Morgunblaðið - 07.10.1989, Síða 30
r£- . ■■-‘Í r ;•!) - r >-• •. ' í. I
3ö..................— -----------------------------MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Heilsa Vatnsberans
í dag er það umfjöllun um
Vatnsberanna (21. janúar —
19. febrúar) útfrá heilsu-
fræðilegu sjónarmiði. Eins og
áður er athygli vakin á því
að þar sem hver einstakling-
ur á sér nokkur stjörnumerki
geta önnur merki einnig haft
sitt að segja þegar heilsufar
er annars vegar.
Ökklar
Vatnsberinn er sagður hafa
með blóðrásarkerfið að gera,
en stjómar einnig kálfum og
ökklum. Það er því svo að
Vatnsberinn er viðkvæmur í
fótunum og slasast gjaman
á ökklum, tognar eða brotn-
ar, ef hann slasast á annað
borð. Hann getur síðan átt í
erfiðleikum með blóðrásina,
sem á m.a. til að vera of hæg.
BlóÖrás og œöar
Það er sagt að Vatnsberinn
eigi til að fá æðahnúta. Það
ásamt veikum ökklum gerir
að fæturnir verða stundum
sérlega viðkvæmir. Aðrir
mögulegir sjúkdómar tengj-
ast óhreinu blóði. Mataræði
sem hreinsar blóðið' er því
æskilegt. Hár blóðþrýsting-
ur, æðakölkun, bólgnir ökkl-
ár og vöðvakrampi eru einnig
meðal kvilla sem stundum
hijá Vatnsberann.
Líkamsœjingar
Æskilegt er að Vatnsberinn
leggi stund á íþróttir sem
hafa með útiveru og hreint
loft að gera, í þeim tilgangi
að örva blóðrásina. Göngu-
ferðir, hjólreiðar, sipp og
skíðaferðir éru t.d. meðal
íþrótta sem em góðar fyrir
Vatnsbera. Einnig er mikil-
vægt að hann iæri að synda
rétt, því rétt öndun gefur
súrefninu blóð og örvar
blóðrásina, en of hæg blóðrás
og útfrá því þyngsli og þreyta
eiga til að há Vatnsberanum.
Hugarslökun
Þar sem Vatnsberinn er
merki hugsunar og er oft
athafnasamur á því sviði get-
ur verið gott fyrir hann að
leggja stund á hugarleikfimi
og tækni sem róar hugann
og hjálpar honum að ná
auknu valdi á hugsuninni.
Hugleiðsla og aðrar róandi
og styrkjandi andlegar æf-
ingar eru því æskilegar.
Stundum þjáist Vatnsberi af
svefnleysi og er honum þá
ráðlagt að varast andlega
æsandi viðfangsefni að
kvöldlagi. 1 slíkum tilvikum
koma slökunaræfingar að
góðum notkum.
Félagslíf
Til að Vatnsberinn haldi fuilri
orku þarf hann síðan að fást
við félagslega og hugmynda-
lega lifandi viðfangsefni, þ.e.
vera innan um fólk, sem seg-
ir sögur og er að fást við
vitsmunaleg mál. Einnig er
að sjálfsögðu æskilegt að
hann sjálfur leggi stund á
slíkt.
Frelsi ogsvigrúm
Ef Vatnsberinn er bundinn
niður, þarf að lifa við þving-
andi kringumstæður, getur
hann fundið til andlegara
þyngsla og orðið þunglyndur.
Hann þarf því að skapa sér
ákveðið frelsi og hafa svig-
rúm í daglegu lífi til að vera
hann sjálfur. Jafnframt þarf
hann að læra að vera fijáls
innan þeirra takmarkana
sem daglegt líf óhjákvæmi-
lega setur okkur. Hann þarf
því ekki síst að finna og
skapa sér innra frelsi, læra
að vera fijáls með sjálfum
sér þó ytri kringumstæður
séu þvingandi.
GARPUR
BRENDA STARR
MENCKEN, Y -• UMM
E/ZTl) ) f-tí-gTU/e A&
vei/CUfe J WERA /1AATNUM
7 *\ óÆ'/P A£>
KeAIAJA
Hwefzc \/Af? XMa/n /etí-AR t-itr '.
