Morgunblaðið - 16.08.1989, Page 35

Morgunblaðið - 16.08.1989, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 35 ENGLAND Svipling- arhjá Arsenal EINHVERJAR si/iptingar eiga sér stað hjá Arsenal þessa dagana og hafa þrír leikmenn liðsins óskað eftir að verða settir á sölulista, nú þegar einungis fjórir dagar eru fram að því að keppnistímabilið hefjist á nýjan leik. Martin Hayes er einn þess- ara leikmanna, en í gær óskaði þessi 23 ára gamli miðju- leikmaður eftir því að verða sett- ur á sölulista. Frá Bob Hann hefur leik- Hennessy ið með félaginu lEnglandi síðan hann var skólastrákur, en nú þegar félagið hefur keypt til sín nokkra miðleikjumenn, eins Sigurð Jónsson, finnst honum staða sín hjá liðinu vera orðin frekar ótrygg, auk þess sem Paul Merson hélt honum á vara- mannabekknum lungann úr síðasta leiktímabili. Hann vill sem sagt óður og uppvægur komast til annars félags og er Celtic sagt hafa sýnt honum áhuga. Þá hefur Neil Quinn óskað eftir því að verða settur á sölu- lista og háværar raddir segja að Kevin Richardson sé á förum, en samningur hans við Arsenal er útrunninn. ÚRSLIT 2. DEILD: Einheiji—Stjarnan.............frestað ÍBV-ÍR.......................... 1:2 Bergur Ágústsson — Hörður Theódórsson 2. Leiftur—Selfoss...................3:2 Garðar Jónsson, David Ubrescu, Gústaf Ómarsson — Ingi Björn Albertsson, Ólafur Ólafsson. Fj. leikja U J T Mörk Stig ViÐIR 13 9 2 2 19: 11 29 STJARNAN 12 9 1 2 28: 12 28 ÍBV 12 8 0 4 29: 18 24 BREIÐABLIK 13 5 4 4 28: 22 19 SELFOSS 13 6 0 7 16: 24 18 LEIFTUR 13 4 4 5 13: 15 16 ÍR 13 4 3' 6 16: 19 15 VÖLSUNGUR13 3 2 8 18: 29 11 EINHERJI 11 3 2 6 16: 29 11 TINDASTÓLL 13 2 2 9 19: 23 8 4. DEILD: Ægir—Stokkseyri..................0:6 Jón Hreiðarsson 3, Siguijón Bigisson, Hannes Haraldsson, Daníel Gunnarsson. Skotfélagið—Augnablik............6:3 Snorri Már Skúlason 5, Jens Ormslev — Viðar Gunnarsson, Guðmundur Halldórs- son, Valdimar Jensen. Víkingur ÓL.-Ármann..............6:1 Bogi Pétursson 2, Magnús Gylfason, Víglundur Pétursson, Hjörtur Ragnarsson, Hermann Hermannsson — Smári Jósafats- son. Skallagrímur—Baldur................15:1 Valdimar Sigurðsson 7, Þórhallur Jónsson 3, Gunnar Orrason 2, Snæbjörn Óttarsðn 2, Sigui'ður Már Harðarson — Kristján Halldórsson. Vestur—Þýskaland Úrvalsdeild: Homburg — Bayer Leverkusen.......2:1 Hetmanski, Theiss - Kree Mannheim — Bayer Uerdingen.......1:1 Dais - Stickroth Nurnberg’— Werder Bremen.........1:1 Wirsching - Browka Gladbach — St Pauli................. Effenberg, Criens, Hochstaette, Budde - Wenzel Skotland Skoski deildarbikarinn, 2. umferð: tserwick — St Mirrcn...............0:2 Dumbarton — Celtic.................0:3 Dundee — Clyde.....................5:1 Dunfermline — Raith................3:0 Hibernian — Alloa..................2:0 Kilmarnock - Motherwcll............1:4 Queen’s Park - Morton..............0:1 Rangers — Arbroath........... ..,.4:0 