Morgunblaðið - 04.08.1989, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989
21
V estmannaeyj ar:
Utvarpsrekstur í
tilefiii þjóðhátíðar
■ Vestmannaejjum.
ÚTVARPSSTÖÐ hefur verið rekin í Eyjum síðustu viku. Það eru 6
ungir Eyjamenn sem standa að rekstrinum og hafa þeir gefið útvarps-
stöðinni nafnið Gufan FM 103.
Gufan hóf útsendingu sl. föstu-
dag og hefur verið sent út allan
sólarhringinn síðan. Verður haldið
áfram með útsendingar þar til þjóð-
hátíðin gengur í garð, en þá verður
ævintýrið úti.
Sexmenningarnir sem að stöðinni
standa sögðu að þetta væri bara
upphitun fýrir þjóðhátíðina og gert
til þess að ná upp svolítilli stemmn-
ingu hjá Eyjabúum. Dagskrá út-
varpsins hefur byggst upp á tón-
list, fréttum, viðtölum og fyrir-
tækjaþáttum, þar sem starfsmenn
fyrirtækja hafa fengið að silja við
stjórnvölinn á stöðinni um stund.
Sexmenningarnir hafa að mestu
séð urp dagskrárgerðina en hafa
fengið nokkra aðra Eyjabúa til liðs
við sig í einstaka þáttum. Þeir voru
ánægðir með þær undirtektir sem
Gufan hefði fengið hjá Eyjabúum
og sögðu greinilegt að Eyjabúar
kynnu að meta þetta framtak
þeirra.
Grímur
Morgunbladid/Sigurgeir Jónasson
Dagskrárgerðarmenn Gufiinnar í Vestmannaeyjum í stúdíóinu.
Ftugtak:
Stöðugar ferð-
ir til Eyja og
í Þórsmörk
Flugtak h/f verður með stöð-
ugar ferðir ft,á Selfossi og
Reykjavík til Vestmannaeyja og
Þórsmerkur um Verslunar-
mannahelgina.
Fjórar flugvélar verða í ferðun-
um. Þrjár tíusæta vélar og ein nítján
manna Twin-otter vél. Twin-otter
vélin, sem er sérstaklega hönnuð
fyrir erfiðar flugbrautir, mun verða
í ferðum milli Reykjavíkur og Þórs-
merkur.
Að sögn Alberts Baldurssonar
hjá Flugtaki er þetta í fyrsta sinn
sem flogið er skipulega í Þórsmörk.
Upplýsingar um flugið fást hjá
Flugtaki.
Hljómsveitin Greifamir spilar i Logalandi í Borgarfirði um verslunar-
mannahelgina.
Greifarnir í Logalandi
HLJÓMSVEITIN Greifarnir leikur fyrir dansi í Logalándi í Borgar-
firði um verslunarmannahelgina. Greifamir hafa átt mörg vinsæl lög
undanfarin þijú ár. Nægir þar að nefna verslunarmannahelgarlagið
Útihátíð.
Nú í sumar komu út tvö ný lög
með hljómsveitinni, á plötunni
Bandalögum, sem heita Dag eftir
dag (Loðnurokk) og Strákarnir í
götunni og hafa þau notið tölu-
verðra vinsælda.
