Morgunblaðið - 26.08.1989, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 26.08.1989, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989 Afmæliskveðj a: Jón Tómasson fv. stöðvarsljóri, Keflavík Jón Tómasson fyrrverandi stöðv- arstjóri og ritstjóri í Keflavík er 75 ára í dag. Foreldrar hans voru Tómas Snorrason útgerðarmaður og skóla- stjóri og kona hans, Jórunn Tómas- dóttir. I æsku stundaði Jón sjómennsku á fískiskipum og togurum en vegna slyss varð hann að yfirgefa þá at- vinnugrein. 1936 lá leið Jóns í Samvinnuskól- ann og þaðan lauk hann prófí 1938. Skömmu síðar eða 1940 gerðist Jón stöðvarstjóri pósts og síma í Keflavík og þeirri stöðu gegndi hann til 1977. Þar með er ekki nema að litlu leyti rakin starfssaga Jóns Tómassonar. Þau eru nefnilega æði mörg fyrir- tækin, í útgerð, verslun, samgöngum og jarðvinnslu, sem Jón hefur setið í stjóm í, ellegar félagsmálin, sem hann hefur lagt lið. í hreppsnefnd Keflavíkur, síðar bæjarstjórn, sat Jón um skeið fyrir Alþýðuflokkinn.. í áratugi var hann í stjóm skátafé- lagsins. í stúkunni var hann pottur- inn og pannan í leikstarfi. Sem rit- stjóri Faxa var hann jafnvígur sem liðtækur ljósmyndari eða læsilegur blaðamaður. Þannig mætti halda áfram langa lengi. Starfsþrek Jóns er mikið og umbótamálin mýmörg, sem hann hefur stutt. I öllu þessu brambolti hefur Ragnheiður Eiríks- dóttir kona hans, ættuð úr Hafnar- firði, verið honum samskipa. Síðast frétti ég af þeim sem nýjum félögum í dansklúbbi fyrir ungt fólk. Við Suðumesjamenn sendum þeim báðum, Jóni og Ragnheiði, hugheilar kveðjur og óskum þeim og afkom- endum þeirra alls hins besta í framt- íðinni. Lifíð heil. Hilmar Jónsson Afmælisbarnið og kona hans ætla að taka á móti gestum á morgun sunnudag í Goðheimum, Sigtúni 3 í Reykjavík eftir kl. 16. BRIPS ARNÓRRAGNARSSON Mótaskrá og helgarmót Bridssambands Islands 1989-’90 Bikarkeppni EUROCARD og ÚTSÝNAR - undanúrslit 9.-10. september. Norðurlandsmót Vestra í tvímenning — 9. september, Siglu- fírði. Bikarkeppni ERUROCARD og ÚTSÝNAR — úrslit 22.-23. septem- ber. Bein útsending Stöðvar 2. Stórafmælismót B. ísafjarðar. 29.-30. september. Stórmót á Akureyri 7.-8. október. Minningarmót Einars Þorfinns- sonar, Selfossi — 14. október. Landstvímenningur BSÍ, vikuna 16.-20. október. íslandsmót kvenna og yngri spil- ara í tvímenningi. 21.-22. október. Sigtúni 9. Bridssambandsþing 28.-29. októ- ber. Stórmót í sveitakeppni á Húsavík, 3.-5. nóvember. Hótel Húsavík. Guðmundarmót 4. nóvember. Hvammstanga. Stórafmælismót Bridsfélags Breiðfirðinga 4.-5. febrúar. Sigtúni 9. Bridshátíð 9.-12. febrúar. Hótel Loftleiðum. íslandsmót kvenna og yngri spil- ara, sveitakeppni, undanrásir 17.-18. febrúar. Sigtúni 9. Islandsmót kvenna og yngri spil- ara, úrslit, 24.-25. febrúar. Sigtúni 9. _ íslandsmót í parakeppni 8.-9. mars. Sigtúni 9. íslandsmót í sveitakeppni, und- anrásir, 22.-25. mars. Hótel Loft- leiðum. íslandsmót í sveitakeppni, úrslit, 11. -14. apríl. Hótel Loftleiðum. íslandsmót í tvímenningi, undan- keppni, 28.-29. apríl. Gerðubergi. Islandsmót í tvímenningi, úrslit. 