Morgunblaðið - 07.10.1989, Page 10

Morgunblaðið - 07.10.1989, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989 Þorstein Gylfason: Óskráðar reglur Mér skilst að uppistaðan í vörn Magnúsar Thoroddsen fyrrum hæstaréttarforseta, í máli því sem dómsmálaráðherra hefur höfðað á hendur honum fyrir óhæfileg áfengiskaup, sé sú að hann hafi engar reglur brotið. Nú á dögun- um sagðist Jón Baldvin Hannib- alsson utanríkisráðherra hafa hugleitt að segja af sér vegna óreiðu á áfengiskaupum, en hætt við það vegna þess að hann hafi engar reglur brotið. Báðum yfir- sést hrapallega. Þeir sjá ekki, eða þykjast ekki sjá, að skráðar regl- ur eru ekki einu reglurnar sem við búum við í mannlegu félagi. Það eru til óskráðar reglur líka. Einn starfsbróðir minn í Há- skóla íslands gerði mikinn grein- armun á einkabréfum sínum ann- ars vegar og bréfum sem hann skrifaði vegna starfs síns hins vegar. Einkabréfin frímerkti hann sjálfur á eigin kostnað, en lét frímerkjavél Háskólans um hin. Þessa reglu hafði hann lært af afa sínum sem var frægur sérvitringur í Stjórnarráðinu. Svo komst hann að raun um að þessi siður hans var almennt aðhláturs- efni í Háskólanum. Þannig lærð- ist honum sú óskráða regla um hlunnindi háskólakennara að einkabréf þeirra mættu fljóta með öðrum pósti úr skrifstofum þeirra. Nokkrum árum síðar varð annar háskólakennari að athlægi fyrir það að elta uppi háskólaritara, oft með ærinni fyrirhöfn, til að biðja hann leyfis í hvert skipti sem hann þurfti að hringja til útlanda í erindum Háskólans. Þannig lærðist honum sú óskráða regla að háskólakennari mætti sjálfur meta hvort hann þyrfti að hringja til annarra landa starfs síns vegna eða ekki. Hér höfum við dæmi um óskráðar reglur. Önnur veitir hlunnindi, hin veitir réttindi. Það er tvennt athyglisvert við reglurn- ar. Annað er að þær eru ekki auðlærðar. Stundum þarf að gera sig að fífli til að ná þeim. Satt að segja morar allt mannfélagið af óskráðum reglum sem engum manni endist ævin að læra til fulls. Hitt er að þegar þær hafa lærzt liggur oftast nær í augum uppi hverjar þær eru og hvað eru brot á þeim. Þannig blasir það við að þótt ég geti látið frímerkja- vélina um eitt eða.tvö kunningja- bréf ásamt með starfsbréfum mínum í hverri viku, þá get ég ekki látið Háskólann frímerkja fimmtíu boðskort í einkasam- kvæmi heima hjá mér, hundrað þakkarkort fyrir auðsýnda samúð vegna fráfalls ættingja míns e<3a boðsmiða á fi’umsýningar ís- lensku óperunnar (svo vill til að ég sit í stjórn hennar). Rétti mínum til að ráða því sjálfur hve- nær ég hringi til útlanda úr Há- skólanum fylgir auðvitað ekki réttur til að rabba í síma við kunn- ingja mína út um allan heim í vinnutímanum. Þetta sér hver heiivita maður. Þetta sér hver siðaður maður. Alveg eins og hver maður sér að þó að fólk fái samkvæmt óskráðri reglu frítt kaffi ómælt á vinnustað, þá er ekki þar með sagt að það geti líka fyllt brúsa á kvöldin til að hafa heim með sér. Nú sáum við að óskráðar regl- ur eru ekki auðlærðar. Og þetta kynni að virðast vera vörn í mál- um utanríkisráðherra og fyn"ver- andi forseta Hæstaréttar. Þeir séu óvart ámóta tregir á óskráðar reglur og háskólakennararnir tveir, og þess vegna