Morgunblaðið - 27.09.1989, Side 44
T-Xöföar til
X X fólks í öllum
starfsgreinum!
SJÓVÁDEALMENNAR
FÉLAG FÓLKSINS
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Flugvallar-
skattur hækk-
ar um 28%
» Flugvallarskattur hækkar 1.
október næstkomandi um 27,8%
í millilandaflugi, úr 900 í 1.150
krónur, og um 25% í innanlands-
flugi, úr 120 í 150 krónur.
„Flugvallarskatturinn hækkaði
síðast fyrir um það bil einu ári og
mér sýnist þessi hækkun núna vera
í takt við verðbólguþróunina á tíma-
bilinu,“ sagði Karl Sigurhjartarson
formaður Félags íslenskra ferða-
skrifstofa. „Ferðaskrifstofurnar eru
ákaflega óhressar með flugvallar-
skattinn. Hann er töluverð gjald-
taka og fer beint í ríkishítina. Þessi
skattur átti að vera tímabundinn
þegar hann var lagður á fyrir mörg-
um árum,“ sagði Karl.
I + + +
Byggðastoftiun:
Umsólm
Stálskipa
um yfirtöku
lána haftiað
Á FUNDI stjórnar Byggðastofn-
' unar sem haldinn var í Stykkis-
hólmi í gær var samþykkt að
hafna beiðni Stálskipa hf. í Hafii-
arfirði, útgerðarfélags Sigureyj-
ar, um að fá að yfirtaka lán
Byggðastofhunar, sem gjaldfellt
var þegar skipið var selt frá
Patreksfirði.
Stjórn Byggðastofnunar sam-
þykkti á fundinum að lána Hrað-
frystihúsinu á Hofsósi 20 milljónir
króna til að leggja fram sem hluta-
fé í Útgerðarfélagi Skagfirðinga.
Umsókn llaulu hf. í Hafnarfirði,
sem óskað hafði eftir 10 milljóna
kr. láni til að leggja fram sem
hlutafé í rekstri mjólkurbús á Hellu,
var hins vegar hafnað. Þá sam-
1 þykkti stjórn Byggðastofnunar að
fela forstjóra stofnunarinnar að
semja við Patreksfirðinga um sölu
á togskipinu Þtym, en Byggða-
stofnun keypti skipið á nauðungar-
uppboði á Patreksfirði í lok ágúst.
„Hvalrekinn hið mesta kvalræði“
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Búrhvalurinn, sem rak á land hjá bænum Syðra-Lóni skammt
fyrir utan Þórshöfti, verður að öllum líkindum dreginn á haf út
einhvern næstu daga og sökkt þar. Brynhildur Halldórsdóttir
bóndi á Syðra-Lóni sagðist vona að hún fengi aðstoð dragnóta-
báts frá Þórshöfn við það verk, en ferlíkið er um 15 metra langt.
„Þatta er hið mesta kvalræði að eiga við og nauðsynlegt að fjar-
lægja hræið sem fyrst, áður en það fer að rotna,“ sagði Bryn-
hildur. Á myndinni sjást tveir strákar frá Þórshöfn sem lögðu
leið sína ásamt fleirum að Syðra-Lóni til að líta á hvalrekann í gær.
I athugxin að Stakfell
frysti nsk við Kanada
MÖGULEGT er að um borð í
Stakfelli ÞH, togara Útgerðar-
Kaupfélag Hvammsflarðar:
Uppboð fellt niður
veg’iia formg’alla
ÞRIÐJA og síðasta pppboð á eignum þrotabús Kaupfélags
Hvammsfjarðar á Búðardal, sem fara átti fram I gær, var fellt
niður, þar sem formgalli var á fyrri uppboðum. Byrja verður
því uppboðsmál upp á nýtt og verður reynt að ná samkomu-
lagi með kröfiihöfúm og þrotabúinu um að flýta málinu og selja
eignirnar á fyrsta uppboði
Kaupfélag Hvammsfjarðar var
tekið til gjaldþrotaskipta í lok
maí. I gær átti að fara fram 3.
og síðasta sala á fasteignunum
að Austurbraut 8, 10 og 12, sem
eru trésmíðaverkstæði, verslun,
bakarí, fóðurlager, verkstæði og
fleira. Rekstur þessara fyrirtækja
hefur verið leigður út frá því að
til gjaldþrotaskipta kom. Komið
hefur hins vegar í ljós, að form-
galli var á 1. og 2. uppboði og
hafa uppboðsbeiðendur afturkall-
að kröfur sínar og munu þeir
leggja fram nýjar. Formgallarnir
felast í því, að tvær þeirra eigna,
sem selja átti í gær, höfðu ekki
verið teknar með á fyrri upp-
boðum.
