Morgunblaðið - 26.08.1989, Side 35

Morgunblaðið - 26.08.1989, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR íJuJGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989 35^ Mm FOLK ■ SKALLA GRÍMUR í Borgar- nesi tók efsta liðið í 1. deild, FH, í karphúsið á fimmtudagskvöldið á heimavelli sínum. Lckatölur leiksins urðu 4:1 fyrir Skallagrím eftir að Þórhallur Víkingsson hafði skor- að fyrsta mark leiksins fyrir FH. Mörk Skallagríms gerðu Sigurð- ur Már Harðarson, tvö mörk, Valdimar Sigurðsson og Snæ- björn Ottarsson. Þjálfari FH-inga sagði eftir leikinn að vissulega hefði þetta tap verið óvænt, en alls ekki ósanngjarnt. Skallagrímur væri með mikið af góðum knattspyrnu- mönnum sem biðu þess að springa út. ■ MEIRA af Borgnesingum. Ungur piltur, Bergþór Ólason, setti íslandsmet í kúluvarpi pilta á fimmtudaginn. Bergþór, sem er 13 ára, kastaði kúlunni 14,26 m, og bætti þar með gamla metið um 3 cm. Það átti Guðmundur Karls- son, landsliðsþjálfari í fijálsum íþróttum, og setti hann metið árið 1978. Síðan hafa margir spreytt sig við að að bæta það, en ekki tekist það fyrr en nú. Bergþór er eitt mesta kastefnið sem vitað er um hér á landi, en í sumar setti hann einnig íslandsmet í spjótkasti. KNATTSPYRNA Þorvaldur gerir tveggja ára samning við Forést Þorvaldur Örlygsson hefur gert samning við Nottingham Forest og verð- ur því þriðji íslendingurinn til þess að leika í ensku 1. deildinni í vetur. Fer til Englands ÞORVALDUR Örlygsson, knattspyrnumaður úr KA, hefur gert tveggja ára munn- legan samning við enska liðið Nottingham Forest. Hann er fyrsti leikmaður KA, sem ger- ir samning um atvinnu- mennsku í knattspyrnu, og þriðji íslendingurinn sem verður hjá atvinnuliði í ensku 1. deildinni í vetur. orvaldur mun ekki fara strax til Nottingham Forest, heldur mun hann Ijúka keppnistímabilinu með KA fyrst, en fara svo utan seinni partinn í september. Hann æfði með liðinu í eina viku; fyrst með varaliðinu en síðustu tvo dag- ana æfði hann með aðalliðinu. Stefán Gunnlaugsson, formað- ur knattspyrnudeildar KA, var í september honum innan handar í förinni, og í samtali við Morgunblaðið, sagði hann að frammistaða Þorvaldar á æfingunum hefði verið góð, og að aðstoðarframkvæmdastjórinn, Ron Fendön, svo og þjálfari liðs- ins, hefðu verið mjög ánægðir með hann, og því viljað fá hann í raðir Nottingham Forest. „Liðið gerði Þorvaldi tilboð, sem hann var mjög sáttur við, og því ekki um annað að gera en fallast á það. Hvernig það tilboð er, verður hins vegar ekki gefið upp,“ sagði Stefán Gunnlaugsson. Þorvaldur Örlygsson var valinn í íslenska landsliðið í knattspyrnu fýrir leikinn gegn Austurríkis- mönnum á miðvikudaginn en hafnaði því og hélt til viðræðna við Nottingham Forest. KNATTSPYRNA / 2. DEILD Blikar í banastuði! Jón Þórirgerði þrennu gegn Einherja Jón Þórir Jónsson var heldur bet- ur á skotskónum þegar Breiða- blik malaði Einheija 5:0 í Kópavogi í gærkvöldi. Hann gerði þrjú mörk og er nú marka- Guðmundur hæstur í 2. deild Jóhannsson ásamt Eyjólfi Sverr- issyni, Tindastóli, með 11 mörk. Blikar voru mun betri aðilinn í gær eins og tölurnar gefa til kynna og þurfa Vopnfirðingar að sýna meiri bar- áttuvilja í næstu leikjum, ætli þeir sér að hanga uppi í deildinni. Fyrsta markið skoraði Jón Þórir snemma í leiknum með glæsilegu skoti í samskeytin beint úr auka- spyrnu og um miðjan fyrri hálfleik bætti Johann Grétarsson við öðru marki af stuttu færi, 2:0. Þannig var staðan í hálfleik. Jón Þórir var ekki lengi að koma Breiðablik í 3:0 í byijun síðari hálf- leiks og það mark var ekki af verri endanum, hjólhestaspyrna neðst í bláhornið. Fjórða markið skoraði Guðmundur Guðmundsson beint úr aukaspyrnu. Boltinn lak þá framhjá markverði Einheija í stöng og inn. Jón Þórir gerði síðan þriðja mark sitt í leiknum rétt fyrir leikslok með skoti af stuttu færi og þar með var 5:0 sigur Breiðabliksmanna í höfn. Með sigrinum skutust Breiða- bliksmenn í fjórða sæti deildarinn- ar. Þeir eru vel spilandi lið eins og fram kom í þessum leik en þá hefur hins vegar vantað meiri stöðugleika til þess að vera í toppbaráttunni í sumar. Leiki lið Einheija ekki betur í næstu leikjum, má bóka það í 3. deild að hausti. Jón Þórir Jónsson gerði þijú mörk gegn Einheija. íttiMR Dýrmæt