Morgunblaðið - 07.10.1989, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989
25
Eigendur og starfsmenn Borgar-
dekks, Borgartúni 36.
Nýtt hjól-
barðaverk-
stæði
Nýtt hjólbarðaverkstæði var nýlega
opnað í Borgartúni 36, þar sem
Gúmmíkarlarnir voru áður til húsa.
Nýja fyrirtækið, sem heitir Borgar-
dekk hf, vetir alhliða hjólbarðaþjón-
ustu, tölvustýrða jafnvælgisstill-
ingu og þar er boðið upp á nýja
og sólaða hjólbarða. Opið er frá
klukkan 8 til 18 virka daga og
klukkan 9-15 á laugardögum.
Ný ljós-
myndastofa í
Miðbænum
Sigríður Bachmann hefur opnað
ljósmyndastofu í Garðastræti 17.
Þar veitir hún alla almenna ljós-
myndaþjónustu, portrettmyndatök-
ur, passamyndatökur og tekur jafn-
vel myndir af dýrum. Sigríður legg-
ur mikla áherzlu á svart-hvítar
myndir.
Tískusýning
á Hótel Borg
ÁTTA hönnuðir í Félagi fata-
og textilhönnuða halda tískusýn-
ingu á Hótel Borg í dag laugar-
daginn 7. október. Sýningin
hefst klukkan 16.30 og er öllum
opin á meðan húsrúm leyfir.
Aðgangur er ókeypis.
Hönnuðir sem sýna haustsýning-
una 1989 eru Alda Sigurðardóttir,
Ásta Björnsdóttir, Birna Péturs-
dóttir, Gréta Sörensen, Margrét
Þorvarðardótir, María • Manda
ívarsdóttir, María Lovísa Ragnars-
dóttir og Vera Ósk Steinsen.
Ætlunin er að tískusýning á
vegum Félags fata og textflhönn-
uða verði árviss viðburður og virk-
ur þáttur i þróun og nýsköpun í
íslenskum fataiðnaði, en fata- og
textílhönnuðir hafa á síðustu miss-
erum fundið fyrir þeim samdrætti
sem orðið hefur í fataiðnaði hér á
landi, m.a. vegna harðrar sam-
keppni við innfluttan fatnað.
Tilgangur félagsins með tísku-
sýningunni er m.a. sá að eiga þátt
í að snúa við hinni neikvæðu þróun
sem hefur orðið á þessu sviði. Fé-
lag fata og textílhönnuða var stofn-
að 19. júní 1986. Félagar eru nú
30 talsins og héldu þeir fyrstu sam-
sýningu sína haustið 1987.
(Fréttatilkynning)
Framsóknarflokkur-
inn:
Ráðsteftia um
heilbrigðis- og
tryggingamál
Framsóknarflokkurinn gengst
fyrir ráðstefnu um heilbrigðis-
og tryggingamál að Hótel Sögu
í dag laugardag. Ráðstefnan
hefst kl. 10.
Á ráðstefnuninni verða flutt ell-
efu framsöguerindi af mönnum
sem á einn eða annan hátt vinna
að heilbrigðis- og tryggingamálum.
Að loknu hveiju framsöguerindi
verða stuttar umræður og fyrir-
spumir.
Háskólafyrir-
lestur um
kennslu í ritlist
WILLIAM D. Valgardson, rithöf-
undur og prófessor í ritlist
(creative Writing) við Universify
og Victoria í British Columbia í
Kanada, flytur opinberan fyrir-
Iestur í boði heimspekideildar
Háskóla íslands, þriðjudaginn
10. október, klukkan 17.15 í
stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn fjallar um kennslu
í ritlist og verður fluttur á ensku.
William D. Valgardson er kunnasti
núlifandi rithöfundur af íslenskum
ættum í Kanada. Hann er fæddur
1939 og alinn upp í Gimli í Man-
itoba og hlaut háskólamenntun sína
m.a. í Winnipeg. Hann hefur skrif-
að mikið um fólk af íslenskum
ættum í Kanada og nýtur sívax-
andi vinsælda. Meðal bóka hans
em smásagnasöfnin Blood Flowers
(1973), God is not a Fish Inspector
(1975) og Red Dust (1978), skáld-
sagan Gentle Sinners (1980) og
ljóðabækumar A Carpenter of Dre-
ams (1986) og In the Cutting Shed
(1986).
Hann hefur hlotið fjölda bók-
menntaverðlauna í Kanada. Þess
má geta að mánudaginn 9. október
kemur út fyrsta íslenska þýðingin
á sögu eftir Valgardson. Er það
sagan Blóðrót í þýðingu Guðrúnar
Guðmundsdóttur. Fyrirlesturinn er
öllum opinn.
Frétt frá Háskóla íslands
Sýnir í Nýhöfti
VALGARÐUR Gunnarsson opn-
ar málverkasýningu í Nýhöfii,
Hafiiarstræti 18, í dag, laugar-
daginn 7. október, klukkan
14-16.
