Morgunblaðið - 07.10.1989, Page 24
24
' MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTOBER 1989
Krafa þjóð-
arinnar...
Ég hef gert hér fyrr að umræðu-
efni þá innri erfiðleika sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur átt við að
stríða undanfarin tvö ár. Það er
mikil og ólýsanleg reynsla að standa
við stjórnvölinn í mestu holskeflu
innri átaka sem yfir Sjálfstæðis-
flokkinn hafa gengið. Það var ekki
auðvelt að standa þá öldu án þess
að kikna.
í þeim átökum fann ég hvað úr-
slitaþýðingu stuðningur ykkar og
félaga okkar um land allt hafði.
Auðvitað sýndist sitt hveijum. Hitt
_ skiptir mestu máli að menn fundu
til sameiginlegrar ábyrgðar. En nú
erum við komnir á lygnari sjó eftir
þá holskeflu, sem reið yfir Sjálf-
stæðisflokkinn. En þá gengur öldu-
rótið yfir þjóðina vegna vinstri
stjórnarinnar. Sjálfstæðisflokkur-
inn þarf því enn og ekki síður að
sýna innri styrk sinn.
Þegar sjálfstæðismenn komu
saman til landsfundar fyrir tuttugu
árum, 1969, var talsverð ólga í
íslensku þjóðlífi. Og margvíslegar
kröfur um breytingar uppi á ten-
ingnum. Viðreisnarstjórnin hafði
tekist á við einhveija mestu erfið-
leika sem íslenskt þjóðarbú hefur
mætt. Á sama tíma hófst hið al-
þjóðlega umrót æskufólks sem
löngum hefur verið kennt við upp-
þotið í París á vordögum 1968.
Bjarni Benediktsson fjallaði um
þann óróa sem öllu þessu fylgdi í
landsfundarræðu sinni og sagði
meðal annars þetta:
„Engum er það heldur áskapað
að gegna tilteknu embætti, enda
er ekki mikið í þann spunnið sem
hefur geð í sér að sitja í stöðu sem
þeir er hann settu þangað telja að
■hann eigi nú að hverfa úr. Á meðan
ipanni er haldið í trúnaðarsæti á
hann rétt á hollustu þeirra sem
hann völdu og hafa ekki sagt henni
upp. En ef þeir eru sannfærðir um
að best fari á að breyta til eiga
þeir hiklaust að gera það. Til þýð-
ingarmikilla starfa má ekki velja
mann eða halda honum þar til að
gera honum greiða heldur af því
að hann er best fær um að leysa
þann vanda.“
Ég get ekki komið hugsunum
mínum um þessi efni með betri
hætti á framfæri við ykkur sam-
heija mína og vini á þessum fundi,
en með því að vitna til þessara
ummæla. Þau segja það sem mér
býr í bijósti þegar miklir erfiðleikar
eru afstaðnir og mikilvæg barátta
er framundan. Við erum ekki að
gera hveijum öðrum greiða með
starfi okkar í Sjálfstæðisflokknum.
Við erum að rækja trúmennsku við
hugsjónir okkar og framtíðarsýn.
Hér eftir sem hingað til er Sjálf-
stæðisflokkurinn opinn vettvangur
til skoðanaskipta, vígi þjóðlegra
menningarverðmæta og farvegur
fyrir þá sem vilja beijast fyrir breyt-
ingum og nýjum hugmyndum. Þjóð-
in gerir nú meiri kröfur en hún
hefur nokkru sinni fyrr gert um
sterkan og öflugan Sjálfstæðis-
flokk.
Við skynjum stuðning fólksins í
landinu. Við skulum sýna það í
störfum okkar á þessum fundi að
við bregðumst ekki þeim trúnaði
við ísland, íslendinga og þeim hug-
sjónum sem við höfum helgað okk-
ur.