Sætaferðir verða frá BSÍ og víða
að úr Borgarfirði og nágrenni og
mun Sæmundur sjá um þær, segir
í fréttatilkynningu frá Greifunum.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 3. ágúst
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 50,00 37,00 41,04 9,992 410.075
Þorskur(smár) 15,00 15,00 15,00 0,015 233
Ýsa 82,00 35,00 56,13 10,429 606.306
Karfi 35,00 15,00 32,30 1,066 34.454
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,988 13.333
Steinbítur 48,00 20,00 37,02 2,967 109.854
Langa 36,00 36,00 36,00 0,809 29.143
Lúða 190,00 120,00 143,85 0,488 70.228
Koli 31,00 31,00 31,00 0,224 6.971
Skata 67,00 67,00 67,00 0,065 4.382
Keila 10,00 10,00 10,00 1,085 10.854
Skötuselur 161,00 148,00 151,52 0,699 106.039
Samtals 48,75 28,733 1.401.877
1 dag verður seldur bátafiskur.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 54,00 39,00 40,29 135,248 5.449.103
Ýsa 97,00 57,00 89,95 5,173 465.325
Karfi 30,00 30,00 30,00 0,182 5.460
Ufsi 14,00 14,00 14,00 0,507 7.098
Ufsi(undir- máls) 8,00 8,00 8,00 0,270 7.098
Steinbítur 36,00 36,00 36,00 0,120 4.320
Langa 32,00 32,00 32,00 0,625 20.000
Skötuselur 360,00 180,00 202,97 0,175 35.520
Samtals 42,09 142,301 5.988.986
Selt var úr Ásgeiri RE Húnaröst o.fl. Næsta uppboö verður
þriðjudaginn 8. ágúst og verður þá m.a. selt úr Engey, 200 t
þorskur o.fl.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 51,00 44,50 48,21 2,609 125.776
Ýsa 35,00 22,00 26,09 0,035 913
Karfi 26,50 21,50 25,41 2,697 68.522
Ufsi 28,00 15,00 25,51 0,277 7.067
Steinbítur 40,50 26,00 33,73 0,524 17.673
Langa 30,00 28,00 29,27 0,829 24.297
Lúða 265,00 220,00 242,28 0,177 43,005
Hlýri/Steinbí- 26,00 26,00 26,00 0,049 1.274
tur Skata 38,00 38,00 38,00 0,004 152
Langlúra 20,00 15,00 16,33 0,153 2.515
Grálúða 29,00 29,00 29,00 0,533 15.457
Öfugkjafta 17,00 15,00 16,15 0,616 9.946
Lax 200,00 200,00 200,00 0,064 12.800
Humar 999,00 461,00 770,82 0,257 198.101
Skötuselur 300,00 120,00 195,96 0,109 21.360
Samtals 61,42 8,935 548.858
Selt var úr humarbátum. í dag verður ekkert uppboð. Næsta
uppboð verður þriöjudaginn 8. ágúst.
Japis-rall BÍKR:
Steingrímur og Witek sigruðu
STEINGRÍMUR Ingason og Wit-
ek Bogdanski sigmðu í Japis-
ralli sem Bifreiðaíþróttaklúbbur
Reykjavíkur hélt í samvinnu við
Japis og fór fram nú um helgina.
17 keppendur héldu af stað kl.
20.00 á laugardagskvöldinu frá
Kringlunni áleiðis að fyrstu sérleið
við Úlfarsfell og þaðan austur í
Þingvallasveit á leið upp Kjöl, sem
ekinn var upp undir Hveravelli, en
þar voru áfangaskipti í -keppninni.
Kl. 6.00 á sunnudeginum voru
Steingrímur og Witek ræstir fyrstir
eftir rásröð sem valin er eftir
árangri í fyrri áfanga en þeir voru
þá í fyrsta sæti og Olafur og Hall-
dór í öðru og Ævar og Ari í því
þriðja. Var sama leið og í fyrri
áfanga ekin en nú í gagnstæða átt
og endað á sérleið við Litlu kaffi-
stofuna í mynni Jósefsdals og var
þar fjölmenni að fylgjast með kepp-
endum, sem sýndu snilldartakta
sem fyrr, þrátt fyrir að úrslit væru
þá þegar ráðin en röð fyrstu bíla
breyttist ekkert f seinni áfanganum.
Tíu af sautján bílum sem hófu
keppnina luku henni við Japis í
Brautarholti kl. 15.00 á sunnudeg-
inum. Ymis óhöpp eltu þá er helt-
ust úr lestinni á þeim 470 km sem
eknir voru á þeim 19 klukkustund-
um sem keppnin stóð og er þá helst
að nefna tvær veltur, einn bruna
og fjórar bilanir af öðrum toga.
Staða i íslandsmeistarakeppn-
inni eftir Japis-rall:
1. Olafur Sigurjónsson —
Halldór Siguijónsson 55 stig.
2. Steingrímur Ingason —
Witek Bogdanski *43 stig.
3. Ævar Hjartarson —
Ari Arnórsson 37 stig.
Einnig óku þijár síðustu sérleið-
irnar fjögur vélhjól og sýndu öku-
menn þeirra tilþrif og varð árangur
Úrslit:
Röð Nr. Ökumenn
þeirra sem hér greinir:
RöðNr. Ökumenn Refsist.
