Morgunblaðið - 13.10.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.10.1989, Blaðsíða 20
 20 • -MORG«N&iAPiB FÖS'FHOAGOR l 3.-Oí4TÓB£R -1989 - «801 iiMHOTRO ,f.l JlUOACUfraðl QIQ/vÍa/iUOROIÍ MÖRGUNBI .AÖIÖ" KÖSTUDAGtjili~3T ~ORTOBER 1W ö 8. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Arvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Fi árlagafr umvarpið Fyrsta spurningin varðandi fjárlagafrumvarpið fyrir árið 1990, sem lagt var fyrir Alþingi í fyrradag er einfald- lega sú, hversu mikið er á því byggjandi. Sporin hræða í þeim efnum. Fyrir einu ári lagði Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, fram frumvarp til fjárlaga fyrir yfirstandandi ár. Það frumvarp gerði ráð fyr- ir verulegum tekjuafgangi. Þegar komið var fram á mitt sumar blasti við halli á fjárlög- um yfirstandandi árs, sem nemur mörgum milljörðum króna. Það dugar lítt, þótt fjár- málaráðherra geti gefið skýr- ingar á þessum halla. Þær skýringar sýna einungis, að ráðherrann og ríkisstjórnin hafa tekið ákvarðanir, sem engar forsendur voru fyrir í fjárlögum þessa árs. Kannski þarf sérstaka löggjöf til þess að koma í veg fyrir, að ríkis- stjórn geti tekið slíkar ákvarð- anir, sem eiga sér enga stoð í löggjafarstarfi Alþingis. Nú leggur fjármálaráðherra fram frupivarp til fjárlaga fyrir næsta ár, sem gerir ráð fyrir verulegum halla. Ráðherrann réttlætir þennan fyrirsjáanlega hallarekstur með því, að í sam- dráttarástandi eins og nú sé ekki óeðlilegt, að reka ríkissjóð með halla. Jafnframt segir hann, að hallinn verði fjár- magnaður með lántökum inn- anlands en ekki með erlendum lánum. Jafnvel þótt mikill sam- dráttur sé í efnahags- og at- vinnulífi okkar er það engu að síður staðreynd, að of mikil umsvif ríkisins eru einn af helztu þáttunum í efnahags- vanda okkar um þessar mund- ir. Þess vegna er ekki hægt að líta á boðaðan hallarekstur ríkissjóðs, sem eðlilega stefnu í ríkisfjármálum á samdráttar- skeiði, heldur er þessi halli tákn um uppgjöf fjármálaráðherra frammi fyrir þeim viðfangsefn- um, sem hann hefuf tekið að sér. Þar að auki er hægt að ganga út frá því sem vísu, að halli ríkissjóðs á næsta ári verð- ur meiri en fjárlagafrv. gerir ráð fyrir og þar getur munað verulegum fjármunum. Þess vegna er nokkuð víst, að á miðju næsta ári fer fjármála- ráðherra að huga að erlendri lántöku til þess að jafna þann halla af þeirri einföldu ástæðu, að hann mun ekki geta aflað lánsfjár innanlands í þessu skyni. Ríkisstjórnin segist ætla að halda skattbyrði óbreyttri, sem hlutfalli af landsframleiðslu milli áranna 1989 og 1990. Þrátt fyrir þá yfirlýsingu er stefnt að því, að virðisauka- skattur verði 26%. Þá stað- festir ríkisstjórnin þann ásetn- ing sinn að taka upp vaxta- skatt. Eins og aðstæður eru á fjármagnsmarkaðnum hér get- ur sú skattlagning haft alveg ófyrirsjáanlegar afleiðingar í fjármálalífi þjóðarinnar. Þar geta orðið mikil umskipti til hins verra, svo að vægt sé til orða tekið. Þá er augljóst, að ríkisstjórnin stefnir að því að hækka tekjuskatt, þótt látið sé í veðri vaka, að lækka eigi skatta á þeim tekjulægri