Morgunblaðið - 27.09.1989, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989
21
Grikkland:
Tengdasonur leiðtoga Nýja
demókrataflokksins myrtur
Aþcnu. Reutcr.
VINSTRI sinnaðir borgarskæruliðar myrtu í gær Paul Bakoyannis, sem
er tengdasonur Constantines Mitsotakis, leiðtoga Nýja demókrata-
flokksins í Grikklandi. Sökuðu þeir Bakoyannis um að hafa aðstoðað
George Koskotas, fyrrum bankasfjóra sem nú er í fangelsi í Banda-
ríkjunum, við að stela fé frá almenningi.
Skæruliðarnir skutu Bakoyannis
af stuttu færi er hann var á leiðinni
í skrifstofu sínj í miðborg Aþenu.
Þeir eru í hreyfingu er nefnist 17.
nóvember en hún reyndi að myrða
lögreglumálaráðheiTa landsins í maí.
Bakoyannis átti sæti á þingi fyrir
Nýja demókrataflokkinn, sem hefur
verið í stjórn ásamt kommúnistum
og fleiri flokkum frá því í júlí. Nokkr-
um klukkustundum eftir morðið hóf-
ust umræður á þinginu um hvort
birta ætti ákærur á hendur Andreas
Papandreou, fyrrum forsætisráð-
herra, fyrir aðild að fjármála-
hneyksli í Krítarbanka. í yfirlýsingu
frá 17. nóvember segir að Nýi demó-
krataflokkurinn og PASOK-flokkur
Papandreous hafi báðir verið viðriðn-
ir bankahneykslið. Bakoyannis hafi
þegið miklar fjárhæðir frá George
Koskotas.
17. september hefur starfað í
Aþenu frá árinu 1975 og er Bakoy-
annis 14. maðurinn sem hreyfingin
hefur myrt.
Paul Bakoyannis
Eignarskattar
Fundur til stofnunar eignarskattsdeildar
Húseigandafélagsins verður haldinn
í kvöid, miðvikudaginn 27. september 1989,
kl. 20.00 í sal Sameignar iðnaðarmanna,
aö Skipholti 70,2. hæð.
Dagskrá:
1. Stofnun eignarskattsdeildar.
2. Almennar umræður.
Ahugafólk um lækkun eignarskatta
er hvatt til að mæta.
Kólumbía:
23látast
af völdum
eitraðs
romms
Hogota. Reuter.
Undanfarna daga hafa 23
menn látist í hafnarbænum
Barranquilla í Kólumbíu eftir
að hafa drukkið eitrað romm.
Að sögn lækna var rommið
heimabruggað og í því var
metanól (öðru nafni tréspírít-
us). Flestir þeirra sem neyttu
hins görótta drykkjar voru
áfengissjúklingar komnir yfir
fimmtugt. Lögregla gerði mik-
ið af heimabruggi upptækt
eftir fyrsta dauðsfallið á mið-
vikudag í síðustu viku. Hafði
það verið á boðstólum í sölu-
tjöldum við höfnina i Barr-
anquilla.
Eiturlyflagróði
hvítþveginn
New York. Reuter.
Bankaeftirlitsmenn í
Bandaríkjunum hafa komist
að því að þúsundir smáfyrir-
tækja, sem aðstoða innflytj-
endur við að senda fé til ætt-
ingja heima fyrir, hafa tekið
þátt í að hvítþvo fíkniefna-
gróða. Kemur þetta fram í
frétt dagblaðsins New York
Times. I mörgum fylkjum
Bandaríkjanna eru lög um
slíka fjármálastarfsemi óljós
og torveldar það eftirlit. Fjár-
málafyrirtækin, sem mörg
hver eru ólögleg, leggja gjarna
fé eiturlyfjasala inn á reikning
í löglegum banka sem er svo
flutt yfir á annan reikning í
öðrum löglegum banka. Oft
er engin leið að rekja hver
lagði féð upphaflega inn á
reikning. Að sögn lögfræðinga
hafa umsvif fjármagnsflutn-
ingafyrirtækja aukist í réttu
hlutfalli við fíkniefnaneyslu í
Bandaríkjunum.
Pólland:
Vodka hækkar
um 120%
Varsjá. Reuter.
I FJORÐA skipti á þessu ári
hækkaði vodka í verði í Pól-
landi á mánudag; að þessu
sinni um 120%. Marek
Dabrowski aðstoðarfjármála-
ráðherra sagði að markmiðið
með verðhækkuninni væri að
draga úr peningamagni í um-
ferð og þarmeð verðbólgu.
Flaskan af Wyborowa vodka
kostar nú 13.900 zloti og er
pólskur verkamaður tvo daga
að vinna fyrir flösku af þeim
drykk.
VIST
ER
VERÐ-
LÆKKUN
Ny sendtng — fjölbreytt úrval.
Allt ad
207«
kynningarafsláttur
á öllum
innihurdum
ncestu 2 vikur.