Morgunblaðið - 07.10.1989, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989
Líbanon:
Tveimur starfs-
mönnum Rauða
krossins rænt
Sídon. Reuter.
ÞRÍR vopnaðir menn rændu
tveimur svissneskum starfs-
mönnum Rauða krossins í hafn-
arborginni Sídon í Suður-Líban-
on í gær. Þetta er í annað sinn
á þessu ári sem starfsmönnum
líknarsamtaka er rænt í Sídon.
Talið er að 19 vestrænir menn
séu nú í haldi mannræningja í
Líbanon.
Enginn hefur lýst mannráninu á
hendur sér en heimildir í Beirút og
Sídon herma að mannræningjamir
tilheyri hinum róttæku skæruliða-
samtökum Palestínumanna, Bylt-
ingarráði Fatah, sem lúta stjóm
hins illræmda Abu Nidals.
Bandaríkja-
dalur styrkist
London. Reuter.
Bandaríkjadalur styrktist á
gjaldeyrismörkuðum í gær og
stóð því af sér vaxtahækkanir
evrópskra seðlabanka og mikla
dollarasölu. Spákaupmenn telja
að dalurinn sé vanmetinn og
heftir eftirspurn eftir honum því
aukist ef eitthvað er.
Seðlabankar helstu iðnríkja
heims seldu dali í gær 10. daginn
í röð til þess að styrkja gjaldmiðla
sína. Þá hækkuðu seðlabankar
Vestur-Þýskalands, Bretlands,
Sviss og Frakklands forvexti í
fyrradag og var talið að það yrði
til þess að veikja dalinn en raunin
varð önnur. Var gengi hans gagn-
vart helstu gjaldmiðlum í gær svo
til það sama og 25. septembér sl.,
fyrsta bankadag eftir að leiðtogar
sjö helstu iðnríkja heims urðu sam-
mála um að sterk staða dalsins
hefði slæm áhrif á efnahagslíf
þeirra.
Emmanuel Christen g|j0 Erriquez
Sídon er 40 km sunnan við Beir-
út og á valdi hersveita súnní-
múslima, Þjóðfrelsishers Palestínu-
manna (PLA), og palestínskra
skæmliðahreyfinga sem hafa bæki-
stöðvar í flóttamannabúðunum Ain
al-Hilweh og Miyeh Miyeh skammt
frá borginni. Aðeins steinsnar er frá
Ain al-Hilweh-búðunum að bæki-
stöðvum Rauða krossins í Sídon.
Sátu mannræningjamir þar fyrir
Svisslendingunum, Emmanuel
Christen 25 ára, og Elio Erriquez
23 ára.
12. maí síðastliðinn rændu vopn-
aðir menn tveimur Þjóðverjum,
Heinrich Strublig og Thomas
Kempner sem báðir vom á vegum
líknarsamtakanna Humanitas í
Sídon.
í desember á síðasta ári kölluðu
svissnesk stjómvöld sendiherra sinn
í Líbanon heim og alþjóðadeild
Rauða krossins fyrirskipaði öllum
starfsmönnum sínum í landinu, 14
að tölu, yfirgefa landið vegna hót-
ana mannr'æningja. Þetta var í
fyrsta sinn í 125 ára sögu samtak-
anna sem þau neyddist til að grípa
til slíkra örþrifaráða. Starfsmenn
Rauða krossins snem aftur til
landsins í janúar sl. þegar þeir höfðu
verið fullvissaðir um að öryggi
þeirra væri ekki í hættu.
Nunnurláta afmótmælum
Reuter
Nunnur yfirgefe kjúklingabú klausturs í Da-
ventry í Mið-Englandi eftir að hafa látið af mót-
mælum gegn þeirri ákvörðun landbúnaðarráðu-
neytisins að slátra skuli fiðurfé þeirra vegna
salmonellusýkingar. Orsök alvarlegra tilfella
matareitrunar í júli sl. voru rakin til búsins.
Sovétríkin:
Stj órnvöld senda
líðsauka tíl Armeníu
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKUM hermönnum hefúr ekki tekist að koma á jámbrautars-
amgöngum milli lýðveldanna Armeníu og Azerbajdzhan. Vegna verk-
falls Azera hafa birgðaflutningar til Armeníu legið niðri í rúman
mánuð en tilefni þessara aðgerða er heiftarleg deila nágrannalýðveld-
anna um yfirráðarétt yfir héraðinu Nagomo-Karabakh.
Talsmaður armensku fréttastof- Samkvæmt opinbemm tölum
unnar Armenpress sagði í samtali hafa 100 manns fallið í átökum
við fréttaritara Reuters í Moskvu
að hermenn hefðu verið fluttir til
höfuðborgar Armeníu, Jerevan, á
fimmtudag. Hefðu tíu stórar liðs-
flutningavélar lent á flugvellinum
en í héraðinu umdeilda vom fyrir
um 4.000 hermenn. Þrátt fyrir liðs-
auka þennan lægju samgöngur enn
niðri og ástandið færi sífellt versn-
andi.
Azera og Armena frá því deilan um
Nagomo-Karabakh, sem Armenar
byggja að mestu, blossaði upp í
febrúar á síðasta ári. Héraðið til-
heyrði Azerbajdzhan en var fært
undir stjóm ráðamanna í Moskvu
eftir að átökin bmtust út. Því stýr-
ir sérstök nefnd og lýsti einn nefnd-
armanna yfír því fyrr í vikunni að
hundmð manna hefðu fallið, að því
er segir í frétt bandaríska dag-
blaðsins The Washington Post.
