Morgunblaðið - 26.08.1989, Síða 14

Morgunblaðið - 26.08.1989, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989 Mjólkurfræðingar sam- þykkja verkfallsheimild Rafiðnaðarmenn, byggingamenn og starfs- menn ísals með lausa samninga 1. sept. Mjólkurfræðingar hafa á almennum félagsfundum sunnanlands og norðan samþykkt heimild til verkfallsboðunar til stjórnar og samn- inganeftidar félagsins, en félagið er með lausa samninga 1. septem- ber næstkomandi. Kristján Larsen, formaður Félags mjólkurfræðinga, sagði að hlutverk fundanna hefði ekki aðeins verið öflun verkfallsheimildar, heldur hefði bæði verið rætt um kjaramál og fræðslumál. Fundur var haldinn á Selfossi sl. þriðjudag og voru þá greldd atkvæði um hvort veita skyldi verkfallsheimild. Atkvæðin voru síðan flutt norður til Akur- eyrar i innsigluðum kassa og á fundi þar sl. fimmtudagskvöld var leyni- legri atkvæðagreiðslu fram haldið. Um 40% atkvæðisbærra félaga tóku þátt í atkvæðagreiðslunni og var Kvikmynda- klúbbur Islands: Tvær sýning- ar um helgina Kvikmyndaklúbbur íslands sýnir um helgina tvær myndir eftir breska leikstjórann Derek Jarman. Á laugardag klukkan 15 og 17 verður sýnd „The Tem- pest“ (Ofviðrið) frá 1978. Með aðalhlutverk í myndinni fer He- athcote Williams. Á sunnudag klukkan 15 verður aukasýning á Caravaggio frá 1985. Með aðal- hlutverk fara Nigel Terry og Dexter Fletcher. Aðgöngumiðar fást í miðasölu Regnbogans, félagsskírteini fást einnig á sama stað. Athygli er vak- in á því að miðar fást ekki keyptir án félagsskírteinis. Með félagsskír- teininu fylgir prentuð dagskrá Kvikmyndaklúbbs íslands. Stefna kvikmyndaklúbbs íslands er að sýna vandaðar myndir sem alla jafna koma ekki til með að verða sýndar í kvikmyndahúsum hérlend- is. (Fréttatilkynning) heimild til verkfallsboðunar sam- þykkt með yfir 99% atkvæða. Að- eins einn félagsmaður var á móti. Kristján sagði að vissulega væri óvenjulegt að verkfallsheimild sé samþykkt nánast áður en viðsemj- endur væru farnir að ræða saman. Hinsvegar væri Félag mjólkurfræð- inga landsfélag og því gæti oft reynst erfitt að boða til félags- funda. Því hefði verið ákveðið að slá tvær flugur í einu höggi og afla verkfallsheimildar nú. „Við þurftum nauðsynlega að boða til funda nú vegna viðamikils námskeiðs, sem fyrirhugað er að halda í næsta mánuði. Þar sem samningar standa fyrir dyrum, töldum við rétt að afla verkfallsheimildar í leiðinni," sagði Krirfján. Á félagsfundunum var kröfu- gerðin jafnframt undirbúin og býst Kristján við að viðræður hefyist á næstunni. Hann vildi ekkert segja um hveijar kröfugerðimar yrðu fyrr en mjóikurfræðingar hefðu rætt við viðsemjendur. Hinsvegar kvað hann þær bæði hógværar og réttlátar. Rúmlega eitt hundrað mjólkurfræð- ingar eru í Félagi mjólkurfræðinga. Húsasmiðir og húsgagnasmiðir, sem eru félagar i Sambandi bygg- ingamanna, eru með lausa samn- inga frá næstu mánaðarmótum. Meistarafélag húsasmiða er þriðja félagið innan sambandsins, en samningsaðili þeirra er Meistara- samband byggingamanna. Nokkrir samningsfundir munu hafa verið haldnir á milli viðsemjenda. Almennur samningur Rafiðnað- arsambandsins sem tekur til verk- stæðis- og verktakastarfsemi, er laus frá 1. sept. svo og samningar rafiðnaðarmanna ríkisstofnanna og Reykjavíkurborgar. Magnús Geirs- son, formaður Rafiðnaðarsam- bandsins, sagði að fundur hefði verið haldinn með fulltrúum fjár- málaráðuneytisins sl. fimmtudag þar sem kröfur voru kynntar og væntir Magnús þess að annar fund- ur verði boðaður í næstu viku. Samningar níu félaga innan Starfsmannafélags ísals eru lausir frá mánaðarmótum og var fyrsti fundur samninganefndar félaganna og vinnuveitenda haldinn sl. fimmtudag. Annar fundur hefur verið boðaður