Morgunblaðið - 16.08.1989, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989
SUND / EVROPUMEISTARAMOTIÐ I BONN
UÆFINGAMÓT Evrópskra
knattspyrnuliða fyrir vetrarvertíð-
ina standa nú sem hæst á Spáni
og um helgina fóru nokkur slík mót
^■■■■1 þar fram. Úrslita-
FráAtla leikurinn í einu
Hilmarssyni þeirra var á milli
* áSpán/. Steua Búkarest og
Bayern Munhen og
sigruðu Þjóðverjarnir með fjórum
mörkum gegn einu. Koehler, Kast-
enmayer, Bender og Johnsen
skoruðu fyrir Bayern en Lacatus
skoraði fyrir Steua. Um þriðja til
fjórða sætið léku PSV Eindhoven
og Real Madrid. Spánverjarnir
sigruðu 4:2.
Áður höfðu Bæjarar sigrað PSV
Eindhoven og Steua borið sigurorð
af Real Madrid.
UTOTTENHAM tók þátt í móti
ásamt Dinamó Búkarest og Atlico
Madrid. Tottenham tapaði gegn
Búkarest með þremur mörkum
_ gegn einu, og Tottenham tapaði
** svo leik sínum gegn Atletico
Madrid 1:0. Guðni Bergsson spil-
aði nær allan leikinn gegn Atletico,
en var tekinn útaf á 77. mínútu,
og var þá staðan jöfn Hann lék sem
hægri bakvörður og átti góðan leik,
og kom á óvart að hann skildi vera
tekinn útaf. Inná fyrir hann kom
Polston.
■ MEXIKÓ sigraði ítalska liðið
Juventus í úrslitaleik æfingakeppni
sem fram fór í Los Angeles. Mex-
ikanar sigruðu með þremur mörk-
'*um gegn tveimur, og komu öll
mörkin á 20 mínútna kafla í síðari
hálfleik. I þriðja sæti í mótinu urðu
Norður-Kóreumenn; þeir sigruðu
Bandarikin 2:1.
UJORGINHO hinn brasilíski fer
að öllum líkindum ekki frá Flam-
engo í Brasiliu til vestur þýska
félagsins Bayern Leverkusen, eins
og um hafði verið samið. Þjóðver-
jarnir voru reiðubúnir að láta af
hendi 800 þúsund doilara, en Flam-
engómenn töldu að þeim bæri í
krihgum 2,4 milljónir dollara, og
sögðu þá upphæð vera í meira sam-
ræmi við þau laun sem Jorginho
hafa verið boðin í Þýskalandi.
UBORDEOUX skaust á topp
J frönsku fyrstu deildarinnar með
marki Hollendingsins Pieter Den
Boer í 1:0 sigri gegn Lille á laugar-
daginn. Marseilles á hins vegar í
nokkrum erfiðleikum; gerði einung-
is jafntefli gegn Nice um helgina,
og það þrátt fyrir að miiljónamær-
ingurinn Bernard Tapie hafi lagt
til fáeina aura úr pyngju sinni að
undanförnu til kaupa á leikmönn-
um.
UALÞJÓÐA knattspyrnusam-
bandið skýrði frá því í gær að
það hefði fengið skýrslu um að
sex manns hefðu látið lífið í
troðningi á knattspyrnuvelli í
Nigeríu um helgina. Virðist sem
allt of mörgum hafi verið hleypt inn
'á Ieikvanginn, þar sem landslið
Nígeríu og Angóla áttust við í
undanúrslitum Heimsmeistara-
keppninnar. Dagblöð í Nígeríu
giskuðu á að 20 þúsund áhorfendur
hefðu komið sér fyrir á vellinum
umfram það sem eðlilegt mætti telj-
ast. Leikurinn var fyrsti landsleik-
urinn sem fram fer í höfuðborg
landsins í tvö ár.
