Morgunblaðið - 27.09.1989, Page 14

Morgunblaðið - 27.09.1989, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989 GARÐUf ? s.62-1200 62- 1201 L Skipholti 5 2ja-3ja herb. 1 Eyjabakki. 2ja herb. 74,1 fm íb. á 3. hæð (efstu) í blokk. íb. og sameign í mjög góðu ástandi. Verð 4,3 millj. Laus strax. Barmahlíð. 3ja herb. góð kjíb. lítið níðurgr. íb. var mjög mikið endurn. fyrir 3 árum m.a. baðherb. og eldhús. Verð 4,6 millj. 4ra-6 herb. Feilsmúli. Vorum að fá í einkasölu óvenju skemmti- lega 4ra-5 herb. 120 fm endaíb. á 3. hæð í blokk. Bílsk. fylgir. Mjög góð staðs. Skipti á 3ja herb. m. bílsk. kemur til greina. Hraunbær. 4ra herb. íb. á efstu hæð í blokk. Góð íb. Þvherb. í íb. Suðursv. Mikið útsýni. Hátún. 4ra herb. hæð í tvíb.húsi, sérinng. Parket. Nýtt gler. Bílskúr. Góður garður, staður. Verð 6,7 millj. Hæð - Hlíðar. 4ra herb. íb. á 1. hæð í fjórb. steinhúsi á góð- um stað i Hlíöunum. Bílsk. Sér- hiti. Verð 6,7 milij. I hjarta borgarinnar. Falleg 3ja-4ra herb. íb. á tveim hæðum í nýl. stein- húsi í gamla miðbænum. Tvennar svalir. Vandaðar innr. íb. fyrir sérstakt fólk. Einbýli - Raðhús Hafnarfjörður. Einb. á einni hæð 155 fm. Að auki góður bílsk. Mjög gott hús, nýtt ekki fullb. Hagst. lán. Fannafold. Vorum að fá í einkasölu parh., tvær hæð- ir m. innb. bílsk. 156,8 fm samtals. Húsið skiptist í stofu, eldh., forst. og snyrt. Á efri hæð eru 3 svefnh, sjónvhol og stórt baðherb. Húsið er ekki alveg fullb. Mjög hagst. lán. Engjasel. Endaraðhús, tvær hæðir og kj. að hluta. Fallegt vandað hús. Mjög mikið útsýni. Smáíbúðahverfi. Vor- um að fá í einkasölu eitt af vinsælu húsunum í Smá- íbúðahverfi. Húsið er hæð, ris og hluti í kj. Samtals 169,3 fm. 36 fm bílsk. Góður garður. Lítið einbhús - Hf. Vorum I að fá í einkasölu einb. á einní hæð ca 100 fm auk bilsk. Húsið er steinhús, 5 herb. ib., í mjög góðu lagi. Garður. Draumahús margra. Flúðasel. Raðhús, tvær hæðir, 147,6 fm. Á neðri hæð eru stof- ur, eldhús, þvottaherb. (gengið úti garð), gestasn. og forstofa. Á efri hæð eru 4 svefnherb., sjón- varpsherb. og bað. Bílgeymsla. Hagst. verð. Laust fljótl. Seljahverfi - parhús. Húsið er tvær hæðir og ófrág. kj. Ath! 5 svefnherb. Allar innr. vandaðar og fallegar. Stór ínnb. bílsk. Mjög rólegur og góður staður. Kári Fanndal Guðbrandsson, Axel Kristjánsson hrl. J Ragnheiður Jónsdóttir „Firnindi“ II, verk Ragnheiðar Jónsdóttur. Myndlist Bragi Ásgeirsson Útibú SPRON að Álfabakka 14 í Mjóddinni heldur áfram þeim ágæta sið sínum að kynna íslenzka myndlistarmenn og listamaður septembermánaðar er Ragnheiður Jónsdóttir graflistakona. Ragnheiður hefur lengi verið ein af dugmestu listamönnum þjóðar- innar við sýningarhald erlendis, enda eru þeir fáir markverðir Tvíæringar og stórar alþjóðlegar sýningar á graflist, sem hún hefur ekki tekið þátt í á undangengnum árum. Ég segi þetta si sona vegna þess, að sýningavettvangur íslenzkra myndlistarmanna er ákaflega tak- markaður, og eiginlega hefur mér alltaf fundist Breiðholtið vera út- lönd, og sé ég ekki að nein breyting sé að verða á því. Og til þeirra út- landa kem ég næsta aldrei nema á myndlistarsýningar í