KNATTSPYRNA Pétur Ormslev í bann -fær ekki að vera með í bikarúrslitaleiknum gegn KR PÉTUR Ormslev, fyrirliði Fram, var dæmdur í eins leiks bann á fundi aganefndar KSÍ í gær vegna þess að hann hefur fengið fjögur gui spjöld. Þar með er Ijóst að fyrirliðinn verð- ur ekki með í bikarúrslitaleikn- um gegn KR 27. ágúst. Tveir aðrir leikmen í 1. deild fengu eins leiks bann í gær. Það eru þeir Guðmundur Baldurs- son, Val og Jóhann Júlíusson, ÍBK, en þeir fengu báðir að sjá rauða spjaldið. Leikbannið tekur gildi frá hádegi næstkomandi föstudag. Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum á mánudag að leikir KR og FH og Þórs og Fram í 1. deild færu fram miðvikudaginn 30. ágúst, en þeir höfðu verið settir á sunnudaginn 27. ágúst eða sama dag og bikarúr- slitaleikurinn fer fram. Mótanefnd hafði mælst til þess að leikirnir yrðu færðir fram og spilaðir n.k. sunnudag, en stjórn KSÍ hafnaði því vegna landsleiksins við Aust- urríki á miðvikudag í næstu viku. Bikarúrslitaleikurinn í 2. flokki karla milli Fylkis og Váls verður á Valbjarnarvelli föstudaginn, 17. ágúst, kl. 19.00. Pétur Ormslev, fyrirliði Fram, verður að horfa á félaga sína leika bikarúr- siitaleikinn gegn KR. KNATTSPYRNA / 2. DEILD IR-ingar sóttu þrjú stig til Eyja Sigurlás misnotaði vítaspyrnu í lokin EYJAMENN töpuðu nokkuð óvænt fyrir ÍR í gærkveldi í Vestmannaeyjum, og eftir að hafa verið einu marki yfir í hálf- leiksá Hörður Theódórsspn um að skora tvívegis fyrir ÍR- inga, sem þokuðu sér þar með af mesta hættusvæðinu í neðri hiuta deildarinnar. Leikurinn fór fram í miklu roki og léku heimamenn undan vindi í fyrri hálfleík. Sóttu þeir lát- laust allan hálfleikinn, uppskára tvö mörk, en annað FráSigfúsi þeirra var dæmt af, Guðmundssyni og áttu margir erfitt i Eyjum með að skilja þá ráð- stöfun Ólafs Sveins- sonar dómara. Eyjamanna skoruðu svo fullgilt mark á 16. mínútu eftir hom- spyrnu. Knötturinn fór á fjærstöng- ina og þar kom Bergur Agústsson aðvífandi og skallaði í netið. Með vindinn í fangið í síðari hálf- leik sóttu Eyjamenn mun meira en ÍR-ingar en tókst ekki að skapa sér færi. Það tókst ÍR-ingum aftur á móti, og á 55. mínútu jöfnuðu þeir leikinn. Þá fengu þeir aukaspark rétt fyrir utan vítateig, skotið fór í varnarvegginn og þaðan til Harð- ar Theódórssonar, sem afgreiddi boltann í bláhornið með þrumuskoti af 20 metra færi. Glæsilegt mark. Á 66. mínútu áttu ÍR-ingar sláar- skot og sex mínútum síðar náðu þeir forystunni eftir þrumuskot Páls Rafnssonar í stöng. Knötturinn barst aftur til Harðar, sem sendi knöttinn í autt markið. Staðan því 1:2 fyrir ÍR-inga. Eyjamenn áttu þó kost á því að jafna á 82. mínútu, þegar þeir fengu vítaspyrnu eftir að markvörður IR, Þorsteinn Magn- ússon, hafði brotið á Sigurlási Þor- Frá Helga lónssyni á Ólafsfirði leifssyni í vítateignum. Sigurlás tók spyrnuna, þrumaði langt yfir mark- ið og kórónaði þar