en hækka á þeim, sem hærri tekj- ur hafa. Hvar á að draga mörk- in? Það liggur auðvitað í augum uppi, að tvö skattþrep í stað- greiðsluskatti munu kalla fram stórfelld skattsvik. Er það eftir- sóknarvert að mati þessarar ríkisstjórnar? Pálmi Jónsson, einn helzti talsmaður Sjálfstæðisflokksins í ríkisfjármálum, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, að fjár- lagafrumvarpið gerði ekki ráð fyrir neinum launahækkunum. Er það til marks um, að ríkis- stjórn verkalýðsflokkanna sé sammála vinnuveitendum um það, að ekki sé grundvöllur til kjarabóta? Auðvitað er enginn grund- völlur fyrir kjarabótum í þessu landi. Hins vegar er ekki ólík- legt, að vinnuveitendur og verkalýður muni sameiginlega gera þá kröfu til ríkisstjórnar- innar, að hún beiti sér fyrir aðgerðum til þess að draga úr hinni gífurlegu kjaraskerðingu, sem orðin er í landinu með því að draga úr skattaáþjáninni í stað þess að auka hana og skera niður útgjöld á móti vegna þess að ekki má auka hallann umfram það, sem ráð- gert er! Hvernig ætlar ríkis- stjórnin að bregðast við slíkri sameiginlegri kröfu? Því miður bendir allt til þess, að hið nýja Ijárlagafrv. Olafs Ragnars Grímssonar sé jafn marklaust plagg og það frum- varp, sem hann lagði fram fyr- ir ári. Það er h.ins vegar ekki sök þessa Ijármálaráðherra eins. Staðreynd er, að ríkis- fjármálin hafa verið stjórnlaus um langt skeið. Þess vegna eru fjármál hins opinbera einn helzti þáttur í efnahagsvanda þjóðarinnar. Amþór EA16 sökk austur af Hvalsnesi Áhöfnin hafði yfírgefið skipið nokkrum klukkustundum áður SÍLDARBÁTURINN Arnþór frá Árskógsströnd sökk 4,5 mílur austur af Hvalsnesi um klukkan 13.00 í gær. Áhöfiiin var þá kom- in um borð í annan síldarbát, Sig- urfara frá Olafsfirði, og var bún ekki í hættu. Arnþór fékk á sig mikla slagsíðu um klukkan eitt í fyrrinótt er verið var að dæla síld um borð úr nótinni. Við tilraun til að keyra bátinn upp, lenti nót- in í skrúfunni og aðalvélin stöðv- aðist. Sigurfari kom til aðstoðar, en vegna mikillar hviku reyndist ekki unnt fyrir hann að leggjast upp að Arnþóri til að dæla úr bátnum með síldardælunni. Var því brugðið á það ráð að taka Arnþór i tog i birtingu og ætlunin var að draga hann upp að landi, jafiivel inn á Berufjörð, þar sem auðveldara yrði að athafina sig. Það tókst ekki og sökk Arnþór eins og fyrr segir upp úr bádeg- inu í gær. Sigurfari kom með áhöfnina af Arnþóri til Reyðarfjarðar í gær- kvöldi. Skipveijar af báðum bátun- um vildu sem minnst tjá sig um atburðinn fyrr en að loknum sjó- prófum, en þau hafa ekki verið haldin enn. Talið er að óhappið hafi vilja til með þeim hætti að skilrúm í lest hafi gefið sig, þegar verið var að dæla síldinni um borð. Við það hafi slagsíðan svo komið á skipið stjórnborðsmegin óg nótin þyngt það að auki. Því brugðu skip- vetjar á það ráð að skera pokann frá til að auðveldara yrði að keyra skipið upp. Nótin lenti þá ú skrúf- unni og aðalvélin drap á sér. Vegna mikillar hviku ákvað áhöfnin á Arn- þóri þá að yfirgefa skipið og fór um borð í Sigurfara. Ekki var talið á það hættandi að Sigurfari legðist