Morgunblaðið - 15.09.1989, Side 23
23
MÖRGÚNBLAÐÍÖ PÖSTÚDAGUR' 15. SÉWEtóBER 1909
Háskólabíó frumsýnir í dag myndina „Upp á líf og dauða“.
Háskólabíó firumsýnir
„Upp á líf og dauða“
HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til
sýninga myndina „Upp á líf og
dauða“. Með aðalhlutverk fara
Lance Henriksen og Mark Rols-
ton. Leikstjóri er Don Coscarelli.
Það er nauðsynlegt að reyna
krafta sína við óbeisluð náttúruöflin
og til þess að þola álagið sem borg-
arlífið krefst. I „Upp á líf og dauða“
Leiðrétting
HÖFUNDUR greinarinnar
„Frammistöðumat og starfsmat“,
sm birtist í blaðinu í gær, er Þórð-
ur S. Óskarsson, ekki -Ólafsson
eins og misritaðist.
, Biðst blaðið velvirðingar á þeim
mistökum.
leita sex einstaklingar að innri styrk
og sækja námskeið í óbyggðaskóla
Hank Chambers, sem hlotið hefur
viðurnefnið „Járnmaðurinn" í skóg-
inum.
Nemendurnir eru; Ben, miðaldra
stjórnandi, sem nýlega hefur misst
vinnunna, Cheryl sem er nýskilin,
Olivia er ung og falleg stúlka á leið
í hjónabandið, en óviss um sjálfa
sig, Gary, ungur götupiltur sem
settur er á námskeiðið af yfirvöld-
unum, Jeff, monthani sem vill prófa
sjálfan sig og svo Joey, ungur mað-
ur með vanmáttarkennd, sem hann
breiðir yfir með skrýtlum og gaman
málum.
Þegar hópurinn kemur út úr flug-
vélinni bíða hans verkefni og þraut-
ir sem Hank krefst að leystar séu
tafarlaust.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 14. september. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð(kr.)
Þorskur 62,00 60,00 61,54 5,230 321.877
Ýsa 90,00 80,00 87,24 6,931 604.701
Ýsa(smá) 20,00 20,00 20,00 0,018 360
Ufsi 29,00 29,00 29,00 0,130 3.770
Steinbítur 61,00 61,00 61,00 3,524 214.964
Lúða 210,00 210,00 210,00 0,079 16.590
Koli 63,00 63,00 63,00 0,019 1.197
Kolaflök 140,00 130,00 135,17 0,145 19.600
Blandað Samtals 63,00 63,00 63,00 73,58 0,020 16,097 1.260 1.184.319
i dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík úr ýmsum
Þorskur 68,00 57,00 64,39 16,376 1.054.403
Þorskur(1.-2.n) 53,00 53,00 53,00 0,243 12.879
Þorskur(smár) 15,00 15,00 15,00 0,045 675
Ýsa 108,00 50,00 88,49 7,409 655.658
Karfi 45,00 29,00 32,67 0,566 18.494
Ufsi 36,00 36,00 36,00 0,978 35.208
Steinbítur 59,00 59,00 59,00 1,052 62.068
Hlýri+steinb. 61,00 59,00 59,44 0,597 35.487
Lúða(stór) 205,00 205,00 205,00 0,059 12.095
Lúða(smá) 230,00 215,00 220,33 0,045 9.915
Skarkoli Samtals 66,00 66,00 66,00 69,26 0,342 27,712 22.572 1.919.454
Selt var meða annars úr Freyju RE og Sturlaugi H. Böövars-
syni AK. í dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 68,00 48,00 60,83 4,669 284.301
Þorskur(umál) 24,00 24,00 24,00 0,029 696
Ýsa 90,00 30,00 79,09 3,364 266.047
Karfi 37,00 27,00 32,55 0,990 32.205
Ufsi 18,00 15,00 17,00 0,704 12.462
Steinbítur 26,00 15,00 20,79 0,307 6.384
Langa 27,00 20,00 25,83 0,350 9.040
Lúða 255,00 45,00 197,38 0,966 190.470
Grálúða 35,00 35,00 35,0(T 0,038 1.330
Skarkoli 43,00 35,00 35,26 0,282 9.942
Keila 18,00 5,00 10,28 0,408 4.196
Skata 70,00 70,00 70,00 0,300 21.000
Skötuselur 200,00 54,00 95,71 0,007 670
Rækja Samtals 80,00 80,00 80,00 68,08 0,530 12,943 42.400 881.143
Selt var úr dagróðrabátum. I dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr dagróðrabátum.
