Morgunblaðið - 27.09.1989, Qupperneq 2
I
I
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989
Sláturfélag V-Barðstrendinga:
Bændur gætu þurft að
gefa eftir 25% innleggs
Sláturfélag V-Barðstrendinga á Patreksfirði gerir þá kröfu til sauð-
fjárframleiðenda sem ætla að láta slátra fé í sláturhúsi félagsins nú í
liaust, að þeir skrifi undir samning um að fullnaðargreiðsla til þeirra
verði ekki innt af hendi fyrr en séð verður hvaða afgangur verður af
tekjum sláturhússins eftir að greiddur hefur verið kostnaður vegna
slátrunar og sölu afúrðanna, ásamt ársgreiðslu afborgana og vaxta af
lánum sem hvíla á sláturhúsinu. Að sögn Jóns Bjarnasonar, bónda í
Grænuhlíð í Arnarfirði, gæti þetta þýtt að bændur yrðu að gefa slátur-
húsinu eftir um 25% af afurðaverði standi tekjur sláturhússins ekki
undir ofangreindum kostnaði, en fyrir meðalbú getur þar verið um að
ræða um 750 þúsund krónur.
„Með þessu er raunverulega verið
að stilla mönnum upp við vegg þar
sem sláturfélagið neitar að taka við
fénu vilji menn ekki skrifa undir
þennan samning, sem ég tel bijóta
í bága við búvörulögin, en þau kveða
skýrt á um hvenær sláturleyfishafar
eigi að standa skil á greiðslum til
bænda. Ég fæ ekki séð að bændur
í Arnarfirði geti farið með fé sitt til
slátrunar annars staðar, og hef ég
því hugsað mér að setja féð á, eða
jafnvel að skera það niður og urða
það,“ sagði Jón.
í samningi þeim sem innleggjend-
um hjá Sláturfélagi V-Barðstrend-
inga er gert að undirrita, segir að
sláturfélagið greiði framleiðendum
frumgreiðslu 15. október, og skuli
sú greiðsla vera sama hlutfali af
grundvallarverði afurðanna sam-
kvæmt verðlagsgrundvelli haustið
1989, sem nemur hlutfalli afurðaláns
þess sem félagið fær út á sláturafurð-
irnar miðað við heildsöluverð þeirra.
Sé lánið 50% af heildsöluveri skal
greiðslan vera 50% af grundvallar-
verðinu, og sé hlutfallið annað þá
breytist greiðslan í hlutfalli við það.
Frumgreiðslan hækki síðan í allt að
75% af grundvallarverði þegar afurð-
alánin nái því hlutfalli af heildsölu-
Mitterrand
kemur til
viðræðna um
EFTA og EB
FRANCOIS Mitterrand, forseti
Frakklands, sækir ísland heim
þriðjudaginn 17. október næst-
komandi til þess að ræða almennt
um samskipti og framtíð Evrópu-
bandalagsins (EB) og Efiiahags-
og fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA) við íslenska ráðamenn.
ísland hefur nú með höndum for-
mennsku í EFTA og Frakkar hafa
frá 1. júlí gegnt formennsku innan
EB og munu gera til áramóta. Níu
manna sendinefnd frá Frakklandi
er væntanleg til landsins í dag til
þess að undirbúa heimsókn Frakk-
landsforseta.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, tilkynnti um heim-
sóknina á blaðamannafundi í stjóm-
arráðinu í gær. Hann sagði að ósk
þessa efnis hefði komið upp fyrir-
varalaust um helgina og íslendingar
hefðu ákveðið að verða við henni,
þrátt fyrir vandkvæði vegna opin-
berrar heimsóknar forseta Islands
til Sviss þennan dag, en venja er
að utanríkisráðherra sé í föruneyti
forseta í opinberum heimsóknum.
Frakkar hefðu sett fram ósk um
þennan dag og ekki hefði tekist að
finna neinn annan sem hentaði.
DÓMUR var kveðinn upp í gær
í sakadómi Reykjavíkur í máli
Merki íslands-
banka hefur
verið valið
BÚIÐ er að velja merki fyrir ís-
landsbanka, og samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins varð fyrir
valinu tillaga frá Auglýsingastof-
unni GBB.