stig FOLK til Tindastóls ■ B YRJENDAMÓT á segl- brettum verður haldið laugardag- inn 26. ágúst á Hafravatni. Ef vindur verður meira en 3-4 vindstig verður mótið opið öllum. Skráning keppenda verður á staðnum frá kl. 10 til 11. Mótið er styrkt af Skáta- búðinni. ■ NÁMSKEIÐ á vegum íþrótta- kennarafélags íslands, mennta- málaráðuneytisins og íþróttakenn- araskólans á Laugarvatni verður haldið 29. til 31. ágúst. Metþátttaka er á námskeiðinu þar sem 130 kenn- arar hafa skráð sig. Á námskeiðinu er farið í alla þætti íþróttakennslu og munu hæfir leiðbeinendur stjórna því. Þeirra á meðal eru Lazlo Nemeth landsliðsþjálfari ís- lands í körfuknattleik og Janus Guðlaugsson. ■ FIMLEIKADEILD Gerplu hefur hafíð innritun fyrir námskeið vetrarins. Æft verður í íþróttahúsi Gerplu við Skemmuveg og eru yngstu þátttakendur sem verða teknir inn 4 ára. Sérstök athygli er vakin á morguntímum kl. 9.30 á virkum dögum. Tindastóll náði í dýrmæt stig í gær er liðið sigraði Leiftur á Ólafsfirði 1:0. Tindastóll, sem er í botnbaráttunni í 2. deild, þurfti nauðsynlega að ná FráHelga þess stigum til að Jónssyni mjaka ser'af áólafsfirði skjálftasvæðinu á botninum. Leikurinn var jafn og mikil bar- átta hjá báðum liðum. Sigurmark 2. DEILD Breiðblik—Einherji..............5:0 Jón Þórir Jónsson 3, Jóhann Grétarsson, Guðmundur Guðmundsson. Leiftur—Tindastóll..............0:1 — Eyjólfur Sverrisson. Fj. leikja u J T Mörk Stig STJARNAN 15 12 1 2 38: 13 37 VÍÐIR 15 10 2 3 21: 15 32 ÍBV 14 9 0 5 37: 27 27 BREIÐABLIK 15 6 4 5 33: 24 22 SELFOSS 15 7 1 7 19: 25 22 IR 15 4 5 6 17: 20 17 LEIFTUR 15 4 5 6 13: 16 17 TINDASTÓLL 15 4 2 9 27: 25 14 VÖLSUNGUR 15 3 2 10 20: 36 11 EINHERJI 14 3 2 9 16: 40 11 Tindastóls kom á 65. mínútu. Hólm- ar Ástvaldsson átti skot að marki sem Þorvaldur Jónsson varði. Hann náði þó ekki að halda boltanum og Eyjólfur Sverrisson fylgdi á eftir að skoraði. Eftir markið sóttu Leiftursmenn ákaft en Gísli Sigurðsson, mark- vörður Tindastóls, varði mjög vel í síðari hálfleik. 3. DEILD A-RIÐILL Reynir S—Grótta............2:1 Valdimar Júlíusson, Ævar Finnsson — Kjartan Steinsson. Fj. leikja U J T Mörk Stig GRINDAVlK • 16 11 2 3 43: 17 35 IK 16 11 2 3 34: 13 35 ÞRÓTTURR. 16 9 2 5 39: 20 29 Bi 16 9 1 6 31: 20 28 VÍKVERJI 16 8 2 6 32: 31 26 GRÓTTA 17 6 5 6 24: 25 23 LEIKNIRR. 16 5 3 8 24: 33 18 HVERAGERÐI 4 3 9 27: 37 15 16 REYNIRS. 17 4 1 12 22: 49 13 AFTURELD. 16 3 1 12 20: 51 10 íþróttir helgarinnar Það er mikið um að vera í knattspymunni um helgina. Það sem hæst ber er bikarúrslita- leikur KR og Fram á Laugardalsvellí á sunnudag. Leikurinn hefst kl. 14.00 í dag fer fram einn leikur í 1. deild karla þegar IA og ÍBK mætast á Akranesi. í 1. deild kvenna leika Valur og KA á Valsvelli og nægir Valsstúlkum eitt stig úr þeirri viðureign til þess að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn. Þá fer fram ein umferð í A og B-riðlum 3. deildar í dag. I A-riðli leika Hveragerði - ÍK, Þróttur - Grindavík, Afturelding - Leiknir og BÍ - Víkverji. í B-riðli eigast við Reynir - Þróttur, Valur - Huginn, KS - Magni og Kormákur - Dalvík. KNATTSPYRNUÞJÁLFARI ÓSKAST TIL FJEREYJA Sandavogs ítróttafelag í Sandavogi í Færeyjum óskar að ráða knattspyrnuþjálfara fyrir meistaraflokk sinn fyrir næsta keppnistímabil. Lið félagsins leikur í fyrstu deild og eru aðstæður félags- ins með því besta sem gerist. Það á eigin gervigrasvöli og íþróttahús. Þjálfun hjá félaginu þarf að hefjast fyrsta febrúar á næsta ári og stendur keppnistímabilið til loka september. Félagið útvegar húsnæði og hugsanlega vinnu í samráði við væntanlegan þjálfara. Þeir, sem kunna að hafa áhuga, vinsamlega skrifi til Sandavogs ítróttafelags, 360 Sanda- vogi, Færeyjum, fyrir 10. september nk. Laugardagur kl.13:55 34. LEIKVIKA- 26. águst 1989 11 m 2 Leikur 1 Arsenal - Wimbledon Leikur 2 Aston Villa - Charlton Leikur 3 Chelsea - Sheíf.Wed. Leikur 4 C. Palace - Coventry Leikur 5 Derby - Man. Utd. Leikur 6 Everton - Southampton Leikur 7 Luton - Liverpool Leikur 8 Man. City - Tottenham Leikur 9 Millwall - Nott. For. Leikur 10 Norwich - Q.P.R. Leikur 11 Leeds - Blackburn Leikur 12 Leicester - Newcastle Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN S. 991002

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.