Morgunblaðið - 13.10.1989, Blaðsíða 19
M0RGUNBL4ÐIÐ FÖSTUDAGUR 13/OKTÓBER, 19S9
19
EiturlyQastríðið í Kólumbíu:
Leiðtogi Medellin íi’ið-
mælist við stjórnina
Örbylgjuofnaeigendur
Töfrapotturinn
gerir gælumuninn í matreiðslunni
LEIÐTOGI kólumbíska eituiTyQasniyglhringsins Medellin, Pablo
Escabar, hvatti í gær stjórn Kólumbíu til þess að lieíja samningavið-
ræður við eiturlyfjasmyglara landsins. Stjórnin hefur i hyggju að
framselja mann, sem sagður er náinn samstarfsmaður Escabars, til
Bandaríkjanna. Eigandi kólumbísks dagblaðs neitaði i fyrradag að
láta undan hótunum eiturlyfjasmyglara og hætta að gefa blaðið út
í borginni Medellin, helsta aðsetri eituiTyfjakónganna í Kólumbíu. A
þriðjudag voru tveir blaðamanna hans myrtir á götu í borginni.
Escabar hvatti til viðræðnanna í
bréfi, sem sent var til dagblaðs
stjórnarandstöðunnar, La Prensa.
Þar fer hann fram á „beinar viðræð-
ur“ með milligöngu blaðaútgefenda
og katólsku kirkjunnar. Stjórn
landsins hefur hingað til hafnað
slíkum viðræðum við eiturlytja-
kóngana, sem sagt hafa stjórn-
völdum stríð á hendur.
Geimferjan Atlantis:
Kjarnorkuandstæð-
ingar bíða lægri hlut
Waslungton. Reuter.
DÓMARI í Bandaríkjuiium kvað upp þann úrskurð síðastliðinn
þriðjudag að ekkert væri því til fyrirstöðu í lagalegu tilliti að geim-
ferjunni Atlantis, sem ráðgert er að flytji könnunarfarið Galileo,
verði skotið á loft. Kjarnorkuandstæðingar hafa barist gegn því
með oddi og egg að Galileo verði komið á braut umhverfis jörðu.
Þeir telja að gífurleg hætta sé á kjarnorkuslysi fi’á könnunarfarinu
Gaiileo.
Ráðgert var að skjóta Atlantis
á loft á þriðjudag en vegna óvæntr-
ar bilunar í aðalvél geimfeijunnar
var horfið frá geimskotinu í að
minnsta kosti fimm daga.
Könnunarfarinu Galileo, sem
hefur um 24 kg af geisiavirka efn-
inu plútóníum innanborðs, er ætlað
að fljúga einu sinni í kringum
Venus og tvisvar í kringum jörðina
áður en/ ráðgert er að það komi
að Júpíter árið 1995.
Bandaríska ríkisstjórniri hefur
lýst því yfir að stjarnfræðilega litl-
ar líkur séu á því að geislavirkt
plútóníum sleppi úr farinu.
Samtök um frið og réttlæti í
Flórída, sem er hópur kjarnorku-
andstæðinga, hyggjast efna til
mótmæla við skotpallinn á Cana-
veral-höfða þegar geimfeijunni
verður skotið á loft.
í nýjasta hefti bandaríska viku-
ritsins Aviation Week and Space
Technology er því haldið fram að
bilunar hafi orðið vart í njósna-
geivihnetti, sem geimfeijan Col-
umbia flutti á braut umhverfis
jörðu í ágúst síðastliðnum að
beiðni bandarísku leyniþjónustunn-
ar, CIA, og bandaríska flughersins.
Ding-o-málið:
Krefst hárra skaðabóta
vegna fangelsisvistar
Dai*win. Reuter.
LINDY Chamberlain, sem var þrjú ár í fangelsi í Ástralíu eftir
að hafa verið ranglega dæmd fyrir morð á níu vikna gömlu
barni sínu, hefur krafist 5,5 milljóna Ástralíudala (um 260 millj-
óna ísl. kr.) í skaðabætur vegna málsins.
Chamberlain hefur ætíð haldið
því fram að dingo-hundur (villtur
hundur í Ástralíu er líkist úlfi)
hafi tekið barnið úr tjaldi fjöl-
skyldu hennar. Lík barnsins
fannst ,ekki. Chamberlain var
dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir
morð á barninu árið 1982 en var
leyst úr haldi er hún hafði af-
plánað þrjú ár af dómnum. Hafði
þá jakki barnsins fundist og
benti ástand hans til þess að frá-
sögn konunnar væri sönn. Kvik-
myndin „Móðir fyrir rétti" var
byggð á sögu konunnar og var
hún sýnd hér á landi.
Þekktur eiturlyfjasmyglari, Jose
Rafael Abello Silva, var handtekinn
í veitingahúsi í Bogota á þriðjudags-
kvöld. Talið er að Abello stjórni
smygli á skipum frá strönd Karíba-
hafsins til Bándaríkjanna. Birtar
hafa verið ákærur á hendur honum
í Oklahoma-ríki í Bandaríkjunum
fyrir eiturlyfjasmygl.
Luis Cano, eigandi kólumbíska
dagblaðsins Et Espectador, sagði í
fyrradag, að hann ætlaði að gefa
blaðið út áfram í Medellin og hefði
beðið stjórnvöld um aukna gæslu
við skrifstofurnar. Á þriðjudag voru
tveir starfsmenn blaðsins drepnir í
Medellin og samdægurs var hringt
í fréttastofu í Bogota og sagt, að
Cano hefði þrjá daga til að loka
blaðinu. EI Espectador hefur verið
einn af merkisberunum í barát-
tunni gegn eiturlyfjaskelfingunni í
Kólumbíu.
Bush Bandaríkjaforseti hefur
samþykkt að halda fund með leið-
togum Bólivíu, Kólumbíu og Perú
um eiturlyfjavandann og vænlegar
leiðir í baráttunni við hann. Frá
þessum þremur löndum kemur
nærri allt kókaín, sem selt er í
Bandaríkjunum og Evrópu.
í töfrapottinum geturðu matreitt kjúklinga, svína-
kjöt og lambakjöt með góðum árangri í örbylgjuofn-
inum þínum og fengið fallega brúningu á steikina.
Töfrapottarnir fást í þremur stærðum fyrir alla ofna.
Verð kr. 1.425 - kr. 1.865 - kr. 2.390.
íslenskar leiðbeiningar fylgja. {\
Einar Farestveit & Co .hf.
BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NffiG BÍLASTÆOI
ENDURNÝJAÐU NÚNA
NÝTTU ÞÉR KYNNINGARTILBOÐIÐ Á
damixa blöndunartækjunum
m
Útsöluabilar:
<&BYG6INGAVÖRUR
KRÚKHÁLSI 7 - SÍMI 82033
COSMO LINE
Það allra nýjasta í hönnun
20LÍNAN
Sígild og örugg
50 LÍNAN
Best í eingripstækjum
ARCHITECT LINE ►
Stíll og stödugleiki
4 ARCHITECT LINE
Meö útdraganlegum barka
30 LÍNAN
Einföld og ódýr