Morgunblaðið - 15.09.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1989 '
19
Kólombískir dómarar
hóta enn að segja af sér
Fundu fjöldagröfí Úralfjöllum
Fyrir skömmu fannst fjöldagröf í nágrenni þorpsins I úr hreinsunum Jósefs Stalíns á fjórða áratugnum.
Lysaja Gora í sunnanverðum Úralfjöllum. Talið er Þorpið er er skammt frá sovésku borginni
að þar sé að finna jarðneskar leifar fórnarlamba | Tsjeljabínsk. Á myndinni sjást menn við uppgröftirin.
Brottfluttir Tyrkir
snúa til Búlgaríu
Kapikule. Reuter.
MIKILL fjöldi Tyrkja snýr á hverjum degi til fyrri heimkynna sinna
í Búlgaríu aðeins fáum mánuðum eftir að þeir leituðu nýrra tækifæra
i Tyrklandi. Samkvæmt upplýsingum stjórnvalda í Tyrklandi, hafa
yfír 11.000 af þeim 314.000 Tyrkjum sem streymdu frá Búlgaríu til
Tyrklands snúið aftur undanfarna daga.
„Ég veit að nú verð ég að sætta
mig við búlgarska nafnið sem
stjórnvöld þröngvuðu upp á mig
1985,“ sagði Kadir Kadirov, sem á
miðvikudag. fór fótgangandi ásamt
fjölskyldu sinni yfir landamærin til
Búlgaríu með allar eigur sínar. „En
ég á enga peninga eftir og veturinn
er að ganga í garð.“
Þeir sem hafa snúið aftur fót-
gangandi eða í járnbrautarlestum
segja að ástæðan fyrir heimkomu
sinni sé há húsaleiga í Tyrklandi,
lág laun og lítil aðstoð frá hinu
opinbera.
Tyrknesk stjórnvöld héldu því
fram að fólkið hefði flúið vegna
nýrra laga í Búigaríu sem banna
Tyrkjum að tala eigin tungu, iðka
múhameðstrú og nota tyrknesk
nöfn. Búlgörsk stjórnvöld segja á
hinn bóginn að Tyrkirnir séu ferða-
menn sem hafi notfært sér aukið
ferðafrelsi í landinu.
P
"1
Multiplcm
Fjölbreytt námskeið í notkun hins öfluga
töflureiknis Multiplan.
Leiðbeinaiidi: Gísli Friðgeirsson
Tími: 21., 22., 28. og 29. sept. kl. 13-17
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna vill
stórauka þátttöku hersins í eiturlyfjastríðinu
Medellin, Washington. Reuter.
Kólombískir dómarar, sem efstir eru á dauðalista eiturlyfjasal-
anna, segjast reiðubúnir til að standa við fyrri hótanir um að segja
af sér vegna ónógra varúðarráðstafana stjórnvalda. Nefiia þeir
sem dæmi, að þeir hafi enn ekki fengið í hendurnar skotheld
vesti, sem Bandaríkjamenn sendu til landsins í fyrri viku. Varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna vill stórauka þátttöku hersins í
stríðinu við fíkniefnasala.
I'jórum dögum eftir að Kólom-
bíustjórn lýsti yfir stríði á hendur
eiturlyfjasölunum hótuðu um 600
dómarar að segja af sér yrði þeim
og fjölskyldum þeirra ekki veitt
næg vernd og hafa þeir nú ítrekað
þessa ætlun sína. Eru þeir flestiT
frá Antioquiaríki en þar er Medell-
inborg, miðstöð eiturlyfjaverslun-
arinnar. „Við lifum í stöðugum
ótta,“ segja dómararnir. „Við för-
um að heiman að morgni og vitum
ekki hvort við eigum afturkvæmt."
Frá 1980 hafa um 350 dómarar
og aðrir starfsmenn dómskerfisins
verið drepnir í Kólombíu og í
síðasta mánuði hótuðu eiturlyfja-
salarnir að drepa 10 dómara fyrir
hvern einn eitursala, sem fram-
seldur væri til Bandaríkjanna.
Segja dómararnir í bréfinu, að
neyðist þeii- til að segja af sér
muni frumskógarlögmálin verða
einráð í landinu.
Dómararnir kreíjast þess, að
komið verði á fót sérstökum sveit-
um, óháðum her og lögreglu, til
að standa vörð um þá og fjölskyld-
ur þeirra og einnig, að þeim verði
kennd meðferð skotvopna.
Richard Cheney, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, vill stór-
auka hlut heraflans í baráttunni
gegn eiturlyljunum og þá einkum
með hertu eftirliti við mexikönsku
landamærin og á Karíbahafi. Kom
þetta fram hjá ABC-sjónvarps-
stöðinni í fyrrakvöld. Sagði einnig,
Góóan daginn!
að Cheney hefði falið yfírmönnum
heraflans að skipuleggja þetta
starf og skila um það skýrslu inn-
an tveggja vikna.
AUÐSTILLT
MORATEMP blöndunár-
tækin eru með auðveldri
einnar handar stillingu á
hitastigi og vatnsmagni.
MORA sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást í byggingavöruverslunum.
<§|)
^meiri ánægja^
r ^
MORATEMP
dBase 111 +
Gagnlegt og vandað námskeið í forritunar-
máli gagnasafnskerfisins dBase III+.
Leiðbeinandi: Jón Eysteinsson
Tími: 19., 21., 26. og 28. sept. kl. 13-17
byrjenda-
námskeið
Skemmtilegt námskeið, upplagt fyrir þá sem
eru að byrja að fást við tölvur.
Leiðbeinandi: Stefán Magnússon
Tími: 19., 21., 26. og 28. sept. kl. 20-23
BSRB, ASÍ og VR styðja félaga sína til þátttöku í
námskeiðunum.
Innritun er í síma 687590.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, sími 687590
V etr artíinimi
hjá SJÓVÁ-ALMENNUM
er frá níu til fimm
Haustið er komið og veturinn nálgast óðum.
Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM skiptum við yfir í
vetrarafgreiðslutíma sem er frá
klukkan níu til fimm. Vetrartíminn gildir
frá 15. september til 1. inaí.