Að sögn Georgs Kr. Lárusson-
ar, setts sýslumanns í Dalasýslu,
er stefnt að því að uppboð fari
fram að nýju fyrstu dagana í des-
ember, líklega þann 4. Hann sagði
að reynt yrði að ná samkomulagi
með kröfuhöfum og þrotabúinu
um að eignirnar yrðu seldar þá,
á fyrsta uppboði, svo málið tefðist
ekki meira en orðið er.
Stærstu kröfuhafar eru Sam-
vinnubankinn, Iðnlánasjóður,
Byggðastofnun og Búnaðarbank-
inn. Bústjóri er Sveinn Sveinsson
lögfræðingur, en settur skiptaráð-
andi Rúnar Guðjónsson, sýslu-
maður Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu.
félags Norður-Þingeyinga á
Þórshöfii, verði frystur fiskur
við austurströnd Kanada tvo
mánuði á ári. Fiskurinn yrði
trúlega veiddur af kanadískum
bátum, sem gerðir eru út frá
stöðum á austurströnd Kanada
þar sem afkastageta frystihúsa
er lítil, að sögn Grétars Frið-
rikssonar framkvæmdastjóra
Útgerðarfélags Norður-Þingey-
inga. Fulltrúi félagsins fór fyrir
skömmu til Halifax í Kanada til
að ræða við heimamenn um
þessi mál.
„Stakfellið er svo til búið með
aflakvóta sinn á þessu ári en það
mun í haust frysta síld sem fimm
norðlenskir bátar veiða,“ sagði
Grétar Friðriksson. „Það gengur
ekki upp í óðaverðbólgu og vaxta-
okri að hafa skipið bundið við
bryggju það sem eftir er ársins
og við höfum ekki efni á að kaupa
þorskkvóta fyrir 25 krónur kílóið,“
sagði Grétar. Hann sagði að Stak-
fellið hefði getað veitt 3.000-3.500
tonn af þorski árið 1983 en nú
hefði skipið einungis 1.500 tonna
þorskkvóta.
Vörubíll veltur á
Akranesvegi
Vörubíll með malarhlass valt á
hliðina á inótum Akranesvegar
og Grundartangavegar í gær.
Bíllinn valt þegar hann kom út
úr beygjunni, en ekki er vitað
hvað olli óhappinu. Bíllinn var á
leið niður á Akranes frá malar-
námi við Grundartangaveg, og
slapp ökumaðurinn sem var einn
í bílnum ómeiddur.
Endurvinnslan hf.:
Sex milljón dósir hafa safnast
ENDURVINNSLAN hf. hefiir tekið á móti rúmlega sex milljónum ein-
nota öl- og gosdrykkjaumbúðum frá því að móttaka þeirra hófst hér
á landi þann 8. ágúst síðastliðinn.
„í upphafi vissum við ekkert
hversu mikið myndi skila sér. Við
renndum alveg blint í sjóinn og voru
allar okkar spár byggðar á getgátum.
Hins vegar gerðum við t'áð fyrir að
mánaðarleg sala yrði fjórar til fimm
milljónir dósa á Iandinu öllu. Við
erum að vona að fólk verði sem skil-
vísast því hér er vissulega um verð-
mæti að ræða,“ sagði Gunnat' Braga-
son, framkvæmdastjóri Endurvinnsl-
unnar hf. Skiiagjaldið er 5 krónur
fyrir dósina.
Rétt unt fjörtíu móttökustaðir
Endurvinnslunnar hf. eru úti á lands-
byggðinni og um fimmtán á höfuð-
borgarsvæðinu, en ætlunin er að
fjölga þeim enn frekar, að sögn
Gunnars. Nú hafa verið teknar í
notkun í um tuttugu verslunum á
landinu vélar, sem taka við áldósum.
Vélarnar prenta út inneignarnótur
fyrir andvirði dósanna. Eftir því sem
verslunum, sem taka á móti umbúð-
um, fjölgar_loka upphafiegir mót-
tökustaðir. Áfram verður samt opið
í Dugguvogi 2 og þangað er hægt
að skila beygluðum og illa leiknum
umbúðum. Verslanir Kaupstaðar og'
Miklagarðs hafa byggt upp aðstöðu
til að taka á möti öllum tegundum
umbúða, það er gleri, áli og plasti.
Þær munu greiða út í peningum ef
tekið er á móti 70 umbúðum eða
rneira sé þess óskað. Að öðrum kosti
verða afhentar inneignarnótur og
þeim er hægt að safna saman vilji
fólk koma með minna dósamagn i
einu.