Morgunblaðið - 27.09.1989, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Valgerður Guðmundsdóttir í garðinum sínum.
Grindavík:
Fegrunarnefiid veit-
ir viðurkenningar
Grindavíkurbær heiðraður sérstaklega
FEGRUNARNEFND Grindavíkur heiðraði nú nýlega fern hjón fyrir
snyrtilega garða í Grindavík. Fiskanes fékk viðurkenningu fyrir snyrti-
legt umhverfi fyrirtækja og knattspyrnudeild UMFG fyrir vel skipulagt
íþróttasvæði. Þá var að vanda einn eldri borgari heiðraður.
Þau sem hlutu viðurkenningu voru
Guðfinnur Bergsson og Helga Jó-
hannsdóttir, Jóhann Guðfinnsson og
Jórunn Jormundsdóttir , Dagbjartur
Einarsson og Birna Oladóttir og
Guðmundur Guðmundsson og Guð-
laug Guðmundsdóttir.
Venja er að veita eldri borgara
viðurkenningu og að þessu sinni
hlaut hana Valgerður Guðmunds-
dóttir sem býr á Lundi við Víkur-
braut. Valgerður sagði I viðtali við
Morgunblaðið að sumarið hafi verið
erfitt garðeigendum í Grindavík
vegna kulda í sumar og gróður hafi
ekki náð sér á strik. Hún sagðist
hafa byijað á garðvinnu fyrir tæpum
20 árum og alltaf bætt við á hverju
ári. „Sjávarselta gerir mér erfitt fyr-
ir en með umhyggju gengur þetta
vel,“ sagði Valgerður að lokum.
Fegrunarnefndin ákvað í samráði
við Birgi Þórðarson, garðyrkjufræð-
ing, sem var nefndinni innan handar
við valið, að viðurkenna Grindavík-
urbæ sérstaklega vegna fram-
kvæmda í fegrunarmálum og vera í
fararbroddi fyrir fegrun bæjarins.
FÓ
*
Tónlistarskóli Isafjarðar:
188 nemendur í vetur
Isafirði.
MIKILL stöðugleiki er í kenn-
aramálum Tónlistarskóla Isa-
fjarðar en af fimmtán manna
kennaraliði hætti aðeins einn á
síðasta vori, Sigríður Svavars-
dóttir. I hennar stað kom Margr-
ét Geirsdóttir sem lauk kennara-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík í vor. Nú hafa verið
innritaðir 188 nemendur í
skólann, þar af eru 17 í forskóla-
deild á aldrinum 4-6 ára.
Nú sem fyrr eru flestir nemend-
ur í píanóleik eða 69, þá lærir 21
á gítar, og 17 eru í söng- o'g fiðlu-
námi. Nú hefur í fyrsta sinn innrit-
að sig nemandi í sellóleik en alls
eru kenndar milli 15 og 20 náms-
greinar.
Sigríður Ragnarsdóttir skóla-
stjóri sagði við setningu skólans
að þótt kennslan færi nú að mestu
fram í húsakynnum skólans, á efri
hæð húsmæðraskólans, þá væri
enn kennt víðsvegar úti í bæ. Hún
sagði að í samkomulagi stjórnar
Tónlistarfélagsins og Bæjarsjóðs
Isafjarðar um byggingu skólahúss
ætti að hefjast handa við upp-
steypu hússins á næsta ári.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Beáta Joó pianóleikari og Michael Jones klarinettuleikari léku
nokkur lög við setningu tónlistarskólans. Þau eru bæði kennárar
við skólann.
Að venju var flutt tónlist við Michael Jones klarinettuleikari en
skólasetninguna og léku í þetta þau eru bæði kennarar við skólann.
sinn Beáta Joó píanóleikari og Úlfar
Tíu íslenskir keppendur
á Norðurlandakeppnina í
Þrómiaifciag1 fyrir mið- hárgreiðslu og hárskurði
bæinn verði stofiiað
BORGARSTJÓRN samþykkti á síðasta fundi sínum að beita sér fyrir
stofnun sérstaks þróunarfélags fyrir gamla miðbæinn. A félag þetta
að samræma hugmyndir og tillögur hagsmuna- og framkvæmdaaðila
um uppbyggingu mannvirkja og nauðsynlegrar þjónustu í gamla mið-
bænum. Þátttaka verður opin öllum hagsmuna-, rekstrar- og fram-
kvæmdaaðilum á svæðinu. Var tillaga þessa efnis samþykkt af borgar-
fúlltrúum Sjálfstæðisfiokks og Alþýðuflokks.