SPRON eða menningarmiðstöðinni á Gerðu- bergi! Ragnheiður er og ótvírætt ein af atorkumestu grafíklistamönnum þjóðarinnar og frá hendi hennar koma reglulega hrifamiklar mynda- raðir, þar sem hún tekur fyrir eitt- hvert ákveðið og nærtækt þema, — ósjaldan tengt konunni og réttinda- baráttu hénnar, en á einfaldan og þó markvissan hátt. Það sem henni liggur helst á hjarta virðist vera að virkja þá listrænu kennd, sem með henni býr og sérstöku tækni- brögð, sem hún aðhyllist, á rismik- inn hátt í þágu konunnar. Myndir hennar geta verið mjög ástþrungnar, en boðskapurinn er mjög táknræns eðlis, því að hann segir engar augljósar sögur. En kannski hefur hún íjarlægzt þetta myndmál í síðustu myndröðum sínum eða táknmálið er orðið þeim mun torræðara. Hvað sem öðru líður þá virðist Ragnheiður jafnan vera að skírskota til einhvers í myndum sínum, þær virðast allar segja ákveðna sögu út fyrir hið hreint myndræna. Til að skilja þetta fullkomlega rétt þá væri ekki úr vegi að vísa til hinnar algjörustu andstæðu slíkra viðhorfa, sem sér t.d. stað í verkum Henri Matisse, sem aldrei sagði annað en hina myndrænu sögu, hvert sem viðfangsefnið nú einu sinni var. Kannski er það íslendingurinn og hin skáldlega æð, sem kemur hér fram í verkum Ragnheiðar, en slíkt táknmál innan listarinnar er þó með sanni ekki óþekkt fyrirbæri. Ragnheiður hefur lengi notast Jaftivægi og ft*iður Nýir myndlistarmenn eru alltaf að kveðja sér hljóðs, sumir að ný- loknu námi, en aðrir fara sér mun hægar. Einn af þeim, sem telst til seinni hópsins er tvímælalaust Þóriv Barðdal, sem þessar vikurnar sýnir nokkur marmaraverk í hinu litla en vistlega myndhúsi Sævars Karls Olasonar á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis. Þórir hefur langt nám að baki, en þó kaus hann að hverfa utan eftir fyrstu árin við MHI og sækja um inngöngu í fagur- listaskólann í Stuttgart, og þaðan var hann útskrifaður eftir íjögurra ára nám í myndmótunardeild fyrir fjórum árum. Námið var hið sígilda nám í myndlistarháskólum nútímans, lögð er áhersla á að gerta nemendum kleift að vinna á hinum fullkomn- ustu verkstæðum og fá þar faglega tilsögn, en örfáir prófessorar, sem undantekningarlaust eru starfandi og helst nafnkenndir myndlistar- menn, rýna í verkin. Slíkt er ennþá með öllu óþekkt hér á landi, enda ekki skilningur fyrir því né að fagþekking ágætra kennara getur verið af skornum skammti. Það er einfaldast að skýra þetta á þann veg, að nafnkenndur mynd- listarmaður í t.d. steinþrykki er vafalítið öðrum hæfari að kenna listrænu hliðina, en hann er ekki endilega útlærður þrykkjari, en þar tekur við hlutverk fagmannsins og sá getur verið á heimsmælikvarða sem slíkur án þess að kunna hið minnsta fyrir sér í listum né hafa áhuga á þeim. Það tekur enda heil fjögur ár að ljúka námi í faginu og öðlast full réttindi sem þrykkjari! Þetta og ótal annað er ofur ein- falt fyrir þá, sem þekkja til mála, en getur verið þrautin þyngri að koma óinnvígðum í skilning um. En munurinn er nákvæmlega sá sami og á rithöfundinum og prent- aranum. — Þórir Barðdal hefur farið þá leið að tengja myndheim sinn and- legum