HANN AÐ U CGA AÐ nM S/Ð-
/EÐATyA'STA TÍSKOþAzTT/N-
\ RfrSJTl/7 \ UM i STÓNVA/ZP-
V /A///
k f 1 ~.N_I 1 ö Tni\/ifv/ii nri iczmivii
r ". ■ . . hj 1 vJIVIIVII Uu JCZlVIVI : « j 1 <—;— r 1—; n
FERDINAND
SMAFOLK
Ég viðurkenni að ég er óð af af-
brýðisemi!
HOU) CAN I MELP BEING
JEALOUS KN0WIN6 CMUCK ANP
MARCIE ARE AT CAMP T06ETNEK
WHILE l'M IN SUMMEK 5CU00L?
STRAN6E GIKL.-I'LL I4AVET0 KEEP
AN EVE ON WER..50UNP5 LIKE
5UE COULP 3E GIVIN6 AWAY
0URTR00P M0VEMENT5...
Hvemig get ég annað en verið af-
brýðisöm, vitandi að Kalli og Magga
eru saman í sumarbúðunum á með-
an ég er í sumarskólanum?
Skrýtin stelpa. Ég verð að hafa
auga með henni. Kannski hún af-
hendi upplýsingar um liðsflutninga
okkar.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Samanburður í sveitakeppni:
„Við eigum 600 fyrir þijú
grönd.“
„Einn út — þeir eiga 630.“
„Þeir eiga 100. Við fórum í 6
tígla."
„Hvað! Kom út spaði?“
Vestur
♦ 86
▼ 9743
♦ 4 .
♦ KD106
Norður
♦ ÁD104
▼ ÁKD52
♦ K3
♦ Á7
Austur
♦ KG5
▼ 1086
♦ G1085
♦ G9852
Suður
♦ 9732
▼ G
♦ ÁD9762
♦ 43
Slemmur eru dýrmætar í
sveitakeppni. Það tekur enginn
eftir því þótt einn og einn yfir-
slagur „leki“ í vörn gegn þremur
gröndum, en ónákvæm spila-
mennska sem getur af sér
slemmusveiflu sieppur ekki í
gegn umræðulaust.
Suður var tekinn á beinið.
NS höfðu komist í sex tígla, sem
er betri slemma en sex spaðar
og á að vinnast ef ekki kemur
út spaði. En vestur á sjálfsagða
útkomu í laufi. Suður fór geyst
af stað. Hann drap á laúfás og
tók tígulkóng og spilaði tígli upp
á ás. Legan kom í ljós og nú
var orðið nauðsynlegt að svína
spaðadrottningunni.
Besta spilamennskan er að
taka hjartagosa og spila svo
tígulás og tígli yfir á kóng. í
3-2-legunni má trompa hjarta
heim, taka síðasta tígulinn og
spila blindum inn á spaðaás: 12
slagir. En þegar fjórliturinn upp-
lýsist er hjörtum spilað úr borð-
inu og austur er varnarlaus.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti stórmeistarasam-
bandsins í Moskvu í maí kom þessi
staða upp í skák sovézka alþjóða-
meistarans Huzmans (2.475) og
bandaríska stórmeistarans Nicks
deFirmians (2.585), sem hafði
svart og átti leik. Svartur hefur
fórnað skiptamun fyrir sókn og
fann nú laglega leið til sigurs:
24. - %3+! 25. Kal (Auðvitað
ekki 25. bxa3 — Dxc3 og vinnur)
25. - Dxc3! 26. Bcl - Dc2!
(Vinnur skiptamuninn til baka
með léttunnu endatafli) 27.
Dxc2 — Rxc2+ 28. Kbl — Rxel
29. Hxel — Be5 og með peði
yfir og betri vígstöðu vann svartur
endataflið auðveldlega. Moskvu-
mótið var liður í undankeppni
heimsbikarmótanna og deFirmian
var sá eini af þeim sjö keppendum
sem komust áfram, sem ekki var
sovézkur.