kl. 13.00 á mánudag. „Við lögðum fram okkar hugmynd- ir á þessum fyrsta fundi og viðsemj- endur komu með gagntillögur. Síðan verður farið af alvöru í við- ræður upp úr helginni," sagði Gylfi Ingvarsson, aðaltrúnaðarmaður starfsmanna Isal. Gylfi sagði að verkfallsheimildar hefði ekki verið aflað. „Við munum ekki fara út í það ef viðræður heijast af alvöru og menn sjái fljótlega fyrir endann á þessu. Það verður hins vegar ekki tekin allt of langur tími í við- ræðurnar,“ sagði Gylfi. Deila Dagsbrúnar og Vara: Morgunblaðið/Björn Sveinsson Eigendur fegurstu lóða á Egilsstöðum, f.v. Þór Reynisson stöðvar- stjóri Pósts og síma, Þráinn Skarphéðinsson og hjónin Hrafhkell Kristinsson og Bryndís Sigurgeirsdóttir. Egilsstaðir; Yiðurkenningar veittar fyrir garða Egiisstöðum. Viðurkenningar hafa verið veittar fyrir fallegustu garðana á Egilsstöðum. Fegrunarnefnd Egilsstaða veitir þessar viðurkenn- ingar og fá eigendur garðanna skrautrituð skjöl í hendur til stað- festingar á viðurkenningunni. Tveir garðar fengu viðurkenn- ingu að þessu sinni. Annar garð- urinn er að Ártröð 7, en þar búa Bryndís Sigurgeirsdóttir og Hrafnkell Kristinsson. Hinn garð- urinn er að Tjarnarbraut 21, þar búa Gunnhildur Ingvarsdóttir og Þráinn Skarphéðinsson. Báðir garðarnir eru við nýlega byggð hús og þykja eigendurnir hafa sýnt dugnað og smekkvísi við skipulag og frágang garða sinna. Póstur og sími fékk viðurkenn- ingu fyrir snyrtilega og vel skipu- lagða fyrirtækjalóð umhverfis símstöðina við Fagradalsbraut. - Björn. Samningsaðilar detti ekki út úr sam- keppni vegna lögbrota keppinauta - segir Guðmundur J. Guðmundsson um ástæður bréfs til borgarráðs Vitni vantar Slysarannsóknadeild lögregl- unnar í Reykjavík lýsir eftir vitn- um a.ð umferðaróhappi sem varð á mótum Elliðavogar og Skeiðar- vogar föstudaginn 11. þessa mán- aðar. Ekið var aftan á Toyota fólksbíl sem ók austur Skeiðarvog og eftir afrein suður Elliðavog. „EFTIR árangurslausar tilraunir til að ná samningum boðuðum við vinnustöðvun á þetta fyrirtæki í sumar, meðal annars vegna þess að þar sem við höfúm samið við hitt aðalfyrirtækið í þessari grein þá teljum við okkur hafa skyldur gagnvart okkar samningsaðilum að þeir detti ekki út úr samkeppninni vegna samninga sem þeir gera við verka- lýðsfélag," sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, aðspurður um ástæður þess að hann hefúr ritað borgarráði Reykjavík- ur bréf þar sem mælst er til að ekki verði samið við Vara um öruggis- gæslu á vegum borgarinnar í yfirstandandi útboði. „ Við erum nokkuð undrandi á VSÍ að gæta ekki hagsmuna sinna félagsmanna betur gagn- vart ýmissi svartri atvinnustarfsemi. Mér sýnist að mismunur á tilboð- um Securitas og Vara í þetta verk sé nokkurn veginn þessi gjöld sem Vari ætti að greiða af sínu fólki.“ „Okkur kemur ekkert við sam- keppni þessara aðila að öðru leyti en stéttarfélag verður að sjá til þess að kjarasamningar sem gerðir eru gildi í greininni," sagði Guðmundur J. „Það hafa leitað til okkar fyrrver- andi starfsmenn Vara, sumir hafa verið verktakar að nafninu til, aðrir ekki. Menn sem hafa sótt um í sjúkrasjóði, dottið út úr lífeyrissjóði, misst rétt til atvinnuleysisbóta af því að skýlaus ákvæði í lögum sem skylda alla atvinnurekendur til að taka af starfsrnönnum ákveðin gjöld hafa verið brotin. Þessi akvæði hefur Vari hvorki uppfyllt gagnvart Dags- brún, né VR né Rafiðnaðarsambandi þótt reynt hafi veirð að skjóta sér á bak við ýmis félög. Það varð að sam- komulagi milli mín og formanns VR að fyrst Dagsbrún hefði náð sam- komulagi við Securitas þá hefði það Vara einnig innan sinna vébanda. Deilan snýst að sjálfsögðu ekki um skrifstofumenn sem eiga auðvitað að vera í VR.