Morgunblaðið - 27.09.1989, Side 34

Morgunblaðið - 27.09.1989, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989 t Eiginmaður minn og faðir okkar, EINAR S. JÓSEPSSON, Ásvallagötu 2, lést í St. Jósefsspítala, Landakoti, þann 25. september. Stefanía Ottesen og dætur. t Eiginmaður minn, SIGURJÓN GUÐJÓNSSON, Hólagötu 10, Vestmannaeyjum, lést í Landspítalanum sunnudaginn 24. september. Sigurbjörg Jónsdóttir. t Elsku litla dóttir okkar, ANNA KRISTÍN, andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans 25. september. Jarðar- förin ákveðin síðar. Ingunn Ástvaldsdóttir, Ottó Eiríksson. t Eiginmaður minn, SVEINN JÓNSSON, Hvassaleiti 101, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum föstudaginn 15. september sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Guðný Pálsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir og afi, ÁGÚST JÓHANNESSON, Faxabraut 32c, Keflavík, verður jarðsettur frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 28. september kl. 14.00. Bergljót Ingólfsdóttir, Jóhannes Ágústsson, Hrólfur Brynjar Ágústsson, Guðrún Ágústsdóttir, Oúa Berg. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNHEIÐUR THORARENSEN BOGADÓTTIR, Vallholti 36, Selfossi, lést laugardaginn 23. september í Sjúkrahúsi Suðurlands. Hartmann Antonsson, Anton Hartmannsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Pétur Hartmannsson, Jórunn Ingimundardóttir, Ásbjörn Hartmannsson, Jóna Bára Jónasdóttir, Skúli Hartmannsson, Auður Haraldsdóttir og barnabörn. Útför t GUÐLAUGS UNNARS GUÐMUNDSSONAR, Lönguhlið 3, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28. september klukkan 15.00. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ARNFRÍÐAR SIGURBERGSDÓTTUR, fór fram frá Áskirkju þann 25. september i kyrrþey að ósk hinnar látnu. , Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug. Börn, tengdasonur, barnabörn og barnabarnabörn. Jóhanna B. Guðjóns- dóttír — Kveðjuorð Fædd 25. september 1900 Dáin 9. ágúst 1989 Þegar við, sem komin erum nokk- uð til aldurs og lítum yfir farinn veg, koma minningar bernsku- og æskuáranna æ betur upp í hugann. Það, sem þá virtist svo sjálfsagt og auðvelt, verður manni nú undr- unarefni. Er við leiðum hugann að því margbreytilega samhengi og ólíku aðstæðum, sem fólk bjó við, sjáum við annars hve margslungin saga lífsreynsla aldraðra er. Þessi fátæklega, síðbúna kveðja, sem hér er færð í letur, til húsmóð- urinnar í Árholti — aldamótabarns- ins — nýtur sín ekki, nema hús- bóndans sé getið að nokkru, því svo samrýnd og nátengd eru þau minn- ingunni í mínum huga. Jóhanna Bjarney Guðjónsdóttir fæddist á Arnarnúpi í Keldudal i Dýrafirði 25. september árið 1900 og var því á 89. aldursári er hún lést í Landspítalanum 9. ágúst sl. Foreldrar hennar voru Guðjón Þorgeirsson bóndi og kona hans Elínborg Guðmundsdóttir. Þeim varð 13 barna auðið og var Jóa þriðja í röðinni. Jóa ólst svo upp í föðurgarði, fjölmennu, myndar- heimili, og stundaði þar algeng sveitastörf allt til manndómsára. Æskustöðvunum unni hún alla tíð. 19. janúar 1924, var mikill gæfu- og gleðidagur í lífi Jóu. Þá gekk hún að eiga ungan og glæsilegan mann, Þorleif Júlíus Eggertsson frá Árholti í Haukadal. Þar stofnuðu ungu hjónin svo sitt heimili og þar eignuðust þau börnin sín fjögur, en þrjú eru á lífi. Þau eru: Þórdís, Jón Snorri og Guðmunda, allt myndar- fólk. Hugurinn leitar vestur á Firði, í dalinn okkar, Haukadal, þar sem Til greinahöfunda Aldrei hefur meira aðsent efni borizt Morgunblaðinu en nú og því eru það eindregin tilmæli rit- stjóra blaðsins til þeirra, sem óska birtingar á greinum, að þeir stytti mál sitt mjög. Æskilegt er, að greinar verði að jafnaði ekki lengri en 2-3 blöð að stærð A4 í aðra hvetja línu. Þeir, sem óska birtingar á lengri greinum, verða beðnir um að stytta þær. Ef greinahöfundar telja það ekki hægt, geta þeir búizt við verulegum töfum á birt- ingu. Minningar- og afinælisgreinar Af sömu ástæðum eru það ein- dregin tilmæli ritstjóra Morgun- blaðsins til þeirra, sem rita minn- ingar- og afmælisgreinar í blaðið, að reynt verði að forðast endur- tekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri greinar eru skrifað- ar um sama einstakling. Þá