Morgunblaðið - 16.08.1989, Page 27
sem einn af bestu reiðmönnum
landsins er hann öllum á óvart sigr-
aði í töltinu á Tinnu frá Flúðum.
Sjálfsagt hefur sigurinn komið hon-
um sjálfum mest á óvart því ekki
leist honum betur á hryssuna en
svo að hann hugðist hætta við þátt-
töku daginn fyrir keppnina. Nær-
staddir gátu þó talið honum hug-
hvarf og síðan þá hefur hann verið
í fremstu röð. Skemmst er þess að
minnast þegar hann reið Júní frá
Syðri-Gróf til sigurs í A-flokki gæð-
inga á Landsmótinu 1986 og reynd-
ar einnig á fjórðungsmótinu 1985.
Einar stundar kandídatsnám við
Bændaskólann á Hvanneyri auk
þess sem hann stundar tamningar
í nokkrum mæli með námi.
En nú keppir hann á stóðhestin-
um Fjalari frá Hafsteinsstöðum sem
er steingrár sex vétra giæsihestur
undan Hrafni 802 frá Holtsmúla
og Toppu 4960 frá Hafsteinsstöð-
um. Keppnisgreinar eru tölt og
fimmgangur og má reikna með
honum sterkum í fimmgangi.
Jón Pétur Ólafsson og
Glaumur frá Sauðárkróki
Segja má að Jón Pétur sé eini
áhugamaðurinn í Iiðinu að þessu
sinni því hann er múrari að at-
vinnu. Eigi að síður hefur hann
starfað mikið við tamningar áður
en hann snéri sér að múrverkinu.
Af og til tekur hann þátt í keppni
af ýmsu tagi og hefur honum vegn-
að vel hjá félagi sínu, Sörla í Hafn-
arfirði. Einnig hefur hann verið
dijúgur í kynbótasýningum og þá
gjarnan með hryssur í sýningum.
Hestur Jóns Péturs er okkar aðal-
tromp í skeiðinu en það er Glaumur
frá Sauðárkróki, ellefu vetra rauð-
blesóttur undan Hrafni 802 frá
Holtsmúla og Vöku frá Sauðár-
króki. Hefur Glaumur staðið nokk-
uð framarlega í skeiðinu undanfarin
ár og oftsinnis skeiðað undir 23
sekúndum, einnig hefur hann verið
sýndur sem gæðingur og staðið þar
efstur á félagsmóti. Má ætla að Jón
Pétur og Glaumur eigi góða mögu-
leika á EM-titili í 250 metra skeiði.
Sigurður Sæmundsson,
liðsstjóri
Það eitt að hafa góða hesta og
snjalla reiðmenn í landsliði tryggir
ekki hámarksárangur á Evrópu-
mótum. Segja má að stór hluti
keppninnar fari fram utan vallar
þar sem upp geta komið hin ýmsu
mál sem eru flókin og oft erfið við-
ureignar. Er því áríðandi að hafa
þar góðan mann sem er öllum hnút-
um kunnugur. í þetta starf var
valinn Sigurður Sæmundsson sem
nú gegnir liðsstjórastöðu í þriðja
sinn. Auk þess hefur Sigurður keppt
fjórum sinnum á Evrópumótum og
er hann því öllum hnútum kunnug-
ur frá báðum hliðum. Eru menn
sammála um að vandfundinn sé
betri maður í starfið.
Sterkasta liðið?
Ef litið er yfir árangur íslands á
Evrópumótum frá upphafi má sjá
að okkar menn hafa ávallt staðið
sig með mikilli prýði og oftar en
ekki komið heim með einn eða fleiri
EM-titla. Vera kann að ýmsum
finnist það dramb eða þjóðarremb-
ingur að ætla að liðið sem nú er
Purolator
jqr fiaam
Urvals
síur
■ * i. rjTr 'i
h :r_Tn i&m
SKEIFUNNI SA SÍMI 91-8 47 88
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989
27
Jón Pétur Ólafsson og Glaumur frá Sauðárkróki.
Hinrik Bragason og Vafi frá Hvassafelli.
Einar Öder Magnússon og Fjalar frá Hafsteinsstöðum.
teflt fram sé það sterkasta sem
héðan hefur farið. En samt er það
nú svo að flestir ef ekki allir þeir
sem fylgst hafa náið með þessum
málum undanfarið virðast sammála
um að svo sé. Ekki virðist nein
goðgá að ætla að liðið fari heim
þÚá til fjóra EM-titla að þessu sinni
og telja má góða möguleika á að
allir íslensku keppendurnir komi til
með að blanda sér í toppbaráttuna
í einhveijum af fjölmörgum grein-
um mótsins. En allt skýrist þetta á
næstu dögum.
ERT ÞÚ ÁSKRIFANDI?
Tfmaritið EIÐFAXI hefur komið út mánaðarlega ftólf ár,
uppfullt af fróðleik, frœðslu og fréttum
um allt sem við kemur hestum og hestamennsku
Með þvf að gerast áskrifandi að EIÐFAXA,
fylgist þú best með hvað er að gerast
íhinum lifandi og fjölbreytiiega heimi hestamennskunnar,
hverju sinni.
'Eldri árgangarfáanlegir.
Ármúla 36, 108 Reykjavík
Sími 91 -685316 og 91 -687681
íslenskarBrrruður!
- því það er stutt
úr bökunarofnunum okkar
á borðíð tíl þín.