Tillagan var borin fram af tveimur munaaðilar sameinist um gerð áætl-
Norðurlandakeppnin í hárgreiðslu og hárskurði fer fram í Hels-
ingborg í Svíþjóð þann 1. október næstkomandi. Tíu keppendur frá
íslandi fara utan til keppninnar. íslandskeppni er haldin annað
hvert ár og það ár sem ekki er íslandsmót taka íslendingar þátt
í Norðurlandakeppni. Alls taka tíu keppendur þátt frá hverju landi,
fimm í hárgreiðslu og fimm í hárskurði. Samtals er um að ræða
sex útlærða og fjóra nema.
borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins, þeim Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni
og Júlíusi Hafstein. í greinargerð
þeirra með tillögunni segir: „Nú ligg-
ur fyrir í fyrsta sinn staðfest deili-
skipulag af miðbænum og framund-
an eru töluverðar breytingar á nýt-
ingu austurhafnarinnar. Lögð hefur
verið áhersla á að starfsemi þar í
framtíðinni tengist miðbæjarkiam-
anum.
Á þessum tímamótum er mikil-
vægt að borgaryfirvöld og hags-
ana og almenna stefnumörkun í
málefnum miðbæjarins svo og um
gerð framkvæmda- og fjárhagsáætl-
unar í tengslum við slíka stefnumörk-
un.
Með stofnun þróunarfélags má
best samhæfa hagsmuni einka- og
opinberra aðila í þeim tilgangi að
tryggja skynsamlega uppbyggingu
og endurnýjun miðbæjarins og stuðla
þannig að fjölbreytilegu mannlífi og
öflugri þjónustu í hinum eina sanna
miðbæ Reykjavíkur.“
Norðurlandakeppnin er haldin
annað hvert ár og hefur verið hald-
in hérlendis tvisvar, árin 1977 og
1987. Að þessu sinni eru reglur
allbreyttar frá því sem áður hefur
verið og er það samanlagður stiga-
fjöldi allra frá landinu sem gildir
til Norðurlandatitils. Jafnframt
geta einstaklingar unnið til verð-
launa en hafa ekki leyfi til að kalla
sig Norðurlandameistara nema
hafa unnið til hans ásamt liðsheild-
inni. Alls eru 64 verðlaunasæti í
keppninni og sú þjóð, sem verður
Hvað réð þögn Alþýðu-
flokksráðherranna?
stigahæst fær jafnframt peninga-
verðlaun að upphæð 50 þúsund
krónur sænskar. Islenska hársn-
yrtifólkið hefur æft vel að undanf-
örnu og meistarar í hárgreiðslu
munu fara um næstu helgi til
Belgíu þar sem þeir munu æfa í
fimm daga undir stjórn þjálfara
síns Willheims de Ridder.
í meistaraflokki hárgreiðslu eru
keppendur Dóróthea Magnúsdótt-
ir, Helga Bjarnadóttir og Anna
G. Jónsdóttir. Módel þeirra eru
Berglind Björgúlfsdóttir, Kristín
Kristjánsdóttir og Steinunn Sva-
varsdóttir. í meistaraflokki hár-
skurði keppa Guðjón Þór Guðjóns-
son, Gísli V. Þórisson og íris
Sveinsdóttir. Módel þeirra eru
Númi Geirmundsson, Einar Ólafs:
son og Sigurbjörn Einarsson. í
flokki hárgreiðslunema keppa þær
Þórdís Örlygsdóttir og Halldóra
Matthíasdóttir. Þeirra módel eru
Soffía Weishappel og Kristjana
Þorgeirsdóttir. I flokki hárskera-
nema keppa Harpa Hjálmtýsdóttir
og Þuríður Halldórsdóttir.