eigi bara að hlæja að þeim eins og hlegið var að háskólakennurunum. En ég get ekki séð að þessi vörn stand- ist með minnsta móti. Astæðan til þess er sú meginregla, sem mér virðist vera, að þegar óskráð regla tryggir manni hlunnindi, þá beri þessum manni siðferði- leg skylda til að ganga úr skugga um hver reglan sé, og hvernig hún er hugsuð, áður en hann byrjar að neyta hlunn- indanna. Ekki hvað sízt ef hann á sjálfdæmi um hlunnindin eins og háskólakennari á um símtöl sín og ráðherrar eiga um vínveit- ingar sínar. Þetta hygg ég að hver heilvita maður sjái í hendi sér og þar með hver siðaður maður líka. „Hér er frítt kaffi allan daginn,“ er sagt við nýjan starfsmann á vinnustað. Og auð- vitað spyr hann ef möguleikinn hvarflar yfirhöfuð að honum: „Má ég hafa heim með mér á brúsa eftir vinnu?“ Þannig bar þeim Magnúsi Thoroddsen og Jóni Baldvin Hannibalssyni tvímælalaus skylda til að kynna sér hefðina sem tryggði þeim umrædd hlunn- indi og hugsunina í henni, áður en þeir gripu símann í fyrsta sinn og gerðu pöntun hjá Afengis- verzlun ríkisins, einkanlega ef þeir eru yfirleitt ámóta ónæmir á óskráðar reglur og til dæmis h'á- skólakennararnir tveir sem ég sagði frá. Þeir hefðu þá getað spurt hvort þessi hlunnindi væru hugsuð sem launauppbót. Eða hvort þau væru sambærilegur glaðningur við þann að öllum ríkisstarfsmönnum gafst til skamms tíma kostur á að kaupa áfengi á vildarverði fyrir jólin. Það er trúlegt að þeir hefðu alls staðar fengið sama svarið: þessi hlunnindi eru hugsuð sem rísna. Nú er hugsanlegt að þeir hefðu ekki skilið orðið rísna. Þegar svo stendur á er til dæmis hægt að fletta upp í Orðabók Menningar- sjóðs. Þar stendur: „risna: veit- ingar af hálfu handhafa embættis vegna stöðu sinnar.“ En flestum mönnum mundi reynast óþarft að halda uppi víðfeðmum fyrir- spurnum og fletta upp í bókum í þessu skyni. Allt þetta sér hver heilvita maður. Það sér hver sið- aður maður. En utanríkisráðherra og fyrr- verandi forseti Hæstaréttar sjá það ekki. Og grunur minn er sá að það sé hárrétt sem ég hef heyrt haft eftir þeim félögum báðum: „Hinir eru ekkert betri!“ Biskup vígii* kapellu Borgarspítalans BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, vígir kapellu á Borgarspíta- lanum á morgun, sunnudaginn 8. október, klukkan 16. Sú hugmynd að taka frá til helgunar afmarkað rými á sjúkrahúsinu, hefir lengi verið til staðar. Pyrir atbeina félags velunnara Borgarspítalans var hafist handa við undirbúning framkvæmda og sjóður stofnaður. Kapellunni, sem rúmar 15-20 manns í sæti, var valinn staður á fyrstu hæð B-álmu spítalans. Odddfellowstúkan Þormóður goði hefur sýnt þessu verkefni mikla ræktarsemi, gefið allar inn- réttingar, húsgögn, altarisbúnað og messúklæði. Onefndir aðilar hafa lagt fram fjárupphæðir, sjúklingar, aðstandendur og starfsfólk. Gunnar Theódórsson innanhúss- arkitekt teiknaði kapelluna ög í samvinnu við hann unnu listamenn- irnir ívar Björnsson, gullsmiður, og a Guðrún Vigfúsdóttir, vefari, kirkju- gripi og skrúða. Kapellan er opin og þangað geta menn sótt og verið ótruflaðir í einrúmi eða með öðrum. Þar verður reglubundið helgihald, en almennar sunnudagsguðsþjón- ustur verða eftir sem