að Anrþóri til að dæla úr honum og reyna að halda honum uppi. Það hefði getað valdið miklum skemmd- um á Sigurfara og stefnt bæði skip- vetjum og skipinu í verulega hættu. Vír var settur á milli skipanna og stefnan sett á land. Drátturinn sótt- ist seint enda lá Arnþór nær alveg Björgunarbátriuni af Arnþóri skaut upp örskömmu eftir að hann sökk. Fleiru lauslegu skaut einnig upp og tíndu varðskips- rnenn það saman og komu um borð í Sigurfara. á stjórnborðssíðunni. Ljósavélin í honum gekk lengi vel og báturinn lensaði því, en um háÖegið var hall- inn orðinn það mikill að drapst á ljósavélinni og þá hættu lensidæl- urnar að virka. Við það jókst sjór- inn mjög hratt og skipið seig ört að framan unz það stóð á endann og sökk snögglega um eitt leytið. Björgunarbátnum og ýmsu öðru lauslegu skaut upp skömmu síðar. Skipveijar á Varðskipinu Ægi fóru á gúmmíbátum á staðinn þar, sem báturinn sökk og tíndu saman dótið og settu það um borð í Sigurfara. Þá fór kafari af varðskipinu niður að nótinni af Arnþóri, sem náði upp á 10 metra dýpi, til að skera af henni korkateininn. Það var gert til að koma í veg fyrir að nótin færi í skrúfu annarra skipa, sem ættu leið þarna um. Nákvæm staðsetning á flakinu er 64 gráður, 24 mínútur og 72 sekúndur norðlægrar breidd- ar og 14 gráður, 22 mínútur og 03 sekúndur vestlægrar lengdar. Varðskipið Ægir var á Bakka- flóa, þegar því baðst beiðni um aðstoð um klukkan fjögur í fyrri nótt. Það var komið á staðinn um klukkan 11.30 um morguninn, en þá var orðið ljóst að Arnþóri yrði varla bjargað. Skipherra á Ægi var Höskuldur Skarphéðinsson. Arnþór var 155 tonna stálbátur, smíðaður í Austur-Þýzkalandi 1962 og lengdur 1966. Hann hét áður Valdimar Sveinsson VE. Moi,giinl)laðið/RAX Arnþór að sökkva út af Hvalsnesi. Lengst til vinstri er Hilmir II SU, bakvið Arnþór er varðskipið Ægir Glenmore styrkir íslenskan læknanema JAMES Thompson, forstjóri Gleinnore-vínframleiðslufyrir- tækisins í Louisville í Banda- ríkjunum, aflienti í gær íslenskum læknanema við HI, Magnúsi Karli Magnússyni, rannsóknastyrk fi'á fyriiiæk- inu. Glenmore lieftir ákveðið að styrkja einn Islending til rannsóknastarfa árlega og mun lslensk-ameríska félagið hafa milligöngu um styrkveit- inguna. Styrkurinn er ætlaður til rann- sóknaverkefnis við háskólann í Louisville og er gcrt ráð fyrir að verkefnið taki þrjá mánuði. Styrk- urinn greiðir ferðir og uppihald fyrir Magnús Karl, eiginkonu hans og barn í Bandaríkjunum auk þess sem Glenmore mun bera alian kostnað af rannsóknaverkefninu. Þi'ír aðilar hafa verið skipaðir í nefnd, sem sjá á um að velja ár- lega styrkþega Glenmore. í nefnd- inni eiga sæti prófessör Jónatan Þórmundsson, Höskuldur Jónssón forstjóri ÁTVR og dr. Sigmundur Guðbjarnarson háskólarektur. Að sögn Ólafs Stephensen, formanns Islensk-aineríska félagsins eru styrkir frá Glenmore ekki bundnir eingöngu við læknisfræði. Styrk- þegar geta komið úr hvaða grein- um sem er. Salan á skafmiðum hefiir dregist saman SALA á skafmiðum Happdrættis Háskóla íslands hefur minnkað verulega, eins og fram kom í fréttum úr