Morgunblaðið - 16.08.1989, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989
fclk f
fréttum
ÍÞRÓTTIR
Ivan Lendl segist vera
mjög hamingjusamur
— þótt hann brosi sjaldan
COSPER
— Og hér hefur maðurinn minn innréttað fyrir sig tónlistar-
herbergi.
Orraurinn
langi í
Brasilíu
Reuter
Pedro Matsuo Hirata er
rúmlega sextugur
Brasilíumaður af jap-
önskum ættum er
stundar óvenjulegan
búskap; hann ræktar
orma. Hirata byijaði á
þessu fyrir 12 árum og
selur framleiðsluna áfj-
áðum fiskimönnum sem
veiða vatnafisk af ýmsu
tagi og hann hefur nú
hafið útflutning til ann-
arra landa. Þetta eru
þó ekki ánamaðkar eins
og íslenskar veiðiklær
grafa upp á rigningar-
nóttum heldur tegund
sem Brasilíumenn
nefna „minhocucus“ og
getur þessi fiskafæða
orðið á annan metra að
lengd. Á myndinni sýnir
Hirata hluta framleiðsl-
unnar.
Ivan Lendl er einn af fremstu
tennisleikurum heims. Hann er
fæddur í Tékkóslóvakíu en fluttist
til Bandaríkjanna fyrir átta árum.
Velgengni hans í tennis hefur fært
honum góðar- tekjur en ekki miklar
vinsældir. Margir hafa gagnrýnt
hann fyrir að vera allt of alvörugef-
'inn og nánast eins og vélmenni.
„Ég er mjög hamingjusamur en
margir eiga erfitt með að trúa því
vegna þess að ég brosi ekki mikið
framan í ljósmyndarana," sagði
Ivan í samtali við blaðamann
sænsks vikurits. Þegar Ivan kom
fyrst til Bandaríkjanna kunni hann
lítið sem ekkert í ensku og fékk
leiðinlega utnfjöllun í blöðum.
Leikstíll hans þótti líka vélrænn og
líflaus. „Ég hef oft heyrt þessa
gagnrýni en svona verð ég bara að
leika. Ég þarf að einbeita mér og
hafa mikið fyrir því að ná árangri."
Ivan Lendl er 29 ára gamall og
hann hefur fengið sem samsvarar
tiærri 900 milljónum króna í verð-
laun fyrir árangur sinn á tennismót-
um og líklega helmingi hærri upp-
hæð í auglýsingatekjur. Hann hefur
fjárfest af skynsemi og éignir hans
í dag eru metnar á um níu milljarða
króna. „Ég hef aðallega keypt fast-
eignir, húsið sem ég bý í og veit-
ingastaði og verslanamiðstöðvar.
Svo hef ég stofnað fyrirtæki sem
heitir Grand Slam,“ segir Ivan.
Hann viðurkennir að peningamir
geri líf hans þægilegt en leggur
áherslu á að það skipti hann mestu
máli að hafa góða heilsu og ein-
hvem til að þykja vænt um.
Ivan er trúlofaður 21 árs gam-
alli stúlku sem heitir Samantha
Frankel en þau kynntust þegar hún
var 15 ára. Hún er fædd og uppal-
in á eyju í Vestur-Indíum en þar á
STJORNUR
Ástamál Madonnu
Astamál söngkonunnar Ma-
donnu em flókin. Hjónaband
hennar og leikarans Seans Penns
var stormasamt og lauk með skiln-
aði. Sean telur sig þó alltaf eiga
eitthvað í Madonnu og var ekki
hrifinn þegar hún fór að sjást æ
oftar með Warren Beatty, sem einn-
ig er leikari. Hann hringdi margoft
í eiginkonuna fyrrverandi og bað
hana um að sljta sambandinu. Það
hefur hún þó ekki gert og nýlega
sáust skötuhjúin á götu í New York
á leiðinni í leikfimi. Sögur hafa
verið á kreiki um það að Madonna
eigi von á barni en að hvorki Warr-
en Beatty né Sean Penn sé faðir-
inn. Madonna er þó sögð vera
hæstánægð með það að vera orðin
bamshafandi en hún verður 31 árs
á morgun, miðvikudag.
BANDARÍKIN
Brosir
sínu
breiðasta
Þessi kona vann nýlega keppni
um það hver hefði breiðasta
brosið í Bandaríkjunum. Bros henn-
ar mældist vera 11,25 sm á breidd.
Konan sem heitir Uv Kamm og er
28 ára fékk 200 Bandaríkjadali í
verðlaun. , .
Ivan Lendl og unnusta hans Sam-
antha. Á innfelldu myndinni situr
tennisstjaman í skrifstofu sinni
en hann er sagður hafa gott við-
skiptavit og fulla umsjón með
fjárfestingum sínum.
hann geta einbeitt sér að henni.
Starfs síns vegna þarf hann að ferð-
ast mikið og Samantha fylgir hon-
um í öllum hans ferðum. Venjulegt
flölskyldulíf þarf því að bíða í nokk-
ur ár enn.
faðir hennar lúxushótel. Um leið
og hann hefur fengið bandarískan
ríkisborgararétt ætla þau að gifta
sig. En þau ætla helst ekki að eign-
ast böm strax því að á meðan að
Ivan stundar tennisíþróttina vill
TÓNLIST
Julian Lennon er ekki
treyst fyrir peningum
Þegar John Lennon lést fyrir níu
árum lét hann eftir sig mikil
auðæfí sem síðar átti að skipta á
milli sona hans Julians og Seans.
Nú er Julian orðinn 26 ára gamall
en enn hefur hann ekki fengið
greiddan neinn föðurarf. Það er
vegna þess að ekkja Lennons, Yoko
Ono, finnst Julian vera svo ábyrgðar-
laus að hún treystir honum ekki fyr-
ir peningunum en talið er að hlutur
Julians geti numið allt að 15 milljörð-
um króna.
„ Yoko er í fullum rétti,“ segir
Julian. „Hún mun ekki láta mig fá
neitt fyrr en hún telur að ég geti
borið ábyrgð á sjálfum mér og gerð-
um mínum. Og það er ekki óskyn-
samlegt. Hegðun mín hefur ekki ver-
ið til fyrirmyndar síðustu þijú, fjögur
árin.“ Julian hefur fetað tónlistar-
brautina eins og faðir sinn. Nokkur
lagá hans hafa náð talsverðum vin-
sældum og söngrödd hans þykir mjög
lík rödd Johns heitins Lennöns. En
líf margra tónlistarmanna á sínar
dökku hliðar og fyrir tveimur árum
stefndi allt í óefni hjá Julian. „Ég
drakk eins og svampur og neytti
ýmissa fíkniefna. Ég fitnaði og var
alls ekki í neinu jafnvægi. Stundum
fannst mér útlitið vera svo svart að
ég hugleiddi sjálfsmorð." Líf hans
tók þó aðra stefnu þegar vinir hans
komu honum til bjargar og nú líður
Julian Lennon
þessum unga tónlistarmanni mjög
vel. Það eina sem hann saknar er
að það er svo fátt sem tengir hann
við minningu föður síns. „Ég vildi
að Yoko leyfði mér að fá einhveija
persónulega muni frá John. Ég vildi
gjaman fá gítarana hans og ein-
hveija jakka...“