áður á fjórðu hæð Borgarspítalans. (Frcttatilkynning) 011 Kfl 01 07fl LÁRUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri L I I UU ’ L I 0 1 W KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. LÖGG. FASTEIGNASr Til sýnis og sölu auk annarra eigna: Fyrir smið eða laghentan 2ja-3ja herb. stór og góð íb. á vinsælum stað í Garðabæ. Komin und- ir tréverk nú þegar. Óvenju hagstæð greiðslukjör. Teikn. á skrifst. Ennfremur nokkrar eignir í borginni á nágr. sem þarfnast endurbóta. Nánari uppl. á skrifstofunni. í reisulegu steinhúsi - 9 ára í austanverðum Laugarásnum 3ja herb. úrvalsíb. á 1. hæð um 80 fm nettó. Sérþvottah. Geymsla í kj. JP-innrétting. Ræktuð lóð. Stór og góður bílskúr. Endurnýjuð á góðu verði 4ra herb. íb. á 1. hæð við Hraunbæ. Nýtt eldh., nýtt bað o.fl. Góðir skápar. Geymsla í kj. Skuldlaus. Hentar m.a. þeim sem hafa lánsloforð. Ennfremur góðar 4ra herb. íb. við Dalaland, Sólheima, Langholtsveg, Álfheima, Lynghaga og Sporhamra. 2ja herb. góðar íbúðir í gamla Vesturbænum - öll ný endurbyggð- og í gamla Austurbænum - míkið endurbætt. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga. Hagkvæm skipti möguleg Nokkur mjög góð eínbýlish., raðh. og parh. til sölu í skiptum fyrir góð- ar hæðir í borginni. Teikningar með nánari upplýsingum á skrifstofunni. Gegn útborgun Þurfum að útvega 3ja-4ra herb. íbúðir, 4ra-6 herb. íbúðir, sérhæðir, raðhús og einbýlishús að meðalstærð í borginni. Rétt eign verður borguð út. Opið i dag laugardag ALMENNA kl. 10.00 tilkl. 14.00. Fjöldi fjársterkra kaupenda. FASTEIGNASALAN LflUGAVEGI 18 SÍMAR 21150-21370 Umsjónarmaður Gísli Jónsson Stundum ofbýður mér. Maðúr nokkur, sem rætt var við í sjón- varpsfréttum, sagði orðrétt: „Við erum að byggja upp fyrir- tækið vélalega séð.“ Mér finnst að hann hefði getað sagt þetta á margan hátt og miklu skap- legri: Við erum að vélbúa fyrir- tækið; við erum að bæta (við) vélakost fyrirtækisins; við erum að efla fyrirtækið með betri vél- um; vélbúnaður fyrirtækisins er nú að verða miklu betri en áð- ur, eða bara: Við erum að fá okkur miklu meira af vélum. Þessi ósköp, “ .. .lega séð“ vaða uppi í máli manna. Heyrt hef ég „pípulagningalega séð“, og er þá langt gengið á vegi málspjallanna. Eg veit að menn geta séð sæmilega, ágætlega, greinilega eða ógreinilega, en hvernig menn sjá „pípulagn- ingalega“ og „vélalega“ er mér hulin ráðgáta. ★ í útvarpsfréttum var sagt frá fólki sem berðist gegn þeim „ráðahag“ að urða sorp á til- teknum stað. Mér þykir ákaflega hæpið að nota orðið ráðahagur í þessu sambandi. Ráðahagur merkir nær ætíð kvonfang. Að leita ráðahags er að biðja sér stúlku. í fornu máli gat ráða- hagur merkt efnahagur, og í undantekningardæmum telst ráðahagur=ráðslag, svo að orðalag fréttarinnar var kannski verjandi með ítrasta góðvilja. Ráðslag eða ráðlag telur Orðabók Menningarsjóðs merkja háttarlag, hegðun eða athæfi og setur í sviga hyggilegt. Stundum hefur þó ráðslag niðrandi merk- ingu og sögnin að ráðslaga. Hallgrímur Pétursson kvað: Mjög árla uppi vóru öldungar Júða senn, svo til samfundar fóru. Fyrstir þó kennimenn . í ráðslag létu leiðast, líkar það öllum vel, hversu þeir gætu greiðast Guðs syni komið í