Allmargar auglýsingastofur
sendu inn tillögur að merki fyrir
íslandsbanka. Merkið verur kynnt
á fundi með starfsfólki bankans,
sem haldinn verður í Háskólabíói
föstudaginn 4. október.
verði, en rekstrarlán framleiðenda
greiðist af frumgreiðslu. Þá segir
einnig í samningnum að þegar félag-
ið hafi fengið staðgreiðslulán frá
ríkissjóði í desembermánuði, þá skuli
framleiðendum greidd viðbót við
frumgreiðsluna, eigi minni en nemur
því hlutfalli sem staðgreiðslulánið er
af óniðurgreiddu heildsöluverði af-
urðanna. Fullnaðargreiðsla til fram-
leiðenda verði gerð þegar séð verður
hveijar tekjur komi umfram fengin
lán, og séð verður hvað verður af-
gangs af tekjunum þegar lokið er
greiðslu kostnaðar við slátrun og
sölu afurðanna, og ársgreiðslu af-
borgana og vaxta af lánum sem hvíla
á sláturhúsinu. Dragist greiðslur
umfram eindaga reiknast af því sömu
vextir og af afurðalánum.
Þegar óskað var eftir upplýsingum
hjá Val Thoroddsen, stjórnarform-
anni Sláturfélags V-Barðstrendinga,
um þetta mál neitaði hann með öllu
að tjá sig um það.
„Þetta eru mjög harðir samningar
sem um er að ræða í þessu tilfelli,
en samkvæmt búvörulögunum er
þetta heimilt," sagði Níels Arni Lund,
deildarstjóri hjá landbúnaðarráðu-
neytinu. „Það er hins vegar enginn
sem skipar mönnum að slátra fé sínu
á ákveðnum stað, og því ætti þeim
sem eru óánægðir með þetta fyrir-
komulag að vera í sjálfsvald sett að
fara með fé sitt til slátrunar annars
staðar en á Patreksfirði.“
Jamie Revees, Tom Magee, O.D. Wilson og Hjalti Úrsus Árnason,
sem ásamt Jóni Páli Sigmarssyni og Magnúsi Ver Magnússyni
taka þátt í kraftlyftinga- og aflraunakeppni í Reykjavík um næstu
helgi.
Sex sterkustu menn
heims keppa á Islandi
UM næstu helgi fer fram hér á
landi keppni sex sterkustu
manna heims, en keppendurnir
hafa allir unnið heimsafrek I
kraftlyftingum eða aflraunum á
síðastliðnu ári. Að sögn Hjalta
Úrsusar Árnasonar, sem verður
meðal keppendanna, er þetta
talin ein sterkasta kraftakeppni
sem haldin er í heiminum á
þessu ári.
Keppnin hefst í Laugardalnum
næstkomandi laugardag, en þar
munu keppendurnir draga trukka,
henda 25 kg lóði yfir á og pressa
trédrumb. Á sunnudaginn kl. 14
verður keppninni fram haldið í
Laugardalshöll, og munu kepp-
endurnir þar keyra hjólbörur með
yfirþyngd, henda 25 kg steini,
halda á rafgeymi með útrétta
arma, hlaupa 200 metra með 90
kg sekk á bakinu og hlaða tunnum
upp á pall.
Þátttakendur í keppninni verða
Jamie Revees, sem nú ber titilinn
„Sterkasti maður heims“, O.D.
Wilson, sem kallaður er „Martröð-
in“, en hann er rúmlega tveir
metrar á hæð og vegur 185 kg,
Tom Magee, Jón Páll Sigmarsson,
Magnús Ver Magnússon og Hjalti
Úrsus Árnason.
Mitterrand lendir á Reykjavíkur-
flugvelli að morgni þriðjudagsins
og fer héðan af landi brott aftur
seinnipartinn. Utanríkisráðherra
Frakklands, Roland Dumas, verður
í för með honum og munu þeir
ásamt þriðja manni ræða við for-
sætis- og utanríkisráðherra og
þriðja aðila, sem Steingrímur sagði
að enn hefði ekki verið ákveðið
hver yrði.
„Að sjálfsögðu fáum við þarna
kjörið tækifæri til að greina frá
sjónarmiðum Islands og koma þeim
á framfæri við enn einn leiðtoga í
Evrópubandalagslöndunum," sagði
Steingrímur.
Yfírskoðunarmenn ríkisreiknings 1988:
Grunur um misnotkun á
heimild til áfengiskaupa
Ekki brotlegur ef risna ráðherra tekur til samstarfs-
manna, segir í svari Jóns Baldvins til ríkisendurskoðanda
Yfirskoðunarmenn ríkisreiknings 1988 hafa gert athugasemdir
vegna kaupa þáverandi fjármálaráðherra, Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, á áfengi á kostnaðarverði í maí á síðasta ári og farið
þess á leit við Halldór V. Sigurðsson, rikisendurskoðanda, að
hann afli skýringa á umræddri áfengisúttekt og geri viðeigandi
ráðstafanir sé grunur um misnotkun á rökum reistur og jafiiframt
að áfengi þetta verði endurgreitt á fiillu útsöluverði. I svari Jóns
Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra, til ríkisendurskoð-
anda vegna þessa kemur fram að ef risna ráðherra geti tekið til
samstarfsmanna, embættismanna jafiit sem stjórnmálamanna og
félagasamtaka, þá telji hann sig ekki hafa gerst brotlegan í um-
ræddu tilviki.
