Morgunblaðið - 13.10.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.10.1989, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1989 ATVIKNUAUGÍ YSINGAR Ólafsvík Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Upplýsingar í síma 91-83033. Afgreiðslu- og sölustarf Sérverslun við Laugaveginn vill ráða tvo starfskrafta strax. Um er að ræða fullt starf frá kl. 10-18.30 og annan hvorn laugardag, og hálft starf frá 13.30-18.30. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: „Sérverslun - 7137“. ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Aðstoðarlæknir við lyflækningadeild Árs staða aðstoðarlæknis við lyflækninga- deild St. Jósefsspítala, Landakoti, er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. janúar 1990. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 1989. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og fyrri störf skal senda til yfirlæknis lyflækn- ingadeildar. Reykjavík, 11. október 1989. Matsveinn Vanur matsveinn óskar eftir plássi á togbát eða nótabát. Upplýsingar í síma 42420 eða 92-37628. Hárgreiðslunemi Hárgreiðslunemi, sem hefur lokið 1. ári, óskar eftir starfi á hárgreiðslustofu sem fyrst. Upplýsingar í síma 78059 eftir kl. 20.00. H j ú kr u na rf ræði ngar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa við sjúkrastöð SÁÁ, Vogi, nú þegar eða eftir samkomulagi. Boðið er upp á skipulagðan aðlögunartíma. Kynnið ykkur aðstæður og þau kjör sem í boði eru. Upplýsingar gefur Jóna Dóra Kristinsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í símum 685973 og 18487. Yfirmatreiðslumaður SÁÁ óskar að ráða yfirmatreiðslumann fyrir mötuneytið á Vogi frá og með 1. desember 1989. Starf: Yfirmatreiðslumaður skipuleggur, ber ábyrgð á og annast starfsemi mötuneytisins. Hefur umsjón með og samræmir störf starfs- manna mötuneytisins og ber ábyrgð á þeim. SÁÁ leitar að matreiðslumanni sem hefur full réttindi fyrir ofangreint starf, ánægju af mann- legum samskiptum, ákveðni og dugnað. Skriflegum umsóknum sé skilað á skrifstofu SÁÁ, Síðumúla 3-5, og er heitið fullum trún- aði við meðferð umsókna. Öllum umsóknum verður svarað. IGJ ?Wi Hjúkrunarfræðingar athugið Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka, Ólafs- firði, auglýsir eftir hjúkrunarforstjóra. Upplýsingar um starfið og starfskjör (hús- næði og fríðindi) veitir forstöðumaður í síma 96-62480 og formaður stjórnar í síma 96-62151. Sölustarf Vegna þess að önnur stúlkan okkar er að fara í skólann vantar okkur eldhressan starfs- kraft til að selja góða og þekkta vöru í bóka- búðir, blómabúðiro.fl. á Reykjavíkursvæðinu. Selt er eftir góðu og reyndu kerfi. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,, merktar: „Sölustarf - 7138“. Starf bæjarritara Blönduóss Laust er til umsóknar nú þegar starf bæjarrit- ara Blönduóss. Leitað er eftir áhugasömum starfsmanni með góða bókhaldsþekkingu. Góð laun og húsnæði. Umsóknarfrestur um starfið er til 25. október. Upplýsingar um starfið veita forseti bæjar- stjórnar, Hilmar Kristjánsson, vs. 95-24123, hs. 95-24311 og bæjarstjóri, Ófeigur Gests- son, vs. 95-24181, hs. 95-24031. Bæjarstjóri. TIL SÖLU Til sölu Baader 189 í góðu ásigkomulagi. Eingöngu aðilar með tryggar greiðslur koma til greina. Upplýsingar í síma 91-626630. ÞJÓNUSTA Lekur? Tökum að okkur alhliða húsaviðgerðir. Föst tilboð. Upplýsingar í síma 620082 og 25658. Fyrirtæki og þjónustustofnanir Erum að fara í dreifingarherferð á öllu Reykjavíkur- og Suðurnesjasvæðinu með auglýsingabæklinga og tímarit. Getum bætt við okkur; fast verð. Vinsamlegast hafið samband við Magnús eða Hallgrím í síma 641735 eða 669704. BÁTAR — SKIP Kvóti Okkur vantar þorsk- og/eða grálúðukvóta fyrir togarann Hólmadrang. Greiðum besta verð. Seljendur, sem hafa áhuga, vinsamlegast hafið samband í símum 95-13209, 95-13203 og 95-13308. Hólmadrangur hf. FUNDIR - MANNFAGNAÐUR Landssamtökin Þroskahjálp - Öryrkjabandalag íslands Fundur landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags íslands verður haldinn 13. og 14. október 1989 í Borgartúni 6. Dagskrá: Föstudagur 13.10: Setning Kl. 20.30: Setning: Menntamálaráðherra, Svavar Gestsson. Ávörp: Ásta B. Þorsteinsdóttir, formaður Þroskahjálpar, Arnþór Helgason, form- aður Öryrkjabandalagsins. Tónlist á milli atriða. Veitingar. Laugardagur 14.10. Sameiginlegur fundur Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags ís- lands. Kl. 9.00- 9.15: Fundarsetning. Kl. 9.15-10.00: Erindi: Réttaröryggi og rétt- indagæsla. Jóhann Guðmundsson, Sverrir Bergmann. Kl. 10.00-10.20: Kaffihlé. Kl. 10.20-10.40: Erindi: Siðfræði; Rétturinn til lífsins. Páll Skúlason. Kl. 10.40-11.10: Erindi: Áhrif og réttur til sjálfsákvörðunar. Gísli Theódórsson, Gísli Helgason. Kl. 11.10-11.40: Erindi: Fjölskyldur ungra barna. Dóra S. Bjarnason. Kl. 11.40-13.00: Matarhlé. Kl. 13.00-13.30: Erindi: Lágmarkskröfur í húnæðismálum. Eggert Jóhannesson. húsnæðismál fatlaðra. Ólöf Ríkharðs- dóttir. Kl. 13.30-15.00: Umræðuhópar. M.a. veður fjallað um framsöguerindi fundarins og önnur þau efn,i sem tengja samtökin. Kl. 15.00-15.20: Kaffihlé. Kl. 15.20-17.00: Niðurstöður umræðu- hópa. Umræður og ályktanir. Kl. 17.00. Fundarslit. Landssamtökin Þroskahjálp, Öryrkjabandalag íslands. TILKYNNINGAR Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi söluskatts fyrir septemþermán- uð er 15. október. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið, 13. október 1989. SAMBAND ISLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Samband íslenskra kristniboðsfélaga Dregið hefur verið í byggingarhappdrætti SÍK. Vinningar hafa komið á eftirtalin núm- er: 782 - 781 - 804 - 538 - 905 - 1489. Nánari upplýsingar á skrifstofu KFUM og KFUK í síma 17536.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.