“ Við höfum farið gætilega í þetta enda höfum við aldrei í gegnum tíðina látið vaktmenn og öryggis- Verkfiræðideild Háskóla íslands; Einkunnum í tölvutækni á þriðja ári skilað níu vikum of seint EINKUNNUM í tölvutækni á þriðja ári raftnagnsverkfræðiskorar Há- skóla íslands var skilað síðastliðinn sunnudag, þann 20. ágúst. Prófað var í greininni þann 23. maí í vor og frestur til að skila inn einkunnum rann út þremur vikum síðar. í fréttatilkynningu frá Valdimar K. Jóns- syni, forseta verkfræðideildar, segir, að stundakennarinn, sem kenndi greinina, haíí margsinnis verið hvattur til að skila einkunnunum og að deildin harmi óþægindi, sem þessi dráttur hafi valdið stúdentum. í fréttatilkynningu verkfræðideild- ar kemur fram, að tveir stúdentar .af þeim átján, sem gengu undir próf- ið, hafi útskrifast 24. júní og hafi kennarinn farið yfir úrlausnir þeirra fyrir þann tíma. Síðan hafi margsinn- is verið haft samband við hann vegna hinna úrlausnanna og bent_ á, að bagalegt væri fyrir þá stúdenta, sem kynnu að hafa fallið eða fengið lága einkunn, að vita það ekki í tæka tíð fyrir upptökupróf í haust. Enn frem- ur hafi nemendaskrá Háskólans sent honum bréf, þar sem skorað hafi verið á hann að skila einkunnunum. Kennarinn hafi ávallt svarað því til, að einkunnirnar væru að koma, en þeim hafi hins vegar ekki verið skil- að fyrr en sunnudaginn 20. ágúst. Þá kemur fram í fréttatilkynning- unni, að deildarforseti hafi tvívegis talað við kennarann um málið eftir að auglýst hafði verið eftir einkunn- unum í DV í síðustu viku. Kennarinn hafi þá borið því við, að hann hefði viljað mótmæla lélegum launum fyrir kennsluna. Síðar segir, að sami maður hafi kennt tölvutækni frá 1984 og hafi hann að jafnaði skilað einkunnum 26 dögum eftir prófdag. Langflestir kennarar skili einkunnum innan þriggja vikna frá prófi og sé mjög óvanalegt að einkunnaskil dragist jafn lengi og nú hafi átt sér stað. Segir að lokum, að verkfræðideild harmi þau óþægindi, sem stúdentar hafi orðið fyrir vegna þessa dráttar á einkunnaskilum og voni að slíkt eigi sér ekki stað aftur. verði fara í verkfall. Þeir hafa feng- ið undanþágur. Þetta er mikilvæg starfsemi. Þess vegna höfum við ekki framfylgt verkfalli hjá Vara. Þeir veita sjúklingum meðal annars neyðarþjónustu sem við viljum síst stöðva. En það kemur að því ef þetta leysist ekki. Þolinmæði okkar' er á þrotum. Við erum með réttindalaust fólk vegna vanefnda Baldurs Ágústs- sonar.“ „Þegar við sáum fram á að Reykjavíkurborg mundi gera samn- ing við fyrirtæki sem ekki gerir kjarasamning við stéttarfélag, ekki fylgir iandslögum um lífeyrissjóði eða aðra sjóði, þá fannst okkur kom- inn tími til að grípa í taumana en okkur er það ákaflega óljúft. Þessi mál væri hægt að leysa á 10 mínút- um ef sest væri niður. Við erum reiðubúnir að semja við Vara á sama grundvelli og við Securitas. Við get- um ekki horft upp á að fyrirtæki sem bæði framfylgir samningum og lög- um sé gert ósamkeppnisfært við ann- að sem ekki fylgir samningum og ekki lögum. Aðspurður hvort Dagsbrún íhug- aði aðgerðir gegn Reykjavíkurborg ef gengið yrði til samninga við Vara um þetta verk, sagði Guðmundur J. Guðmundsson svo vera. „Það eru inni í myndinni aðgerðir gagnvart öllum sem hafa viðskipti við þetta fyrirtæki meðan deilan er ekki leyst. Vinnustöðvun á þessu sviði,“ sagði hann. „Hins vegar er okkur þetta óljúfara vegna þess að samstarf milli Dagsbrúnar og Reykjavíkurborgar er ákaflega gott og árekstralaust. Það er saga út af fyrir sig að borgin hefur undanfarið tekið forystuhlut- verk í góðum aðbúnaði á vinnustað. Síst vill maður standa í styrjöld við þá aðila sem maður hefur gott sam- starf við,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.