Dæmdur til hælis-
vistar fyrir morð
Bjarna Bemharðs Bjarnasonar,
39 ára, sem var sekur fimdinn
um að hafa myrt Karl Jóhann
Júlíusson, 67 ára, í Reykjavík
aðfaranótt 15. nóvember á
síðasta ári. Bjarni Bemharður
var úrskurðaður ósakhæfur
vegna geðbilunar og skal sæta
öryggisgæslu ótímabundið á
viðeigandi hæli.
Ármann Kristinsson, sakadóm-
ari, dæmdi málið.
Hjá dómsmálaráðuneytinu feng-
ust þau svör í gær, að ekki væri
hægt að segja til um það strax
hvar Bjarni Bernharður yrði vist-
aður, þar sem dómurinn hefði ekki
borist ráðuneytinu. Ekkert hæli er
til hérlendis sem er sérstaklega
ætlað geðsjúkum afbrotamönnum.
Um er að ræða kaup á 100
flöskum af freyðivíni, tveimur
flöskum af vodka, tveimur flöskum
af viskí og tveimur flöskum af
gini, sem þáverandi fjármálaráð-
herra veitti í boði í félagsheimili
sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi
til heiðurs Ingólfi Margeirssyni,
ritstjóra Alþýðublaðsins, á fer-
tugsafmæli hans. Kostnaðarverð
var 18.820 krónur, en hefði vínið
verið keypt fullu verði hefði það
kostað 38.580 krónur.
í bréfi yfirskoðunarmanna ríkis-
reiknings til ríkisendurskoðanda
segir að þeir hafi í höndum gögn
sem bendi til að heimild ráðuneyta
til kaupa á áfengi á kostnaðar-
verði hafi verið alvarlega misnot-
uð. Samkvæmt upplýsingum
'O
INNLENT
þeirra hafi þáverandi fjármálaráð-
herra i maí 1988 pantað 106 flösk-
ur af áfengi og látið senda á einka-
heimili við Ránargötu. Ekki verði
af gögnunum ráðið að þar hafi
farið fram móttaka á vegum ráð-
herra eða annarra starfsmanna
ráðuneytisins. „Þvert á móti bend-
ir margt til þess að áfengi þetta
hafi farið til einkanota 4 yegum
aðila, sem eru Stjórnarráði íslands
óviðkomandi."
Bréfið er undirritað af Geir H.
Haarde, Lárusi Finnbogasyni og
Sv.G. Hálfdánarsyni.
í bréfi utanríkisráðherra til
ríkisendurskoðanda kemur meðal
annars fram að skýringin á því
að áfengið var ekki afhent þar sem
boðið fór fram sé sú að ÁTVR
afgreiði ekki pantanir um helgi
og pöntunin hafi verið geymd á
heimili heiðursgestsins, sem að
öðru leyti hafi séð um undirbúning
boðsins og borið kostnað þar af.
Svar við því hvort ráðherra hafi
verið óheimilt að halda þessa veislu
ráðist væntanlega af viðurkennd-
um reglum og hefðum. „Þannig
hafa t.d. ráðherrar haldið sam-
starfsfólki sínu, t.d. starfsfólki
ráðuneyta og samstarfsmönnum í
þingflokki, hóf af ýmsum tilefnum.
T.d. kveðjuhóf, jólaboð o.fl. Þannig
er t.d. ástæða til að spyija, hvort
ráðherrar megi því aðeins halda
samstarfsmönnum sínum boð, að
þeir starfi í ráðuneytum, — séu
embættismenn en ekki t.d. póli-
tískir samstarfsmenn."
Sjá bréf yfirskoðunarmanna
ríkisreiknings og utanríkis-
ráðherra til ríkisendurskoð-
anda á bls. 25.
Ólafi Laufdal
veitt leyfi til
reksturs
hljóðvarps
Á FUNDI útvarpsréttarnefridar í
gær var samþykkt að veita Ólafi
Laufdal leyfi til reksturs hljóð-
varps. Ólafur var stærsti hluthaf-
inn í Hljóðvarpi hf., sem rak út-
varpsstöðina Stjörnuna, en fyrir-
tækið var lýst gjaldþrota fyrir
skömmu.
Að sögn Kjartans Gunnarssonar,
formanns útvarpsréttarnefndar, var
umsókn Ólafs samþykkt samhljóða í
nefndinni. í henni kom fram að rekst-
ur stöðvarinnar verður algjörlega á
hans fjárhagslegu ábyrgð, og ráð-
gert sé að útsending nýju stöðvarinn-
ar nái um allt sunnanvert landið.