og trúarlegum reynsluheimi og hefur valið marmara sem efni- við. Hér leggur hann áherslu á að ná fram mýkt í hið annars harða efni, svo að það virki létt, upphafið og sem laust úr efnisviðjum. Myndir hans eru mjög einfaldar, enda gengur hann iðulega út frá hreinum frumformum, en á bak við einfaldleikann leynist mikil hugsun og hugmyndafræðileg umbrot með djúpu trúarlegu ívafi. Nöfn mynd- anna bera og þessum hugleiðingum vitni eins og t.d. „Viska“, „Inn- ganga“, „Reynsla“, o.s.frv. í órólegum, og hættulegum heimi Húseign í Hafnarfirði Nýkomið til sölu 88 fm 5 herbergja timburhús við Reykjavíkurveg ásamt 63 fm útihúsi (bílskúr og verkstæði). Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 50764. Glæsileg sérverslun Til sölu eða leigu glæsilega innréttuð sérverslun í ca 110 fm stórri verslunarmiðstöð. Einkar skemmtileg verslun. Til afh. strax. Upplýsingar gefur: Huginn, fasteignamiðlun, Pósthússtræti 17, sími 25722. Tungubakki - raðhús 205 fm 4-5 svefnherb. Stórar stofur. Pallahús í góöu ástandi. 28 fm bílskúr. Lítið áhvílandi. Laust fljótlega. Einkasala. EFasteignasalan 641500 | EIGNABORG sf. <f i Hamraborg 12 - 200 Kópavogur 11 Sölum.: Jóhann Hálfdánars. Vilhjálmur Einarss. Jón Eiríksson hdl. Rúnar Mogensen hdl. Námsgagnastoftiun; Tvær nýjar hljóðbækur Á SL. árum hafa tuttugu og sex námsbækur Námsgagnastofnun- ar verið lesnar inn á hljómbönd. Hljóðbækurnar eru einkum ætl- aðar blindum og sjónskertum nemendum en nýtast ekki síður nemendum sem eru hæglæsir eða geta ekki lesið námsbækurnar hjálparlaust. Nú hafa Sjálfstæði íslendinga 3 eftir Gunnar Karlsson og Sam- ferða um söguna bæst við hljóð- bókalista Námsgagnastofnunar. Gunnar Karlsson og Silja Aðal- steinsdóttir lásu inn Sjálfstæði ís- lendinga 3 og eru nú öll þijú bindin af Sjálfstæði íslendinga til á hljóm- böndum. Sigurður Hjartarson og Valgerð- ur Kristjónsdóttir lásu Samferða um söguna en Sigurður er jafnframt þýðandi bókarinnar sem Mál og menning gaf út í samvinnu við Námsgagnastofnun árið 1987. Öllum hljóðbókum er komið fyrir í vönduðum plastmöppum. (Fréttatilkynning) ___________Brids______________ ArnórRagnarsson Stórafmælismót Bridsfélags ísafjarðar Fullskráð er í stórafmælismót Bridsfélags ísafjarðar, og eru nokkur pör á biðlista. Pörum sem ætla á mótið með flugi er benf á að hafa samband við Flugleiðir sem fyrst til að bóka far og ganga frá helgarpakka varðandi mótið, áður en fullbókað verður í flug og hótel. Spilað verður á veitingastaðnum Staupa- steini og hefst spilamennska kl. 18.45, föstudaginn 29. september. Á laugardaginn hefst spilamennska kl. 10.00 árdegis, og reiknað er með að mótinu ljúki um kl. 19.00. Lokahóf með kvöldverði (sem innifal- inn er i keppnisgjaldinu) hefst kl. 20.30. Keppnisgjald er kr. 8.000 á parið og greið- ist við upphaf móts. Rútuferðir verða frá flugvellinum á ísafirði, og einnig frá Hótel ísafirði að keppnisstað. Keppnisstjóri í mót- inu verður ísak Örn Sigurðsson og reikni- meistari Kristján Hauksson. Spilaður er barómeter með þátttöku 36 par, og spiluð verða 3 spil milli para.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.