Tvö heimsmet
á fyrsta degi
Adrian Moorhouse og Giorgio Lamberti
bættu metin í 100 metra bringusundi
og 200 metra skriðsundi karla
TVÖ heimsmet litu dagsins Ijós
á fyrsta degi Evrópumótsins í
sundi sem hófst í Bonn í Vest-
ur-Þýskalandi í gær. Adrian
Moorhouse frá Bretlandi setti
heimsmet í 100 metra bringu-
sundi karla og Giorgio Lam-
berti frá Ítalíu bætti metið í 200
metra skriðsundi karla.
Moorhouse synti í undanrásun-
um á 1:01.49 mín. og bætt
eldra metið, sem Bandaríkjamaður-
inn Steve Lundquist setti á
Ólympíuleikunum í Los Angeles
1984. „Tíminn kom mér ekki á
óvart því ég var staðráðinn í að
setja heimsmet á mótinu," sagði
Moorhouse, sem náði ekki að bæta
tímann í úrslitunum sem fram fóru
í gærkvöldi eins og hann ætlaði sér.
Ekki var útlit fyrir að Bretinn
næði að setja heimsmet í undanrás-
unum, því hann hafði 0,02 sek. lak-
ari millitíma en þegar Lundquist
setti gamla metið 1984. En Moor-
house átti frábæran endasprett og
'mm inn á 0,16 sek betri tíma. I
úrslitunum synti Moorhouse á
1:01.71 mínútu. Dmitri Volkov frá
Sovéttíkjunum varð annar á 1:
01.86mín. og Nick Gillingham,
Bretlandi, þriðji á 1:02.12 mín.
„Ég ætlaði ekki trúa mínum eig-
in augum er ég sá tímann. Ég er
svo ánægður að ég kann mér varla
læti,“ sagði ítalinn, Giorgio Lam-
berti, eftir að hafa sett heimsmet
í 200 m skriðsundi. Lamberti, sem
er aðeins 20 ára, synti á 1:46.69
mín. og bætt met Duncan Armstr-
ong frá því á Ólympíuleikunum í
Seoul um meira en hálfa sekúndu.
Artur Wojdat frá Póllandi varð ann-
ar á 1:47.96 og Svíinn, Anders
Holmertz, þriðji á 1:48.06 mín.
Austur-þýsku stúlkurnar voru í
sérflokki og unnu öll gullverðlaunin
sem í boði voru í gær. Katrin
Meissner sigraði í 100 m skriðsundi
á 55,38 sek., Daniela Hunger í 400
m flórsundi á 4:41.82 mín. og loks
sigraði austur-þýska sveitinn með
yfirburðum í 4 X 200 m.skriðsundi
kvenna, synti á 7:58.54 mín.
Heimsmet!
Adrian Moorehouse frá Bretlandi fagnar hér heimsmeti sínu í 100 metra bringu-
sundi í undanrásum Evrópumótsins í sundi sem hófst í Bonn í gær.
KNATTSPYRNA / BELGIA
Anderlecht ætlar sér
stóra hluti í vetur
Helga bætti sig
ÍSLENSKA sundfólkiö hóf keppni á Evrópumeistaramótinu
í Bonn í gær. Helga Sigurðardóttir var eini íslenski kepp-
andinn sem náði að bæta fyrri árangur sinn.
Helga Sigurðardóttir keppti í 100 m skriðsundi og synti á 59.85
sek og var næst síðust af 29 keppendum. Hún náði þó að bæta
fyrri árangur sinn um 0,15 sekúndur. Bryndís Ólafsdóttir á ísland-
metið í þessari grein, 58.87 sek.
Magnús Ólafsson varð í 24. sæti af 30 í 200 m skriðsundi, synti
á 1:53.75 mín. íslandsmet hans er 1:52.91 mín.
Arnþór Ragnarsson varð í 31. sæti af 32 keppendum, synti á
1:07.91 mín. sem er 0.75 sek frá íslandsmetinu sem hann á sjálfur.