með lánleysi ÍBV liðsins í þessum leik. Gústaf skoraði sigurmarkið á elleftu stundu Leiftur sigraði Selfoss með þremur mörkum gegn tveimur við frekar erfiðar aðstæður á Ólafs- firði í gærkvöldi. Mikið rok og rign- ing setti svip sinn á leikinn. Það var þó mesta furða hvað liðin gátu sýnt góða knattspyrnu við þessar aðstæður. Heimamenn náðu forystunni strax á 5. mínútu. Garðar Jónsson skoraði af stuttu færi eftir að Gú- staf Ómarsson hafði átt skot í stöng. Selfyssingar jöfnuðu rétt fyrir leikhlé og var þingmaðurinn fijálslyndi, Ingi Björn Abertsson, þar á ferð. Selfoss fékk óbeina aukaspyrnu við markteig. Þorvald- ur varði gott skot, en boltinn barst út í teiginn og þar komst Ingi Björn inn í sendingu Leiftursmanna og skoraði úr þröngu færi. Útlendingurinn í liði Leifturs, David Ubrescu, kom heimamönnum yfir með stórglæsilegu marki í byrj- un seinni hálfleik. Hann fékk bolt- ann fyrir utan vítateig tók hann viðstöðulaust og setti hann efst í bláhornið. Ólafur Ólafsson jafnaði síðan leikinn fyrir Selfoss úr vítaspyrnu er tíu mínútur voru til leiksloka og reiknuðu þá flestir með að úrslitin væru ráðin. En allt kom fyrir ekki, Gústaf Ómarsson bjargaði öllum þremur stigunum fyrir heimamenn með lúmsku skoti tveimur mínútum fyrir ieikslok. ínémR FOLK H DANNY Ferry, einn efnileg- asti körfuknattleiksmaðurinn í Bandaríkjunum og sá besti í há- skóladeildinni á síðasta keppn- istímabili, gerði í gær árs samning við italska liðið Messagero Roma. Gert var ráð fyrir að Ferry myndi hefja ferilinn í NBA hjá Los Ange- les Clippers. „Þetta er sögulegur atburður, því þetta er í fyrsta sinn, sem bandarískur leikmaður ákveð- ur að hefja ferilinn í atvinnumenns- kunni á ítaliu frekar en í NBA,“ sagði Claudio Cocchia, fram- kvæmdastjóri ítalska félagsins. Kaupverðið var sagt milljón dollarar (um 58 milljónir íslenskra króna), en það var ekki staðfest. H JÚLIUS Jónasson, landsliðs- maður í handknattleik, fer til Frakklands á föstudag þar sem hann mun leika með 1. deildarliðinu Snayeres í vetur. Ikvöld FJÓRTÁNDA umferð 1. deildar karla hefst með leik Fylkis og Víkings á Fylkisvelli í Árbænum í kvöld kl. 19.00. HHeil umferð er í A-riðli 3. deildar. BÍ og Grindavík leika á ísafirði, Þróttur og ÍK á Þróttarvelli, Reynir og Leiknir í Sangerði, Grótta og Víkverji á Valhúsavelli og Aftureld- ing og Hveragerði leika á Tungu- bökkum. ■í B-riðli 3. deildar verða fjórir leik- ir. Reynir og Huginn leika á Árskógs- strandarvelli, Kormákur og Magni á Hvammstanga, Dalvík og Þróttur á Dalvík og KS og Austri á Siglufirði. ■Fimm leikir verða í 4. deild. Eftir- talin lið leika: Léttir—Hafnir, Efl- ing-TBA, UMSE-b—HSÞ-b, SM- Æskan og Neisti—Hvöt. ÍÞiéinR FOLK ■ FÉLAGASKIPTI leikmanna standa nú sem hæst í Englandi enda ekki nema nokkrir dagar þar til deildarkeppnin hefst. Miðvörður- inn John McLaugl- Frá Bob in hefur verið seldur Hennessyí frá Chelsea og til