Morgunblaðið - 07.10.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989
17
Sunny bílar eru hlaðnir aukahlutum, s.s. samlæsingu í hurðum, aflstýri,
rafstýrðum rúðum og mörgu fleira.
OG RÚSÍNAN Í PYLSUENDANUM
Verð ó Nissan Sunny bókstaflega drekkhlöðnum aukahlutum
,864.000.-
Lánakjör: T.d. 25% út og 75% lánað í allt að 21/a ár með lánskjörum banka.
NISSAN: Mesf seldi japanski bíllinn í Evrópu
■Réttur bíll á
réttum staó
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
m,
NISSAN SUNNY LINUNA
^1990
Laugardag og sunnudag kl. 14-17
Kynni okkar Þóroddar hófust
árið 1972, er ég fluttist til Akur-
eyrar, og hafa síðan verið náin og
góð. Hjá honum lærði ég grundvall-
aratriði heimilislækninga, það er
að sjúklingurinn er persóna í órofa
samhengi við uppruna sinn og um-
hverfi.
Nú gegnir Þóroddur mikilvægum
trúnaðarstörfum hjá Sjúkrasamlagi
Akureyrar og Sjúkrasamlagi Eyjar-
fjarðar. Enn leita ég ráða hjá honum
þegar mikið liggur við. Það var
sagt um Njál forðum: „Vitur var
hann og forspár, heilráður og góð-
gjarn, og varð allt að ráði það er
hann réð mönnum, hógvær og
drenglyndur." Þessi orð finnst mér
lýsa vini mínum Þóroddi Jónassyni
best.
Afmælisbarnið verður að heiman
í dag, en við Kristín óskum honum
og Guðnýju konu hans, innilega til
hamingju á þessum tímamótum.
Ólafur Hergill Oddsson
Verðkönnun
Verðlagsstofnunar:
Afinæliskveðja:
Þóroddur Jónas-
son héraðslæknir
Nær þrefaldur
verðmunur
á nærfatnaði
MIKILL verðmunur á einstökum
vörutegundum nærfatnaðar kom
fram í könnun Verðlagsstofnunar
á verði nærfata fyrr í haust. Helzta
skýring á þeim mun er talin mis-
gamlar birgðir og mismikil smá-
söluálagning. Mestur var munur-
inn 170% eða nær þrefaldur.
Mestur munur á hæsta og lægsta
verði einstakrar vöru var á Vouge
sokkabuxum, en þær kostuðu 115
krónur í þeirri búð, sem seldi þær á
lægstu verði, en 310 þar sem þær
voru dýrastar. Hæsta verð er því
170% hærra en það lægsta. I tveim-
ur tilvikum var munur á hæsta og
lægsta verði í kringum 80%. Ein teg-
und af Trimph kvennanærbuxum
kostaði frá 361 krónu upp í 636, sem
er 76% verðmunur. Schiesser hlíra-
bolur á herra kostaði frá 464 til 837
króna, sem er 80% verðmunur.
Þóroddur Jónasson, héraðslækn-
ir, er sjötugur í dag. Hann er fædd-
ur á Grænavatni í Mývatnssveit,
7. október 1919, sonur Jónasar
bónda Helgasonar og Hólmfríðar
Þórðardóttur konu hans. Honum
rennur því þingeyskt blóð í æðum
og þingeyskur eldmóður er einkenni
hans.
Þóroddur er merkisberi gamalla
pg nýrra tíma læ’knisfræðinnar á
Islandi. Hann gegndi Breiðumýrar-
héraði í sautján ár og þekkir því
vel aðstæður einyrkja læknisins,
sem verður ætíð að treysta á sjálfan
sig. í hjáverkum blótaði hann tón-
listargyðjuna og stjórnaði kórum
þar eystra. Á þessum árum nam
Þóroddur embættislækningar í
Svíþjóð og var þess vegna vel und-
ir það búinn að taka við Akureyrar-
læknishéraði árið 1969. Hann und-
irbjó stofnun Læknamiðstöðvarinn-
ar á Akureyri og sat í stjórn henn-
ar um árabil. Þetta samstarf lækna
varð grunnurinn að heilsugæslu-
stöðinni, sem við höfum á Akureyri
í dag.
Margvísleg trúnaðarstörf hafa
Þóroddi verið falin um dagana.
Hann átti dtjúgan þátt í endurskoð-
un á siðareglum lækna og vann
einnig að útgáfu Læknatals á ís-
landi. Þóroddur er heiðursfélagi
Læknafélags íslands.
Ný 1 2 ventla vél, 1600 cc
HREINT ÓTRÚLEG
í SUNNY LÍNUNNI ER ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ
VIÐ ALLRA HÆFI
• 3ja dyra hlaðbakur • 4ra dyra fólksbíll, sedan,
• 5 dyra hlaðbakur hvort heldur framhjóladrifinn
• Skutbíll, fjórhjóladrifinn eða fjórhjóladrifinn, þú velur.
ITOLSK
V I K A
í KRINGLUNNI
28. sept. - 7. okt.
ítalskar vörurlCTTÍskusýningar
Tónlist MU Kaffihús SQ ítalskur
matur li Ferðakynningar HB
JBköetraun, vinningur: ferb fyrir
tvo til Ítalíu MS