fjárlagafrumvarpinu, sem Morgunblaðið birti í gær. Morgunblaðið kannaði í gær, hvernig önnur skafmiðahappdrætti hefðu gengið. Meðan hagn- aður af Lukkutríói Landssambands Hjálparsveita skáta skipti tugum milljóna á síðasta ári hefur Fjarkinn, sem sameignarfé- lag Handknattleikssambands íslands og Skáksambands Islands, Mark og mát, gefur út, verið á boðstólnum í rúmt ár og verið rekinn með tapi allan tímann. Eftir nokkurt hlé á útgáfti skaf- miða er Happdrætti DAS að hefja útgáfú nýrra skafmiða í Iok þessa mánaðar. með réttu vinningana, réttu aug- lýsingarnar og sterkt málefni. Það taldi hann þetta happdrætti hafa, en ágóðinn af sölu skafmiðanna rennur til húsbygginga fyrir aldr- aða. Karl sagði að útgáfa á Gullmo- lanum hafi alveg staðið undir sér en afraksturinn þó ekki verið eins mikill og vænst hafði verið. Sala á skafiniðum hefur farið minnkandi að undanfornu. Birgir Ómarsson hjá Lukkutríói sagði að mikill samdráttur hefði verið á sölu miðanna í vor, en nú sé hún komin í jafnvægi. Áður var salan mun sveiflukenndari og á góðum mánuði seldust um helm- ingi fleiri miðar en nú. Að meðal- tali hefur salan dregist saman um þriðjung. „Með því að skipta oft um miða, breyta vinningum og auglýsa þá mikið virðist vera hægt að halda ágætum dampi,“ sagði hann. „Fólk heldur þó að sér höndum nú þegar kreppir að. Við vorum að vonast til að það mundi þá freista gæfunar með því að kaupa svona miða en svo er ekki.“ Jón Hjaltalín Magnússon for- maður Handknattleikssambands Islands sagði að verulega hefði dregið úr sölu Fjarkans á þessu ári, sérstaklega upp á síðkastið. Ástæðuna segir hann þá að fólk venur komur sínar minna en áður í söluturna og þá sölustaði sem eru með skafmiða. „Staða fyrirtækisins Marks og máts er mjög slæm sem stendur og þær vonir sem bundnar voru við skafmiðana hafa ekki ræst. Við höfum frá upphafi sótt um leyfi til dómsmálaráðherra til að I hafa lægsta vinninginn einn skaf- miða. Þessu var hafnað með rök- um sem við eigum erfitt með 'að skilja því við teljum skafmiða vera vöru sem seld er í verslunum. Við fórum aftur fram á þetta í sumar til að geta fjölgað lægstu vinning- um og bætt rekstrarstöðu happ- drættisins. En við höfum ekki fengið svar í tvo mánuði. Það ræðst af því hvort við fáum þessa heimild hvort við höldum áfram með skafmiðahappdrættið," sagði Jón. Pjarkinn hefur verið rekinn í rúmt ár og allan tímann með tapi. Kostnaður við auglýsingar og kynningar hefur verið mun meiri en búist var við og sagði Jón að þeir sem hefðu hagnast mest á Fjarkanum væru auglýsingastofur og fjölmiðlar. Karl Wernersson hjá skafmiða- happdrætti Dvalarheimila aldr- aðra sjómanna sagði að í vor hefði verið hætt að gefa út Gullmolann, en líklega væri hann enn á boð- stólnum á einhveijum sölustöðum. í lok mánaðarins eru nýir skaf- miðar væntanlegir á markaðinn undir nýju nafni. Hann sagðist vera bjartsýnn og sagði að miklu máli skipti að vera AfVopnunarmál: Réttur Varsjárbanda- lagsins til eftirlits á Islandi 1 NÝJU upplýsingabréfi Öryggismálanefndar kemur fram, að viðræður um fækkun í heðbundnum herjum í Evrópu (CFE-viðræðurnar) ná