hel. (Passíusálmar 15,1) Með sama lagi, ekki rímna- bragarhætti, er þessi frábæra vísa sem ég iærði um daginn: Vel hylur frakkafaldur flöskuna pakkaða. Eitthvað er Bakka-Baldur búinn að smakka „ða“. (Hjörleifur Hjartarson) Hér er alimikill skrásetning- arvandi í síðustu línunni, en það gieður hjarta mitt að heyra að svona góðar vísur eru enn kveðnar við tækifæri á þessu blessaða landi og það í sveit- inni, þar sem ég ólst upp (ekki „aldist“ eins og glapyrðingar segja nú um stundir). Já, þetta er ekki rímnabragar- háttur, heldur sálmalag. Svein- björn allsheijargoði setur fram þá kenningu að þríliður (troch- eus, dæmi: „búinn að“) sé ekki hafður í rímnabragarháttum nema í undantekningardæmum og þá sem ígildi tvíliðar. í þrílið er fyrst eitt áhersluþungt at- kvæði og síðan tvö létt, og þyk- ir Sveinbirni vandasamt að yrkja með þríliðum og telur fáa gera það vel. ★ Ég hef verið spurður um mannsnafnið Sturla, einkum af því að það beygist eins og fjöldi kvenmannsnafna. Þetta hef ég helst getað tínt til: Sturla virðist merkja „styrj- armaður, óeirinn maður, bar- dagamaðurinn litli“, sjá ending- una -la. Endingin -la er smækkunar- eða gæiuending, einkum á kven- kynsorðum, sbr. mey-la=lítil mey, dótt-la=litla dóttir, frið- la=ástmær, seinna með samlög- un frilla, og Surt-la=litla svört, einkum haft um svartar ær (kýr og hryssúr). Geta má þess, að karlmaður að nafni Eysteinn var auknefnd- ur meyla og annar að nafni Símon auknefndur skeríla=litli skarfur. Sturla er fornt á Norðurlönd- um, fyrst að því er virðist sem auknefni, en síðar (mjög 507. þáttur snemma) skírnarnafn. Þarna er -la vafalítið eins og vant er smækkunar- eða gæluending. Stofn orðsins, stur, er náttúr- lega skylt styr=ófriður, sbr. nöfnin Sturlaugur(=sá sem vígður er orustu, hermaður), Styr(r), Styrgerður(=val- kyija), Styrkár og Styrbjörn. Samstofna þessu er sögnin að sturla sem hefur frummerking- una að koma úr jafnvægi, sbr. þýsku stören(=trufla, ónáða) og dönsku styrte(=steypast). Sjá ennfremur stormur og Óðins- heitið Styrmir. Langtímum saman misþókn- aðist mönnum að hafa karl- mannsnafn með endingunni -la og breyttu þá nafninu iðulega í Sturli og jafnvel með samlögun í Stulli. Þetta löguðu menn svo aftur við lærdóm og skólagöngu og fyrir áhrif frá fornbókmennt- unum. Ég lít á báðar myndirn- ar, Sturla og Sturli, sem eitt nafn. Árið 1703 bera 20 íslendingar þetta nafn, og var þá til siðs að skrifa Sturli. Árið 1801 eru þeir 14 (í Nafhalykli sr. Björns Magnússonar prentað Sturla), 1845 enn 14 og 1910 eru þeir 23, þar af 13 fæddir í ísafjarðar- sýslu. Árin 1921-50 voru 66 sveinar skírðir þessu nafni, í þjóðskrá 1982 eru 94 sem heita Sturla einu nafni eða fyrra nafni af tveimur. í fæðingarárgangi 1982 voru fimm skírðir Sturla, 1985 tveir, svo að nafnið er vel lifandi. ★ Hlymrekur handan kvað: Ekki reyndist það hent Jóa heigli að horfa á sitt smetti í spegli. Hann hörfaði undan í hamslausri skundan og sig hengdi í nálægum dregli. Mikil er ofnotkun orðanna. Nú heitir það allt kvóti sem skammtað er. Væri nú ekki reynandi, að minnsta kosti til tilbreytingar, að nota íslenska orðið skammtur á Islandi?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.