Morgunblaðið - 27.09.1989, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989
43
I
I
I
I
í
1
I
KÖRFUKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNIN
81 : 112
MorgunblaðiÖ/Einar Falur
Teitur Örlygsson á hér í höggi við bandaríska leikmanninn Kannard Johnson
í liði Bayer Leverkusen. Teitur lék mjög vel í gærkvöldi og skoraði 23 stig þar
af 16 í síðari hálfleik.
íþróttahúsið í Njarðvík, Evrópu-
keppni bikarhafa í körfuknattleik -
fyrri leikur, þriðjudaginn 26. sept-
ember 1989.
Gangur leiksins: 2:0, 6:6, 11:9,
17:18, 17:27, 19:39, 33:53,35:62,
41:70, 48:80, 56:89, 59:93, 63:97,
66:101, 74:107, 79:110 81:112.
Stig UMFN: Teitur Örlygsson 23,
Helgi Rafnsson 13, ísak Tómasson
11, Friðrik Rúnarsson 10, Jóhannes
Kristbjömsson 9, Kristinn Einarsson
7, Friðrik Ragnarsson 5, Ástþór
Ingason 3.
Stig Bayer Leverkausen: Amd
Nevhaus 21, Thomas Deuster 20,
Mortz Kleine-Brockhoff 18, Cristhp
Kömer 15, Henning Harvish 13,
John Johnson 13, Baun Frank 4,
Gunther Behanke 4, Kannard Jo-
hnson 2, Föster Heimo 2.
Áhorfendur: 250.
Dómarar: Damian Eganb frá írlandi
og Mike Constantino .frá Svíþjóð -
þeir dæmdu vel og höfðu góð tök á
leiknum.
■ ■
Oruggur sigur
Leverkausen í Njarðvík
„Njarðvíkingar léku vel og þeir komu okkurtalsvert á óvart
með góðum leik,“ sagði þjálfari Bayer Leverkausen
„IMJARÐVÍKINGAR léku vel og
komu okkur talsvert á óvart
með góðum leik, en ég er
hræddur um að róðurinn hjá
þeim verði erfiðari í siðari
leiknum ytra á þriðjudaginn,"
sagði Dirk Bauermann þjálfari
vestur-þýsku bikarmeistar-
anna Bayer Leverkausen eftir
leik liðanna í Njarðvík í gær-
kvöldi.
Njarðvíkingar, sem ekki styrktu
lið sitt með erlendum leik-
mönnum, náðu'oft að sína ágætan
leik sérstaklega í byijun og eins í
síðari hálfleik. Þeir
riáðu forystunni í
upphafi og það vakti
mikla hrifningu
áhorfenda þegar
Helgi Rafnsson miðheiji- náði að
vinna uppkastið gegn risanum í liði
Leverkausen í byrjun leiksins, en
sá mun vera 2,20 m. á hæð. En sú
dýrð stóð ekki lengi og eftir 5
mínútna leik hafði þýska liðið náð
foi-ystunni og lét hana ekki af hendi
eftir það. Tveir afleitir leikkaflar í
fyrri hálfleik reyndust Njarðvíking-
um dýrkeyptir þegar þýska liðið
breytti stöðunni úr 17:18 í 17:27
og síðan aftur úr 19:27 í 19:39.
Flestir áttu von á að þýska liðið
sem lék með tvo Bandaríkjamenn
myndi kafsigla heimamenn í síðari
hálfleik, en svo reyndist ekki og
munaði þar mestu um stórleik Teits
Örlygssonar sem skoraði 23 stig
og þar af 16 stig í síðari hálfleik
og réðu leikmen þýska liðsins ekki
frekar en aðrir við Teit í slíkum
ham.
Dirk Bauermann þjálfari Lever-
kausen sagði að hann væri langt
frá því að vera ánægður með sína
menn og þeir hefðu leikið talsveil
undirgetu. „Njarðvíkingar eru með
gott lið miðað við að þeir eru að-
eins áhugamenn og þeir náðu oft
að gera okkur lífið leitt, sérstaklega
fannst mér leikmaður nr. 11 (Teitur
Örlygsson) góður,“ sagði Bauer-
mann.
„Ég er ánægður með strákana
þrátt fyrir tapið, því þetta er geysi-
lega góð reynsla fyrir þá að hafa
fengið að leika gegn jafnsterku liði
og Leverkausen,“ sagði Gunnar
Þorvarðarson þjálfari UMFN. „Við
misstum flugið um tíma í fyrri hálf-
leik og það leit ekki vel út um tíma,
en strákarnir gáfust ekki upp og
náðu að halda sínu í síðari hálfleik.
Það er erfitt að leika gegn liði sem
er skipað jafn háunj, leikmönnum
og Leverkausen - þetta er áreiðan-
lega eitt besta félagslið í Evrópu í
dag og það kæmi mér ekki á óvart
þó það ætti eftir að ná langt í
keppninni,“ sagði Gunnar Þorvarð-
arson.