ini bæði yfir orrustuþotur óg kafbátaleitarvélar eins og þær sem varnarlið- ið á Keflavíkurflugvelli hefúr til umráða. Að auki fellst í tillögunum, sem lagðar hafa verið fram um eftirlit, að Varsjárbandalagsríkin fengju rétt til að senda eftirlitsmenn til Keflavíkurstöðvarinnar. Þá er einnig rætt um eftirlitsflug yfir íslandi. Þótt CFE-viðræðui'nar nái nú til orrustuþotna og kafbátaleitarvéla, hefur Atlantshafsbandalagið (NATO) gert uin það tillögu, að ekki verði takmarkaður fjöldi flug- véla sem staðsettar eru í öðrum bandalagsríkjum. Segir. í upplýs- ingabréfi Öryggismálanefndar, að röksemdin sé sú, að það sé ekki hægt þar sem flugvélar séu „hreyf- anleg vopn“. Þetta þýði að tillögur NATO nái ekki til flugvéla í Keflavíkurstöðinni, en um þessi at- riði eigi vitanlega eftir að semja. Flugvélar varnarliðsins séu hins veg- ar svo fáar, að líklegt sé, að fækkun flugvéla samkvæmt CFE-samningi mundi livort eð er ekki ná til þeirra, án þess að það sé þó útilokað. Vélar varnarliðsins muni hins veg- ar vera með í heildartölunum sem um verði samið og samkvæmt tillög- um NATO um eftirlit verði Banda- ríkjamenn að gera grein fyrir þeim orrustuþotum og kafbátaleitai-vél- um, sem séu í stöðinni, staðsetningu þeirra og hvar þær falli inn í skipu- lag Atlantshafsherstjórnar Banda- ríkjanna og Keflavíkurstöðvarinnar. Einnig þyrfti til dæmis að tilkynna í livert sinn sem skipt sé kafbátaleit- arflugsveit í stöðinni, en það er gert á hálfs árs fresti. Þá felst í tillögun- um að Varsjárbandalagsríkin fengju að senda eftirlitsmenn til stöðvarinn- ar til að ganga úr skugga um að upplýsingar væru réttar. Samkvæmt öðrum heimildum Morgunblaðsins en upplýsingabréfi Öryggismálanefndar kemur ísland einnig við sögu varðandi fram- kvæmd Open Sk/es-áætlunarinnar, sem verið er að móta að frumkvæði Bandaríkjamanna. Samkvæmt henni fengju Varsjárbandalagsrikin heim- ild til að fljúga með eftirlitsvélum yfir Island og hefur verið minnst á fjögur slík flug á ári en líklegt er talið að þau kunni að verða tvö. í byijun desember verður ráðstefna um þessa áætlun í Ottawa, höfuð- borg Kanada. Ráðstefíia um Norðurlönd og Evrópubandalagið: Undanþágur mikil- vægar vegna smæðar íslenska hagkerfisins - segir Þorsteinn Ólafsson efnahagsráðgjafí forsætisráðherra ÞORSTEINN Ólafsson efiiahagsráðgjafi forsætisráðherra telur við- kvæmasta pólitíska málið hér á iandi varðandi samstarf við Evrópu- bandalagið (EB) tengjast, frelsi til aðsetursskipta í tengslum við frjálsan fjármagnstilflutning. Kom þetta fram í erindi sem hann flutti á ráðstefnu, sem breska blaðið Financial Times efndi til í Stokk- hólmi 9. og 10. október um Evrópu og Norðurlöndin. Á ráðstefn- unni fiuttu stjórnmálamenn, embættismenn og athafnamenn frá Norðurlöndunum ræður ásamt Denis Healy, fyrrverandi ráðherra Vcrkamannaflokksins í Bretlandi, sem var forseti ráðstefiiunnar, og fulltrúa frá Evrópubandalaginu. í ræðu sinni sagði Þorsteinn Ólafsson, að af eldri og núverandi menningar- og sögulegum ástæð- um og með hliðsjón af pólitískum og efnahagslegum staðreyndum vildu Islendingar