Embættismaðurinn, Valerí Sídorov,
kvaðst óttast að borgarastyijöld
brytist út í Nagomo-Karabakh og
sagði „kalt stríð“ ríkja í samskipt-
um lýðveldanna. Átökin hefðu leitt
til þess að um 300.000 Armenar
og Azerar hefðu gerst flóttamenn
og á hveijum degi væm grimmdar-
verk framin.
Charles Cobb tilnel&idur
sendiherra Bandaríkjanna á Isiandi:
Vill auka gagnkvæm
viðskipti við Bandaríkin
Washington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Utanríkismáladeild Öldunga-
deildar Bandaríkjaþings kallaði
í gær fyrir sig flögur ný sendi-
herraefiii, sem George Bush
forseti leggur til að verði skip-
aðir sendiherrar Banda-
ríkjanna á íslandi, í Rúmeníu,
Finlandi og á Möltu.
Charles Cobb Jr., sem undan-
farið hefir gegnt stöðu aðstoðar
viðskiptamálaráðherra í stjóm
Bandaríkjanna, þar sem hann fór
aðallega með ferðamál, sagði
nefndinni, að hann myndi leggja
aðaláherslu á sem sendiherra að
auka gagnkvæm viðskipti milli
Bandaríkjanna og íslands. Cobb
sagði, að sér sýndist margt benda
til að slíkt myndi takast til hags-
bóta fyrir bæði ríkin. Hann benti
á, í því sambandi, að samkvæmt
skoðanakönnunum væm 80 prós-
ent íslendinga fylgjandi aðild ís-
lands að Atlantshafsbandalaginu,
og meirihluti landsmanna væri
hlynntur vamarsamningum, en
heldur minni hópur styddi dvöl
Reuter
Charles Cobb, sem útnefndur
hefúr verið sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi, svara spurn-
ingum þingmanna í utanríkis-
málanefnd öldungadeildarinn-
ar.
Bandaríkjahers við flugvöllinn í
Keflavík..
Sendiherraefnið var spurður
hvort hann kynni málið, sem Is-
lendingar tala. Cobb svaraði því
til, að því miður væri hann ekki
fær í málinu, en að hann væri
byijaður að reyna að læra það og
myndi halda því áfram. Þá var
hann inntur eftir því, hvort hann
hefði sérstaklega sóst eftir því aða
verða útnefndur sendiherra á ís-
landi.
Cobb svaraði því til að þegar
það kom til tals, að forsetinn
nefndi hann til sendiherrastöðu,
hefði hann nefnt „norðlægar slóð-
ir“, sem hann myndi helst sækj-
ast eftir. Þannig hefði staðið á
því, að hann hefði verið viðriðinn,
að nokkm, við samningana milli
Kanada og Bandaríkjanna, er
fríverslunarsamningurinn var á
döfinni. Hann hefði og átt nokkur
viðskipti við Norðurlöndin, sem
kaupsýslumaður og hann bæri
mikla virðingu fyrir þeim þjóðum.
ísrael:
Viðræðum við Pal-
estínumenn hafhað
Jerúsalem. Reuter.
RÁÐHERRAR Likud-flokksins,
flokks Yitzhaks Shamirs forsæt-
isráðherra ísraels, höfnuðu í gær
tillögu Verkamannaflokksins um
að gengið yrði til friðarviðræðna
við fulltrúa Palestinumanna. Til-
Iagan var felld á jöfnum atkvæð-
um í ríkisstjórninni.
Egyptar höfðu lagt fram áætlun
í tíu liðum þar sem m.a. var gert
ráð fyrir því að ísraelar létu land
af hendi auk þess sem kveðið var
á um hvemig staðið skyldi að kosn-
ingum fulltrúa Palestínumanna á
vesturbakka Jórdanár og Gaza-
svæðinu. Var og ráð fyrir því gert
að viðræðumar færu fram í Egypta-
landi.
Að sögn Yitzhaks Modai, efna-
hagsmálaráðherra ísraels, voru allir
sex ráðherrar Verkamannaflokks-
ins hlynntir því að gengið yrði til
slíkra viðræðna. Jafnmargir ráð-
herrar Likud reyndust því hins veg-
ar andvígir og var tillagan þar með
felld.
Einn ráðherra Verkamanaflokks-
ins, Moshe Shahal, sagði á fimmtu-
dag að samsteypustjórnin kynna
að springa yrði tillaga flokksins
ekki samþykkt. Stjómmálaskýrend-
ur kváðust hins vegar efast um að
deila þessi leiddi til stjómarslita.
Verkamannaflokkurinn treysti sér
tæpast út í kosningar þar sem allt
benti til að hlutskipti flokksins yrði
það að vera í stjórnarandstöðu að
þeim loknum.
Svíþjóð:
Kafbáts leit-
að í skerja-
garðinum
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
Morgunblaðsins.
SÆNSKI sjóherinn leitaði í gær
að ókunnum kafbáti í skerjagarð-
inum fyrir norðan Stokkhólm.
Höfðu þá nokkrir íbúar á eyjunum
fyrir utan skýrt svo frá, að þeir
hefðu komið auga á sjónpípu kaf-
báts á siglingaleiöinni inn til höf-
uðborgarinnar.
Á þessu svæði em mikilvæg
strandvirki og annar búnaður til að
aftra hugsanlegum óvini frá að
nálgast Stokkhólm úr þessari átt.
Síðla dags í gær hafði ekki orðið
vart við kafbátinn þrátt fyrir, að
mörg skip tækju þátt í leitinni. Á
þessu ári hefur sjaldan orðið vart
við ókunna kafbáta við Svíþjóðar-
strendur.