GENGISSKRÁIMING
Nr. 191 6. október 1989
Kr. Kr. Toll-
Eln. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 61.46000 61.62000 61,31000
Slerlp. 98.61300 98.86900 98,56500
Kan. dollari 52.16200 52,29800 51,94200
Dönsk kr. 8.34770 8,36940 8,34720
Norsk kr. 8.81400 8,83690 8,81900
Sænsk kr. .9.49340 9.51810 9,48920
Fi. mark 14,29630 14,33360 14,22180
Fr. Iranki 9,59940 9,62440 9,59620
Belg. Iranki 1.54830 1,55230 1,54810
Sv. Iranki 37.40260 37,50000 37.44l20
Holl. gyllini 28.78150 28.85640 28,76310
V-þ. mark 32,49870 32,58330 32,47350
ít. lira 0,04443 0.04454 0.04485
Austurr. sch. 4,63060 4,64270 4,61500
Port. escudo 0,38410 0,38510 0,38490
Sp. peseti 0.51230 0,51360 0.51410
Jap. yen 0,42928 0,43040 0.43505
írskt pund 86.61300 86,83800 86.53000
SDR (Sérst.) 77.84220 78.04480 77,94650
ECU, evr.m. 66.99450 67,16890 67.11300
Tollgengi fyrir september er sölugengi 28. september
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 6. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 77,50 34,00 74,46 23.445 1.745.792
Þorskur(smár) 45,00 45,00 45,00 0,623 28.058
Ýsa 126,00 55,00 104,24 6.595 687.509
Ýsuflök 260,00 250,00 252,97 0,037 9.360
Karfi 40,00 31,00 34,42 1.264 43.525
Karfaflök 110,00 110,00 110,00 0 013 1.485
Ufsi 35,00 17,00 33,43 0,508 16.997
Ufsi(smár) 17,00 17,00 17,00 0,034 587
Steinbitur 52,00 45,00 50,31 3.899 196.159
Langa 43,00 40,00 42,20 0,769 32.455
Lúða 230,00 200,00 212,40 0,586 124.465
Koli 48,00 35,00 46,57 4.600 214.228
Keila 27,00 27,00 27,00 0,017 459
Keila(ósL) 27,00 27,00 27,00 0,636 17.180
Kolaflök 140,00 128,00 129,82 0,330 42.840
Kinnar 70,00 70,00 70,00 0,033 2.345
Gellur 215,00 215,00 215,00 0,011 2.451
Hlýri 50,00 50,00 50,00 0,0432. 175
Háfur 10,00 10,00 10,00 0,1611.610
Samtals 72,68 43.609 3. 169.620
Á mánudag verður boðinn upp afli úr ýmsum bátum
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 77,00 40,00 69,72 2.441 170.191
Þorskur(1-2n.) 61,00 61,00 61,00 0,535 32.635
Ysa 120,00 90,00 101.,12 6.718 679.371
Ýsa(ósl.) 101,00 78,00 88,41 0,586 51.809
Ýsa(ósl.1-2n.) 95,00 90,00 91,66 0,515 47.205
Ýsa(1-2n.) 109,00 60,00 87,11 2.181 189.982
Ýsa(undirm.) 49,00 49,00 49,00 0,012 588
Karfi 40,00 39,00 39,75 1.180 46.908
Ufsi 42,00 41,00 41,48 9.807 406.757
Ufsi(ósl) 29,00 29,00 29,00 0,051 1.479
Ufsi(undirm.) 35,00 35,00 35,00 0,110 3.850
Lúða(smá) 280,00 29,00 238,88 0,040 9.555
Skarkoli 25,00 25,00 25,00 0,501 12.525
Lýsa 23,00 23,00 23,00 0.121 2.783
Skötuselur 170,00 170,00 170,00 0,021 3.570
Samtals 66,85 24.819 1.659.208
Selt var úr Skipaskaga, Otri EA og netabátum. N.k. mánudag
verður seldur bátafiskur.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 83,00 42,00 65,87 14.195 934.964
Ýsa 111,00 50,00 99,91 11.781 1.177
Karfi 32,00 15,00 26,25 0,230 6.038
Ufsi 24,00 20,00 23,93 0,600 14.360
Steinbitur 41,00 26,00 36,84 0,821 30.243
Langa 39,00 35,00 37,59 1.458 54.804
Lúða 275,00 185,00 260,26 0,209 54.395
Keila 24,50 5,00 18,64 4.650 86.695
Blálanga 37,00 37,00 37,00 1.500 55.500
Blálanga 37,00 37,00 37,00 1.500 55.500
Skötuselur 102,00 102,00 102,00 0,010 1.
Tindaskata 10,00 10,00 10,00 0,098 980
Blálanga 37,00 37,00 37,00 1.500 55.500
Samtals 67,78 35.677 2.418
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hluti sýningarnefndar ásamt teiknaranum Þresti Magnússyni. Frá
vinstri: Hálfdán Helgason, Þór Þorsteins, Þröstur Magnússon teikn-
ari, Guðmundur Björnsson og Benedikt Antonsson. í sýningarnefnd-
inni eru einnig Guðni F. Gunnarsson og Sigurður R. Pétursson.