1 66 Ragnar Bjarnas. 0:15:11
2 22 Ágúst Guðmundss. 0:15:17
3 55 Kristinn Kristinss. 0:16:28
4 33 Bjami Þ. Ólafss. 0:17:34
Bíll Samt. refsií
1 1 Steingrímur Ingason/Witek Bogdanski Nissan 1:58:05
2 2 Ólafur Siguijónsson/Halldór Sigutjónsson Talbot 2:00:13
3 3 Ævar Hjartarson/Ari Arnórsson Suzuki 2:08:44
4 6 Rúnar Jónsson/Jón Ragnarsson Nissan 2:15:05
5 8 Páll Halldórsson/Hafliði Maggason Subaru 2:15:27
6 9 ÞórðurÞórmundsson/JónÞórmundsson Opel 2:19:52
7 13 Sigurður Helgason/Mickael Reynis Escort 2:28:11
8 17 Ómar Guðbrandsson/Sigmundur Guðnason Toyota 2:31:51
9 14 Guðný Úlfarsdóttir/Stefán Úlfarsson Subaru 2:43:33
10 7 Páll Harðarson/Ásgeir Ásgeirsson Escort 2:45:25
Morgunblaðið/Bjami
Steingrímur og Witek á fyrstu sérleiðinni við Úlfarsfell, þar sem
þeir tóku forystuna og héldu henni það sem eftir var keppninnar.
Góður fyrripartur í
Rangánum
„Það eru komnir um 40 laxar
úr Rangánum og það er býsna
gott vegna þess að yfirleitt kemur
lítið inn af laxi í júlí og oft sáralí-
tið fyrr en síðsumars," sagði Lúðvík
Gizurarson í samtali við Morgun-
blaðið í fyrrakvöld, en hann var
þá nýstiginn inn á gólf ásamt syni
sínum í veiðihúsi þeirra efst við
Eystri Rangá, með tvo nýrunna
laxa veidda á Bergsnefi. Sagði
Lúðvík að talsvert bæri á merktum
smálöxum sem væru heimtur úr
sleppingu gönguseiða í fyrra.
Góð útkoma í
Laugardalsá
„Það eru komnir rúmlega 200
laxar á land úr Laugardalsá við
Djúp“, sagði Ólafur Jóhannsson
fréttamaður glaðbeittur í gærdag
á leið heim úr ánni með sjö væna
laxa í bílskottinu. Ólafur sagði að
stærsti laxinn í sumar hefði verið
20 punda, en í Blámýraf\jóti væru
tveir eða þrir risar.
Góður kippur í Fljótaá í
Skagafirði
Mjög góð veiði hefur verið í
Fljótaá í Skagafirði að undanförnu
einhver besta hrota sem menn
muna þar um slóðir. Hafa veiðst
allt að 10 til 20 laxar á dag í ánni
sem er fágæt veiði í þeirri á. Margt
af laxinum hefur verið vær.n og
fallegur fiskur.
Menn mæta í
Norðlingafljót og vita
ekkert
Brögð hafa verið að því að veiði-
menn hafa komið í Norðlingafljót
í Borgarfirði í góðri trú og ekki
botnað í því hvers vegna þeir hafa
ekki séð þar lax hvað þá veitt slíkan
fisk eftir heilu og hálfu daganna.
Eða þangað til að einhver segir
þeim fyrir tilviljun að sleppingar
hafbeitarlaxa í ána hafi verið bann-
aðar af landbúnaðarráðuneytinu að
ósk Veiðifélags Borgarfjarðar. Svo
brátt bar bannið að, að leigutakar,
sem höfðu selt öll veiðileyfi sumars-
ins, náðu ekki til allra sem ætluðu
sér að veiða í ánni og hlaut því
svona að fara. Bannið á rætur að
rekja til reglugerðar sem bannar
flutning á laxastofnum landshluta
á milli nema að fenginni undan-
þágu frá ráðuneytinu sem aftur
veitir undanþágu ef vilyrði viðkom-
andi veiðifélags og fisksjúkdóma-
nefndar liggja fyrir. í þessu tilviki
gaf sjúkdómanefndin grænt ljós
svo fremi sem ákveðnum skilyrðum
væri framfylgt og þótti bæði leigu-
tökum og ráðuneytinu skilyrðin
aðgengileg. En Veiðifélaginu ekki.
gg