Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 1
40 SIÐUR B
183. tbl. 77. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Pólland:
Walesa reynir að
sefa Sovétmenn
Ursögn úr Varsjábandalaginu ekki á dagskrá
Varsjá. Reuter.
WOJCIECH Jaruzelski, forseti Póllands, hvatti í gær til neyðar-
fiindar um stjórnarkreppuna í landinu en í fyrradag gafst Czezlaw
Kiszczak, forsætisráðherra kommúnista, upp við stjórnarmyndun.
Samstöðumenn hafa dregið nokkuð í land og segjast nú geta sæst
á, að kommúnistar fari með varnar- og innanríkismál í væntan-
legri samsteypustjórn.
Jaruzelski sagði í yfirlýsingu
sinni, að fulltrúar allra stjórn-
málaflokka yrðu að koma saman
sem fyrst til að ræða stjórnar-
kreppuna en það hefur ekki gerst
Eystrasaltsríkin:
Pravda send-
ir þjóðernis-
sinnum tóninn
Moskvu. Reuter.
MALGAGN sovéska kommúnista-
flokksins, Pravda, fór í gær hörð-
um orðum um stjórnmálahreyfing-
ar þjóðernissinna í Eystrasalts-
ríkjunum, fordæmdi þjóðernis-
stefiiu þeirra og sakaði þær um
að hafa stuðlað að and-sovéskri
og „borgaralegri" starfsemi. Þetta
er harðasta gagnrýni blaðsins til
þessa á hreyfingarnar í Eistlandi,
Lettlandi og Litháen, sem krefjast
þess að Eystrasaltsríkjunum verði
veitt aukin sjálfstjórn.
„Viss öfl berjast fyrir aðskilnaði
frá Sovétríkjunum og borgaralegu
kerfi hefur verið komið á að nýju í
lýðveldunum," segir meðal annars í
Prövdu. Blaðið heldur því fram að
hreyfingarnar hafi tekið til sín völd
á kostnað kommúnistaflokka lýð-
veldanna, en fjölmargir kommúnistar
styðja kröfur þjóðernishreyfinganna.
Pravda segir að þjóðernisstefna
hreyfinganna stangist á við umbóta-
stefnu Gorbatsjovs og sakar þær um
grafa undan völdum kommúnista-
flokksins. Afleiðingarnar séu þær að
klofningur sé á meðal flokksmanna
í ríkjunum auk þess sem tengsl þeirra
við stofnanir kommúnistaflokksins
og verkalýðssamtök hafi verið rofin.
fyrr í Austur-Evrópu, að komm-
únistaforingi hafi orðið að gefa
stjórnamyndun upp á bátinn.
Kiszczak lét umboðið í hendur
Roman Malinowski, formanni
Bændaflokksins, en hann, fulltrú-
ar Demókrataflokksins og Sam-
stöðu hafa síðustu daga rætt um
myndun samsteypustjórnar.
Samstöðumenn hafa verið
andvígir samstarfi við kommún-
ista en Lech Walesa sagði í gær,
að unnt væri að fallast á, að
kommúnistaflokkurinn færi með
varnar- og innanríkismál. Með því
vill hann augljóslega sefa Sovét-
menn, sem hafa miklar áhyggjur
af þróuninni í Póllandi, og hann
tók fram, að Samstaða ætlaði ekki
að beita sér fyrir úrsögn Póllands
úr Varsjárbandalaginu. Það, sem
Samstaða vildi, væri að koma á
efnahagslegum umbótum, sem
kommúnistar hefðu verið ófærir
Reuter
Líbanskt barn grætur þar sem það skríður yfir rústir heimilis síns í Beirút, en stór svæði borgarinnar eru
i molum eftir stórskotabardaga Sýrlendinga og kristinna manna undanfarna daga.
Líbanon:
Sýrlendingar herða sókn-
ina gegn kristna lierniim
Beirút. Reuter.