Dagur frí-
merkisins
ÁRLEGUR „Dagur frímerkis-
ins“ er næstkomandi mánudag,
9. október. Af því tilefni og enn-
fremur í tilefni af norrænni
frímerkjasýningu hér árið 1991
gefur Póst- og símamálastofhun-
in út fyrstu smáörkina af þremur
sem Þröstur Magnússon, teikn-
ari, hefur unnið upp úr landa-
bréfí af Norðurlöndum frá 16.
öld.
Smáörkin inniheldur þijú
frímerki og eru þau seld á yfir-
verði. Frímerkja- og póstsögusjóð-
ur, sem stofnaður var árið 1986,
hefur tekjur sínar af yfirverði
frímerkjanna og hefur sjóðurinn
ákveðið að styrkja norrænu
frímerkjasýninguna, NORDIA 91,
um 11,5 milljónir króna. Sýningin
verður haldin í Laugardalshöll dag-
ana 27.-30. júní árið 1991 og er
um að ræða stærstu frímerkjasýn-
ingu, sem hér hefur farið fram til
þessa. Sérstök sýningarnefnd
Landssambands íslenskra
frímerkjasafnara og Pósts og síma
vinnur nú að undirbúningi sýning-
arhaldsins.
Tilgangur með NORDIA 91 er
ekki síst sá að koma tíl móts við
vaxandi áhuga ungs fólks á
frímerkjasöfnun sem hollri og
þroskandi tómstundaiðju, að sögn
Þórs Þorsteins, formanns sýningar-
nefndar. í því skyni verður mjög
höfðað til unglinga og þeim verður
sérstaklega boðið á sýninguna.
Ziao-Meu Zhu, píanóleikari.
Kínverskur
píanóleikari
ÍSLANDSDEILD EPTA, Evr-
ópusambands pianókennara,
mun standa fyrir röð píanótón-
leika í vetur á sama hátt og gert
var i fyrra. Þrír listamenn koma
fram og verða tónleikarnir
haldnir að Kjarvalsstöðum og í
menningarmiðstöðinni ' Hafnar-
borg í Hafnarfírði.
Kínverski píanóleikarinn Xiao-
Meu Zhu frá Shanghai leikur Gold-
berg-tilbrigðin eftir J.S. Bach á
tónleikum að Kjarvalsstöðum nk.
mánudagskvöld og sunnudags-
kvöldið 15. október spilar hún til-
brigði og sónötur eftir Mozart og
Scarlatti í Hafnarborg.
I febniar mun Orn Magnússon
leika verk eftir Bartók og Debussy
og í apríl leikur Jónas Sen verk
eftir Brahms, Schumann, Skriabin
og Liszt. Allir þessir tónleikar hefj-
ast kl. 20.30.
Landnámsganga
Útivistars
SÍÐASTI áfanginn í landnáms-
göngu Útivistar verður genginn
á morgun, sunnud.aginn 8. októ-
ber og lýkur þar með tveggja
ára raðgöngu á mörkum land-
náms Ingólfs Arnarsonar. Gang-
an hófst í ársbyrjun 1988 og var
þá gengið úr Grófinni yfir í Or-
firisey og þaðan með ströndinni
út í Suðurnes.
Á morgun hefst gangan við Þór-
oddsstaði í Ölfusi og lýkur niðri á
Óseyrartanga. Einnig verður boðið
upp á síðdegisgöngu sem samein-
ast morgungöngunni við Hraun.
Staðfróðir menn munu slást í för
með göngumönnum síðasta spöl-
inn.
I lok göngunnar verða afhent
verðlaun fyrir góða þátttöku. Þá
verður göngumönnum boðið upp á
landnámsnasl og ýmsa þjóðlega
skemmtun.
Lagt verður af stað í morgun-
gönguna klukkan 10.30 frá Um-
ferðartniðstöð, bensínsölu. I síðdeg-
isgönguna verður lagt af stað
klukkan 13 frá sama stað. Verð
er krónur 1.000 í báðar göngurnar
en frítt fyrir böm í fylgd með full-
orðnum.
Sýnir á Kjarvals-
stöðum
STEFÁN Axel Valdimarsson
opnar málverkasýningu á Kjar-
valsstöðum í dag, laugardaginn
7. október klukkan 16-18.
Á sýningunni verða níu stór
málverk unnin með akrýl á striga
á síðastliðnum fjórum árum.