Á sýningunni verða olíumálverk
unnin á striga á síðustu tveimur
ámm.
Valgarður er.fæddur í Reykjavík
1952,. Hann stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1975-79 og framhaldsnám við
Empire State College í New York
1979-81.
Þetta er fimmta einkasýning
Valgarðs, en hann hefur einnig
tekið þátt í fjölda samsýninga hér
á landi og erlendis. Valgarður sýndi
síðast í Nýhöfn í apríl 1988 smá-
myndir á pappír. í nóvember nk.
er svo fyrirhuguð sýning hans í
Galleri Boj í Stokkhólmi.
Sýningin, sem er sölusýning, er
opin virka daga frá klukkan 10-18
og frá klukkan 14-18 um helgar.
Henni lýkur 25. október.
Lokapré-
dikanir
í DAG, laugardag, flytja tveir
guðfræðingar lokaprédikun sína í
kapellu Háskólans; þau Eiríkur
Jóhannsson og Steinunn Arnþrúður
Bjömsdóttir. Athöfnin hefst klukk-
an 14 og er öllum heimill aðgangur.
Don Johnson í hlutverki sínu í
myndinni „Stórskotið" sem Bíó-
höllin hefur tekið til sýninga.
Bíóhöllin sýnir
„Stórskotið“
BÍÓHÖLLIN hefur tekið til sýn-
inga myndina „Stórskotið". Með
aðalhlutverk fara Don Johnson
og Penelope Ann Miller. Leik-
stjóri er John Frankenheimer.
Það er komið að jólum. John
Burns vindur sér inn í sölubúð og
skýtur verslunarstjórann sem er
svertingi. Þetta er strax tillkynnt
lögreglumönnum um alla Los Ang-
eles. Einn þeirra, Kimble, sér John
á gangi og ákveður að gefa sig á
tal við hann. John hefur engin
umsvif og skýtur Kimble til bana.
Sýning á dam-
askveftiaði
SÝNING verður á damaskvefti-
aði í Skrúði, Hótel Sögu, sunnu-
daginn 8. október, klukkan
14-20. Sýningin er einnig opin
mánudag og þriðjudag frá
klukkan 15.
Georg Jensen fyrirtækið hefur
framleitt vefnaðarvöm allt frá 15.
öld, en upp úr miðri síðustu öld
hóf það að framleiða handofna
damaskdúka og servíettur, sem nú
er helsta framleiðsluvara þess.
Þrátt fyrir nútíma tæknivæðingu
í framleiðslu og rekstri á undan-
fömum árum viðheldur fyrirtækið
gamalli hefð við sölu á framleiðslu-
vörunum, þ.e. að selja ekki til versl-
ana, heldur einungis beint til kaup-
enda.
(Úr fréttatilkyniiingu.)
Sýning um sögu ljósmyndunar á
íslandi hefst í dag, laugardaginn
7. október.
Sýning um sögu
ljósmyndunar á
tslandi
í ÁR er 150 ára afinælis ljós-
myndunar minnst með margvís-
legum hætti um heim allan. Þjóð-
minjasafn íslands gengst fyrir
sérstakri sýningu af þessu tilefni
í Bogasal safnsins og ber hún
yfirskriftina: Ljósmyndin 150
ára — saga ljósmyndunar á ís-
landi.
Sýningin er byggð á frummynd-
um úr fómm safnsins eftir frum-
heija 5 iðninni. Þar er í fyrsta sinn
reynt að veita yfirlit yfir sögu ljós-
myndunar hér á landi með fjölda
mynda og ítarlegum sýningartext-
um.
Sýningin verður opnuð í dag,
laugardaginn 7. október, og mun
hún standa til nóvemberloka. Að-
gangur er ókeypis.
(Fréttatilkynning)
Haustmót Taflfé-
lags Kópavogs
HAUSTMÓT Taflfélags Kópa-
vogs 1989 hefst á morgun,
sunnudaginn 8. október, klukk-
an 14. Teflt verður í Hjallaskóla
við Álfhólsveg.
Umferðir verða á sunnudögum
klukkan 14 og á þriðjudögum og
fimmtudögum klukkan 20.
Núverandi skákmeistari Taflfé-
lags Kópavogs er Pétur Viðarsson.
Allar nánari upplýsingar um haust-
mótið veitir Haraldur Baldursson.
Sigurborg Stefánsdóttir
Sýnir í Ásmund-
arsal
SIGURBORG Stefánsdóttir opn-
ar laugardaginn 7. október
klukkan 4 sýningu á verkum
sinum í Ásmundarsal við Freyju-
götu.
Sigurborg Stefánsdóttir er fædd
1959 og er nýflutt heim, eftir
margra ára dvöl í Danmörku. Hún
stundaði nám hjá H.Cr. Hoier, list-
málara í Kaupmannahöfn og síðar
í Skolen for Brugskunst í sömu
borg. Hún lauk prófi úr teikni- og
grafíkdeild skólans vorið 1987.