semja um nánari samvinnu við Evrópubandalagið, enda hefði það engin áhrif á hin góðu samskipti þeirra við Banda- ríkin. íslendingar fögnuðu gagn- kvæmUm skiptum á vörum, fjár- magni, fólki, vísindalegri þekkingu og tækni, menningarlegum sam- skiptum og fleiru að því tilskildu að tekið væri nægilegt tillit til við- kvæmra mála á tilteknum sviðum og þeirra sérstöku vandamála sem þeim tengjast. Hann sagði að varðandi fijálsan flutning á fólki hefðu íslendingar lýst yfir í könnunarviðræðum EFTA og EB, að sakir smæðar íslenska vinnumarkaðarins þyrftu þeir að komast að sérstöku sam- komulagi við EB til þess að koma í veg fyrir hugsanlega röskun á þeim markaði. Þar hefðu íslending- ar í huga að gera svipað samkomu- lag og við Norðurlöndin, þegar þeir gerðust aðilar að norræna vinnumarkaðnum. Samkvæmt því gætu íslensk yfirvöld í sérstökum tilvikum sett skilyrði til að tak- marka fólksflutninga til landsins. Hann sagði það forsendur fyrir fijálsum flutningi á íjármagns- þjónustu að íslenska bankakerfið yrði endurskipulagt. Nú væri unnið að meiriháttar skipulagsbreytingu á því sviði, þar sem bönkum fækk- aði með samruna. „Þegar banka- kerfið hefur gengið í gegnum þessa þróun og hugsanlega aðrar fjár- málastofnanir einnig, held ég að ísland geti smám saman fagnað fijálsri samkeppni á fjármálaþjón- ustusviðinu. Almennt talað er við- horf okkar á þessu sviði svipað og hinna Norðurlandaþjóðanna," sagði efnahagsráðgjafi forsætis- ráðherra og bætti við: „Viðkvæmasta pólitíska málið innanlands tengist frelsi til aðset- ursskipta í tengslum við fijálsan fjármagnstilflutning. Ástæðan er sú að fullveldi á sviði efnahags- mála og full og óskoruð stjórn á náttúruauðlindum, sem er grund- vallarstefna ríkisstjórnarinnar, get- ur tengst rétti til slíkra tilfærslna. Af þeim sökum er þörf á mikilvæg- um undanþágum fyrir hið litla íslenska hagkerfi á þessu sviði. Sjávarútvegurinn er augljóst dæmi um þetta sakir þess hversu fiskveiðarnar og vinnslan skiptir miklu máli fyrir hagkerfi okkar og efnahagslegt sjálfstæði. Hið sama á við um iðnað sem byggir á hinni náttúruauðlind. landsins. Að þessu frátöldu geta íslendingar sætt sig við fijálsari fjármagnstilflutning almennt talað að því tilskildu að viðunandi aðlögunartími fáist. Við teljum að skoðanir okkar á þessu sviði hafi mætt verulegum skilningi hjá Evrópubandalaginu." I erindi sínu sagði Þorsteinn Ólafsson, að íslendingar væru sér- lega viðkvæmir fyrir yfirþjóðlegum valdastofnunum eins og hann orð- aði það og vísaði þar til Evrópu- bandalagsins. Undir lok ræðu sinnar vék Þor- steinn Ólafsson að ólíkum viðhorf- um íslendinga og EB í fiksveiðimál- um og sagði, að mikilvægasti þátt- urinn í væntanlegum „íslenskum Evrópubandalagspakka" væri sam- komulag og viðunandi lausn í þeim málum. íslendingar gætu ekki látið af hendi nein fiskveiðiréttindi til EB, auk þess sem hér væri um pólitískt grundvallaratriði að ræða sem allir stjórnmálaflokkar á ís- landi væru sammála um: að Island gæti aldrei samið um fiskveiðirétt- indi annarra ríkja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.