Þórscafé:
Danshöllin
Kaupmannahöfn og New York og
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Á Kjarvalsstöðum verða til sýnis
olíumyndir unnar á striga og á tré.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
1. október 1989.
opnar uni Námskeið um
helgina eftiisþreytu
AÐ UNDANFORNU hefur verið
unnið að undirbúningi ýmissa
breytinga á skemmtistöðunum,
Þórscafé, Norðurljósum og Vetr-
arbrautinni. Samheiti staðanna
er „Danshöllin", sem opnar í
fyrsta sinn um helgina undir
nýju nafrii.
í Danshöllinni getur fólk valið á
milli ólíkra skemmti- og veitinga-
staða á fjórum hæðum. Einn að-
göngumiði gildir nú á alla staðina.
Um helgina verður opnað með
landsþekktum hljómsveitum,
Rokksveit Rúnars Júlíussonar,
Mannakornum Pálma Gunnarsson-
ar og Magnúsar Eiríkssonar, auk
hljómsveitar Stefáns P. og hljóm-
sveitarinnar Gauta frá Siglufirði.
Á föstudagskvöid klukkan 20
verður húsið opnað með hanastéli.
I vetur verða endurvakin svokölluð
„stórshow" með dansi, tónlist og
söng.
Gunnar Þórðarson hefur verið
ráðinn tónlistarstjóri Danshallar-
innar og mun hann hafa uppsetn-
ingu sýninganna á sinni hendi.
(Úr fréttatilkynningu)
Brávallagatan í
Óperunni
SÝNINGAR á gamanleik
Gríniðjunnar „Brávallagatan-
Arnarnesið" hefjast að nýju í
íslensku óperunni, Gamla bíói,í
dag, föstudaginn 15. september,
og á morgun, laugardaginn 16.
september.
„Brávallagatan-Arnarnesið",
sem ijallar um Bibbu og Halldór,
var sýnt sl. vor. Sýningarnar urðu
samtals 22 og var uppselt á þær
allar. í hlutverkum hjónanna Bibbu
og Halldórs eru Edda Björgvins-
dóttir og Júlíus Bijánsson. Með
önnur stór hlutverk fara Jóhann
Sigurðsson, Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir, Bríet Héðinsdóttir, Rúrik
Haraldsson, Kjartan Bjargmunds-
son og Bessi Bjarnason. Höfundar
gamanleiksins eru Edda Björgvins-
dóttir, Júlíus Bijánsson og Gísli
Rúnar Jónsson, sem jafnframt er
leikstjóri.
(Úr frcttatilkynningu)
Kjarvalsstaðir:
Erla Þórarins-
dóttir opnar sýn-
ingu
ERLA Þórarinsdóttir opnar
myndlistarsýningu á Kjarvals-
stöðum í austursal, laugardag-
inn 16. september.
Erla lauk námi frá Konstfack-
skólanum í Stokkhólmi 1981 og
hefur síðan unnið og starfað að
myndlist í Svíþjóð, New York og
hér heima. Hún hefur haldið einka-
sýningar í Reykjavik, Stokkhólmi,
Iðntæknistoftiun Islands og
endurmenntunarstjóri Háskóla
íslands halda námskeið um efhis-
þreytu fyrir verkfræðinga og
tæknifræðinga í Háskóla Islands
dagana 18.-20. september.
Kennari verður Hans Andersen
tækniforstjóri við Sænsku prófun-
arstofnunina og prófessor við Chal-
mers tækniháskólann í Gautaborg.
Námskeiðið verður haldið á ensku,
en námsgögn verða á sænsku.
Þreyta er orsök mikils hluta þess
tjóns sem verður á mannvirkjum,
vélbúnaði og farartækjum, segir í
fréttatilkynningu frá Iðntækni-
stofnun. Að námskeiðinu loknu eigi
nemendur að geta tekið efnisþreytu
með í reikninginn, segir ennfremur
og að ekki sé nauðsynlegt að menn
hafi reynslu á þessu sviði til að
taka þátt í námskeiðinu.
Opið hús í
Þjóðleikhúsinu
OPIÐ hús verður í Þjóðfeik-
húsinu klukkan 14 til 17 laugar-
daginn 16. september. Gefst al-
menningi kostur á að skoða leik-
húsið og skyggnast inn í þann
heim sem er að tjaldabaki.
Allar deildir leikhússins verða
opnar. Leiðsögumenn úr hópi
þekktra leikara stofnunarinnar
munu fara með reglulegu millibili
með hópa um húsið, fræða um starf
og sögu þess og svara spurningum.
Þá má gera ráð fyrir óvæntum
uppákomum af ýmsu tagi. Hverri
hópferð lýkur í Leikhúskjallaranum
þar sem boðið verður upp á ókeyp-
is kaffi og kókveitingar.
Sala aðgangskorta að dagskrá
leikhússins í vetur hófst 12. sept-
ember.