12. -13. maí. Hótel Loftleiðum. Símar 35408 og 83033 MIÐBÆR ' Lindargata frá 39-63 o.fl. Bjartar nætur Sumarplata Skífunnar þetta árið kom út fyrir skemmstu og er reyndar komin í gullsölu þeg- ar þetta birtist. platan heitir Bjartar nætur og á henni eru fimmtán fslensk lög og þrjú til viðbótar á kassettunni og geisladisknum. Sveitirnar sem lög eiga á plöt- unni eru Mannakorn, sem á lögin Línudans og Við stöndum sam- an, Skriðjöklar eiga. Mikka Ref og Heimsreisuna, Karl Örvars- son á lagið Gluggagægir, Síðan skein sól lögin Leyndarmál og Dísa, Geir Sæm og Hunangs- tunglið lagið Dimma Limm, Strax á lágið Allir spyrja, Póker snýr aftur í sviðsljósið með lagið Strætin úti að aka, Villingar eiga lagið Brothættir draumar, Hemmi og Elsa eiga lagið Sakn- aðarsöngur, Áslaug Fjóla Magn- úsdóttir, sem sigraði í söng- keppni Hemma Gunn, syngur lagið í Ijúfum dansi, Bjartmar Guðlaugsson á lagið Ofbeit als- staðar, María Sverrisdóttir, sem kallar sig Maju, syngur lagið Ein á ferð. Aukalögin á kassettunni og geisladisknum eru svo Ekkert mál með Lótus, Skaflinn með Október og 800.000.000 manns með Kátum piltum. Rokksíðan leitaði til Péturs Kristjánssonar, sem hafði yfirum- sjón með útgáfunni og snýr reyndar aftur í sviðsljósið með sinni gömlu sveit Póker í laginu Strætin út að aka. Hvað kom til að Póker var endurreist? Þetta kom þannig til að fyrir nokkru ræddum við Pálmi Gunn- ars, Ásgeir Óskars og Björgvin Gísla um að setja saman sveit til að setja saman dagskrá með nýjum rokkururm, Mannakorns- lögum og einhverjum lögum frá Pálma og mér. Sú sveit áti að heita Póker. Þegar Geiri ákvað að fara í Stuðmenn varð ekkert úr þessu. Við vorum þó búnir að ákveða að taka upp eitt lag, Dri- ving in the City, sem við tókum 'upp fyrir löngu og var all vinsælt á sínum tíma. Síðan atvikaðist það svo að það var búið að bóka stúdíó fyrir Karl Örvars, en hann komst ekki. Þá hringdi ég í Geira og Bjögga og þeir settu lagið upp á einni kvöldstund og það var tekið upp daginn eftir, en Jói hristi textann fram úr erminni. Við höfum ekkert ákveðið með það hvort við höfum eitthvað framhald á. Við höfum velt því lítillega fyrir okkur að setja sam- an eitthvað prógramm með gömlum slögurum, s.s. Rolling Stones- og J.J. Cale-lögum; mest okkur til gamans og það gæti vel farið svo að við gerðum það með haustinu. Árni Matthíasson r- KENNSLA Stýrimannaskólinn í Reykjavík Skólinn verður settur í hátíðarsal Sjómanna- skólans föstudaginn 1. september kl. 14.00. Nemendur 1. stigs verða lesnir í bekki. Stöðupróf nemenda á 1. stigi í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku verða 4., 5. og 6. september. Sömu daga verður hjálparkennsla fyrir þá nemendur, sem eiga ólokið prófum í íslensku og siglingareglum vegna verkfalls sl. vor. Prófum verður lokið 7. september. Kennsla 1. stigs skv. stundatöflu hefst sama dag. Nemendur 2. og 3. stigs, sem hafa lokið öllum prófum, mæti föstudag 8. september kl. 09.00. Mjög mikilvægt er að allir mæti þann dag, vegna niðurröðunar í bekki og námskeið í Plysavamaskóla, sem hefjast 11. september. Skólastjóri. ATVINNUHÚSNÆÐI Hafnarfjörður - til leigu Til leigu húsnæði á jarðhæð. Góð aðkoma. Næg bílastæði og innkeyrsludyr. Hentar allri þrifalegri starfsemi. Stærðir: 240 fm, 170 fm, 110 fm og þrjár 70 fm einingar. Leigjast saman eða í sitt hvoru lagi. Upplýsingar í símum 651344 og 42613. S JÁ LFSTÆDISFLOKKURINK FÉLAGSSTARF Viðeyjarhátíð 2. sept. Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík efna til fjölskylduhátíöar í Viðey laugar- daginn 2. september nk. ef veður leyfir. Fjölbreytt dagskrá. Nánar auglýst í næstu viku. Sjálfstæðisfélögin i Reykjavik. Fundur um sjávarútvegsmál Stefna Sjálfstæöisflokksins i fiskveiðistjórn og öðrum málefnum sjáv- arútvegsins verður til umræðu til undirbúnings fyrir landsfund i Val- höll laugardaginn 16. september nk. Málshefjendur verða Björn Dagbjartsson, formaður málefnanefndar, og Þorsteinn Pálsson. Dagskrá verður nánar auglýst siöar. Allir sjálfstæðismenn sem vilja hafa áhrif á stefnu flokksins i sjávarútvegsmálum eru eindregið hvatt- ir til að koma á fundinn. Sjávarútvegsnefnd. Félag sjálfstæðismanna Vesturbæ og miðbæ Fundur verður haldinn i félagi sjálfstæðis- manna í Vesturbæ og miðbæ föstudaginn 1. september nk. kl. 20.30 í Valhöll. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa félagsins á landsfund Sjálfstæðisflokksins í október. 2. Stjórnmálaviðhorfið. Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður, talar. 3. Önnur mál. Stjórnin. TILKYNNINGAR Gufudalskirkja Guðsþjónusta sunnudaginn 27. ágúst kl. 14.00. Séra Bragi Benediktsson þjónar fyrir altari. Séra Flosi Magnússon, prófastur, predikar. Wélagslíf Krossinn Auðbrekku 2.200 Kúpavogtr Samkoma fellur niður í kvöld. Anna Gréta og Ægir: Til hamingju með daginn. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Sunnudagaskólanámskeið verð- ur i Völvufelli 11 kl. 10.00- 15.00. Kennarar: Mike og Sheila Fitzgerald. Allir sem hafa áhuga á barna- starfi eru velkomnir. iflf Útivist Sunnudagur 27. ágúst: Landnámsgangan 18. ferð. Kl. 10.30 Úlfljótsvatn - Ýrufoss - Álftavatn (L-18a). Þetta er sannkölluð strandganga um fal- legt vatnasvæði. Verð 1.000 kr. Kl. 13 Ýrufoss - Álftavatn. Sam- einast morgungöngunni. Takið þátt í skemmtilegri feröasyrpu i landnámi Ingólfs. Verð 1.000 kr., fritt f. börn m. fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Sjáumst! Útivist, ferðafélag. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almenn bænasamkoma verður í kvöld kl. 20.30. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798 oa 19533. Dagsferðir Ferðafélagsins - Sunnu- dag 27. ágúst: Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð. Verð kr. 2.000,- Þaö er alltaf rétti timinn til þess að dvelja i Þórsmörk hjá Ferða- félagi íslands. Kl. 10.00 Rauðsgil - Búrfell f Reykholtsdal. Þetta er öku- og gönguferð. Géngið upp með Rauösgili sem er afar fögur náttúrusmið. Verð kr. 1.500,- Kl. 13.00 Eyrarfjall. Eyrarfjall er við sunnanverðan Hvalfjörð og verður gengið á fjallið að austan. Verð kr. 800,- Brottför frá Umferðarmiðstöö- inni, austanmegin. Farmiðar við bil. Fritt fyrir börn að 15 ára aldri. Ferðafélag (slands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.