Sigurborg hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum á grafík-
myndum í Kaupmannahöfn, hefur
haldið einkasýningu á málverkum
1988 í Alborg Kunstpavillion og á
undanfömum 2 árum tekið þátt í
6 samsýningum á málverkum
víðsvegar um Danmörku.
Á þessari fyrstu sýningu Sigur-
borgar á íslandi sýnir hún akrýl-
myndir á striga og pappír.
Sýningin er opin alla daga klukk-
an 4-8 og um helgar klukkan 2-8,
síðasti sýningardagur er 23. októ-
ber.
Kvölduppboð
hjá Gallerí Borg
22. málverkauppboð Gallerí
Borgar í samráði við Listmuna-
uppboð Sigurðar Benediktsson-
ar hf. fer fram í Hótel Borg á
morgun sunnudaginn 8. október
og hefst klukkan 20.30. Boðin
vérða upp 64 verk.
Meðal verka sem verða boðin
má nefna tréskúlptúr eftir Sverri
Haraldsson, gömul ómerkt uppstill-
ing eftir Karl Kvaran, stórt olíu-
málverk eftir Ásgeir Bjarnþórsson
og verk með blandaðri tækni eftir
Jón Gunnar Árnason.
Auk þessa eru svo myndir eftir
Erró, Svein Þórarinsson, Gunnlaug
Blöndal, Jón Engilberts, Kristján
Davíðsson, Valtý Pétursson og
Nínu Tryggvadóttur.
Loks skal getið tveggja olíumál-
verka eftir Jóhannes S. Kjarval
báðar abstraktionir, stórrar abstr-
aktionar eftir Þorvald Skúlason og
olíumyndar eftir Ásgrím Jónsson,
Strútur.
Myndirnar verða sýndar föstu-
dag á venjulegum opnunartíma
Gallerísins og milli klukkan 14 og
18 laugardag og sunnudag.
Atriði úr Litla Regnbogastrákn-
um.
Litla leikhúsið:
Regnbogastrák-
urinn sýndur
NÚ FER hver að verða síðastur
að sjá bamaleikritið Regnboga-
strákurinn eftir Ólaf Gunnars-
son. Síðasta sýningin verður í
menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi kl. 15 á sunnudag.
Þetta er fyrsta leikrit Ólafs, en
hann er m.a. áður kunnur af upp-
finningasömum skáldsögum eins
og Milljón prósent menn, Gaga og
Heilagur andi og englar vítis, auk
þess sem hann skrifar reglulega
pistla í Morgunblaðið. í haust verð-
ur saga hans Fallegi flughvalurinn
gefin út á Norðurlöndum.
Þeir Gunnar Þórðarson og Ólaf-
ur Haukur Símonarson hafa samið
söngva og söngtexta við sýning-
una. Leikstjóri er Eyvindur Er-
lendsson og gerir hann einnig leik-
mynd. Leikendur eru þrír, þau
Emil Gunnar Guðmundsson, Alda
Arnardóttir og Erla Rut Harðar-
dóttir.
Sýning Litla leikhússins er
styrkt af leiklistarráði mennta-
málaráðuneytisins.
(Fréttattilkynning)
Barna og ferm-
ingarstarf
Fríkirkjunnar í
Reykjavík
BARNA- og fermingarstarf vetr-
arins í Fríkirkjunni í Reykjavík
hefst nú um helgina. Barnastarf-
ið hefst við barnaguðsþjónustu
klukkan 11. í barnaguðsþjón-
ustum lærum við og syngjum
sálma, biðjum bænir saman, lær-
um hreyfileiki með söng, hlust-
um á Guðs Orð og fáum það út-
skýrt í máli og myndum. Barna-
stundinni lýkur með sögulestri
og smáhressingu fyrir börn og
fullorðna.
Til aðstoðar fastráðnum starfs-
mönnum kirkjunnar verða við
bamaguðsþjónusturnar þau Þuríð-
ur G. Sigurðardóttir og Birgir H.
Birgisson. Barnaguðsþjónustumar
verða annan hvern sunnudag til
jóla.
Til síðari guðsþjónustu sunnu-
dagsins klukkan 14 er boðið sér-
staklega þeim ungmennum, sem
vilja taka þátt í fermingarundir-
búningi og forráðamönnum þeirra.
Á fundi með þeim í guðsþjón-
ustunni lokinni verður vetrarstarfið
skipulagt.
Sr. Cecil Haraldsson.
Skátadagur í
Reiðhöllinni
SKÁTASAMBAND Reylqavíkur
heldur skátadag og Qölskyldu-
hátið í Reiðhöllinni á sunnudag-
inn kemur 8. október. Boðið
verður upp á skátatívolí, kynn-
ingar á skátastarfinu og skáta-
kvöldvöku.
{fréttatilkynningu segir að þetta
eigi að vera sameiginlegur
skemmtidagiir fyrir alla skáta I
Reykjavík og jafnfram sé almenn-
ingi boðið að vera með til að kynn-
ast skátum í leik og starfí.