Grænmetis-
markaður
KFUMogK
GRÆNMETIS- og flóamarkaður
verður haldinn í húsi KFUM og
K við Holtaveg (gegnt Lang-
holtsskóla) á morgun, laugar-
daginn 16. september, og hefst
kiukkan 14.
Verða þar á boðstólum ýmiss
konar ávextir, grænmeti og fleira.
Allur ágóðinn rennur til kristni-
boðsstarfsins í Eþiópíu og Kenýu.
Þeir sem vilja gefa grænmeti eða
annað matarkyns til að selja á
markaðnum eru vinsamlega beðnir
um að koma með það á sama stað,
ídag, föstudag, klukkan 17 tii 19.
Smekkleysa
í Tunglinu
Smekkleysukvöld verður í
Tunglinu í kvöld, föstudagskvöld.
Fram koma hljómsveitirnar Bless,
Risaeðlan og Ham. Einnig mun Jón
Gnarr stiga á svið. Húsið verður
opnað klukkan 21.
Eitt verka Erlu Þórarinsdóttur.
Hulda Guðrún Friðrik Vignir
Geirsdóttir Stefánsson.
Tónleikar í
Grundar fl ar ðar-
kirkju |
NÆSTKOMANDI laugardag,
16. september, verða haldnir ein-
söngstónleikar í Grundarflarð-
arkirkju og hefjast þeir kl. 17.
Á tónleikunum mun Huida Guð-
rún Geirsdóttir sópransöngkona
syngja lög frá ýmsum tímum. Með-
leikari hennar á píanó verður Frið-
rik Vignir Stefánsson organisti
Grundarfjarðarkirkju.
Síðasta sýning-
arhelgi
Málverkasýningu Gunnars Þor-
leifssonar í Eden Hveragerði lýkur
sunnudagskvöld 17. september. Á
sýningunni eru um 25 myndir mál-
aðar í olíu.
Tjónvaldur ók á
brott
LÖGREGLAN í Hafiiarfirði
óskar eftir' upplýsingum um at-
burð, sem varð um klukkan 15
á þriðjudag, þegar ekið var á
kyrrstæða bifreið á stæði bak
við Sparisjóðinn þar í bæ.
Eigandi bifreiðarinnar brá sér
inn í Sparisjóðinn og skildi bifreið
sína, nýjan, silfurgráan Daihatsu,
eftir á stæðinu. Þegar hann kom
út aftur hafði verið ekið í vinstri
hlið bifreiðarinnar og er hurðin og
frambretti skemmt. Tjónvaldur ók
á brott óg er hann, eða aðrir sem
veitt geta upplýsingar, beðnir um
að snúa sér til lögreglunnar.
Erindi um um-
hverfismál
í verkfræðideild Háskóla ís-
lands verða á næstu vikum flutt
11 erindi um umhverfismál. Til
þeirra er stofiiað fyrir nemendur
í deildinni, en aðgangur er ölium
frjáls, eins þeim, sem ekki eru
nemendur í Háskólanum. Um-
sjón hefúr Einar B. Pálsson próf-
essor, og veitir hann upplýsing-
ar.
Erindin verða flutt á mánudög-
um kl. 17.15 í stofu 151 í húsi
verkfræðideildar, Hjarðarhaga 6.
Þau eru ráðgerð svo sem hér segir:
18. september: Unnsteinn Stef-
ánsson, prófessor í haffræði. Sjór-
inn sem umhverfi. 25. september:
Gísli Már Gíslason prófessor í
líffræði. Ýmis undirstöðuatriði í
vistfræði. 2. október: Arnþór Garð-
arsson prófessor í líffræði. Rann-
sóknir á röskun lífríkis. 9. október:
Dean Abrahamson prófessor, Uni-
versity of Minnesota. Áhrif kjai-n-
orkuvera á umhverfið. 16. oktöber:
Jakob Björnsson verkfræðingur,
orkumálastjóri. Orkumál og um-
hverfi. 23. október: Björn Æ. Stein-
arsson fiskifræðingur, Hafrann-
sóknastofnun. Auðlindir sjávar og
nýting þeirra. 30. október: Þorleif-
ur Einarsson prófessor í jarðfræði.
Jarðrask við mannvirkjagerð. 6.
nóvember: Ingvi Þorsteinsson MS,
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins. Eyðing gróðurs og endurheimt
landgæða. 13. nóvember: Eyþór
Einarsson grasafræðingur, for-
maður Náttúruverndarráðs. Nátt-
úruvernd í framkvæmd. 20. nóvem-
ber: Vilþjálmur Lúðvíksson verk-
fræðingur, framkvæmdastjóri
Rannsóknarráðs ríkisins. Verk-
fræðilegar áætlanir og valkostir.
27. nóvember: Einar B. Páisson
verkfræðingur. Matsatriði, m.a.
náttúrufegurð.