
út um fjósgluggana sést guðs-
græn náttúran og búsmali á beit
í ijarska.
— Sig. Jóns.
% FUJICOLOR
Vetb "I.SmSePlaxatramg"^. t
nniMiAn næstaWra l^umaraa"
FIUKOIOR vu,„„,oe
FILMA-, -
MYNDAVEL FYLGIR.
Skipholti 31 - Sími 680450
• LJÓSMYMDASAMKEPPNI KODAK EXPRESS GÆÐAFRAMKÖLLUMAR OG VIKUMMAR •
I
LÁTTU OKKUR
FRAMKALLA
SUMARBROSIÐI
Allir geta tekið þátt í Sumarbrosinu,
hinum einfalda sumarleik. Hann felst
einfaldlega í því að skila inn myndum
af sumarbrosi (fólki eða dýrum) eða
broslegri mynd.
í hverjum mánuði verða birtar fjórar
athyglisverðustu myndirnar og besta
mynd sumarsins verður valin í september
úr öllum innsendum myndum. Vegleg
verðlaun eru í boði: utanlandsferö,
17 myndavélar o.fl.
Eina skilyrðið er að notuð sé Kodak
filma og framkallað hjá Kodak Express
Gæðaframköllun. Hún er á eftirtöldum
• Verslanir Hans Petersen, Bankastræti,
Glæsibæ, Austurveri, Kringlunni og
Lynghálsi • Ljósmyndaþjónustan,
Laugavegi 178 • Kaupstaður, Mjódd
• Veda, Hamraborg, Kópavogi • Filmur
og Framköllun, Strandgötu, Hafnarfirði
• Ljósmyndahúsið, Dalshrauni 13,
Hafnarfirði • Hljómval, Keflavík
• Bókaverslun Andrésar Níelssonar,
Akranesi • Bókaverslun Jónasar
Tómassonar, ísafirði • Pedrómyndir,
Hafnarstræti og Hofsbót, Akureyri
• Nýja Filmuhúsið, Hafnarstræti,
Akureyri • Bókabúð Brynjars,
Sauðárkróki • Vöruhús KÁ, Selfossi.
AUK/SÍA k91-214