Bjöm
Blöndal
skrifar
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Kostic áf ram
hjáÞór
JUGOSLAVINN Luka Kostic,
miðvörðurinn sterki, hefur
ákveðið að vera áf ram í her-
búðum Þórs og leika með
Akureyrarliðinu í 1. deildar-
keppninni næsta keppn-
istímabil.
Kostic, sem kunni mjög vel við
sig á Akureyri, heldur til
Júgóslavíu í dag. Hann kemur
síðan aftur til landsins í febrúar.
Kostic lék mjög vel með Þórsliðinu
í sumar og á stæstan þátt í að
liðið náði að halda 1. deildarsæti
sínu á góðum lokaspretti.
Luka Kostic verður áfram í her-
búðum Þórs.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN
Fram mætir
Steauaí
Laugardalnum
Valsmenn leika í Austur-Berlín og Skaga-
menn í Liege í Belgíu
FRAMARAR leika seinni leik
sinn gegn Steaua frá Búkarest
í Evrópukeppni meistaraliða á
Laugardalsvellinum ídag kl.
17.15. Steaua-liðið er mjög
öflugt og hef ur verið eitt af
bestu félagsliðum Evrópu und-
anfarin ár.
Með liðinu leika margir lands-
liðsmenn. Frægastur þeirra
er miðvallarspilarinn Gheorghe
Hagi, 24 ára, sem hefur oft verið
kallaður „Maradona Rúmeníu.“
Steaua, sem er lið rúmenska
hersins, vann fyrri leikinn gegn
Fram, 4:0. Liðið var Evrópumeist-
ari 1986 með því að leggja Barce-
lona að velli í Sevilla á Spáni. Ste-
aua komst aftur í úrslit sl. vetur,
en tapaði þá fyrir AC Mílanó, 0:4.
Steaua hefur verið rúmenskur
meistari fímm síðustu árin.
Framarar hafa ákveðið að krakk-
ar fjártán ára og yngri fái ókeypis
aðgang á Evrópuleikinn.
Dómari á Laugardalsvelli í dag
er einn snjallasti milliríkjadómari
Norðmanna, Rune Pedersen. Línu-
verðir hans verða Tore Hollung og
Tetje Singsaas og eru þeir einnig
frá Noregi.
Valur og Akranes leika einnig í
Evrópukeppninni í kvöld. Valsmenn
leika gegn Dynamo Berlín í Evrópu-
keppni bikarhafa í A-Berlín. Aust-
ur-Þjóðverjarnir unnu fyrri leikinn
hér heima, 2:1. Skagamenn leika
gegn FC Liege í UEFA-bikarkeppn-
inni. Belgíumennirnir unnu fyrri
leikinn á Skipaskaga, 2:0.
Það má því búast við að róðurinn
verði þungur hjá íslensku liðinunum
í dag.
ÚRSLIT
Evrópukeppni bikarhafa
Feitletruðu liðin komast í 2. umferð. Samanlögð markatala úr báðum
leikjum er í sviga.
Dinamo Búkarest (Rúmeníu) - Dinamo Tirana (Albaníuþ..........2:0 (2:1)
Dorin Mateut (8.), Iulian Mihaescu (13.)
Grasshopper (Sviss) — Slovan Bratislava (Tékkóslóvakíu).......4:0 (4:3)
Mats Gren (16., 115.), Andy Egli (60.), Marc Strudal (83.). Áhorfendur: 3.400.
Mónakó (Frakklandi) — Belenenses (Poilúgal).................3:0 (4:1)
Weah (30. og 35.), Fabrice Mege (40.). Áhorfendur: 10.000
Real Valladolid (Spáni) - Hamrun Spartans (Möltu)............1:0 (6:0)
Jesus Hidalgo (37.) Áhorfendur: 3.000
Evrópukeppni félagsliða
Jeunesse Esch (Luxemborg) — Sochaux (Frakklandi)...........0:5 (0:12)
Carrasco (8.), Thomas (28., 29. og 53.), Silvestre (38.) Áhorfendur: 1.000.
Videoton (Ungveijalandi) — Hibemian (Skotlandi).............0:3 (0:4)
- Houchen (9.), Evans (59.), Collins (80.)
Vín FC (Austurríki) — La Valletta (Möltu)...................3:0 (7:1)
Jenisch (20.), Balzis (53. og 80.). Áhorfendur: 1.500.
Real Zaragoza (Spáni) — Apollon Limassol (Kýpur)............1:1 (4:1)
Miguel Pardeza (39.) - Pittas (89.).
Antverpen (Belgíu) — Vitosha Sofia (Búlgaríu)................4:3 (4:3)
Geilenkirchen (85.), Claesen (90. og 92.), Quaranta (95.)
Mihtarsky (89.). Áliorfendur: 8.000.
Slavchev (6.), Donkov (87.),
England
2. deild:
Barnsley — Wolverhampton......2:2
Bournemouth —.Poil. Valc.._...1:0
Poitsmouth — Wesl Ham................0:1
Shcffield United — Oldham............2:1
Stoke — Bradford.....................1:1
. Sivjndon — Plvroouth.................3:0