Torfi Geirmundsson, varaform-
aður Sambands hárgreiðslu- og
hárskerameistara, sagði að keppn-
ir í hárgreiðslu og hárskurði hefðu
verið stundaðar í tugi ára. Næsta
. heimsmeistarakeppni, sem yæri sú
23. í röðinni, yrði haldin I Rotter-
dam í Hollandi, en heimsmeistara-
keppni er haldin annað hvert ár
eins og reyndar Evrópukeppni.
Jafnframt eru haldnar ýmsar aðrar
keppnir í faginu svo sem Land-
skeppnir, Evrópubandalagskeppni,
Gullni túlipaninn í Hollandi, Gullna
Greiðan í Júgóslavíu, Haustdagar
í Belgíu auk opinna keppna í
Þýskalandi, Frakklandi, Luxem-
borg, Vín, Englandi, Tailandi, Jap-
an og fjórum fylkjum Banda-
ríkjanna. Að sögn Torfa eru allar
þessar keppnir vel sóttar og sem
dæmi nefndi hann að um ein millj-
ón manna hafi sótt heimsmeistara-
keppnina, sem haldin var í Dús-
seldorf á síðasta ári.
eftir Þorstein
Pálsson
Ingólfur Margeirsson, ritstjóri
Alþýðublaðsins, fullyrðir í yfirlýs-
ingu, sem birt er í Morgunblaðinu
í dag, þriðjudag 26. september, að
Alþýðublaðinu hafi ekki verið
kunnugt um það leynisamkomulag
stjórnarflokkanna að greiða að-
stoðarmanni Stefáns Valgeirsson-
ar laun úr ríkissjóði og titla hann
í því skyni deildarstjóra í forsætis-
ráðuneytinu. Upplýst er, að fyrir
þessari ákvörðun er hvorki fjár-
hagsleg né lagaleg heimild.
Staðhæfingar mínar hér í blað-
inu síðastliðinn laugardag um, að
Alþýðublaðið hafi þagað yfir þess-
ari vitneskju í heilt ár byggjast á
því, að ritstjóri blaðsins situr fundi
þingflokks Alþýðuflokksins og
fylgist því með ákvörðunum og
samþykktum sem þar eru gerðar.
Honum hlýtur því að hafa verið
kuhnugt um samkomulagið nema
„En heldur er það
ótrúlegt að ritstjórinn
hafi af þeim sökum
ekki haft vitneskju um
málið í heilt ár. Það
bendir til þess, að
þessum upplýsingum
hafi vísvitandi verið
haldið leyndum fyrir
honum. Hvers vegna?
Hvað réð þögn Al-
þýðuflokksráðherr-
anna?“
því hafi verið haldið leyndu fyrir
þingflokknum. Mikilvægt er að það
atriði verði upplýst án tafar.
Leyndi Jón Baldvin Hannibalsson
þingflokkinn upplýsingum um bitl-
inga til Stefáns Valgeirssonar og
samstarfsmanna hans? Þar var þó
um að ræða kaupverð fyrir ráð-
herrastóla Alþýðuflokksins.
Vissulega er ekki hægt að úti-
loka þann möguleika, að ritstjóri
Alþýðublaðsins hafi verið fjarver-
andi á fundi, þar sem skýrt var
frá samkomulaginu við Stefán
Valgeirsson. En heldur er það ótrú-
legt að ritstjórinn hafi af þeim
sökum ekki haft vitneskju um
málið í heilt ár. Það bendir til þess,
að þessum upplýsingum hafi vísvit-
andi verið haldið leyndum fyrir
honum. Hvers vegna? Hvað réð
þögn Alþýðuflokksráðherranna?
Aðalatriðið er, að staðreyndir
þessa máls verði leiddar í ljós. Því
skora ég á ritstjóra Alþýðublaðs-
ins, formann Alþýðuflokksins og
þingmenn flokksins að upplýsa,
hvenær nákvæmlega þeim varð
kunnugt um þetta hneyksli?
Höfundur er formnður
Sjálfstæðisflokksins.
Morgunblaðið/Þorkell
Anna G. Jónsdóttir, Dóróthea Magnúsdóttir og Helga Bjarnadóttir
æfa hér viðhafnargreiðslur á módelum sínum, þeim Steinunni Sva-
varsdóttur, Berglindi Björgúlfsdóttur og Kristínu Kristjánsdóttur.
Viðhafnarkjólar eru allir sérhannaðir og saumaðir af íslendingum.