SÝRLENDINGAR héldu áfram
liðsflutningi til víglínunnar í
norðurhluta Beii-út í gær, en
a.m.k. 15 sýrlenskir hermenn
féllu í skriðdrekabardögum við
sveitir kristinna manna. Sýr-
landsher og sveitir Michels
Aouns, hershöfðingja kristinna,
skiptust á stórskotaliðshryðjum
og er talið að a.m.k. 6 óbreyttir
borgarar hafi fallið í gær og 15
særst. Stór svæði í borginni eru
nú rjúkandi rúst. Javier Perez
de Cuellar, framkvæmdastjóri
Blóðbaðá
Filippseyjum
Filippeyskur herflokkur batt í gær
enda á gíslatöku í herfangelsi í
Davao, um 1.000 km suðvestur
af Manilu, og létu 15 fangar lífið
í áhlaupinu. Aður en það var gert
höfðu fangarnir nauðgað og myrt
ástralska konu og vegið íjóra gísla
til viðbótar. 10 gíslar komust lífs
af úr hildarleiknum. Konan, ungur
trúboði frá Sydney, Jacqueline
Hamill að nafni, var skorin á háls
og skotin í hnakkann. Hún sést
fyrir miðri mynd hér til hliðar, en
hnífi er haldið að hálsi hennar.
Sjá „Gíslataka endar ... “
á síðu 16.
Reuter
Sameinuðu þjóðanna, nýtti sér í
gær rétt til að kalla saman fúnd
Oryggisráðsins til þess að fjalla
um málið. Þá sagði Jóhannes
Páll páfi II að Sýrlendingar
fremdu nú flöldamorð í Líbanon
og sakaði þá um að vilja leggja
landið í auðn.
Sýrlendingar hafa þrengt mjög
að hersveitum Aouns, sem halda til
í kristna hluta borgarinnar. Víglínan
er nú við Madfoun-á, um 40 km
norður af Beirút. Hafa þeir óspart
beitt stórskotaliði og sprengjuvörp-
um. Talið er að þungavopn þessi
geti ráðið úrslitum í orrustunni.
Við suðurhluta hverfis kristinna
manna eiga sveitir Aouns í vök að
veijast vegna stórskotaliðsárásar
drúza, en kristna hernum tókst að
hrinda sókn þeirra á sunnudaginn.
Hernaðarsérfræðingar telja að
Sýrlendingar vilji reyna á herstyrk
Aouns við útjaðra kristna hverfisins,
en safni jáfnframt liði til þess að
reyna beina innrás í hverfið. Her-
sveitir Sýrlendinga og íslamskra
bandamanna þeirra í Líbanon hafa
einnig sést safna miklu liði fyrir
utan Austur-Beirút.
Meira en 140 manns hafa látið
lífið síðan stórskotahríðin hófst
síðastliðinn fimmtudag, en 525 hafa
verið fluttir særðir í sjúkrahús. .
Bardagar þessir hófust um miðjan
mars þegar Aoun lýsti yfir „frelsis-
striði" gegn Sýrlendingum, en þeir
hafa um 33.000 manna her í Líban-
on og hafa ekki sýnt á sér neitt
fararsnið. Sýrlendingar hafa viljað
koma á stjórn múslima, sem treysta
megi til þess að vera þeim hliðholl.
Nú virðist hins vegar sem þeir ætli
að ganga á milli bols og höfuðs
kristnum mönnum í eitt skipti fyrir
öll.
í gær héldu helstu leiðtogar
stríðandi fylkinga múslima í Líbanon
fund, en auk þeirra sóttu fundinn
utanríkisráðherrar Sýrlands og ír-
ans. Eftir fundinn kváðust þeir hafa
myndað bandalag til þess að ráða
niðurlögum Aouns og hers hans.
Aoun hvatti á hinn bóginn lands-
menn, hverrar stjórnmálaskoðunar
og trúar sem þeir annars væru, til
þess að sameinast gegn hernámi
Sýrlendinga í stað þess að styðja
það með því að láta sem um inn-
byrðis stríð Líbana væri að ræða.