Stefán Axel er fæddur 12.9.
1955. Hann stundaði nájn við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1981-84 og við Jan Van Eyck
Akademie í Maastricht 1984-86.
Hann býr nú og starfar í Rotterdam
í Hollandi. Stefán hlaut sex mán-
aða starfslaun á þessu ári.
Þessi sýning Stefáns Axels er í
samvinnu við Listasalinn Nýhöfn,
Hafnarstræti 18. Henni Iýkur 22.
október.
Hlutdrægar en
ekki hlutlægar
í frétt um myndbirtingar og fréttir
Stöðvar 2, sem birtist á bls. 4 í
Morgunblaðinu í gær komst orðið
hlutlægur inn í textann, þar sem
meiningin var þveröfug. Gagnrýni
Jóns Óttars spratt ekki af því, að
hann teldi, að viðkomandi fréttir
Stöðvar 2 hefðu verið hlutlægar,
heldur taldi hann þær þvert á móti
hlutdrægar.
Atriði úr „Unga töframanninn-
um“.
Kanadísk kvik-
myndahelg-i
LAUGARÁSBÍÓ hefur frumsýnt
kandaísku barnamyndina „Ungi
töframaðurinn".
Sagan er um 12 ára gamlan
dreng, Pétur, sem dreymir um að
verða töframaður.
Þá verða endursýndar tvær
kanadískar myndir. „Hrun
Ameríska heimsveldisins". Leik-
stjóri Denys Arcand. Myndin hefur
hlotið góðar viðtökur gagnrýnenda
og vakið athygli á kvikmyndahátíð-
um.
„Kenny“ er mynd um 13 ára
dreng sem fæðist aðeins með hálf-
an líkama. Leikstjóri er Claude
Gugnor. Myndin fékk 1. verðlaun
á alheimskvikmyndahátíðinni í
Montreal 1987.
Stuðningshópur
Náttúrufræði-
húss
Náttúruverndarfélag Suðvest-
urlands fagnar þeim áfanga sem
náðst hefur í undirhúningi að
byggingu náttúrufræðihúss og
fyrirhugaðri starfsemi þess.
Félagið treystir því að Mennta-
málaráðuneytið, Reykjavíkurborg
og Háskólinn nái samstöðu um að
vinna markvisst að þessu og flýti
undirbúningi eins og kostur er svo
að íslenskt náttúrufræðihús sjái
dagsins ljós sem fyrst.
Til að ijalla um þetta boðar
NVSV alla sem áhuga hafa á að
taka þátt í kynningarstarfseminni
á fund í Norræna húsinu í dag laug-
ardaginn 7. október klukkan 17.
Þar verður rætt um hvernig að
þessu verður staðið.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Sverrir
Jónína Guðnadóttir við verk sín.
Sýnir í
FÍM-salnum
JÓNÍNA Guðnadóttir opnaði
sýninpi í FÍM-salnum, Garða-
stræti 6, laugardaginn 30. sept-
ember. Á sýningunni gefur að
líta lágmyndir og skúlptúra lir
steinleir sem unnin er að mestu
á þessu ári. I verkunum gætir
áhrifa íslenskrar náttúru.
Jónína var einn stofnfélaga í
Galleríi Gijóti og var virkur félagi
þar til það hætti starfsemi nú á
síðastliðnu sumri. Sýningin verður
opin á virkum dögum frá klukkan
13-18 og frá klukkan 14-18 um
helgar. Henni lýkur þriðjudaginn
17. október.
Arsfundur
Hafnasambands
Tuttugasti ársfundur Hafna-
sambands sveitarfélaga verður
haldinn á Hótel Sögu í Reykjavík
26. og 27. október.
Auk venjulegra ársfundastarfa
verður rætt Hafnaáætlun 1989-92,
þróun hafna á íslandi í byijun nýrr-
ar aldar, um vigtun sjávarafla o.fl.
(Frcttatilkynning)
Aðalíúndur ferða-
þjónustubænda
AÐALFUNDUR Félags ferða-
þjónustubænda verður haldinn á
ferðaþjónustubænum Efstalandi
í Ölftisi, dagana 20. og 21. októ-
ber nk.
Aðstaðan á Efstalandi er í upp-
gerðu fjósi og hlöðu. Aðalfundur
hefur æðsta vald í málefnum sam-
takanna og auk venjulegra aðal-
fundarstarfa flytur Pétur J.
Eiríkssoon framkvæmdastjóri
markaðssviðs Flugleiða ávaip.