Ragnheiður Runólfsdóttir keppir i 200 m bringusundi í dag og
Helga Sigurðardóttir í 200 m skriðsundi.
FYRSTA umferð deildarkeppn-
innar í Belgíu hefst í dag og
þá mætir Anderlecht, lið Arn-
órs Guðjohnsens, Waregen á
heimavelli. Töluverðartilfær-
ingar hafa átt sér stað í her-
búðum Anderlecht manna; nýr
þjálfari var keyptur frá meistur-
um Mechelen og tveir lands-
liðsframherjar fengnir. Það er
því greinilega ætlunin að gera
stóra hluti í vetur og skjóta
Mechelen aftur fyrir sig.
Arnór Guðjohnsen er ekki enn
búinn að fá grænt ljós frá
læknum um að mega æfa og spila,
en í samtali við Morgunblaðið í gær
sagðist hann fara í skoðun i dag
og yrði þá úr því skorið hvort hann
fengi að spila með varaliðinu á laug-
ardag eða ekki.
„Eg mun samt ekki spila meira
en annan hálfleikinn á laugardag-
inn og sjá til hvernig það kemur
út; reynist allt eins og það á að
vera þá er ekki um annað að ræða
en að setja á fulla ferð og reyna
að vinna sér sæti í liðinu,“ sagði
Arnór.
Tveir nýir framherjar
Hinn nýi þjálfari Anderlecht, Aad
de Mos, hefur keypt tvo belgíska
m
VOLVO
ÍSLANDSMÓTID HÖRPUDEILD
FYLKISVÖLLUR
FYLKIR - VÍKINGUR
í KVÖLD KL. 19.00 qaihATSU
framheija; þá Marc Van der Linden
frá Antwerpen og Marc Degryse
frá Club Biigge, en sá þykir ein-
hver efnilegasti framhetji Belga um
þessar mundir. Báðir hafa þeir ver-
ið í Belgíska landsliðinu; Degryse
hefur verið fastamaður þar en Van
der Linden kynnt sér varamanna-
bekkinn. Samanlagt kaupverð
þeirra var rúmlega 220 milljónir
króna, en auk þess var keyptur
júgóslavneski markvörðurinn
Ranko Stjoic, sem undanfarin tvö
ár hefur leikið með FC Liege. Mech-
elen reyndi mikið til að fá Degryse
í sínar raðir en Anderlecht varð
ofaná. Liðið frestaði meðal annars
framkvæmdum við áhorfendastúku
til að fjármagna kaupin á honum.
Arnór hefur ekkert getað tekið
þátt í undirbúning Anderlecht fyrir
keppnistímabilsins, og sagði hann
það vera mjög slæmt, því liðið væri
mjög breytt frá því í fyrra og spil
þess yrði töluvert breytt. Sagði
hann að undirbúningurinn hefði
gengið ágætlega; t.d. hefði liðið
unnið Leeds 5:1 í Englandi og
Bordeoux 3:0 á heimavelli.
„Það má kannski segja að liðið
sé sterkt á pappírnum, en það er
nýtt og mun taka nokkurn tíma
fyrir það að fullmótast. Þettá lítur
Arnór Guðjohnsen er að ná sér
eftir meiðsli og fær úr því skorið í dag
hvort hann fær að leika með varaliði
Anderlecht á laugardaginn.
allt hins vegar mjög vel út og mein-
ingin er að gera stóra hluti á þessu
keppnistímabili," sagði Arnór
„Takist mér að komast í mitt
form þá er ég ekkert smeykur við
að fá ekki sæti í liðinu, þó auðvitað
muni það taka einhvern tíma. Það
gefast alltaf einhver tækifæri til
þess; keppnistímabilið er langt og
menn meiðast eða detta út úr liðinu
af öðrum sökum og þá fæ ég mitt
tækifæri," sagði Arnór að lokum.