Englandi Charlton og' var kaupverðið 650 þús- und pund. McLauglin er 29 ára og hefur verið undanfarin 6 ár hjá Chelsea og leikið 220 leiki með lið- inu. ■ DÓMSÚRSKURÐUR er fall- inn vegna deilna um kaupverð á miðvallarleikmanninum Mickey Quinn; en hann var seldur frá Newcastle og til Portsmouth. Urskurðurinn kvað á um að Portsmouth skiidi greiða 608 þús- un pund fyrir hann. UEINVALDUR velska landsliðs- ins, Terry Yorath, er einnig fram- kvæmdastjóri annarar deildar liðs- ins Bradford, og er hann nú byij- aður á að sanka að sér velskum landsliðsmönnum. í vikunni fékk hann til liðs við sig Mark Ayzlewo- od frá Leeds, og greiddi fyrir hann 200 þúsund pund. I PAUL Miller, fyrrum leik- maður með Tottenham, hefur verið seldur frá Watford og til Bour- nemouth fyrir einungis 50 þúsund pund. Miller er orðinn 30 ára gam- all. UMILLWALL keypti á dögunum Gary Waddock frá belgíska liðinu Royal Charleroy, liðinu sem Guð- geir Leifsson lék með hér í eina tíð. Kaupverðið var 130 þúsund . pund, en þar að auki þurfti liðið að reiða fram 300 þúsund pund til tryggingarfélags, sem þurfti að láta þá summu af hendi, þegar Waddock slasaðist í leik með Q.P.R. fyrir nokkrum árum. Waddock hefur spilað 19 landsleiki fyrir Norður- Irland. ■ SIGURÐUR Jónsson lék ekki með Arsenal gegn Liverpool um Góðgerðarskjöldinn á laugar- daginn. Sérstök nefnd ensku deild- arinnar mun á morgun ákveða kaupverðið á Sigurði Jónssyni, en eins og komið hefur fram voru Arsenal og Sheffield Wednesday ekki sammála um kaupverðið er . gengið var frá félagaskiptunum. Eftir að frá kaupverðinu hefur ver- ið gengið er Sigurður löglegur hjá Arsenal. ■ FRANK McAvennie skoraði sitt fyrsta mark fyrir West Ham síðan hann var keyptur frá Celtic í mars. Það gerði hann í ágóðaleik fyrir Alan Devonshire, sem verið hefur hjá félaginu í 10 ár. West Ham lék gegn Crystal Palace og sigraði 3:1 og fær Devonshire 65 þúsund pund í vasann. ■ ALAN Ferguson, fram- kvæmdastjóri Manchester United, er ekki ánægður með gengi liðsins í æfmgaleikjum að undanförnu. Hann segir að liðið sé ekki sannfær--* andi og það þurfi að fá nýtt blóð í vörnina. Hann hefur mestan áhuga á að kaupa varnarmanninn, Gary Pallister, frá Middlesbrough. Ferguson hefur boðið 1.500 þús- und pund í kappann og er búist við að Middlesbrough taki því. ■ STEVE Coppell, fram- kvæmdasjóri Crystal Palace sem nú leikur í 1. deild, greiddi QPR 550.000 pund fyrir miðheijann Andy Gray og varnarmanninn sterka, Mark Dennis. Gray, sem er 25 ára, var seldur frá Crystal Palace fyrir tveimur árum til Aston Villa fyrir 150.000 pund. Honum líkaði ekki dvölin hjá Villa og var seldur þaðan á síðata keppnistíma- bili til QPR fyrir 450.000 pund. Dennis er þekktastur fyrir að vera grófasti leikmaður ensku deildar- innar. Hann hefur alls 12 sinnum fengið að sjá rauða spjaldið og 68 sinnum það gula.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.