verða aðeins leyfðar stuttar tilvitnanir i áður birt ljóð inni í textanum. Almennt verður ekki birtur lengri texti en sem svarar einni blaðsíðu eða fimm dálkum í blaðinu ásamt mynd um hvern einstakling. Ef meira mál berst verður það látið bíða næsta eða næstu daga. Ræður Töluvert er um það, að Morgun- blaðið sé beðið um að birta ræð- ur, sem haldnar eru á fundum, ráðstefnum eða öðrum manna- mótum. Morgunblaðið mun ekki geta orðið við slíkum óskum nema í undantekningartilvikum. Ritstj. Bróðir okkar, t SKÚLI PÉTURSSON bóndi, Nautaflötum, Ölfusi, verður jarðsunginn frá Kotstrandarkirkju föstudaginn 29. sept- ember kl. 14.00. Systkini hins látna. t Útför MARGRÉTAR SIGFRÍÐAR SÍMONARDÓTTUR, Skeggjagötu 6, Reykjavík, verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. september kl. 15.00. Baldur Steingrímsson, Steingrímur Baidursson, Fri'ða Ásbjörnsdóttir, Höskuldur Baldursson, Magdalena Búadóttir og barnabörn. t Útför eiginkonu minnar, móður okkar og dóttur, HULDU RÓBERTSDÓTTUR, Sólbarði, Bessastaðahreppi, verður gerð frá Bessastaðakirkju fimmtudaginn 28. september kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á Krabba- meinsfélag íslands. Sveinbjörn Hrafn Sveinbjörnsson, Hrafnhildur Sveinbjörnsdóttir, Björn Sveinbjörnsson, Margrét Sveinbjörnsdóttir, Þórlaug Guðmundsdóttir, Róbert Bjarnason. bernsku- og æskusporin liggja. Þá var allt svo gott og tryggt, tilveran björt, þótt margvíslegt mótlæti sýndi sig líka. Hönd hins mikla al- mættis hélt vemdarsprota sínum yfir börnum dalsins og lyfti þeim yfir örðugleika hversdagsins. Mínar fyrstu minningar tengjast einmitt Árholti — heimilisfólkinu, frændfólki mínu, umhverfinu, kannski ekki furða, því þar er ég borinn og barnfæddur. Þarna bjuggu þau heiðurshjón Jóa og Leifi, eins og þau voru nefnd dagsdaglega, ásamt börnum sínum, öldruðum foreldrum og öðmm, sem þar vom til heimilis. Eg minnist þess ávallt, hve gott var að koma þangað, hvort sem það var nú seint eða snemma á degi, hvort sem snáðinn var lítill eða maðurinn stór. Móttökur allar voru svo hiýjar og vinalegar. Fólkið allt var svo elskulegt og heimilisbragur allur til fyrirmyndar, einstök snyrti- mennska og myndarskapur yst sem innst. Fallegt, hlýlegt heimili, sem bar húsbændum sínum fagurt vitni. Þetta var Árholt. Húsið við ána. Þangað var gott að eiga erindi. Jóa og Leifi voru myndarleg hjón. Hann var hár og spengilegur, svip- mikill, léttur í lund og bar sig vel. Hún var lagleg kona, sem ekki var hægt annað en að veita eftirtekt, glaðleg og hress í bragði, háttvís og prúð til orðs og æðis, en hún hafði sínar skoðanir og náði þeim oftast fram með lagni og lipurð. Þarna áttu þau hjón sín bestu æviár, en erfiðleikarnir, veikindin, kvöddu alltof fljótt dyra. Langt um aldur fram, varð frændi minn, Leifi, að hverfa frá sinni elskuðu fjölskyldu og dvelja nær helming ævinnar innan veggja sjúkrahúsa, uns yfir lauk í ársbyij- un 1983' Þetta voru erfiðir tímar hjá ungri móður og börnum, en Jóa sýndi það þá og síðar, að hennar sálarþrek, ást og elja, varð þess megnug, að standast alla brotsjói lífsins. Fjölskyldan flutti svo suður 1942. Með ótrúlegri seiglu, trú og dugn- aði, tókst Jóu furðu vel að halda utan um sína og sitt. Hún var sívinnandi, heima og heiman, enda fleygt niður á flest og vandvirknin eftir því, samt hafði hún alltaf nægan tíma til móðurlegrar um- hyggju börnum sínum og umvafði maka sinn ást og kærleika, eftir því sem tími gafst. Þannig tókst henni og þeim hjónum að treysta enn um sinn fjölskylduböndin. Þegar svo árin færðust yfir og kraftar þrutu, naut hún ástríkis barna sinna og þeirra fjölskyldna, sem reyndu á allan hátt að létta henni ævisporin. Síðustu árin dvaldi hún á heimili dóttur sinnar Guðmundu og tengda- sonar, Jónasar Jóhannssonar, og segja má, að þar hafi þau hjónin borið hana á höndum sér. Útför þessarar mætu konu var gerð frá Seltjarnarneskirkju, 16. ágúst sl. að viðstöddu fjölmenni. Að lokum þakka ég Jóu fyrir samfylgdina á liðnum árum og bið góðan Guð að vera með henni og ástvinum öllum, sem á undan eru gengnir. Aðstandendum öllum, nær og fjær, flyt ég og fjölskylda mín sam- úðarkveðjur. Jón Þ. Eggertsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.